Morgunblaðið - 16.09.1980, Side 39
I stuttu máli
Blaðamenn
í verkfalli
London. 15. september. — AP.
BLAÐAMENN hjá 33 viku-
blöðum sem gefin eru út í
London fóru í verkfall í dag.
Vilja þeir hærri laun vegna
þess hve framfærslukostnað-
urinn er hár í höfuðborginni.
Félag blaðamanna á Bret-
landseyjum sagði í dag að
blaðamennirnir færu fram á
20 punda hækkun á vikulaun-
um sem nú eru um 122 pund.
(20 pund eru u.þ.b. 24.000 ísl.
kr. og 122 pund eru um
147.000 ísl. kr.)
Hryðjuverka-
menn á Spáni
myrtu 131 mann
á sl. ári
Madrid, 15. september. — AP.
HRYÐJUVERKAMENN á
Spáni myrtu 131 mann á sl.
ári og særðu 202 illilega, að
því er fram kemur í skýrslu
saksóknara spánska ríkisins.
í skýrslunni kemur það
einnig fram að flest hryðju-
verkanna voru framin af
frelsissamtökum Baska, ETA
og Grapo.
Ekkjan erfir
auðinn
London. 15. aeptember. — AP.
LYNNE Fredrick, ekkja gam-
anleikarans fræga Peter Sell-
ers, sagði í samtali við breska
blaðið Sunday Mirror að hún
hefði erft mestan hluta fjár-
muna Sellers, eða um 2,25
milljónir punda. Sellers mun
hafa breytt erfðaskránni
skömmu áður en hann dó en
Lynne sagðist ekki hafa haft
hugmynd um það fyrirfram
hvað í henni stóð. Var áður
búist við þvi að Hjartavernd-
arsamtök Bretlands erfðu
mestan hluta eigna leikarans.
Gromyko
til Kúbu
Moskvu. 15. septeralx'r. — AP.
UTANRÍKISRÁÐHERRA
Sovétríkjanna, Andrei A.
Gromyko, fór frá Moskvu í
dag í opinbera heimsókn til
Kúbu, að sögn Tass-frétta-
stofunnar.
Breskrar
freigátu
saknað
Tokyo, 15. september. — AP.
BRESKRAR freigátu, með 48
mönnum, hefur verið saknað
í u.þ.b. viku. Var hún á
sigiingu um 300 mílur út af
strönd Japans er siðast
heyrðist til hennar. Japönsk
flugvél fann í dag olíubrák á
þessu svæði. Rannsóknar-
flokkur er á leið á staðinn til
að athuga hvort olían er úr
freigátunni.
Sovétmenn
sprengja
neðanjarðar
Stokkhólmi. 15. september. — AP.
SOVÉTMENN sprengdu
kjarnorkusprengju neðan-
jarðar sl. sunnudag, þá
stærstu til þessa. Að sögn
sænskra jarðskjálftafræð-
inga var styrkur hennar til
jafns við mestu jarðskjálfta.
Kjarnorkusprengjan var
sprengd í Síberíu og komu
jarðhræringar fram á
jarðskjálftamælum í Hagfors
og Uppsölum. Var styrkur
skjálftans um 6,9 stig á
Richters-kvarða.
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1980
47
Hriktir í stjórnarsam-
starfinu í Færeyjum
Frá Jógvani Aarge fréttaritara Mbl.
í Færeyjum 15. september.
SAMSTARF stjórnarflokkanna i
Færeyjum, Jafnaðarmanna-
flokksins, Lýðvcldisflokksins og
Fólkaflokksins virðist vera runn-
ið út i sandinn og kosningar til
lögþingsins á næsta leyti.
Landsstjórn Fólkaflokksins
hélt sl. föstudag fund þar sem
ákveðið var að styðja þingflokk-
inn sem telur að grundvöllur til
stjúrnarsamstarfsins sé brostinn.
Ágreiningurinn er um það hvort
bílferjan Smyrill eigi að sigla milli
landa allt árið eða aðeins yfir
sumartímann. Landsstjórnin ákv-
að, með meiri hluta atkvæða, að
Smyrill skuli sigla til Skotlands,
Danmerkur og Noregs frá 30.
september nk. og var áætlun skips-
ins auglýst í blöðum í Færeyjum
sl. föstudag.
Fólkaflokkurinn telur að vetrar-
siglingin muni ekki standa undir
kostnaði og vill að landsstjórnin
breyti fyrri ákvörðun sinni þar að
lútandi. Formaður Fólkaflokksins,
Jógvan Sundstein, hefur beðið lög-
manninn að kalla saman Lögþing-
ið. Fólkaflokkurinn mun greiða
atkvæði gegn vetrarsiglingu Smyr-
ils á þinginu.
Sundstein sagði einnig að Fólka-
flokkurinn myndi beita sér fyrir
því að tillaga um nýjar kosningar
verði samþykkt, verði hún borin
upp á þinginu.
Lögmaðurinn, Atli Dam, vill
ekkert um málið segja en segist
munu taka sjónarmið Fólkaflokks-
ins til athugunar. Formaður Lýð-
veldisflokksins, Erlendur Paturs-
son segir ekkert í vegi fyrir því að
Fólkaflokkurinn hverfi úr stjórn-
inni.
ERLENT
vísað úr landi í Svíþjóð
69 Líbönum
Mokkhólmi. 15. sept. — AP.
SÆNSKA lögreglan visaðl í dag
úr landi 69 Libönum. sem komið
höfðu til Svíþjóðar með fölsk
vegabréf og atvinnuleyfi. 26 börn
voru i hópnum. Libanarnir voru
settir nauðugir viljugir um borð í
flugvél á Arlanda-flugvelli baðan
sem flogið var með þá til Libanon.
Haft var eftir sænskum lögreglu-
foringja, að Líbanarnir hefðu allir
sagst vera í Svíþjóð af pólitískum
ástæðum. Sænsk yfirvöld hefðu þó
ekki talið ókyrrðina í Líbanon
næora ástæðu enda væru þeir ekki
ofsóttir af pólitiskum ástæðum.
200 Líbanir hafa til þessa reynt
að komast til Svíþjóðar á fölskum
skilríkjum og vegabréfum sem þeir
hafa greitt of fjár fyrir í Beirut.
Um 50 eru enn í Svíþjóð meðan
verið er að rannsaka mál beirra.
Reagan og
Carter standa
jafnir að vígi
WashinKton. 15. scpt. — AP.
JIMMY Carter forseti og Ronald
Reagan standa jafnt að vigi sem
stendur i haráttunni um forseta-
embættið en meginstyrkur Carters
er í Suðurrikjunum. betta er niður-
staða könnunar. sem stórblaðið
Washington Post efndi til.
I könnuninni, sem birt var í gær,
voru 1755 manns spurðir og fengu
þeir Carter og Reagan fylgi 37%
hvor. John Anderson, sem býður sig
fram utan flokka, hlaut 13% og
önnur 13% voru óákveðin. Fram
kom, að Carter nýtur mests fylgis í
Suðurríkjunum en Reagan er aftur á
móti sterkari í öðrum héruðum.
The Washington Post spáði því, að
Carter gæti unnið kosningarnar í
nóvember ef batinn í efnahagslífinu
héldi áfram og lítill hluti stuðnings-
manna annarra frambjóðenda kæm-
ist að þeirri niðurstöðu, að Carter
ætti að njóta bess.