Morgunblaðið - 02.10.1980, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 1980
47
t
Albert og Sigurður
þreifa fyrir sér
Albert Guðmundsson Val hefur
áhuga á atvinnumennsku i
knattspyrnu.
Hörkuleikir
í kvöld
TVEIR leikir fara fram í ís-
landsmótinu i handknattleik i
kvöld i Laugardalshöllinni. Kl.
20.00 leika KR og Þróttur og
síðan mætast Valur og Vikingur.
Það má búast við góðri skemmt-
un i höllinni í kvöld. Þvi að báðir
leikirnir eiga eftir að bjóða upp á
hörku og spennu.
ÞEIR Sigurður Grétarsson og
Albert Guðmundsson, sem eru að
reyna fyrir sér með atvinnu-
möguleika í vestur-þýsku
knattspyrnunni um þessar mund-
ir, æfðu með 2. deildarliðinu
Munster í fyrrakvöld. Munster er
i 14 sæti i 2. deild. Eru taldar
nokkrar líkur á því að þeir geri
samning við lið þetta, en slíkur
samningur væri stökkpallur í
frekari atvinnumennsku hjá
sterkari liðum, ef þeir félagar
Eyjamenn komu verulega á óvart
er þeir stóðu öðru sinni uppi í
hárinu á tékknesku meisturun-
um Banik Ostrava. Hanik sigraði
þó í gærkvöldi 1 —0. því samtals
2—1, þar sem leik liðanna á
Kópavogsvelli lauk sem jafntefli.
1 — 1. Að Fram og ÍA ólöstuðum
er staðreynd, að ÍBV stóð sig
lang best af íslensku þátttakend-
unum í Evrópukeppnunum þrem-
ur i knattspyrnu að þessu sinni.
Eyjamenn áttu í vök að verjast
eins og vænta mátti í gærkvöldi og
leikurinn var þeim mun erfiðari
en heimaleikurinn. Eyjamenn
standa sig i atvinnumennsku.
Þeir Sigurður og Alhert dvelja
um þessar mundir hjá Atla Eð-
valdssyni i Dortmund. en verði
ekkert úr samningum við Munst-
er. munu þeir halda áleiðis til
Belgiu til viðræðna við forráða-
menn belgiska 1. deildar liðsins
Beerschot. Er það með sterkari
liðum þar i landi og hefur nokkra
kunna leikmenn innan sinna vé-
handa. má þar nefna pólska
markvörðinn Jan Tomaschewski.
gerðu Tékkunum þó lífið leitt og
heimajiðið fékk ekki mörg opin
færi. Ur einu slíku tókst liðinu þó
að skora á 30. mínútu leiksins og
reyndist það vera eina mark
leiksins. Eyjamenn náðu oft góð-
um samleiksköflum úti á vellin-
um, einkum er liðið sótti upp
kantana, en við vítateig stöðvuð-
ust flestar sóknarlotur iiðsins og
flestar tilraunir Eyjamanna voru
langskot sem geiguðu. Frammi-
staða Eyjamanna vakti að sögn
athygli í Tékkoslóvakíu og voru
Tékkar lítt hrifnir af að meistara-
lið þeirra ynni ekki stærri sigur á
áhugamannaliði en raun varð á ...
Eyjamenn töpuðu
„Ætla að þagga niður í Ali“
• Hver þaggar niður í hverjum i Las Vegas i kvöld? Þaggar Holmes niður i Ali eins og hann hótar, eða
verður það öfugt? Fcrill AIi hefur verið einkar glæsilegur, en á meðfylgjandi mynd er eitt af fórnarlömbum
hans, Chuck Wepner, á leið i gólfið ...
segir Larry Holmes um rimmu kvöldsins
ÞÓ AÐ Larry Ilolmes sé heims-
meistari í hnefaleikum, er
sennilega margt til í því sem
keppinautur hans Muhammad
Ali segir: „Hann gæti labbað
niður mestu umferðargötu ver-
aldar með nafn sitt ritað stór-
um stöfum í bak og fyrir, en
enginn myndi snúa sér við og
glápa, þvi enginn þekkir hann.
Ef ég myndi gera það sama.
fengi ég engan frið, spjarirnar
yrðu rifnar af mér og ég mætti
teljast heppinn að sleppa
óskaddaður.“ Það er vafalaust
margt til i þessu hjá Ali þrátt
fyrir þessar venjulegu ýkjur og
ótrúlegu frásagnargleði. Sann-
leikurinn er nefnilega sá, að
Holmes hefur litið sem ekkert
verið i sviðsljósinu. Hann hefur
allt frá barnæsku verið einfari
og litt gefinn fyrir frægð og
frama. Hnefaleikaaðdáendur
þekkja hann aðeins sem mikinn
rotara.
Sannarlega er Holmes gerólík-
ur persónuleiki en keppinautur
hans, Mohammad Ali. Eru þeir
ólíkari en svart og hvítt. Engu að
síður þekkjast þeir vel. Holmes
var nefnilega ein af æfingar-
brúðum Alis á sínum yngri
árum, enda stærir Ali sig af því
að hafa gert Holmes að því sem
hann er í dag. Holmes segir hins
vegar: „Ef enginn þekkir mig í
dag, þá verður á því gerbreyting
á föstudagsmorgun, þá munu
allir vita hver Larry Holmes er.
Ég hélt ég myndi aldrei segja
neitt þessu líkt, en ég ætla ekki
að sýna Ali neina miskunn. Ég
ætla að berja hann í spað. Ég hef
alltaf sagt að Ali væri stórkost-
legur hnefaleikamaður, en hans
tími er liðinn, það þarf að koma
honum í skilning um það og það
ætla ég svo sannarlega að gera.
Hann hefur nokkuð sem ég
girnist, frægð, og með því að
stöðva hann mun ég öðlast hana.
Fáir hnefaleikarar hafa komist
jafn langt og ég. Ég er heims-
meistari, en samt finnst mér ég
ekki vera viðurkenndur sem slík-
ur. Því lít ég svo á, að ég verði
ekki verðugur heimsmeistari
fyrr en ég hef þaggað niður í
Ali.“
Sjá íþróttafréttir á bls. 36
./ /...\ * \
„dún“ watt jakki. Verö 48.900 -
ZMmo
„dún“ watt vesti. Verö 27.900-
a Fæst hjá
ÚmKARNABÆ
og einkasöluaðilum hans um
land allt.