Morgunblaðið - 02.10.1980, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1980
45
hefði mátt benda gyðingunum á að
leita frelsis samkvæmt formúlum
Hitlers. En skyldi Ögmundi Jón-
assyni nokkurn tíma hafa dottið í
hug, hvaða örlögum þeir menn
sæta í ríkjum sósíalista og fasista,
sem krefjast þess að kerfið sé
afnumið? Slíkum mönnum er boð-
ið í „helför."
• V-Evrópa
vel sett
V. Sig. skrifar:
„Nú þegar brjálæðingnum
honum Khomeini hefur tekist að
koma öllu í bál og brand og
olíustöðvar í íran og Irak standa í
björtu báli, þá er það vitað mál, að
olía mun snarhækka í verði á
næstu mánuðum. Jafnvel er hugs-
anlegt að um verði að ræða
olíuskort, sem enn mun hækka
verðið. En Vestur-Evrópa er vel
sett, á gnægð olíu í 3 til 4 mánuði
að minnsta kosti, jafnvel lengur.
• Hver ber
ábyrgðina?
En hvernig erum við í stakk
búin hér á íslandi? Eigum við
nægar birgðir? Mér er spurn. Sagt
er að við eigum eins til tveggja
mánaða birgðir af sumum olíuvör-
um, en lítið af bensíni. Ég spyr
því: Hver ber ábyrgðina á þessum
slóðaskap? Við erum háðir Sovét-
ríkjunum um olíukaup, en allir
vita að ófriður getur stöðvað alla
flutninga frá olíuhöfnum Sovét-
manna við Svartahaf. Það ætti að
vera augljóst mál að við verðum
alltaf að eiga að minnsta kosti 6
mánaða ef ekki eins árs birgðir,
allt getur skeð, og því meiri
birgðir sem til eru, því betra.
Vonandi standa ráðamenn sig í
þessu máli og láta hendur standa
fram úr ermum. Það verður að
gera róttækar ráðstafanir til
hagsbóta fyrir alla landsmenn."
Þessir hringdu . . .
• Heilaþvegin af
-niðurrifsöflum
Ililda Björk Sigurðardóttir
hringdi og hafði eftirfarandi að
segja:
— Ég er ekki pólitísk eða í
sértrúarflokki, ég er móðir og
uppalandi. Ég hef kennt bðrnum
mínum bænir og að meta kristna
trú, en sjálf er ég ævinlega
þakklát fyrir það vegarnesti sem
foreldrar mínir miðluðu mér áður
en ég fór út í lífið. Það er
ómetanlegt að eiga trúna að og
bænina þegar á móti blæs og
erfiðleikar steðja að. Hvert getur
trúlaus maður snúið sér? Það er
líka svo að snillingar allra alda
hafa kunnað að meta kristna trú
og meistarar hafa tjáð sína trú í
tali og tónum og á lérefti. En
skólarnir okkar eru ekki eins
hrifnir, heldur ýta kristinni trú til
hliðar og láta sér fátt um finnast,
þegar best lætur. Rífa niður þegar
verst lætur. Dóttir mín sem er í
gagnfræðaskóla gengur nú í gegn-
um heilaþvott niðurrifsaflanna,
sem líta kristna trú smáum aug-
um og fara ekki í launkofa með
það — og mega til með að rífa
niður trú sem gróðursett hefur
verið í ungum sálum. Hverjir geta
veitt okkur foreldrum stuðning í
þessu efni? Gætu ekki prestarnir
skipt því niður á sig að heimsækja
framhaldsskólana og ræða við
nemendur um kristna trú — og
veitt nemendum þannig stuðning í
orrahrið niðurrifsaflanna? Ég
skora á þá að gera það.
SKAK
Umsjón: Margeir Pétursson
í Evrópukeppni landsliða í
Skara í Svíþjóð í janúar kom þessi
staða upp í skák þeirra Ljubojev-
ics, Júgóslavíu, og Miles, Eng-
landi, sem hafði svart og átti leik.
HÖGNI HREKKVÍSI
3G. ... Bxe4! (Vinnur peð, því að
37. Bxe4 gengur auðvitað ekki
vegna 37.... Hfl og mátar) 37. h4
— Ber‘, 38, Bxe4 — Bxg3 með
skiptarr.ur. undir gafst hvítur
s'kömmu síðar upp.
/€5KO6L.'0ÐiR bfoO-rJA. .
Bs«sa«*ssæsss«æsg!c
Jektorar
•IWIOfl iMJUÍd
Fyrlr lenslngu I bátum og fiskvinnslustöðvum.
^(uiirÐmDgjyr
Alltaf sól
hjá okkur...
Höfum sett upp hina vinsælu sólarlampa
Leitið nánari upplýsinga og pantið tíma
hjá sundlaugarvörðum í síma 22322.
HÓTEL LOFTLEIÐIR
^Dale .
Larneeie
námskeiðið
Kynningarfundur
í kvöld kl. 20.30, Síðumúla 31, uppi.
Námskeiöiö getur hjálpaö þér aö
★ OÐLAST MEIRA ORYGGI
Meiri trú á sjálfan þig og hæfileika þína.
★ ÁRANGURSRÍKARI SKOÐANASKIPTI
Koma hugmyndum þínum örugglega til skila.
★ SIGRAST A RÆDUSKJALFTA
Aö vera eðlilegur fyrir framan hóp af fólki og
SSgjS þaö, sem þú ætiar aö segja, meö árangri.
★ MUNA MANNANÖFN
Þjálfa minni þitt. Vera meira vakandi og skerpa
athyglina. Að stjórna í staö þess aö þræla.
Byggja upp betri persónuleika og auka eldmóö-
inn.
★ SIGRAST Á ÁHYGGJUM OG KVÍDA
Hugsa raunhæft. Leysa persónuleg og við-
skiptavandamál.
★ STÆKKA SJÓNDEILDARHRINGINN
Eignast vini, ný áhugamál og fleiri ánægju-
stundir í lífinu.
Fjárfesting í menntun skilar þér arði ævilangt.
í Qv 82411
STJÓRNUNARSKÓLINN
% f-'t-'A'/- ll>lKonráð AdolphSson
****»**««*> '*ss******ws*æs*æ*æ ■>s****4.****ææ*w>*>æ*****