Morgunblaðið - 16.09.1980, Blaðsíða 40
^Síminn á afgreiðslunni er
83033
JW*r0\inbln6ib
Þak-
gluggar
#Nýborgr
Armúla 23 — Sími 86755
ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1980
Umferð Flugleiða á síðasta ári:
Skilaði 9 milljörð-
um í rekstur í Lux.
UMFERÐ FluKlcirta skilaði 500
milljónum franka eóa um 9 millj-
nróum islenzkra króna i rekstur í
I.uxembort; á síóasta ári, að því er
fram kemur í viðtali við Einar
Aakrann. sölustjóra Flunleiða i
LuxemhorK. sem birt er á miðopnu
hlaðsins í da«. Til viðhótar má
nefna. að Flutfleiðir kaupa elds-
neyti fyrir um 100 milljónir franka
I Luxemborif.
Einar segir, að rekstur Flugleiða
varði þúsundir manna í Luxemborg
og t.d. muni hótelrekstur dragast
saman um 20% ef flug Flugleiða
fellur niður. Fram kemur í viðtal-
inu, að stjórnvöld í Luxemborg eru
jákvæð hvað varðar Atlantshafs-
flugið. Hins vegar segir Einar, að
það hafi verið neikvætt að íslenzk
stjórnvöld hafi ekki getað ákveðið
hvað þau vilja gera í málinu.
Deilan um röðun starfshcita í launaflokka:
Samkoniuþig lóksj
milli VMSI og VSI
SAMKOMULAG náðist I gærkveldi
milli Verkamannasamhands Íslands
og Vinnuveitendasamhands íslands
um röðun starfa i launaflokka í
samræmdum kjarnasamningi. Sam-
komulagið var gert með fyrirvara
um samþykki framkvæmdastjórnar
VSÍ og 11-manna nefndar ASÍ.
Samkomulagið máir m.a. út þann
launataxtamismun. sem myndaðist í
fyrra milli VMSÍ og Verzlunar-
mannafélags Reykjavikur í einstök-
um starfsheitum. er kjaradómur féll
i máli VR gegn Kjararáði verzlunar-
innar.
Vegna þessarar röðunar starfs-
heita í launaflokka milli VMSÍ og
VSÍ hefur verið fundað alla helgina
og i allan gærdag. Verkamannasam-
bandið var það landssambanda innan
ASÍ, sem skemmzt var á veg komið
með röðun í launaflokka og því
afhenti sáttanefnd aðilum á föstudag
innanhússtillögu, sem kom málinu
aftur af stað, en upp úr viðræðum
slitnaði rétt fyrir síöustu mánaða-
mót. Samkomulagið eyðir eins og
áður segir mismun milli félaga Dags-
brúnar og VR, en vægi þess mun í
heild ekki vera mikið með tilliti til
heildarsamkomulags ASl og VSÍ.
Aðilar hafa verið boðaðir til nýs
sáttafundar árdegis í dag klukkari
09,30. Þá mun 14-manna nefnd ASÍ
koma saman í Borgartúni 22 og síðan
verður haldið áfram að ræða við
önnur landssambönd innan ASÍ. Var
í gærkveldi búizt við, að Landssam-
band iðnverkafólks yrði næst, en ef
til vill getur sá fundur þó ekki hafizt
fyrr en undir hádegi, þar sem
samningamenn frá Akureyri komast
ekki fyrr til sáttafundar.
Þótt samkomulag hafi tekizt um
röðun í launaflokka við VMSÍ, er enn
eftir að semja um slíka röðun við
önnur landssambönd. Þá er og eftir
að semja um kauphækkunina og
verðbótakerfið, þar sem ASÍ krefst
gólfs og þaks, en vinnuveitendur vilja
hlutfallslegar verðbætur á öll laun.
Grindvíkingar á síld-
veiðum við bæjardyrnar
Sjómenn á smábátum hafa undanfarið komið að landi með stóra og
fallega síld, sem þeir hafa veitt grunnt með landinu við Hópsnes.
Bátarnir hafa verið með 3—6 lagnet og hafa fengið 2—4 tunnur í net.
Þetta er í fyrsta skipti, sem vart verður veiðanlegrar síldar svo grunnt
síðan á reknetaárunum. Þykir mönnum þetta lofa góðu og þakka
verndun síldarstofna. Myndin er tekin á bryggjunni nýlega og eins og sjá
má hjálpast menn að. ' Guðfinnur. Grindavík.
Ók vélhjóli
aftan á vöru-
bíl og lézt
Björk. Mývatnssveit, 15. september.
DAUÐASLYS varð hér í umferðinni
rétt fyrir klukkan 8 i morgun. 18
ára piltur á vélhjóli ók aftan á
kyrrstæðan vörubil og mun hafa
látist samstundis.
Pilturinn var á leið í vinnu og var
næstum kominn á leiðarenda þegar
þessi hörmulegi atburður átti sér
stað. Talið er að sólin hafi algjörlega
blindað hann og hann því ekki séð
vörubílinn fyrr en um seinan. Slysið
varð á þjóðveginum skammt frá
verkstæði Smyrils milli Reykjahlíðar
og Kísiliðjunnar. Drengurinn átti
heima í Mývatnssveit, en að svo
stöddu er ekki hægt að greina frá
nafni hans.
— Fréttaritari.
Ákærður fyrir
þukl
TÆPLEGA fertugur karlmaður
var handtekinn i Breiðholti i
fyrradag ákærður fyrir að
þukla á ungri stúlku. Að sögn
Þóris Oddssonar. vararann-
sóknarlögreglustjóra ríkisins
var maðurinn dæmdur í gæzlu-
varðhald til 8. október nk. og
gert að sæta geðrannsókn.
Þórir sagði, að maðurinn hefði
áður komizt í tæri við lögin fyrir
sömu sakir, eða fyrir tveimur
árum. Þórir gat þess, að maður-
inn hefði ekki áynt neina tilburði
til að nauðga stúlkunni, hefði
aðeins farið um hana höndum.
Steingrimur Hermannsson samgönguráðherra:
Falliim frá hugmyndum
um stof nun nýs f élags
„EFTIR þessar viðra-ður um
belgina við starfsmenn, stjórn-
armenn og stærstu hluthafa
Flugleiða er ég heldur fallinn frá
þeirri hugmynd að stofnað verði
sérstakt flugfélag um Atlants-
hafsflugið. en legg hins vegar til
Ríkið veiti Flug-
leiðum baktrygg-
ingu til
Atlantshafsflugs
að ríkið veiti áframhaldandi Atl-
antshafsflugi Flugleiða þriggja
milljarða baktryggingu á ári i
þrjú ár. Þetta er jafnvirði um
eins og hálfs milljarðs á ári eða
álíka og þær beinu tekjur, sem
ríkið myndi missa, ef Atlants-
Klifu Norðvesturvegg Skessuhorns fyrstir manna:
„Léttara heldur
en við ímynduðum
okkur fyrirfram“
„KLIFRIÐ gekk mjög vel og leiðin var nokkuð léttari hcldur en við
höfðu ímyndað okkur fyrirfram,“ sagði Snævarr Guðmundsson,
ungur félagi í íslenzka Alpaklúbhnum, í samtali við Morgunblaðið,
en hann ásamt félaga sínum. Jóni Geirssyni, vann það afrek sl.
laugardag að klífa norðvesturvegg Skessuhorns í Skarðsheiði
norðanverðri, fyrstur manna. Nokkrar tilraunir hafa verið gerðar
að undanförnu, en menn jafnan þurft að snúa við.
v-. r,-r
Norðvesturveggur Skessuhorns í Skarðsheiði. Félagarnir klifu
vegginn nokkurn veginn fyrir miðju hans.
„Við vorum komnir undir
vegginn rúmlega ellefu og héld-
um strax af stað. Fyrsti áfangi
gekk mjög vel og við vorum
nokkuð hissa á því hversu bergið
var furðu fast í sér, þ.e. að
þokkalegar festur fengust. Við
héldum áfram á fullri ferð og
fyrsta verulega hindrunin var
um miðjan vegg í einu kletta-
beltanna. Þar var bergið mjög
laust og lítið um tryggingar, en
það hafðist nú allt saman.
Áfram var haldið og einu vand-
ræðin eftir þetta voru í efstu
beltunum, en þar fengust nær
engar tryggingar. Nú, á tindinn
komumst við svo um sjö tímum
eftir að við lögðum upp við rætur
veggsins.
Við höfðum gert ráð fyrir því,
að þurfa að sofa í miðjum
veggnum, og vorum með nauð-
synlegan búnað fyrir slíkt, og í
heild vógu bakpokarnir liðlega
15 kíló hjá hvorum okkar," sagði
Snævarr.
Hvaða tæknilegan búnað not-
uðust þið við á leiðinni upp? —
„Við vorum auðvitað með líflínu
milli okkar. Þá notuðum við
jöfnum höndum fleiga og svo-
kallaðar hnetur til að tryggja
okkur í bergið. Fleigarnir eru
barðir inn í sprungur, en hnet-
unum er smeygt inn í sprung-
urnar, en fleigarnir og hneturn-
ar eru tengdar við líflínuna með
svokölluðum öryggislásum. Þá
vorum við auðvitað með öryggis-
hjálma á höfði," sagði Snævarr
ennfremur.
Þá sagði Snævarr aðspurður,
að hann og Jón hefðu klifrað
nokkuð saman í sumar, sérstak-
lega í klettum, en þeir hefðu
þekkzt í nokkur ár, enda báðir
starfandi innan íslenzka Alpa-
klúbbsins. Að síðustu má geta
þess til gamans, að Snævarr og
Jón voru ekki þeir einu, sem
hugðust klífa norðvesturvegginn
að þessu sinni. Þrír félagar
þeirra hugðust klífa hann dag-
inn eftir og tveir félagar til
viðbótar ætluðu að reyna um
næstu helgi.
hafsflugið legðist niður.“ sagði
Steingrimur Hermannsson. sam-
gönguráðherra. i samtali við
Mbl. i gærkvöldi. Steingrímur
kvaðst vænta þess, að á rikis-
stjórnarfundi i dag yrði tekin
ákvörðun um stefnu ríkisstjórn-
arinnar i málinu og hann færi
svo til Luxemhorg á miðvikudag
til viðræðna við stjórnvöld þar.
Steingrímur sagði það hafa
komið fram í viðræðum hans við
framangreinda aðila, að menn
vildu halda áframhaldandi Atl-
antshafsflugi innan Flugleiða, en
kvaðst leggja áherzlu á, að for-
senda þess væri gott samkomulag
milli stjórnenda og starfsfólks
fyrirtækisins, sem Steingrímur
sagði fúst til að leggja sitt af
mörkum. Varðandi aukna eignar-
aðild ríkisins að Flugleiðum sagði
Steingrímur vanda annars flugs
en Atlantshafsflugsins mikinn og
því kæmi vel til greina, að hans
mati, að ríkið kæmi inn sem
stærri hluthafi í fyrirtækinu, en
ríkið á nú 6%. „Ég get þó ekki
samþykkt að eignaraðild ríkisins
fari yfir 20%,“ sagði Steingrímur.
Steingrímur kvaðst um helgina
hafa átt fundi um málið með
forsætisráðherra og félagsmála-
ráðherra. Mbl. ræddi við Svavar
Gestsson, félagsmálaráðherra, í
gær, en meðal tillagna hans er að
formlega verði skilið í milli Atl-
antshafsflugsins og annars flugs.
Svavar kvaðst ekki vilja segja
neitt um málið. Það væri í um-
fjöllun hjá ríkisstjórninni, en
spurningu Mbl. um það, hvort
málið yrði afgreitt í ríkisstjórn-
inni í dag svaraði Svavar: „Ég
reikna með því“.