Morgunblaðið - 02.10.1980, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1980
25
Ljósm. Árni Kristjánsson
TF-RÁN á þyrlupalli Ægis i St. John’s. Varðskipsmenn skoða gripinn.
Ægir kom með nýju
gæzluþyrluna í gær
VARÐSKIPIÐ Ægir
kom síðdegis í gær til
Reykjavíkur með nýja
þyrlu Landhelgisgæzl-
unnar. Varðskipið
sótti þyrluna til St.
John’s á Nýfundnalandi,
en þangað var henni
ferjuflogið frá Brid-
geport í Bandaríkjun-
um. Verður þyrlan búin
til flugs í dag og henni
væntanlega flogið til
Reykjavíkurflugvallar
að því loknu.
Ægir kom til St. John’s á
mánudag í fyrri viku. Var
þyrlan tekin um borð sl. fimmtu-
dag og sídegis sama dag var
lokið við að ganga frá henni í
þyrluskýli varðskipsins. Haldið
var úr höfn í St. John’s síðdegis
sl. fimmtudag og var varðskip-
ið því sex sólarhringa á
leiðinni til íslands. Að sögn
skipverja hreppti Ægir slæmt
veður í fyrrinótt og gekk ferðin
þá hægt. Kyrfilega var frá
þyrlunni gengið svo að hún
yrði ekki fyrir skemmdum í
miklum sjógangi.
Þyrlan er af gerðinni Sik-
orsky S-76. Hún er sérstaklega
gerð fyrir störf við landhelgis-
gæzlu og er með lyftibúnaði til
björgunarstarfa. Fyrir utan
flugmennina tvo eru sæti fyrir
12 farþega. Fullhlaðin getur hún
flogið 400 sjómílur eða um 750
kílómetra. Hámarkshraði
þyrlunnar eru um 150 hnútar á
klukkustund, eða rúmir 270 km.
Þyrlunum snúa tveir þrýsti-
hverflar. Þyrlan er vel búin
tækjum til flugs við hinar
ýmsu aðstæður.
Meðfylgjandi myndir eru
teknar við komu varðskipsins
til Reykjavíkur og einnig er
þyrlan var sett um borð í Ægi í
St. John’s.
„Jón Magnússon. lögfræðingur Landhelgisgæzlunnar, Þröstur
Sigtryggsson skipherra, Pétur Sigurðsson forstjóri og Björn
Jónsson flugmaður við nýju þyrluna í þyrluskýli varðskipsins
Ægis skömmu eftir komu Ægis frá Bandarikjunum.
I.jósm. Mbl. Ól. K.M.
Pétur Sigurðsson virðir fyrir sér stél þyrlunnar sem stendur aftur
úr þyrluskýli Ægis. Þyrlan var færð eins innarlega í skýlið og unnt
var, en það dugði ekki til, eins og sjá má.
Ljósm. Ól. K.M.
Atlantshafsflugið heldur áfram:
Skólastjóramálið í Grindavík:
Ríkissaksóknari krefst
ekki frekari aðgerða
RÍKISSAKSÓKNARI hefur tekið
ákvörðun um að ekki verði meira
aðhafst i hinu svokallaða „skóla-
stjóramáli” í Grindavík. en það
mál var mjög á döfinni fyrir
u.þ.b. ári. Að kröfu Arnmundar
Backmans, lögmanns Friðbjörns
Gunnlaugssonar fyrrum skóla-
stjóra i Grindavík, fór fram
lögreglurannsókn í máli þessu og
munu gögn málsins vera á þriðja
hundrað síður.
I bréfi ríkissaksóknara til máls-
aðila segir: „Að fenginni umsögn
menntamálaráðuneytisins þykja
eigi vera efni til frekari aðgerða í
málinu."
Ellefu ferðir á viku
til Chicago og New
York næsta sumar
NORÐUR-Atlantshafsflugið mun
halda áfram milli Luxemborgar.
íslands og Bandaríkjanna ef hlut-
hafafundur Flugleiða samþykkir
tillögu stjórnar Flugleiða þess
efnis. byggða á grundvelli þess
stuðnings scm ríkisstjórnir Lux-
emborgar og íslands hafa lofað.
Verða að minnsta kosti þrjár
ferðir í viku milli Lux.-íslands og
New York í vetur, en tvær ferðir í
sumar til New York og Chicago. að
sögn Sigurðar Helgasonar for-
stjóra Flugleiða, í samtali við Mbl.
„Þetta miðast við það,“ sagði
Sigurður, „að komið verði í höfn
þeim atriðum sem enn eru óákveðin
eins og t.d. endurgreiðsla lend-
ingargjalda fyrir árin 1979 og 1980,
að lausum skuldum verði breytt í
fast lán og fleira. Tíminn fram til
hluthafafundar, 8. október, verður
notaður til þess að kanna þessi
atriði. Það var ákveðið að skjóta
þessu til hluthafafundar, því hér er
um mjög mikilsvert mál að ræða og
rétt að hluthafafundur hafi síðasta
orðið í þessari ákvörðun."
Aðspurður sagði Sigurður að
hugmyndir um hlutafjáraukningu
yrðu teknar fyrir á fundinum.
Reiknað er með því að sölu-
skrifstofa verði áfram í Chicago en
þó í mun minna umfangi en verið
hefur.
Varðandi flugið vestur um haf
næsta sumar er gert ráð fyrir
daglegum ferðum til New York,
tveimur ferðum í viku til Chicago
og tveimur ferðum að auki vestur
um haf í tengslum við Skandinavíu-
flugferðir.
Bogi Hallgrímsson:
og treysti núverandi stjórn betur
en öðrum til þess að stjórna
landinu". Spurning vaknar, hversu
lengi menn láti sér nægja viðleitn-
ina eina.
Leiðarahöfundur Þjóðviljans
hefur í frammi blekkingar þegar
hann ber saman ósambærilegar
tölur, þ.e. fylgi flokkanna í síðustu
kosningum og akoðanaW^nj^
nu. I samræ^j-^ er fyrir.
SÖ^T. leiðarans 1. okt.: Lýðhylli.
Stjórnarliðar böðuðu sig í lýðhyll-
inni í byrjun þeirrar óheillagöngu.
sem enn er gengin. Og það er
alvarlegt mál þegar menn mis-
skilja svo algjörlega hin breyttu
viðhorf kjósenda til ríkisstjórnar-
innar, sem fram koma í síðustu
skoðanakönnun. Það er alvarlegt
vegna þess, að tiltrú stjórnarliða á
viðvarandi lýðhylli þýðir óbreytta
stefnu, versnandi lífskjör. Von-
andi verður ekki langt í næstu
skoðanakönnun, ef það mætti
verða til þess að rofaði til í hugum
stjórnarliða.
ólafur G. Einarsson.
Friðbjörn og Ragn-
ar Arnalds þyrluðu
upp miklu moldviðri
MORGUNBLAÐINU hefur bor-
ist eftirfarandi yfirlýsing frá
Boga Hallgrímssyni fyrrum
skólastjóra í Grindavík vegna
lykta „skólastjóramálsins” svo-
kallaða sem mjög var á döfinni á
síðasta hausti.
„Mikil blaðaskrif urðu á sl.
hausti vegna veitingar skóla-
stjórastöðu í Grindavík og óskaði
Friðbjörn Gunnlaugsson fyrrver-
andi skólastjóri grunnskóla
Grindavíkur eftir opinberri rann-
sókn á því, sem hann kallaði „á
þeim ástæðum og atburðum, sem
valdið hafa því að opinberum
starfsmanni er meinað að rækja
Starf S’itt og fiæmist að lokum á
brott og sér sig knúinn til að
segja af sér embætti". Einnig var
óskað eftir að tekið væri til
rannsóknar innbrot í herbergi
Friðbjörns í embættisbústaðnum
og brottflutningur muna hans og
móður hans.
/ Þyrlaði Friðbjörn ásamt fyrr-
verandi menntamálaráðherra,
Ragnari Arnalds, upp miklu
moldviðri og báru undirritaðan
þungum sökum m.a. því að hafa
hindrað Friðbjörn í að taki VÍo
starfi S£m skólastjóri haustið
1979 með því m.a. að hafa skipt
um skrár í skólanum og hafa
neitað að afhenda honum lykla
sem hvorugt er rétt þar sem ekki
var skipt um skár. Þar af leiðandi
hafði hann alla lykla að skólan-
um, frá því hann gegndi starfi
sem skólastjóri. Fjarstæða er að
ég hafi vísað honum á dyr eða,
eins og hann orðar það í viðtali
við eitt dagblaðanna, að ég hafi
kastað honum út.
Rannsókn þessari er nú lokið.
Eru yfirheyrslur og skjöl málsins
á 3ja hundrað síður og er þar
saman komin mikill fróðleikur
um feril Friðbjörns og sannleiks-
ást hans og ráðherra hans.
Niðurstaða ríkissaksóknara er
að sjálfsögðu sú að ekki sé ástæða
til frekari aðgerða í málinu.
Grindavík 26. sep. 1980
Bogi Hallgrimsson.
Ólafur G. Einarsson alþm.:
Skoðanakönnum Dagblaðsins
um fylgi ríkisstjórnarinnar hefur
vakið nokkra athygli. Viðbrögð
stjórnarliða við könnuninni vekja
ekki síður athygli vegna þess,
hvernig þeir lesa úr tölunum.
Fylgjendur stjórnarinnar
reyndusí nú 41.2% ( ándvígir og
óákveðnir 58,8%. Sambærilegar
tölur frá febrúarkönnun eru
70,8% fylgjendur, en andvígir og
óákveðnir 29,2%. Þetta þýðir
lækkandi gengi stjórnarinr.ár um
41,8% á um það bil 7 mánuðum,
eða 6% á mánuði til jafnaðar.
„Ég fagna þessari niðurstöðu,"
segir forsætisráðherra. Hann bæt-
ir að vísu við: „þar sem rúmlega
61% þeirra, sem tóku afstöðu, lýsa
fylgi við ríkisstjórnina." Þá tölu
má fá út úr könnuninni, en
sambærileg tala frá febrúar-
könnuninni er 89,9%. Það þýðir
lækkandi gengi ríkisstjórnarinnar
um 31,7%. Á sama hátt og stjórn-
arliðar fagna nú 61% fylgi með
því að lesa á sinn hátt úr tölunum,
geta stjórnarandstæðingar ^loost
yfir 282% fjölgnn í sinu Hði, þar
sem nú pru 38,6% andvígir stjórn-
inr.i, en voru 10,1% í febrúar.
Vaxandi skilningi fólksins í
landinu á ráðleysi Jiessarar ríkis-
stjórnar fagna ég. Eg undrast hins
vegar túlkun þá, sem fram kemur
hjá forsætisráðherra þegar hann
segir af þessu tilefni, að fólkið í
landinu meti „viðleitnina til þess
að ráða fram úr vandamálunum
Að lesa úr tölum