Morgunblaðið - 21.09.1980, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1980
Starfsmenn Frihafnarinnar:
Tilkynnt uin uppsögn
fyrir hádegi, dreg-
ið til baka síðdegis
„ÞAÐ ER nú einkennilexa að
þessu staðið finnst mér. Fyrst
var samstarfsnefndin boðuð i
utanríkisráðuneytið í gærmorg-
un og henni tilkynnt að öllum
starfsmönnum Fríhafnarinnar
Tíðindalítið
í miðborginni
Tíðindalítið var í mið-
borg Reykjavíkur í fyrri-
nótt, að sögn miðborgar-
lögreglunnar. Fremur fátt
fólk var á ferli og engin
ólæti. Þó var brotin ein
rúða, en annað bar ekki til
tiðinda.
Lögreglan kvaðst ekki
hafa skýringar á því hvers
vegna svo fátt fólk var á
ferli að þessu sinni. Þó
mætti benda á að unglinga-
dansleikur var haldinn í
Ársölum, og einnig er meiri
regla nú aftur að komast á,
er skólar hafa hafið störf.
Vinnuslys í
Járnblendinu
UM klukkan 19 á fimmtudags-
kvöldið varð það slys í Járn-
blendiverksmiðjunni á Grundar-
tanga, að maður brenndist illa i
andliti og baki þar sem hann var
við vinnu sina við ofn númer tvö í
verksmiðjunni. Eldur gaus upp
úr ofninum og náði að læsa sig i
annan tveggja manna sem þar
voru við vinnu sína.
Hinn slasaði var þegar fluttur á
sjúkrahús á Akureyri þar sem
gert var að sárum hans. Síðar var
hann fluttur til Reykjavíkur til
frekari aðhlynningar, en meiðsli
hans munu ekki vera eins alvarleg
og talið var í fyrstu.
yrði sagt upp frá og með 31.
desember nk. Samstarfssnefndin
kemur síðan til okkar hingað til
Keflavíkur og við höldum fund
um málið kl. 14, þar sem þeir
skýra frá þessum upplýsingum,
sem þeim voru gefnar í ráðuneyt-
inu um morguninn.
Tæpum tveim klukkutímum eft-
ir að við hófum fundinn hérna
hringir síminn. Það er yfirmaður í
utanríkisráðuneytinu sem biður
um samband við formann sam-
starfsnefndarinnar. Segir hann
honum, að allt sé dregið til baka
með uppsagnirnar á þessu stigi,
málið þurfi nánari athugunar við.
Einkennileg vinnubrögð," sagði
Björn Björnsson starfsmaður Frí-
hafnarinnar í viðtali við Mbl. í
gærmorgun, en hann hefur starf-
að þar í 15 ár.
Þá sagði Björn að sér fyndist
þetta koma á einkennilegum tíma,
þar sem málsókn vegna starfs-
manna Fríhafnarinnar stæði yfir
og einnig þar sem utanríkisráð-
herra væri erlendis og ráðherra sá
er gegndi störfum hans væri lítt
upplýstur um málið. Þá sagði
hann og, að starfsmönnum fyndist
lágmarkskurteisi að ráðuneytið
tilkynnti þeim bréflega að og ef
uppsagnir stæðu fyrir dyrum.
Ekki tókst að ná sambandi við
fulltrúa í samstarfsnefnd né full-
trúa utanríkisráðuneytisins áður
en blaðið fór í prentun í gær.
Werner forsætisráð-
herra Luxemborgar
I Morgunblaðinu í gær í frétt á
baksíðu misritaðist nafn forsætis-
ráðherra Luxemborgar, en hann
heitir Pier Werner.
Grjótaþorpið:
Lóðaeigendur
mæta
ekki á fundi
EIGENDUR lóða í Grjótaþorpi
hafa neitað að mæta á fundi, sem
skipulagsyfirvöld hafa boðað til á
Kjarvalsstöðum nk. mánudags-
kvöld þar sem fjalla á um skipu-
lagshugmyndir í Grjótaþorpi. Til
þessa fundar hefur einnig verið
boðið íbúum í Grjótaþorpi. í bréfi
til borgarstjóra lýsa lóðaeigendur
sig reiðubúna til viðræðna við
borgaryfirvöld um hagsmunamál
þeirra og borgarinnar að því
tilskyldu, að í þeim taki þátt
einungis fulltrúar borgarinnar og
lóðaeigendur.
Deila Flugleiðaflugmanna:
Starfsaldurslista-
málið lagt til hliðar
„DEILUAÐILAR eru sammála
um það að leggja starfsaldurs-
listamálið til hliðar í bili í flug-
mannadeilunni þar sem sam-
komulag muni ekki nást á þessu
stigi málsins," sagði prófessor
Gunnar G. Schram sáttasemjari í
samtali við Mbl. í gær um deilu-
mál flugmanna varðandi sameig-
inlegan starfsaldurslista innan
Flugleiða.
Unnið að slökkvistarfi í bifreiðinni í fyrrinótt.
ELDUR gaus upp í bil þar sem
hann stóð á bifreiðastæði við
verslunina Hamborg við Klapp-
arstíg i fyrrinótt. Eldsins varð
vart um klukkan tvö, og komu
tveir slökkviliðsbílar á vett-
vang auk lögreglu. Mikinn reyk
Eldur í bíl
lagði frá bílnum, en vel gekk að
slökkva eldinn.
Hefði slökkviliðið hins vegar
ekki komið svo skjótt á vettvang
hefði getað farið illa, því
skammt frá bílnum er timbur-
skúr, áfastur við stærri bygg-
ingar. Mikið tjón hefði því getað
Ljósm: A.S.
hlotist af hefði eldurinn náð að
læsa sig í skúrinn.
Bíllinn er mikið skemmdur, en
þó ekki talinn ónýtur. óvíst er
um eldsupptök, en þó er talið
sennilegt að kviknað hafi í út frá
rafkerfi bifreiðarinnar.
Flugleiðir:
Eftirlitsflugfreyjur
völdu til ráðningar
„VIÐ VILJUM ekki fyrirgera
þeim rétti fyrirtækisins að ráða
hverjir starfi hjá þvi, það er
nánast farið eftir starfsaldri, en
eftirlitsflugfreyjur og fleiri
völdu þá starfsmenn sem við
viljum endurráða,“ sagði Erling
Aspelund framkvæmdastjóri
stjórnunarsviðs Flugleiða i sam-
tali við Mbl. í gær um þann lista
68 flugfreyja sem Flugleiðir hafa
tilkynnt Flugfreyjufélaginu að
til standi að endurráða af þeim
130 flugfreyjum sem sagt var
upp. „5 starfsmenn Flugleiða
sem vel þekkja til hjá starfsliði
mátu stöðuna þannig að hver um
sig valdi úr hópnum með þvi að
gefa eins konar stig og siðan
fengum við þessa lista ómerkta
og völdum til endurráðningar
eftir þessu mati eftirlitsmanna
félagsins, en við vitum ekki hvað
kom frá hverjum,“ sagði Erling.
„Við boðuðum fulltrúa flug-
freyja á okkar fund fyrir helgina,
til þess að gefa þeim tækifæri til
þess að fylgjast með þessu og spá í
stöðuna og síðan munum við aftur
ræða málin kl. 2 á mánudag. Við
viljum miða endurráðningu
flugfreyja við þennan 68 manna
hóp, en hins vegar mun þurfa að
ráða fleiri flugfreyjur ef breyting
verður á Norður-Átlantshafsflug-
inu og það verður ákveðið nk.
föstudag. Við höfum sagt flug-
freyjunum að við viljum hafa
samráð við þær um endurráðn-
ingar ef til þess flugs kemur og
Viljum gott
samstarf við
Flugfreyjufélagið,
segir Erling
Aspelund
framkvæmda-
stjóri
einnig í sambandi við endurráðn-
ingar fyrir sumaráætlun næsta
sumar og jafnframt höfum við
sagt þeim að við séum til viðræðu
um þann hátt að ráða í hlutastörf
á móti flugfreyjum sem ef til vill
vilja vinna með þeim hætti, þótt
slíkt kosti okkur nokkurt umfang,
m.a. varðandi búninga og fleira,
en flugfreyjurnar 68 viljum við
hafa okkar grundvallarstarfslið.
Inni í þeim hópi eru flugfreyjur
sem eru í barneignarfríi og í
launalausu fríi og koma þær til
starfa á ný á eðlilegan hátt. í
sambandi við þessar endurráðn-
ingar viljum við ekki binda okkur
við hreinan starfsaldurslista, enda
er það ekki samningaatriði og
hefur ekki verið gert gagnvart
öðrum deildum að undanförnu.
Auðvitað verða margir óánægðir
eins og gefur að skilja en við sáum
okkur ekki annað fært miðað við
svo stóran hóp sem segja varð
upp. Við erum alls ekki að segja að
það fólk sem ekki er endurráðið sé
óhæft til starfsins, fjarri því, við
reynum aðeins að velja það sem
við teljum hæfast."
o
INNLENT
Gunnar Guðbjartsson um kjarnf.skattinn:
Fer tæpast inn í
verðgrundvöllinn
Flugfreyjur ræða málin:
„Bjuggu til starfsaldurs-
listann í samráði við okkur“
„VIÐ höfum verið boðaðar á
annan fund hjá Flugleiðum n.k.
mánudag vegna endurráðninga
hjá Flugieiðum en það er full
eining hjá okkur um það að
endurráðning fari fram eftir
starfsaldurslista,“ sagði Gréta
Önundardóttir stjórnarmaður i
Flugfreyjufélagi íslands i sam-
tali við Mbl. í gær.
„Það kom flatt upp á okkur að
ekki skyldi miða endurráðningar
við starfsaldurslista vegna þess
að Flugleiðamenn bjuggu sjálfir
þennan lista um sl. áramót í
samvinnu við okkur og okkar
listi er eini sameiginlegi starfs-
aldurslistinn hjá Flugleiðum eft-
ir sameininguna, sem samkomu-
lag er um innan okkar félags."
BRÁÐABIRGÐAVERÐ það, sem
nú hefur verið ákveðið á kinda-
kjöti mun væntanlega gilda fram
i miðjan október, en samstaða
heíur ekki náðst í Sexmann-
anefndinni um nýjan verð-
grundvöll landbúnaðarvara. Áð-
ur hafði verið ákveðið verð til
bráðabirgða á nautakjöti, kart-
öflum og mjólk. Ástæður þess, að
samkomulag hefði ekki náðst um
nýjan verðgrundvöll, sem átti að
taka gildi í byrjun þessa mánað-
ar, eru margar að sögn Gunnars
Guðbjartssonar, formanns Stétt-
arfélags bænda og framkvæmd-
arstjóra Framleiðsluráðs land-
búnaðarins. Um ýmis þessara
mála er verið að ræða við stjórn-
völd þessa dagana.
Aðspurður hvort kjarnfóður-
skatturinn, sem ákveðinn var 24.
júní, kæmi inn í verðgrundvöllinn
í næsta mánuði, sagði Gunnar, að
það væri umdeilt, en ef hann yrði
tekinn með myndi hann ekki virka
aftur fyrir gildistöku nýja grund-
vallarins. „Eg á þó ekki von á að
hann verði tekinn inn í grundvöil-
inn, en vil þó ekkert fullyrða um
það,“ sagði Gunnar.
Hann sagði, að rætt hefði verið
um að taka orlof bænda og
veikindaorlof út úr verðgrundvell-
inum og greiða það beint. „Þetta
og fjöldamörg fleiri atriði eru í
athugun og til umræðu við stjórn-
völd. Það hafa orðið miklar breyt-
ingar í landbúnaði að undanförnu
og því eru mörg mál, sem þarf að
skoða vel í þessu sambandi," sagði
Gunnar Guðbjartsson.