Morgunblaðið - 21.09.1980, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1980
+
Faöir okkar,
HALLDÓR SVEINSSON,
frá Sœvarenda,
Hjaröarhaga 32,
andaðist á Borgarspítalanum þann 19. þ. mán.
Hjördís Halldórsdóttir,
Valdfs Halldórsdóttir.
t
BJARNI OLGEIR JÓHANNESSON,
bryti
lést að morgni 10. þ.m. aö heimili sínu Lynghaga 15, Reykjavík.
Jaröarförin hefur fariö fram í kyrrþey aö ósk hins látna.
Ingibjörg Jónsdóttir,
Ulrich Falkner
og fjölskylda.
Konan mín
UNNUR ÁRMANN,
Furugeröi 19,
veröur jarösungin frá Fossvogskirkju 22. september kl. 15.
Steinþór Marteinsson.
+ Maöurinn minn *
JÓN BJARNASON
Jökulgrunni 1,
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 23. september
kl. 1.30. María Hjartar.
+
Eiginkona mín, móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma
MARÍA RAGNHILDUR ÓLAFSDÓTTIR
frá Hvanneyri
sem andaöist 12. september, veröur jarösungin frá Dómkirkjunni
þriöjudag 23. september kl. 15.
Guómundur Jónsson,
Jón Ólafur Guómundsson, Sigurborg Jónsdóttir,
Sigurður Reynir Guómundsson, Katrín Árnadóttir,
Asgeir Guómundsson, Sigrföur Jónsdóttir,
Sólveig Gyóa Guömundsdóttir, Gunnar Ólafsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Móöir okkar og tengdamóöir,
HREFNA ÓLAFSDÓTTIR,
veröur jarösungin frá Bústaöakirkju mánudaginn 22. þ.m. kl. 15.
Blóm eru vinsamlegast afbeöin.
Haukur Erlendsson, Ágústa M. Ahrens,
Guðlaug Erlendsdóttir, Þórður Sigurósson,
Guömunda Erlendsdóttir, Gunnar Valur Þorgeirsson,
Erna Erlendsdóttir,
Ólafur P. Erlendsson, Magnea Dagmar Gunnlaugsdóttir,
Hrefna Erlendsdóttir Hollan, James Hollan,
Margrát Erlendsdóttir, Magnús Guömundsson.
+ KRISTJAN ANDRÉSSON,
Vöröustig 7, Hafnarfiröi,
veröur jarösunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði þriöjudaginn '23.
september k. 13.30.
Salbjörg Magnúsdóttir,
Logi Kristjénsson, Ólöf Þorvaldsdóttír,
María Kristjénsdóttir, Jón Aðalsteinsson,
Andrés Kristjénsson, Sjöfn Hauksdóttir,
Bergljót Kristjénsdóttir, Olga Þórhallsdóttir,
Katrín Kristjénsdóttir.
Björn Gíslason
stýrimaður
Það var að kveldi 27. maí sl. að
okkur hjónunum bárust til Kaup-
mannahafnar þau sorglegu tíðindi
að vinur okkar Björn Gíslason
fyrrv. stýrimaður hefði látist af
slysförum þá um morguninn, er
hann var að sinna skyldustörfum
á athafnasvæði þess fyrirtækis er
hann hafði unnið hjá um áratugi
— Steypustöðinni h.f., Reykjavík.
Helfregnin kom okkur á óvart
og sár söknuður yfir hinu sviplega
fráfalli þessa mæta manns fyllti
hugi okkar.
I apríl sl. höfðum við kvatt hann
í fjölskyldufagnaði þar sem hann
var hrókur alls fagnaðar og óspart
létum við þá von í ljós, að eigi yrði
iangt til endurfunda, því að í
návist Björns leið öllum vel.
Endurfundirnir bíða nú síns
tíma, „Enginn maður hefur vald
yfir dauðadeginum", segir Prédik-
arinn.
Með fáeinum línum langar
okkur að minnast Björns Gísla-
sonar, og þakka honum 15 ára
samfylgd, sem aidrei gleymist, og
votta um leið hans nánustu inni-
legustu samúð okkar. Björn var
fæddur 9. maí 1912 að Horni í
Helgafellssveit og var því 68 ára
gamall er hann andaðist.
Foreldrar hans voru hjónin
Gísli Kárason og Kristín Hafliða-
dóttir, kunn fyrir atorku og mynd-
arskap.
Björn naut því miður ekki lengi
föður síns, því þegar hann var á 3.
ári drukknaði faðirinn í flæðar-
málinu að konu sinni og börnum
ásjáandi. Börnin voru þá sex
talsins og móðir Björns gekk með
það sjöunda, rétt ófætt.
Um áhrif þeirrar stundar sem
hér er frá sagt, þarf ekki að
fjölyrða en árin sem á eftir komu,
sönnuðu að Kristín Hafliðadóttir
var í engu meðalmanneskja og
njóta niðjar hennar þess enn í
dag.
Hún axlaði byrðar sínar af
aðdáunarverðu þreki og hugrekki,
en Björn varð hún þó að láta frá
sér í fóstur til hjónanna Magnúsar
Jónssonar, og Jóhönnu Elíasdótt-
ur, að Kolgröfum, var það vinafólk
þeirra Gísla og Kristínar.
Kristín vissi vel hvað hún var að
gera. Hún var ekki í neinum vafa
að gott uppeldi og foreldraum-
hyggja biðu hins unga sveins í
Kolgröfum, enda varð sú raunin á.
Björn Gíslason minntist ætíð
fósturforeldra sinna með innilegu
þakklæti og virðingu. Einkadóttir
- Minning
hans ber nafn fósturforeldranna
og segir það nokkra sögu.
Björn var ekki gamall þegar
hann vissi hvað hann ætlaði sér.
Hafið heiliaði hann og sjómaður
vildi hann verða.
Þegar Björn var á fermingar-
aldri kom út ljóðabókin „Illgresi"
Með útgáfu hennar varð höfund-
urinn Orn Arnarson þjóðkunnur
og þá ekki síst fyrir eitt kvæða
sinna í bókinni „Sigling". Yrkis-
efnið er hafið, eins og þeir vita,
sem til þekkja.
Kvæðið byrjar þannig:
„Hafið bláa hafið hugann dregur,
hvað er bak við ystu sjónarrönd".
Enda þótt Björn hafi mjög
ungur ákveðið hvert halda skyldi,
má ætla að kynni af Breiðfirskum
sægörpum og lestur bóka um
sjóinn og sæfarendur og þá ekki
síst umrætt kvæði Arnar hafi
styrkt, þegar tekna ákvörðun um
sjósókn og siglingar.
Björn Gíslason hélt ungur til
Reykjavíkur og þaðan á sjóinn.
Hann hafði jafnan orð á því að
vinnulagið þar hefði átt mjög vel
við sig. Björn fór síðar í Sjó-
mannaskóla íslands og tók próf
þaðan árið 1941.
Fyrstu árin eftir að hann út-
skrifaðist úr Sjómannaskólanum,
var hann til skiptis stýrimaður og
skipstjóri eftir aðstæðum. Hann
„sigldi" öll stríðsárin og var ótta-
og æðrulaus þá eins og alltaf. —
Þótt vígvélar tortímdu næstu
skipum og hafið æstist og öldur
risu, varðveitti Björn rósemi sína
óskerta. Það var sem friður fylgdi
honum bæði á sjó og landi.
Hinn 27. september 1941 kvænt-
ist Björn Þóreyju Ólafsdóttur ætt-
aðri úr Biskupstungunum. Hjóna-
band þeirra var farsælt og voru
þau bæði samhent í einu og öllu.
Það er staðreynd að íslenska
sjómannskonan hefur iðulega
þurft að vera í senn húsbóndinn og
húsfreyjan, og ábyrgur stjórnandi
á heimilinu og Þóreyju Ólafsdótt-
ur tókst það með ágætum og bera
börn þeirra hjóna — en þau eru
fjögur — þess vott að þau eru vel
upp alin og fædd af góðum og
gáfuðum foreldrum sem vísuðu
þeim réttan veg. Eist barna þeirra
er Sigurður Hafsteinn verkstjóri
kvæntur Jónínu Helgadóttur og
eiga þau 3 börn. Næstelstur er
Ólafur Sigþór byggingarmeistari,
kvæntur Jónínu Helgu Jónsdóttur,
eiga þau 4 börn. Þriðji í röðinni er
Gísli, múrari — kvæntur Sigrúnu
Hrólfsdóttur, eiga þau tvö börn.
LOKAÐ
eftir hádegi mánudaginn 22. september vegna
jaröarfarar
FRÚ UNNAR ÁRMANN.
Ágúst Ármann hf.
Drif hf.
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 — Sími 81960
+
Móöir okkar, tengdamóöir og amma
INGUNN VALGERÐUR HJARTARDÓTTIR
Borgarholtsbraut 49, Kópavogi
veröur jarösungin frá Kópavogskirkju mánudaginn 22. september
kl. 10.30. Jarðsett veröur í Fossvogskirkjugaröi.
Hilmar Harðarson, Guðrún Gunnarsdóttir,
Ólöf Þorvaldsdóttir, Logi Kriatjénsson,
Steini Þorvaldsson, Sigríóur Ólafsdóttir,
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttír, Aöalstainn Bergdal
og barnabörn hinnar létnu.
+
Útför móöur okkar, tengdamóöur og ömmu
KRISTÍNAR SVEINBJÖRNSDÓTTUR,
Héaleitisbraut 40
fer fram frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 23. september kl. 10.30.
örlaugur Björnsson, Ásta Gunnarsdóttir,
Hreinn Björnsson, Sigríöur Sigtryggsdóttir,
Sveinbjörn Björnsson, Kristín Pélsdóttir,
Þorsteinn Björnsson, Guörún Halldórsdóttir,
Sturla Björnsson
og barnabörn.
Yngst er Jóhanna Magnea sem ber
nafn fósturforeldra sinna, hún er
gift Einari Þór Vilhjálmssyni
framkv.stjóra, og eiga þau þrjú
börn.
Innilegt samband var ætíð milli
foreldranna og barna þeirra, —
tengdabarna og barnabarna — og
það var unun að vera með þessari
fjölskyldu. Skipti það ekki máli
hvort það var á stundum hátíða
eða hversdagsleikans.
Nú þegar vegir skiljast minn-
umst við sérstaklega þess, hvað
Björn hafði á því lag, er tengda-
börnin tóku að birtist, að opna
þeim faðm sinn og láta þau finna
hlýju, ástúð og virðingu í viðmóti
öllu. Við hjónin getum trútt um
talað því elsta barn okkar varð
tengdadóttir Björns og Þóreyjar
konu hans, 15. maí 1965 og betri
tengdaforeldrar eru vandfundnir.
Við höfum því Birni mikið að
þakka, þegar vegir skilja.
Eins og sagt er frá í upphafi
þessarar minningargreinar var
Björn Breiðfirðingur og hann unni
Breiðafirði meir en öðrum byggð-
um þessa lands, svo ætla má að
hugur hans hafi oft verið þar og
sem Breiðfirðingur hefði hann
áreiðanlega getað tekið undir með
Herdísi Andrésdóttur, er hún
kveður um Breiðafjörð:
„Á meðan fæðist mögur,
og manninn getur dreymt,
hvert sker, hver ey, hvert ögur,
skal aldrei verða gleymt.
En ég af alhug beiði
og öll þið skiljið mig
að blessun Drottins breiði
um Breiðafjörðinn sig“.
Þegar Björn Gíslason ákvað að
hætta sjósókn hóf hann störf eins
og fyrr segir hjá Steypustöðinni
hf., Reykjavík.
Hans er nú sárt saknað af
samstarfsmönnum og húsbændum
þessa fyrirtækis eftir áratuga
samstarf.
Okkur bíður í grun, að erfitt
verði fyrir stjórnendur Steypu-
stöðvarinnar að fá hans líka til
starfa, svo einstök var árvekni
hans, dugnaður og umhyggja fyrir
velferð þeirra er hann vann fyrir.
Þess er getið hér að framan að
þessi fátæklegu kveðjuorð séu
fyrst og fremst þakkarkveðja til
Björns Gíslasonar, síðbúin að vísu
en frá hjörtum okkar eigi að síður.
Fjölskyldur okkar tengdust eins
og fyrr segir fyrir 15 árum og
aldrei hefur á þau fjölskyldu-
tengsl skuggi fallið, ekki einn dag.
Hér er mikið fullyrt, en allt er þó
satt því þökkum við Birni vináttu
og viðkynningu. Við sendum frú
Þóreyju, niðjum hennar og
tengdabörnum og öðrum ástvinum
Björns, innilegustu samúðarkveðj-
ur.
Fyrr í þessum kveðjuorðum var
minnst á kvæðið „Sigling". Aðeins
þó tvö upphafs vísuorðin. Við
ljúkum þessari kveðju með því að
hafa yfir niðurlagsorðin:
„Bruna þú nú bátur minn,
svífðu seglum þöndum,
svífðu burt frá ströndum.
Fyrir stafni haf og himininn".
Ungur að árum gerði Björn
sjósókn að sínu lífsstarfi, hann
kaus “Hinn brunandi bát“ og
sigldi á honum eins og fyrr er frá
sagt um heimsins höf. Fley Björns
lagði upp í hinstu för sína þann 27.
maí sl. Hann var aldrei í efa um
að við leiðarlok væri himinninn
fyrir stafni.
Góða ferð Björn Gíslason.
Þórný og Jón Kjartansson.