Morgunblaðið - 21.09.1980, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1980
43
Söfnun Hjálparstarfs aðventista:
Tvö þúsund krónur nægja fyrir
daglegri máltíð í heilan mánuð
ÁRLEG söfnun Hjáiparstarfs að-
ventista er hafin og mun söfnunar-
fólk Hjáiparstarfsins knýja dyra
eitthvert kvöldið i þessum mánuði
á Suðurlandi, Reykjavik og nær-
liggjandi byggðarlögum. Söfnun er
lokið fyrir norðan, austan og vest-
an og var söfnunarfólkinu tekið
mjög vel og hlýlega eins og ávallt
áður.
Söfnuninni fylgir blaðið „Kristi-
leg menning“ sem skýrir i myndum
og máli frá ýmsum þáttum hjálpar-
starfsins svo sem baráttunni við
holdsveikina, skyndihjálp i neyð-
artilfellum, aðstoð við flóttafólk og
hjálp þar sem náttúruhamfarir
hafa skollið á.
Þeir fjármunir sem inn koma ná
ótrúlega langt eins og eftirfarandi
dæmi sýna:
2000 krónur duga til þess að gefa
barni næringarríka máltíð daglega í
mánuð eða fyrir einum sérsmíðuð-
um skóm handa holdsveikisjúklingi
með bæklaða fætur.
4000 krónur gera okkur kleift að
meðhöndla tíu börn sem þjást af
frambösí sem er hættulegur húðsj-
úkdómur eða duga fyrir skólagöngu
eins barns í einn mánuð.
8000 krónur geta bjargað tíu
manns frá hinum hræðilega augn-
sjúkdómi trakóm sem leiðir til
blindu sér ekkert að gert.
25000 krónur hrökkva fyrir út-
gjöldum vegna kaupa á gervilim
handa holdsveikisjúklingi sem fót-
urinn hefur verið tekinn af, eða
nægja sjúkiingi til sjúkrahússvistar
í hálft ár.
Blaðið sem fylgir söfnuninni sýnir
hvernig fjármununum er varið og að
þeir komast til skila. Þetta starf
héldi ekki áfram ef svo væri ekki.
Það er okkur mikil ánægja að vita
af íslendingum að störfum í Afríku
og má nefna Harrí Guðmundsson
lækni, Erik Guðmundsson sjúkra-
þjálfara, við Masanga holdsveikra-
sjúkrahúsið í Sierra Leone, Lilju
Sigurðardóttur hjúkrunarkonu, sem
hefur starfað í mörg ár í Afríku og
er nú á förum þangað aftur í haust.
Þá hefur Jón Hj. Jónsson starfað í
Ghana við kennslustörf, Steinþór
Þórðarson er í Nígeríu við stjórn-
arstörf og hjónin Bjarni Sigurðsson
og Helga Arnþórsdóttir í Ghana við
byggingarstörf og kennslustörf.
Þessi störf eru unnin af fórnfýsi og
hugsjón fjarri heimalandinu og ekki
aðeins af einstaklingunum sem eru
sérstaklega sendir til starfa heldur
tekur öll fjölskyldan þátt í þessu.
Við viljum þakka öllum sem hafa
lagt af mörkum til þessa starfs og
þannig átt þátt í að lina þjáningar
annarra. Innilegt þakklæti þessa
hrjáða fólks eru okkar laun. Gíró-
númer Hjálparstarfsins er 23400.
(Fréttatilkynning).
Vitni vantar að ákeyrslum
Slysarannsóknadeild lög-
reglunnar I Reykjavik hefur beðið
Morgunblaðið að auglýsa eftir vitn-
um að eftirtöldum ákeyrslum i
borginni að undanförnu. Þeir, sem
veitt geta upplýsingar um hugsan-
lega tjónvalda eru vinsamlega
beðnir að hafa samband við lögregl-
una i sima 10200:
Föstudaginn 29.8. sl. var ekið á
bifreiðina R-52521, sem er Chevrolet
Vega gul að Iit. Átti sér stað á
bifr.stæði við Vesturgötu við Fisch-
ersund frá kl. 09.00 til kl. 14.10
þennan dag. Hægra afturaurbretti
er skemmt á bifreiðinni og er
orange-litur í skemmdinni.
Föstudaginn 12.9. sl. var ekið á
bifr. R-67763, sem er Daihatsu grár
að lit. Bifreiðin var fyrir framan
Vörumarkaðinn í Ármúla. Átti sér
stað frá kl. 10.05 til 10.20. Hægra
afturaurbretti er skemmt og er
rauðbrúnn litur í skemmdinni og
svart eftir höggvara.
Föstudaginn 12.9. sl. var ekið á
bifreiðina R-48370 sem er Citroen
G.S. drapplitaður. Átti sér stað að
vestanverðu við hús nr. 12 við
Vonarstræti frá kl. 12.50 til 16.15
þennan dag. Kistulok er skemmt og
er ljósblá málning í skemmdinni.
Laugardaginn 13.9. sl. var ekið á
bifr. R-21415 sem er Daihatsu silfur-
grá að lit. Átti sér stað á bifr.stæði
framan við Fálkann á Suðurlands-
braut. Skemmd er á afturhöggvara
og svuntu. Átti sér stað frá kl. 21.00
til 24.00.
Mánudaginn 15.9. sl. var ekið á
bifreiðina R-22111 sem er Honda
grásanseruð að lit. Átti sér stað á
bifr. stæði sunnan við Fjölbraut-
arskólann í Breiðholti frá kl. 09,50 til
12,30 þennan dag. Hægri framhurð
er skemmd og er grænn litur í
skemmdinni.
Fimmtudaginn 18.9. sl. var ekið á
bifreiðina R-47943 sem er Bonneville
fólksbifr. dökkblá. Bifreiðin var
sunnan við hús nr. 23 við Vagnhöfða.
Átti sér stað að kvöldi þess 17.9. eða
aðfaranótt þess 18.9. Tjónvaldur er
talsvert skemmdur eftir áreksturinn
og er trúlega um litla fólksbifreið að
ræða eftir hjólförum á staðnum að
dæma.
Föstudaginn 19.9. var ekið á bif-
reiðina R-25220 sem er Cortina
drapplituð. Átti sér stað við hús nr.
11 við Heiðargerði. Skemmd er á
vinstra afturaurbretti og aftur-
höggvara. Átti sér stað um kl. 12.00.
Kennsla hefst fyrst í október. j Innritun og upplýs- ] ingar kl 1—5 dag-« lega. } Sími 72154. í'
BflLLETSKÓLI siGRíoflR ÁRmnnn l ^SKÚLACÖTU 32-3a ÓÓO
Höfum kaupendur aö eftirtöldum veröbréfum:
VERÐTRYGGÐ SPARISKIRTEINI
RIKISSJOÐS: Innlausnarverö
21. september 1980 Seðlabankans
Kaupgengi m.v. 1 árs Yfir-
pr. kr. 100.- tfmabil fró: gengi
1968 1. flokkur 6.456,51 25/1 '80 4.711.25 37,0%
1968 2. flokkur 5.828.49 25/2 '80 4.455,83 30,8%
1969 1. flokkur 4.661,94 20/2 '80 3.303,02 41,1%
1970 1. flokkur 4.268,99 15/9 '80 3.878,48 10,1%
1970 2. flokkur 3.080,04 5/2'80 2.163,32 42,4%
1971 1. flokkur 2.820,24 15/9 '80 2.565,68 9,9%
1972 1. flokkur 2.458,83 25/1 '80 1.758,15 39,9%
1972 2. flokkur 2.104,07 15/9 '80 1.914,22 9,9%
1973 1. flokkur A 1.576,21 15/9 '80 1.431.15 10,1%
1973 2. flokkur 1.452,10 25/1 '80 1.042,73 39,3%
1974 1. flokkur 1.002,21 15/9'80 910,11 10,1%
1975 1. flokkur 817,76 10/1 '80 585,35 39,7%
1975 2. flokkur 618,54
1976 1. flokkur 586,71
1976 2. flokkur 476,48
1977 1. flokkur 442,52
1977 2. flokkur 370,67
1978 1. flokkur 302,04
1978 2. flokkur 238,41
1979 1. flokkur 201,61
1979 2. flokkur 156,43
1980 1. flokkur 118,83
VEÐSKULDA- Kaupgengi m.v. nafnvexti
BRÉF:* «% 14% 16% 18% 20% 38%
1 ár 65 66 67 69 70 81
2 ár 54 56 57 59 60 75
3 ár 46 48 49 51 53 70
4 ár 40 42 43 45 47 66
5 ár 35 37 39 41 43 63
*) Miöað ar við auöseljanlega fasteign.
WtRraTIIKARdUM ÍAIMM Hfc
VERÐBRÉFAMARKADUR, LÆKJARGÖTU 12 R.
Iðnaðarbankahúsinu. Sími 2 05 80.
Optð slls vtrks daga Irá kl. 9.30—18.
HAFIR ÞÚ FERÐAST - ERU MÖGULEIKARNIR 5 Á MÓTII
AÐ ÞÚ HAFIR FERÐAST MED
Flestir þekkja Mercedes Benz fólksflutningabíla og hafa oftsinnis
ekið í þeim, og vita hversu þægilegir þeir eru. Sama má segja um
eigendur þeirra og ökumenn. Þeir þekkja rekstrarhliðina og hina
góðu aksturseiginleika þeirra.
MERCEDES BENZ
RÆSIR HF.
skúiagötu 59 sími 19550 (A) Auðnustjarnan á öllum vegum.