Morgunblaðið - 16.09.1980, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1980
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 13—14
FRÁ MÁNUDEGI
hraðans, sem eðlisfræðin talar
um. Hvort tveggja þetta hygg ég I
vera hárétt athugað, svo langt
sem það nær. En diskarnir sjást,
eftir sem áður, og hvers vegna þá
ekki að nefna þá skýringu sem
nærtækust er, og margir íslend-
ingar aðhyllast og ýmsir aðrir. Ég
á ekki að þurfa að hafa hér mörg
orð um, en minni á fjarflutninga
efnis og annað, sem minnzt var á,
á fyrirburðarráðstefnunni þarna
upp í Háskóla um daginn. Tel ég
víst að Arni Tr. Guðmundsson
vilji gera grein fyrir afstöðu sinni
til þessarar skýringar í næsta
útvarpserindi sínu eða á annan
hátt.
Lífið alheims-
fyrirbæri
Um rök fyrir því, að lífið hér á
jörð sé þáttur í alheimslífi, en ekki
einstakt, tilviljunarkennt fyrir-
bæri á smáhnetti, er það annars
að segja, að andmælin gegn þessu
hafa alltaf í byrjun komið frá
þeim, sem ekki voru náttúrufræði-
lega hugsandi: flatjörðungum,
jarðmiðjungum (flat-earthers,
geocentrics) og slíkum. En eftir að
lífefnafræðingar fóru að líta á
kviknun lífsins sem eðlilega þróun
efnisins, en ekki sem afkvæmi
tilviljunar hefur yfirleitt þótt
sjálfsagt mál, að lífið væri al-
heimsfyrirbæri. Má segja að þetta
tvennt beri að sama brunni: efna-
fræðina annars vegar og hins
vegar þessar milljónir flugdiska-
sýna. En þó munu þessir endar
athugana og ályktana aldrei ná
fyllilega saman, fyrr en mönnum
hefur lærzt að hugsa um hlutina í
samhengi, og skilja samband
þeirra við þessar náttlegu fjarsýn-
ir, sem menn nefna drauma.
Þorsteinn Guðjónsson.
Þessir hringdu . . .
• Ótrúlegt
gáleysi
Skjálfrödduð kona hringdi
og kvaðst hafa orðið vitni að
ótrúlegu gáleysi móður sem ók ein
í bíl með tvö lítil börn sín, u.þ.b.
eins og tveggja ára. Konan lagði
bíl sínum skammt frá verslun úti
á Nesi, yfirgaf hann og skildi
börnin ein eftir. Eldra barnið hóf
nú að þeyta ákaflega flautu bílsins
og fikta í hinum ýmsu tökkum og
tækjum. A þessu gekk þangað til
móðir þess kom aftur út í bílinn og
má kalla það Guðs mildi að ekki
skyldi verða þarna meiri háttar
slys. En ekki er öll sagan sögð:
Þegar konan sest inn í bílinn aftur
eftir verslunarferðina, tekur hún
yngra barnið, setur það í kjöltu
sér og ekur af stað í fússi — með
eldra barnið sér við hlið. Ég neld
naumast að lengra verði gengið í
því að þverbrjóta allar varúðar-
reglur af eintómu og ótrúlegu
gáleysi.
• Leggjabrjótur —
ekki Bankastræti
Vegfarandi hafði samband
við Velvakanda og kvaðst vona að
vinstri stjórnarmeirihlutinn væri
ekki svo upptekinn við félagsmála-
SKÁK
Umsjón: Margeir Pétursson
Á IBM skákmótinu í Amster-
dam í fyrra, kom þessi staða upp í
skák þeirra Ree, Hollandi, og
Júgóslavans Sahovié, sem hafði
svart og átti leik.
27.... Rxg2! (Nú gengur 28. Kxg2
ekki vegna 28. ... Hxe5!, 29. fxe5
— Df3+, 30. Kgl - Ddl+, 31. Kg2
— Hg6+. Hvítur sætti sig því við
peðstapið og reyndi:) 28. Hac7 —
Rhl. 29. f4 - De4, 30. Hc8 -
Hfe6, 31. Hxe8+ - Hxe8, 32. He2
— Ha8, og svartur vann.
pakkann, að hann gæfi sér ekki
tíma til að kíkja á gangstéttina
við Bankastrætið, stjórnarráðs-
megin. — Þarna dugir ekkert
annað en að fara fetið, en kútvelt-
ast ella. Ég er farinn að kalla
Bankastrætið Leggjabrjót á þess-
um slóðum. Gangstéttarhellurnar
eru svo slitnar og úr lagi færðar,
að stórhættulegt er að fara þarna
um, sérstaklega fyrir roskið og ég
tala ekki um aldrað fólk.
1 V
mmmmm
HÖGNI HREKKVISI
„ ■ • Jh - hr.'olafor .. MIA ; • "
TIL AÐTALA \/*£ (j>A LAUWABÆ/OCLIN. "
Félagsfundur —
kvikmyndasýning
Skyrslutæknifélag íslands efnir til félagsfundar og
kvikmyndasýningar í Regnboganum, sal C, aö
Hverfisgötu 54. Fundurinn hefst kl. 13, miövikudag-
inn 17. september 1980.
Dagskrá:
1. Fundarsetning. Dr. Jón Þór Þórhallsson, formaöur Skýrslu-
tæknifélagsins.
2. Kevin R. Batchelor, sem er sérfræóingur frá endurskoöunarfyr-
irtækinu Alexander Grant & Co. í Bandaríkjunum, mun kynna
efni kvikmyndar þeirra er sýnd veröur. Kvikmyndin er leikin, en
byggir á sannsögulegum viöburöum, þ.e. fjármálahneyksli, sem
varö í bandarísku tryggingafyrirtæki. Aöalástæöur fyrir þessu
hneyksli voru misnotkun gagna og skortur á eftirliti og stjórn á
tölvuvinnslu fyrirtækisins.
3. Kvikmyndasýning: „The Billion Dollar Bubble“ on the Equity
Funding Scandal.
I Kevin R. Batchelor mun kynna endurtekiö námskeiö um
endurskoöun tölvukerfa, sem áætlaö er aö halda á vegum
Stjórnunarfélags íslands og Skýrslutæknifélagsins, í fyrri hluta
nóvembermánaöar n.k.
Félagsmenn Skýrslutæknifélagsins eru vinsamlegast beönir aó
athuga, aö þessi fundur er vegna tímaskorts ekki boðaður á
heföbundinn hátt í félagsbréfi.
Stjórn Skýrslutæknifélags íslands.
n
BON
skólinn
Septembernámskeiðin
fullsetin.
Hægt er aö bæta viö nokkrum
nemendum í næstu námskeiö
sem hefjast 6. október nk.
Innritun og upplýsingar í síma
38126 milli kl. 5 og 6 næstu daga.
Hanna Frímannsdóttir
CÆOfl TÓNUST KREFST CÆOa
TÓNBANDS
! Láttu ekki tilviljun
ráða þegar þú
kaupir kassettu,
spurðu um ampex.
Það er ekki tilviljun að við hljóðritun nota
flestir fagmenn ampex tónbönd. Tóngaeði
við hljóðblöndun og afspilun eru helstu
yfirburðir ampex tónbanda í samanburði
við önnur tónbönd.
Leggðu við eyrun, heyrðu muninn, reyndu
AMPEX.
Dreifing:
SJíjííAní simi 29575 Reykjavík
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU