Morgunblaðið - 02.10.1980, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1980
35
sérstakan gest kvöldsins, barí-
tonsaxófónleikarann Gerry Mull-
igan, sem lék ýmis þekkt lög, eins
og My Funny Valentine og How
High the Moon sem og eigin
komposisjónir. Allt fádæma vel
gert og ekki létu undirleikararnir
sinn hlut eftir liggja, enda ekki af
verri endanum: Roland Hannah
(p.), Mads Winding (b.) og Ed
Thigpen (tr.). Hannah lék sóló í
gömlu standördunum eins og þeir
hefðu verið samdir í gær og Ed
Thigpen krafsaði fjörlega í settið.
Hápunkturinn var þó þegar upp-
hófst mikið og skemmtilegt ein-
vígi milli Mulligan og Mads Wind-
ing sem þar bætti enn einni fjöður
í nú nær alfiðraðan hattinn með
mjög sérkennilegum og smekkleg-
um kontrabassaeinleik.
í lok hljómleikanna lék Mullig-
an nokkur lög með Getz-sveitinni,
en enda þótt það lífgaði upp á
sálina að heyra samleik gömlu
mannanna, megnaði hann ekki að
lyfta stemmningunni til muna
með leik sinum, enda Getz og
félagar búnir að þrýsta henni
kyrfilega niður er hér var komið
sögu. Það var því ekki laust við að
ég væri dálítið kalinn á hjarta
þegar ég yfirgaf Tívolí þetta kvöld
og hélt áleiðis í Montmartre, þar
sem Pat Metheny var mættur með
hljómsveit sína.
Gaman, gaman
Er komið var að Montmartre í
Norregade var þar mikill hópur
fólks utandyra og tilkynningar
uppi hangandi, þess efnis að
uppselt væri á tónleikana. Þetta
var um tíuleytið og þeir því
byrjaðir fyrir nokkru, en engu að
síður kom þetta mér á óvart. Eftir
nokkuð handapat tókst mér að
gera dyravörðum viðvart um að
hér væri á ferð sérlegur fulltrúi
íslensku þjóðarinnar með blað og
blýant og myndavél. Komst ég þá
inn í troðfull herlegheitin.
Ég bjóst við góðu af Metheny,
því ég hafði fyrir nokkrum árum
orðið mér úti um plötu með honum
og haft mikið gaman af. Og í þetta
skiptið varð ég ekki fyrir von-
brigðum. Hann og félagar hans
léku tónlist sína af miklum krafti
og einlægni og áhorfendur máttu
vart vatni halda af hrifningu.
Tónlist þeirra er all sérkennileg
blanda af jazzi og þróuðu, vönduðu
rokki. Oft á tíðum mjög gripandi
og alltaf frískleg. Afleiðingin er sú
að hún hefur náð umtalsverðum
vinsældum í heimalandinu, USA,
og er því tekið með nokkrum
fyrirvara af spakvitrum jazzvesír-
um. Sumum finnst þetta vera hið
versta bévað popp og hrista haus-
inn. Aðrir hrista bara hausinn en
þora ekki að slá neinu föstu fyrr
en næsta hefti af Down Beat
kemur út. En þetta er allt saman
aukaatriði. Málið er að þetta var
stórskemmtilegur konsert og
reyndar töluvert skemmtilegri en
nýjustu plötur sveitarinnar. Virð-
ist gilda það sama um þessa
tónlist og tónlist þeirra Adams og
Pullen: Best á hljómleikum.
Pat Metheny er ungur að árum
en hefur þegar öðlast töluverða
frægð sem gítarleikari. Hann hef-
ur leikið með ýmsu tónlistarfólki,
næsta ólíku. Hann lék í þrjú ár
með Gary Burton og í nokkurn
tíma með Joni Mitchell. Sjálfur
telur hann Burton hafa haft mest
áhrif á sig, en segir að ofarlega
þar á blaði séu einnig Bítlarnir og
svo ýmsir jazzgítaristar eins og
Wes Montgommery og Jim Hall.
Hann hefur sent frá sér allmargar
hljómplötur, flestar ef ekki allar,
hjá ECM-fyrirtækinu. Á þeim
nýjustu leika þeir með honum sem
voru með í Montmartre. Lyle
Mays (p), Mark Egan (rafb.) og
Dan Gottlieb (tr).
Allir stóðu þeir sig með miklum
ágætum þar, en trommuleikarinn
var sá er virtist vera veikasti
hlekkurinn. Það kom fram í viðtali
við Metheny í danska útvarpinu að
í haust er væntanleg á markað
tvöföld plata þar sem leika auk
hans þeir Mike Brecker, Dewey
Redman, Charlie Haden og Jack
DeJohnette. Tel ég óhætt að mæla
með henni fyrirfram.
Eftir að þessari hátið lauk
gerðist lítið á jazzsviðinu í Kaup-
mannahöfn og ekki varð mér að
þeirri ósk minni að NH0P tæki
sér frí frá Islandsreisum og öðrum
ferðalögum og léki svo sem eins og
einu sinni í Montmartre áður en
ég færi heim nú í haust. Og sama
gildir reyndar um Philip Cather-
ine. En það virðist sem sagt vera
alveg eins líklegt að maður heyri í
þessum mönnum hér á Fróni eins
og í „Jazzmiðstöð Evrópu" svo ég
held ró minni.
Danny Richmond
Næsta brottför
7. október
Sex daga ferö frá þriöjudegi til sunnudags
Verð frá kr. 282.000 (miðafi vifi gistingu i tveggja manna herbergi)
Samvinnuferdir-Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SIMAR 27077 8, 28899
stuttar verslunar- og skemmtiferðir
með íslenskrí fararstjóm
Við útvegum aðgöngumiða
(og þú greiðir meö íslenskum peningum)
, • Enski boltinn meb eigin augum
• Evita
• Talk of the Town
• ..fjöldi annarra veitinga- og skemmtistaða
Innifalið í verði
• Flug
• Flutningur til og frá flugvelli
• islensk fararstjórn
• Hótelgisting meö morgunveröi. Þrjú hótel
i hjarta borgarinnar, Royal National hotel,
London Metropol eöa Selfridges. öll
herbergi meö baöi, sjónvarpi, útvarpi og
sima.