Morgunblaðið - 02.10.1980, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1980
fclk í
fréttum
Miklir innileikar með frœgum
+ Hér heilsast þeir innvirðulega, leikarinn Peter Falk, sem er betur þekktur sem
Colombo, og dægurlagasöngvarinn Frank Sinatra, í samkvæmi í London.
Samkvæmið var haldið eftir fyrstu hljómleika Sinatra af tíu, sem hann heldur í
London nú í haust. Áhorfendur tóku Sinatra mjög vel og í lok tónleikanna stóðu þeir
upp og klöppuðu gamla manninum lof í lófa. Fyrir miðju á myndinni er Shera kona
Peters Falk.
Bob Hope á heimaslóð
+ Hann er mikið í fréttunum grínkarlinn, leikarinn og
dansarinn Bob Hope. Fyrir skömmu birtum við mynd af
honum á Rauða Torginu og nú er hann kominn til
Englands. Þar var þessi mynd tekin. Hann var staddur þar
vegna golfkeppni og notaði þá tækifærið og heimsótti
fæðingarstað sinn. Fyrir þá sem hafa áhuga á að vita
heimilisfangið látum við það fylgja: 44 Craighten Road,
Eltham, Suð-austur London. A myndinni er hann með
núverandi íbúum hússins. Væntanlega hefur Bob látið
nokkra velvalda brandara fjúka og hver veit nema hann
hafi dansað á stéttinni framan við húsið.
+ Þennan leikara kannast
vist ílestið við. Þetta er
Gordon Jackson. sem íslend-
ingar þekkja vist bezt undir
nafninu Hudson, þjónninn i
Húsbændur og hjú. Frægur
sælkeri, Robert Carrier, átti
viðtal við hann i enska sjón-
varpinu á dðgunum. Þar
sagði „Hudson“ frá því að
fjölmargir „alvöru“ yfirþjón-
ar hefði hringt til hans og
sagt honum að það væri
óhugsandi að enskur yfir-
þjónn snæddi með starfsfólki
eldhússins eins og var i þátt-
unum. „IIudson“ sagði einnig
að sá dýrindismatur sem
fram var borinn i þáttunum,
hafi verið alvöru matur. En
til þess að maturinn þyldi
hitann frá öllum ljósabúnað-
inum var hann sprautaður
með einhvers konar gljá-
kvoðu. Stundum neyddust
leikararnir til að fá sér bita
og var bragðið þá svo óskap-
legt að þeir komu varla frá
sér hlutverkum sinum! Tann-
stönglanotkun ku hafa verið
með ólikindum! Samtalið fór
fram á meðan „Iludson" og
Carrier snæddu skoska
hænsnakjötsúpu, sem er upp-
áhaldsréttur „Iludsons".
Þeim var borinn maturinn og
„Hudson" sagði aldrei
„takk“. Sjálfur sagði hann
um það. „Það er eitt af því
sem ég lærði. Það fer í
taugarnar á starfsfólkinu ef
gestirnir cru alltaf að segja
„takk“ og tefur þjónustuna.
— Þetta skulum við muna
næst þegar við förum á
Brauðbæ!
41
LITASJÓNVÖRP
Dale Carnegie félagar
Hvernig væri að
bjóða konunni
til London?
Nokkrir miöar lausir á hagstæöu veröi. Farið
veröur með Feröaskrifstofunni Útsýn 23. október.
Komiö til baka 28. október. Uppl. í síma 82411.
Stjórnunarskólinn,
Konráó Adolphsson.
Sumir halda ad það
sé nóg að eiga gott
segulband
aðrir að
kassettan skipti
ekki miklu máli.
Hinir eru fleiri sem
vita betur.
| Fagmenn vita aö viö upptöku á tönlist þarf að
! hljöörita og endurspila sama lagstubbinn mörgum
I sinnum áöur en endanlegur árangur næst. Þess-
I vegna nota þeir ampex tönbönd.
Dreifing:
HdnMI sími 29575 Reykjavík