Morgunblaðið - 16.09.1980, Side 46
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1980
Fólk og fréttir í máli og myndum
• Yfir skal ég, hann lét engan bilbug á sér finna þessi keppandi i hindrunarhlaupi úldunga á
HM-keppninni i Finnlandi i sumar. Og þrátt fyrir að vatnsgryfjan væri erfið þá komst hann alla leið.
AUSTURRÍKISMAÐURINN Her-
bert Prohaska hefur heldur betur
komið ár sinni fyrir borð hjá hinu
nýja félagi sínu Inter Mílanó.
Þegar hafa verið stofnaðir fimm
aðdáendaklúbbar honum til heið-
urs og hann þakkaði fyrir sig með
því að skora þrennu í sínum fyrsta
opinbera leik með Inter, vináttu-
leik gegn liði úr 2. deild.
PÓLSKA ungiingalandsliðið var í
keppnisferð í Hvidövre eigi alls
fyrir löngu. Þar notaði Joachim
Hudka, tvítugur knattspyrnumað-
ur frá Gornik Zabreska tækifærið,
stakk af og bað um hæli sem
pólitískur flóttamaður.
ENSKU knattspyrnufélögin leita
nú logandi ljósum að ódýrum
leikmönnum hjá erlendum liðum.
Þeir eru vandfundnir, því þeir
verða að hafa leikið mað landslið-
um til þess að teljast gjaldgengir í
ensku knattspyrnuna. Birming-
ham er nú að gera hosur sínar
grænar fyrir hollenska unglinga-
landsliðsmanninum Toeni Van
Mierlo hjá Willem 2. Fyrir nokkru
hætti Birmingham tilraunum sín-
um til þess að tæla til sín Dusan
Nikolic frá Rauðu Stjörnunni. Þá
má geta þess, að Swansea í 2. deild
hefur áhuga á öðrum júgóslavn-
eskum landsliðsmanni, Dzemal
Hadziabdic.
ALLTAF eru einhverjar hrær-
ingar hjá Nottingham Forest. Nú
segja slúðurkóngar að Brjánn
Clough hafi í hyggju að kaupa enn
einn framherjann. Ýtir það undir
vangaveltur manna um að framtíð
Trevor Francis hjá félaginu sé allt
annað en trygg. Nöfn hafa ekki
verið nefnd, önnur en þeirra
leikmanna Forest sem stendur til
að selja til þess að félagið eigi
aura fyrir nýja leikmanninum.
Það eru þeir John O’Hare og
David Needham, og hugsanlega
fleiri.
Handboltinn byrjar
með Reykjavíkurmóti
REYKJAVÍKURMÓTIÐ í handknattleik hefst á morgun, og verður
mótið keyrt i gegn af miklum krafti áður en landsleikirnir við
Norðmenn fara fram 27.-28. sept. Hér að neðan má sjá riðlaskipting-
una og leikdagana í mótinu.
A-riðill
Víkingur
Ármann
Riðlakeppnin:
Miðvikudagur 17. sept.
Fimmtudagur 18. sept.
Föstudagur 19. sept.
Laugardagur 20. sept.
Tvö efstu lið úr hvorum riðli
fara í úrslitakeppni um 1,—4.
sætið og keppa sem hér segir:
Sunnudagur 21. sept. kl. 19.00 1A
- 2B, kl. 20.15 2A - 1B.
B-riðill
Valur
Fram
Þróttur
Fylkir
kl. 19.00 Ármann — Víkingur
kl. 20.15 ÍR - KR
kl. 21.30 Fylkir - Valur
kl. 19.00 Víkingur - ÍR
kl. 20.15 KR — Ármann
kl. 21.30 bróttur — Fram
kl. 19.00 Valur — Þróttur
kl. 20.15 Fram - Fylkir
kl. 21.30 ÍR — Ármann
kl. 14.00 Fylkir - Þróttur
kl. 15.15 Fram — Valur
kl. 16.30 KR - Vikingur
Þriðjudagur 23. sept. kl. 20.00 1B
- 2B, kl. 21.15 2A - 1A.
Fimmtudagur 25. sept. kl. 20.00 2B
- 2A, kl. 21.15 1A - 1B.
• Sænski tenniskappinn Björn
Borg er þekktur fyrir að sýna
aldrei svipbrigði á leikvelli. Hér
að ofan má þó sjá að eitthvað
hefur skeð. Kappinn bitur fast i
spaðann. Hann hefur varla verið
svangur.
• Hinn snjalli knattspyrnumað-
ur hjá Hamborg S.V., Jimmy
Hartvig, meiddi sig illa á siðasta
keppnistimabili, en er nú kominn
i slaginn aftur á fullri ferð.
Jimmy notaði tímann vel á með-
an hann var frá knattspyrnuiðk-
un. Hann söng inn á hljómplötu
sem bar nafnið „Calypso Mama“
og seldist hún i sjötiu þúsund
eintökum. þá söng hann i söng-
leiknum Hárið við góðar undir-
tektir. Á efri myndinni má sjá
kappann fremst fyrir miðri
mynd i söngleiknum, en á þeirri
neðri eins og flestir kannast við
hann á knattspyrnuvellinum.
• Bilaiþróttir eiga vaxandi vin-
sældum að fagna um viða veröld.
Bilaáhugamenn eru jafnan iðnir
við að breyta og betrumbæta bila
sína. Og hér að neðan sjáum við
Jaguar XJS sex hjóla og i nýjum
búningi eftir róttækar breyt-
ingar. Eigandi bilsins segir þetta
vera draumavagn og að hann sé
ekki falur fyrir nokkurt fé.
íris bætti met
í spjótkastinu
ÍRIS Grönfeldt, friálsíþrótta-
kona úr UMSB, bætti Islandsmet-
ið i spjótkasti hressilega á innan-
félagsmóti ÍR i Laugardal i
fyrrakvöld. Kastaði íris 46.52
metra. en gamla metið, sem hún
setti í Kópavogi fyrir rösku ári,
var 44,94 metrar.
Á mótinu setti sveit ungra
stúlkna úr Ármanni nýtt met i
4x200 m boðhlaupi i aldursflokki
telpna og meyja. Sveitin hljóp á
1:50,1 minútu og bætti eldra
metið um rúma sekúndu.
Guðrún Ingólfsdóttir, Á,
kastaði kringlu á mótinu 44,62
metra. Á morgun, sunnudag,
verða IR-ingar með innanfélags-
mót í kastgreinum.