Morgunblaðið - 21.09.1980, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1980
21
Útgáfa á Blöndalsættinni
Blaðamaður vjð Morgunblað-
ið komst að því fyrir skömmu.
að Jón Gislason ættfræðingur
væri að vinna að útgáfu á
Blöndalsættinni. verki, er Lár-
us Jóhannesson hæstaréttar-
dómari féll frá. og innti hann
eftir, hvernig verkinu miðaði
áfram:
„Ég er búinn að vinna að
útgáfu á Blöndalsættinni í rúmt
ár. Ég tók við verkinu þar sem
Lárus Jóhannesson hæstaréttar-
dómari var kominn, er hann féll
frá 31. júlí 1977. Lárus var mikill
áhugamaður um ættfræði og
vann henni mikið, og afkastaði í
fræðigreininni ótrúlega miklu.
Hann lét eftir sig Blöndalsætt-
ina, mikið rit og vel unnið, en
auk þess Thorarensensætt og
Teitsætt og drög að fleiri ættum.
Þessi niðjatöl öll eru mjög vel
gerð úr hendi Lárusar, en þeim
er ekki að fullu lokið. Nú er
meiningin að Bókaútgáfan
Skuggsjá í Hafnarfirði gefi þessi
verk út, og er Blöndalsættin
fyrsta bindi þessa safns."
Vann Lárus Jóhannesson eftir
hefðbundnum aðferðum í söfnun
niðjatala?"
„Já. I höfuðatriðum gerði
hann það. Hann var afkastamik-
ill fræðimaður og safnari, og eru
niðjatöl hans óvenjuleg að því
leyti, að hann rekur mjög ævi-
feril fólksins, persónulegar lýs-
ingar þess og persónuleg kynni,
séu þau fyrir hendi. Hann er
mjög nákvæmur að vitna í heim-
ildir, jafnt prentaðar sem skáld-
legar og er það afar mikill
kostur. Hann rekur kvenleggi
eftir Lárus
Jóhannesson
mjög mikið og er það langtum
meira en gert hefur verið í
íslenzkum niðjatölum. Blöndals-
ættin verður því langtum læsi-
legri bók en niðjatöl hafa al-
mennt verið."
„Hver er forfaðir Blöndalsætt-
arinnar?"
Blöndalsættin er rakin frá
Birni sýslumanni Blöndal í
Húnavatnssýslu og konu hans
Guðrúnu Þórðardóttur, en þau
bjuggu í Hvammi í Vatnsdal
miklu rausnar- og myndarbúi.
Jón Gíslason
Björn var f. 1. okt. 1787, d. 23.
júní 1846, en Guðrún er f. 2 okt.
1797, d. 20. ágúst 1864. Þau áttu
15 börn, og áttu 10 þeirra börn.
Björn sýslumaður var röggsamt
yfirvald, fylgdi fast fram hug-
myndum samtíðar sinnar í
þátttöku almennings við opin-
berar athafnir. Þar af leiðandi
stefndi hann öllum Húnvetning-
um til Vatnsdalshóla, er hann lét
fullnægja dóminum í Nathans-
málinu. Enda varð árangur sem
erfiði, gjörbreytt siðferðisástand
í héraðinu, jafnt á líðandi stund
og komandi tímum.“
Lárus Jóhannesson
Ætlið þið að hafa myndir í
bókinni?"
Já. Við ætlum að hafa myndir
eins margar og við náum í. Lárus
var búinn að safna talsverðu af
myndum af elsta fólkinu af
ættinni, þar á meðal börnum
sýslumannshjónanna í Hvammi
og sumum barnabörnum þeirra.
Myndir gefa niðjatölum mikið
gildi. Það væri gaman að eiga á
einum stað myndir af öllum af
Blöndalsætt. En slíks verður
naumast kostur. En hitt er hægt,
að safna miklu af myndum. En
til þess að árangur verði af slíkri
söfnun þurfum við að njóta
aðstoðar ættmannanna í ríkum
mæli. Þáð er von mín, að sem
allra flestir sendi myndir til
ekkju Lárusar Jóhannessonar,
frú Stefaníu Guðjónsdóttur,
Suðurgötu 4, Reykjavík. Mynd-
irnar þurfa að vera merktar og
fæðingardagur og ár á hverri
mynd og einnir þarf að tilgreina
hvert eigi að endursenda mynd-
irnar. Best væri, að einn aðili úr
hverri fjölskyldu annaðist um
myndir sinna nánustu.“
Hver af börnum sýslumanns-
hjónanna í Hvammi eiga flesta
afkomendur?"
Það er Lárus sýslumaður á
Kornsá og Sigríður Oddný,
prestskona á Tjörn á Vatnsnesi
og síðar á Undirfelli í Vatnsdal.
Af Blöndalsættinni er margt
þekkt fólk bæði utanlands og
innan. Má þar nefna dr. Sigfús
Blöndal í Kaupmannahöfn og
Erling Blöndal Bengtson sellósn-
illing. Þar að auki eru af ættinni
frægir menn í Vesturheimi. Ég
vildi gjarnan greina ýmis ein-
kenni Blöndalsættarinnar. Þau
eru flest mjög skír, og hafa orðið
til mikilla áhrifa í íslensku
þjóðlífi. En þess er ekki kostur
að sinni.“
Hvenær búist þið við að bókin
um Blöndalsættina komi út?
„Ég vona, að hún komi út fyrir
jólin.“
„Hvað viltu svo taka fram að
lokum?"
Ég vil beina þeim tilmælum til
ættmanna Blöndalsættar, að
senda okkur myndir og jafn-
framt óska ég eftir að fólk greiði
fyrir upplýsingum, þegar til þess
er leitað eða jafnvel sendi upp-
lýsingar óumbeðið. Ég þakka
öllum, sem greitt hafa götu mína
í söfnun efnis, og vonast ég eftir
að eiga góða samvinnu við ætt-
menni Thorarensensættar og
Teitsættar þegar þar að kemur.
Rætt við Jón Gíslason fræðimann
Þverrandi
kaupmáttur
í vaxandi
dýrtíð
Eftirfarandi ályktun, sem
trúnaðarmannaráð Verzlunar-
mannafélags Reykjavíkur sam-
þykkti i fyrrakvöld, hefur borizt
Morgunblaðinu:
„Fundur í trúnaðarmannaráði
Verzlunarmannafélags Reykjavík-
ur, haldinn að Hagamel 4,
fimmtudaginn 18. september 1980,
átelur harðlega þann seinagang,
sem verið hefur á samningagerð
við verkalýðsfélögin.
Kjarasamningar hafa nú verið
lausir í hátt í 9 mánuði og
samningaviðræður milli deiluaðila
hafa staðið svo til linnulaust
þennan tíma og enn sér ekki fyrir
lok samningagerðar.
Láglaunafólk félaga innan ASÍ
getur ekki unað lengur við þetta
ástand á sama tíma og kaupmátt-
ur þess fer þverrandi í vaxandi
dýrtíð og ríkisvaldið hefur samið
við opinbera starfsmenn um leið-
réttingar á þeirra kjörum frá 1.
ágúst sl.
Svo virðist, sem ekki sé mögu-
legt að ná fram sanngjörnum
leiðréttingum á launum launþega
innan ASI, nema til komi aukinn
þrýstingur frá launafólki.
Trúnaðarmannaráð V.R. sam-
þykkir því að verða við áskorun
samninganefndar ASÍ frá 9. þessa
mánaðar um öflun verkfallsheim-
ildar og samþykkir að V.R. boði til
vinnustöðvunar með tilskildum
fyrirvara, ef nauðsynlegt reynist
til að knýja fram samninga."
AKil.VSINCASIMIVN KK:
22480 CSí'
Jttorfluntdnbit)
Blöið á meöan smurt er
eöa skiljið bílinn eftir.
Látíðsmyrja
bílínn regfiuega
Meó því að láta smyrja bifreiðina reglulega, eykur þú þar með
endingu, jafnframt því sem endursöluveró bifreiðarinnar
verður hærra.
Við hjá Heklu hf. bjóöum uppá fullkomna smurþjónustu
á öllum tegundum bifreióa í smurstöð okkar.
Líttu við hjá okkur, næst þegar bifreiðin þarfnast smurningar.
Laugavegi 170 -172 Sími 212 40