Morgunblaðið - 02.10.1980, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1980
Ástandið er
mjög ótryggt
— segir Karl Steinar Guðnason
„ATVINNUÁSTANDIÐ hér á Suð-
urnesjum heíur verið mjö({ ótryKKt
í sumar. fiskvinnslan hefur tcennió
erfiðletca. fjölda starfsfólks hefur
verið sa«t upp hjá Fluicleiðum otc
síðustu fréttir setcja okkur hvað er
að tcerast í Fríhöfninni. Síðan koma
þessar fréttir frá Aðaiverktökum.
að starfsfólki hafi verið satct upp
störfum.“ satcði Karl Steinar
Guðnasun, formaður Verkalýðs- otc
sjómannaféiatcs Keflavikur otc ná-
tcrennis. i samtali við Mh!.. þetcar
hann var spurður um atvinnu-
ástandið á Suðurncsjum.
„Uppsagnirnar hjá verktökunum
stafa af því að Ameríkumenn hafa
kippt að sér hendinni hvað verkefni
snertjr. Því sýnist okkur ástandið
mjög ótryggt og ég veit ékki hver
framtíðin verður, en framundan eru
viðræður verktaka á Keflavíkur-
flugvelli við Bandaríkjamenn um
verkefni næsta árs. Ef stjórnvöld
standa sig sæmilega í þessum við-
ræðum þá getur verið að takist að
tryggja þessu fólki áfram atvinnu,
en ekkert verður sagt um það á þessu
stigi,“ sagði Karl Steinar.
Karl sagði að erfitt væri að átta
sig á fjölda þeirra starfsmanna sem
misst hefðu vinnuna á Suðurnesjum
að undanförnu og benti á að margir
þeirra hefðu farið að vinna annars-
staðar. Einnig gat hann þess að allar
uppsagnirnar væru ekki komnar í
gildi enn vegna uppsagnarfrests.
„Það má segja að atvinnuástandið
hér sé mjög ótryggt," sagði Karl
Steinar Guðnason að lokum.
Islenzkir aðalverktakar:
57 starfsmönn-
um sagt upp um
næstu áramót
FIMMTÍU og sjö starfsmenn ís-
lenskra aðalverktaka hf. fengu í
gær uppsagnarhréf. en uppsagnir
þeirra taka gildi um áramót i
flestum tilvikum. Thor Ó. Thors
forstjóri sagði i samtali við Morg-
unblaðið í gær, að af þessum
starfsmónnum væru 30 verkamenn,
15 bílstjórar og fleiri starfsmenn
við vélar, 4 starfsmenn í mötuneyti,
6 á járnaverkstæði, 1 á bílaverk-
stæði og 1 smurstöðvarmaður.
„Ástæður þessara uppsagna _eru
þær,“ sagði Thor, „að eins og verið
hefur alltaf undanfarin ár, hefur
orðið samdráttur í verkefnum. Varn-
arliðssamningarnir eru þannig að
starfsemin er mismikil. Þegar verk-
efnum lýkur verður að grípa til
fækkunar starfsmanna ef ekki er
unnt að taka til við önnur þegar í
stað.“
Thor Ó. Thors sagði ennfremur, að
alls væru starfsmenn Aðalverktaka
um 330 talsins. Flestir þeirra starfa
á Keflavíkurflugvelli, en 4 starfs-
menn eru á skrifstofu í Reykjavík.
Verði af uppsögnum allra þeirra er
nú hafa fengið uppsagnarbréf munu
starfsmenn fyrirtækisins því verða
um 270. Thor sagði á hinn bóginn
ekki alveg víst að til allra þessara
uppsagna þyrfti að koma, þó nú
virtist það fyrirsjáanlegt og gert ráð
fyrir því. Vera kynni að ný verkefni
fengjust fyrir áramót.
Helstu verkefnin sem nú er unnið
að sagði Thor að væru bygging
jarðstöðvar, lagfæringar og endur-
bætur á flugbrautum, eldvarnakerfi
er verið að setja upp í flugskýli,
unnið er að stækkun barnaskóla,
endurbótum í mötuneyti og ýmsu
öðru.
Thor sagði að lokum, að hér væri
ekki um meiri samdráttaraðgerðir
að ræða en oft áður. Starfsemi
Aðalverktaka væri fremur verkefna-
bundin en árstíðabundin, og nú í
haust hefði viljað svo til að mörg
verkefni hefðu klárast án þess að ný
kæmu í staðinn.
Starfsmenn Flugleiða í Luxemburg:
Vilja tryggingu
vegna framtiðarinnar
Á FUNI)I 23. sept. sl. í Luxem-
bttrg hjá fulltrúum stjórna verka-
lýðsfélaga. starfsmanna Flug-
leiða þar og yfirmanna Flugleiða
í Luxemborg kom fram, að sögn
eins talsmanna verkalýðsfélag-
anna. að bréf sem hafði átt að
senda stjórn Flugleiða um mál-
efni í Luxemborg hafði ekki verið
sent.
Eiginkonur flug-
manna mæla með
ráðningu elztu
flugfreyjanna
„MÖRGUM var skemmt þeg-
ar við fengum sérstakar bar-
áttukveðjur inn á fund
Flugfreyjufélagsins sl. mánu-
dagskvöld," sagði Gréta Ön-
undardóttir varaformaður
Flugfreyjufélagsins í samtali
við Mbl. í gær, „en okkur
barst gullfallegur blómvönd-
ur með kveðju frá nokkrum
eiginkonum flugmanna þar
sem þær sögðust styðja
okkur eindregið í því að
endurráðið yrði í flugfreyju-
störf eftir starfsaldri."
Sagði talsmaðurinn í samtali
við Mbl. að á þessum fundi hefði
verið reiknað með því að lagðar
yrðu fram tillögur til stjórnar
Flugleiða sem gerðu ráð fyrir
félagsmálaáætlun er skyldi ná til
allra þeirra sem sagt hefur verið
upp hjá Flugleiðum í Luxemborg
og einnig þeirra sem til stæði að
segja upp. Sagði talsmaður verka-
lýðsfélaganna að yfirmenn Flug-
leiða í Luxemborg hefðu átt að
koma umræddu bréfi á framfæri
með athugasemdum og tillögum í
þessum efnum til stjórnar Flug-
leiða, ekki seinna en 23. sept., til
þess að stjórnin gæti fjallað um
málið á fundi sínum 27. sept.
Auk þess hafa félög starfs-
manna Flugleiða í Luxemborg
farið fram á það að þeir fái
tryggingu vegna framtíðarat-
vinnu, en slíkt sé aðeins hægt að
gera með markvissum félagsmála-
áætlunum er yfirmenn Flugleiða í
Luxemborg og fulltrúar verka-
lýðsfélaganna samþykktu. Sagði
talsmaðurinn að fram til þessa
hefði öllum tillögum verkalýðsfé-
laganna verið hafnað og væri
starfsfólkið þess vegna orðið
áhyggjufullt þar sem ekki væri
tryggð framtíðarafkoma bótt flug
Flugleiða frá Luxemborg héldi
áfram.
Hús verslunarinnar uppsteypt
Lokið er uppsteypu á húsi verslunarinnar í Reykjavík og er það nú
fokhelt. Að sögn Magnúsar L. Sveinssonar, formanns V.R., verður nú
unnið að múrhúðun og öllum sameiginlegum frágangi hússins og
stefnt að því að ljúka honum í september á næsta ári. Verður
eignaraðilum síðan afhentur hver sinn hluti til endanlegs frágangs.
LjÓNm. ól.K.M.
OL í bridge:
Islenzka
landsliðið
er brokk-
gengt
ÍSLENZKA landsliðinu hefir
gengið frekar illa á Ólympíumót-
inu í bridge sem fram fer í
Valkemburg í Ilollandi. íslenzka
sveitin hefir spilað gegn Norður-
landaþjóðunum og náðu aðeins
10 stigum af 60 mögulegum út úr
þeim viðureignum. í fyrradag
var spilað gegn Japönum og
vannst sá leikur 15—5. Næsti
leikur var gegn Dönum sem voru
i efsta sæti i riðlinum og tapaðist
sá leikur 3—17. f fyrrakvöld var
svo leikið gegn Belgum sem voru
í öðru sæti i riðlinum og tapaðist
leikurinn 1 —19.
í gær hófst keppnin með leik
gegn Hong Kong og vannst leikur-
inn 18—2 eftir míklar sviptingar.
Munaði þar mest um spil þar sem
Guðlaugur og Örn spiluðu 6 tígla
og unnu, meðan Helgarnir spiluðu
5 spaða á andstæðar hendur og
töpuðu naumlega. ísland átti að
spila gegn Venezuela og Portúgal í
gær.
Ræddum almennt um
samskipti landanna
- segir utanríkisráðherra um viðræður sínar í Norfolk
— ÞESSAR viðræður í Norfolk
voru ekki um nein tiltekin efni,
heldur var rætt almennt um
samskipti landanna, sagði Ólafur
Jóhannesson utanrikisráðherra í
samtali við Mbl. i gærkvöld, en
hann var þá kominn aftur til
New York eftir heimsókn sína til
aðalstöðva Bandarikjaflota i Nor-
folk.
— Ýmis efni hafa náttúrlega
borið á góma meðal annars flutn-
ingamál hersins milli íslands og
Bandaríkjanna og við höfum
áhuga á því að flutningar í lofti
fáist í hendur íslendinga, Flug-
leiða, eins og flutningar á sjó eru í
höndum íslenskra aðila. Við reyn-
um að leggja inn gott orð hvað
þetta atriði varðar, en annars er
þetta mál Flugleiða, sagði ráð-
herra einnig.
Utanríkisráðherra sagði, að
ekki hefði verið rætt um fram-
kvæmdamál á Keflavíkurflugvelli,
en í næsta mánuði væri fyrirhug-
aður fundur varnarmáladeildar
með Bandaríkjamönnum um þau
mál. Þá sagðist utanríkisráðherra
hafa átt kurteisisviðræður við
Carter forseta og Mondale vara-
forseta og hitt að máli varnar-
málaráðherra, aðstoðarvarnar-
málaráðherra og aðstoðarutanrík-
isráðherra í Washington og heim-
sótt þingið og átt viðræður við
nokkra þingmenn. í dag verður
Ólafur Jóhannesson á allsherjar-
þinginu, en leggur af stað heim-
leiðis í kvöld.
Fjársvikamál:
Seldu bíómiða
án greiðslu op-
inberra gjalda
RANNSÓKNARLÖGREGLA ríkis-
ins vinnur nú að rannsókn fjár-
svikamáls sem upp er komið í
Kópavogi. Eru málavextir þeir,
samkvæmt upplýsingum RLR, að
kæra barst um helgina þess efnis,
að eigendur Borgarbiós seldu að-
göngumiða. sem ekki væru stimpl-
aðir af yfirvöldum og kæmist bíóið
þannig undan greiðslu opinberra
gjalda, svo sem skemmtanaskatts.
Var í gær gefinn út úrskurður um
húsleit í Borgarbíói og á skrifstofu-
húsnæði þess og fór hún fram
síðdegis í gær og í gærkvöldi.
Fannst allmikið af gögnum sem
benda þóttu til að kæran hefði við
rök að styðjast og játuðu eigendur
við yfirheyrslu í gær að hafa sett
þessa miða í umferð. Var þeim
sleppt eftir yfirheyrsluna en áfram
er unnið að rannsókn málsins.
Stolið 3 millj.
úr SS-búð
BROTIST var inn í verslun Sláturfé-
lags Suðurlands við Iðufell 14 að
morgni þriðjudags og stolið þaöan
um þremur milljónum króna. Var
brotinn upp peningaskápur og stolið
fyrrgreindri upphæð, sem öll var í
seðlum.
Þá var brotist um borð í Ljósafoss
þar sem hann lá í Hafnarfirði á
mánudag og stolið þaðan ljósabyssu.
Málin eru í rannsókn hjá RLR og
höfðu ekki verið upplýst síðdegis í
gær.
Skreiðin bíður á bakkanum eftir að verða skipað um borð i Borre.
Mikil eftirspurn eftir
skreið og verðið hátt
MUN MEIRI skreið hefur verið
flutt út það sem af er þessu ári
heldur en árin á undan. en skreið-
arvinnsla hcfur staðið betur í ár
heldur en frysting og söltun. Það
eru cinkum fjögur fyrirtæki. sem
selt hafa skreið á Nígeriumarkað.
þ.e. Sambandið. Samlag skreiðar-
framleiðenda. Sameinaðir fram-
leiðendur og G. Albertsson. Flciri
fyrirtæki hafa komið við sögu
þessa útflutnings og f gær var
skipað út 85 tonnum af skreið á
vegum Lýsis hf. og rakst blaöa-
maður á Jón Ármann Héðinsson,
fyrrum alþingismann. á Granda-
garði siðdegis, en hann sér að
mestu um þessa starfsemi fyrir-
tækisjns.
Jón Ármann sagði, að verið væri
að skipa út 85 tonnum af skreið,
sem fara með Borre, skipi Hafskips,
til Hamborgar. Þar verður skreið-
inni umskipað og hún flutt í gámum
með áætlunarskipum í Nígeríu.
Verðmæti þess, sem skipað var út í
gær, er rúmlega 500 þúsund dollar-
ar, að sögn Jóns Ármanns, eða hátt
í 300 milljónir íslenzkra króna.
„Þetta er sjötta sendingin frá
okkur í Lýsi og þetta virðist ganga
snurðulaust fyrir sig,“ sagði Jón
Ármann. „Eftirspurn er mikil, verð-
ið gott og fleiri sendingar eru
framundan. Raunverulega er ekki
næg skreið til í landinu eins og er,
miðað við eftirspurnina, en menn
munu ætla að hengja upp í haust í
meira mæli en áður hefur verið á
þessum árstíma. Ég held að óhætt
sé að segja, að hægt sé að selja
skreið til Nígeríu fyrir fleiri tugi
milljarða á næstu mánuðum,“ sagði
Jón Ármann Héðinsson að lokum.