Morgunblaðið - 16.10.1980, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 16.10.1980, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1980 Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson. Björn Jóhannsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19,_sími 83033. Áskriftargjald 5.500.00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 280 kr. eintakið. Hvað elskar sér líkt... Þaö er smátt, sem pólitíska humlstunyan ekki finnur. í forystufírein í Tímanum í j;ær reynir Þórarinn Þórarinsson að skýla sér bak við hálfsagðar sögur Wilsons, fyrrum • forsætisráðherra Breta, um viðræður hans og forráðamanna Islendinga, þegar síðasta þorskastríð geisaði en Morgunblaðið birti frétt um þessi ummæli fyrir um ári og líklega hefur hún farið framhjá Þórarni á hafréttarráðstefnunni. En þessir hálfkveðl- ingar brezka forsætisráðherrans verða nú tilefni til venjulegs níðs um formann Sjálfstæðisflokksins. Það hefur ekki þótt mannborulegt hingað til á íslandi að troða sér undir brezka verndarvænginn, og í þorskastríðinu sjálfu kom vel í ljós, að þeim Bretum er annað betur gefið en heilagur sannleikurinn — og eiga þeir það sameiginlegt með framsóknar- mönnum. Það er raunar lítilmannlegt að reyna að leita sér pólitísks skálkaskjóls í brezku níði, en hæfir þó skel kjafti. Alkunna er, að síðasta þorskastríð vannst undir forystu Geirs Hallgrímssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, sem hafði stjórn- arformennsku á þeim tíma og 200 mílna fiskveiðilögsögu að aðaltakmarki stjórnar sinnar. Þetta tókst m.a. vegna sterkra tengsla brezku stjórnarinnar við Atlantshafsbandalagið — og þá einkum utanríkisráðherra stjórnarinnar, sem nú er látinn. En Wilson og framsóknarmenn geta skrifað sína „sögu“ án þess að öðrum komi það við. Og eitthvað verður Þórarinn að hafa fyrir stafni, meðan hann er ekki á hafréttarráðstefnum. Það er út af fyrir sig ánægjulegt, að einhver skuli taka mark á „söguskoðunum" Wilsons, því að ekki eru þær í hávegum hafðar í Bretlandi. En það er mátulegt á Þórarinn Þórarinsson, að hann skuli eiga samleið með honum í þeim efnum. Þetta samstarf skyldi þó ekki hafa byrjað í þorskastríðinu? Samkomulag sjálfstæð- ismanna um nefndakjör Samkomulag það, sem varð í þingflokki Sjálfstæðisflokksins um kjör í þingnefndir hefur vakið almenna ánægju meðal flokksmanna og stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins. Sá klofn- ingur, sem varð í Sjálfstæðisflokknum á sl. vetri við stjórnar- myndun Gunnars Thoroddsens, hefur valdið miklum sárindum meðal almennra flokksmanna og stuðningsmanna flokksins, sem leita ekki eftir persónulegum frama á vettvangi stjórnmálanna en leggja hins vegar af mörkum mikla vinnu í þágu þeirra hugsjóna, sen Sjálfstæðisflokkurinn berst fyrir. Þetta fólk ekki sízt fagnar því samkomulagi, sem varð um nefndakjör í þingbyrjun í þingflokki Sjálfstæðisflokksins. Margir hafa haldið því fram, eftir að núverandi ríkisstjórn var mynduð, að ekki mundi gróa heilt í Sjálfstæðisflokknum og þess yrði ekki langt að bíða, að hann sundraðist. Þeir andstæðingar Sjálfstæðisflokksins, sem þannig tala, hafa sjálfsagt ekki gert sér grein fyrir því, að allt frá stjórnarmynduninni og til þessa dags hefur krafa hinna almennu flokksmanna og stuðningsmanna flokksins verið ein og hin sama, að flokknum verði haldið saman. Þeir trúnaðarmenn Sjálfstæðisflokksins, sem stuðla að sundrungu í störfum sínum geta ekki vænzt stuðnings almennra flokksmanna við slíka iðju. I ræðu, sem Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, flutti sl. sumar í Bolungarvík lagði hann sérstaka áherzlu á sættir og undirstrikaði nauðsyn þess að sjálfstæðismenn vinni saman að fjölmörgum verkefnum, sem úrlausnar bíða á vettvangi flokksins, þótt ágreiningur sé á öðrum vígstöðvum. Að því eiga sjálfstæðismenn að vinna og samkomulag í þingflokknum verður flokksmönnum áreiðanlega hvatning til þess. Fleiri og fleiri hafa nú áhyggjur af því upplausnarástandi, sem ríkir í íslenzku þjóðlífi. Þegar styrkur Sjálfstæðisflokksins er mestur er hann eina raunverulega sameinandi aflið, sem hægt er að byggja á. Þess vegna eru margir aðrir en sjálfstæðismenn, sem hafa áhyggjur af þeirri sundrungu, sem verið hefur í röðum sjálfstæðismanna um skeið. Upplausnin kallar á hið sameinandi afl, og þá kjölfestu, sem Sjálfstæðisflokkurinn getur verið. Það á að verða sjálfstæðismönnum hvatning til þess að setja niður þær deilur, sem verið hafa uppi innan flokksins og einbeita kröftum flokksins að því uppbyggingarstarfi, sem framundan er. Nú er þörf þess konar þáttaskila í íslenzku þjóðlífi, sem Viðreisnin varð 1960. Sterkur og samhentur Sjálfstæðisflokkur er eina þjóðfélagsaflið, sem tryggt getur að þau þáttaskil verði. íslenzka málaársnefndin ásamt Hjálmari ólafssyni formanni Norrænafélagsins á ísiandi. Talið frá vinstri: Hjörtur Páisson, Haraldur Óiafsson, Guðrún Erlingsson, Aðalsteinn Davíðsson, Hjálmar Ólafsson og Stefán Karlsson. Málaársnefnd Norrænafélagsins: flvannaamiul erinarsuutit Davvilavlagat Dordsange Dordsanger Dordsinger Dorðurlendskir sangir Dorðursöngvar 'pohjolan lauluja Norðursöngvar, gcfin út af nor- rænum útvarpsstöðvum. Snælda með norsku, sænsku og færeysku efni væntanleg MÁLAÁRSNEFND Norrænafélagsins á íslandi, sem starfar í samvinnu við samskonar nefndir á hinum Norðurlöndunum, til þess að kynna Norðurlandamálin innan allra landanna, boðaði nýlega blaðamenn á sinn fund til að kynna störf sín og hvað fram undan væri. Þar kom meðal annars fram að mjög gott samstarf hefur tekizt með námsstjóranum í dönsku og menntamálaráðuneytinu, sem veitti 5.000 þúsund krónur til ótgáfu á snældu með norrænu efni og einnig að norrænu útvarpsstöðvarnar hafa nú gefið út söngbók með lögum og textum frá öllum Norðurlöndunum. I bókinni eru textar á 8 tungumálum, þar á meðal græn- lenzku, samísku og færeysku auk hinna málanna fimm. Út- varpsstöðvarnar hafa einnig gert nokkra þætti, sem ætlaðir eru til flutnings í útvarpi og eru að miklu leyti byggðir á bókinni og mun þess ekki langt að bíða að þættirnir verði fluttir hér. Á snældunni verður efni frá Noregi, Svíþjóð og Færeyjum, bæði lesið og sungið. Það verða þjóðsögur og smásögur frá hverju landi, sem tengdar verða með söngvum. Efnið hafa Björg Juhlin, Sigrún Hallbeck og Ingi- björg Jóhannessen valið. Vonandi ætti þetta efni að geta vakið athygli íslenzkra skólanemenda á því að með dönskunáminu öðlast þeir jafn- framt lykil að sænsku og norsku og að ýmsum þeim orðmyndum færeysku sem þeir þekkja ekki úr eigin máli. Hörður Bergmann námsstjóri hefur unnið að því að ýta þessu á flot og beðið dönsku- kennara að benda nemendum sínum á það hve stutt er á milli þessara mála. Bókafulltrúi ríkisins hefur hvatt bókaverði til þess að hafa sýningar á norrænum bókum. Væntanlegur er eins konar málkynningartexti á mjólkur- umbúðum; forráðamenn hlutað- eigandi fyrirtækja tóku af mikl- um skilningi málaleitun um þetta. Skrifað hefur verið útvarpi og sjónvarpi til þess að minna á norræna málaárið og fara fram á að eitthvert tillit verði tekið til þess í dagskrárgerð. Sótt hefur verið um styrk til Norræna menningarsjóðsins til ýmissar starfsemi á árinu, svo sem til kaupa á hljómplötum eða snældum með norrænu efni, sungnu eða lesnu, en margir sviðslistamenn nágranna okkar, leikarar og söngvarar, eiga fullt erindi til Islendinga og ættu að geta náð eyrum þeirra, einkum ef prentaðir eða fjölritaðir text- ar fylgdu plötunum sem ætlun er að dreifa til framhaldsskóla og almenningsbókasafna ef af fjár- veitingu verður. :Sótt hefur verið um styrk til þess að fá fyrirlestra í fram- haidsskóla um þau tungumál Norðurlanda sem fjær liggja íslenzku, en í sambandi við það tungumál sem næst liggur skal þess getið að mikill áhugi er á því að koma út sérstöku kynn- ingar- eða kennsluhefti í fær- eysku. Allt er þetta þó undir fjárveitingu komið. Norræna félagið hefur staðið fyrir fjórum samkomum í Nor- ræna húsinu þar sem kynnt hafa verið þau tungumál sem töluð eru á Norðurlöndum og stendur til að þessar samkomur verði fleiri. Málaárinu er ætlað að standa til loka skólaársins 1981. Helbrigðis- þing hefst í dag Heilbrigðisþing hefst á Ilótel Loftleiðum í dag og stendur í tvo daga. Til þingsins er boðið 200 fulltrúum sjúkrahúsa, heilsu- gæslustöðva, dvalarheimila og annarra sjúkrastofnana. sveitar- stjórna, stjórnsýslustofnana, Al- þingis og félagasamtaka, sem heint eða óheint hafa afskipti af heilhrigðisþjónustu í landinu og er hugmyndin að stefna þessum fulltrúum saman til að ra‘ða vandamál heilhrigðisþjónust- unnar. Þing þetta er á vegum heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytisins og á að vera vett- vangur til upplýsingaöflunar og miðlunar í því skyni að hefja nýja og víðtækari stefnumótun á sviði heilbrigðismála. Meginviðfangsefni heilbrigðis- þingsins er annars vegar stefnu- mörkun í sjúkrahúsamálum og hins vegar stefnumörkun í heilsu- gæslumálum. Erindaflokkar eru fimm og fluttir verða 13 fyrir- lestrar. Undirbúningur heilbrigðisþings hefur verið í höndum starfshóps um heilbrigðismál sem heilbrigð- isráðherra skipaði sl. vor, og er formaður Páll Sigurðsson ráðu- neytisstjóri. Er ætlunin að starfs- hópur um heilbrigðismál vinni úr þeim upplýsingum, sem lagðar verða fyrir þingið í þeim tilgangi að gera tillögur um stefnumótun heilbrigðismála fyrir 9. áratug- inn. Ljósm.: Sverrir Pálsson. Menntaskólinn á Akureyri í síðdegisskímunni í október. MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1980 25 Gleymum ekki geðsjúkum: Kiwanismenn selja K-lykilinn NÆSTKOMANDI laugardag. þann 18. október, mun Kiwanis- hreyfingin gangast fyrir sölu á K-lyklinum undir kjörorðinu ^GIeymum ekki geðsjúkum“. Ágóðinn af sölunni mun að mestu leyti renna til uppbyggingar endurhæfingarhcimilis í Reykavík fyrir geðsjúka en einnig til geð- deildar Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Nú þegar er fengin lóð undir endurhæfingarheimiíið og mun bygging þess hefjast eigi síðar en scx mánuðum eftir að afhending fjárins fer fram en það verður afhent 15. janúar 1981. Á blaðamannafundi sem Kiwan- ishreyfingin efndi til kom fram að undirbúningur þessarar söfnunar hefur staðið í níu mánuði. Sala K-lykilsins fer þannig fram að gengið verður í hús um landið allt og lykillinn einnig seldur á götum úti. Þá verður pöntunarlistum einn- ig komið um borð í báta og skip en sú tilhögun reyndist mjög vel er K-lykillinn var seldur 1977 og vilja Kiwanismenn þakka sjómönnum Þrír félagar í Kiwanis-klúbb Reykjavíkur, t.v. Finnbjörn Gíslason, Birgir Vigfússon og Jón K. ólafsson. Fyrir ofan þá er merki söfnunarinnar. Þetta hús er byggt úr einingum sem framleiddar voru i Bergiðjunni og er það dagheimili við Kleppsspítala. rausnarlegt framlag þeirra í þeirri söfnun. í ræðu sem Tómas Helgason, geðlæknir, flutti á blaðamanna- fundinum kom fram að brýn þörf er á endurhæfingarheimilum fyrir geðsjúka hér á landi. Sagði hann að geðsjúkir hefðu lengst af mætt afgangi í heilbrigðisþjónustunni hérlendis, — geðsjúkir ættu vegna annmarka sinna erfitt með að berjast fyrir hagsmunamálum sín- um og gleymdust því gjarnan. Skortur á slíkri aðstóðu ylli einnig þeim sem fengjust við geðlækn- ingar töluverðum erfiðleikum — í sumum tilvikum þyrfti að útskrifa sjúklingana . of snemma vegna plássleysis en í öðrum þyrftu þeir að dvelja lengur en nauðsynlegt væri á geðsjúkrahúsum vegna þess að ekki væri hægt að finna þeim samastað. Vildi hann þakka Kiwan- ismönnum það mikla starf sem þeir hafa á liðnum árum unnið í því skyni að bæta hag geðsjúkra. Minntist hann sérstaklega söfnunar Kiwanismanna 1974 en þá söfnuðu þeir fé til tækjakaupa fyrir Bergiðj- una á Kleppi sem er endurhæfing- arvinnustaður fyrir geðsjúka. Mun Bergiðjan einmitt framleiða vegg- einingar þær sem nýja endurhæf- ingarheimilið verður byggt úr. Að lokum sagðist Tómas vona að söfn- unin skilaði góðum fjárhagslegum árangri, en þó væri ekki síður mikilvægt að hún vekti athygli á vandamálum geðsjúkra og skapaði skilning og samúð í þeirra garð. Þessu atriði vilja Kiwanismenn sérstaklega vekja athygli á, — hér á landi munu fordómar í garð geð- sjúkra því miður vera útbreiddir og veldur það þeim oft miklum erfið- leikum sem hafa þó nógu mikið við að stríða fyrir. Vonast þeir til söfnunin verði til þess að vekja fólk til umhugsunar um vandamál þessa hóps og verði til þess að þeim verði sinnt meira i framtíðinni. Kiwanishreyfingin á íslandi var stofnuð árið 1964 og samanstendur af 36 klúbbum með yfir 1200 félögum. Hreyfingin starfar í ná- inni samvinnu við geðverndarfélag Islands. Styrktarverkefni hreyf- ingarinnar í heild eru málefni geðsjúkra og hefur hreyfingin selt K-lykilinn þriðja hvert ár í þágu þessa málefnis á svo nefndum K-degi. K-lykilinn er lítið barmmerki og kostar hann 1000 kr. Kiwanis- hreyfingin hvetur landsmenn til að leggja geðverndarmálum lið og taka vel á móti sölufólki. Ef einhverjir þeir sem vilja styrkja málefnið sjá framá að þeir verði ekki heima á laugardag eða fari á mis við sölufólk með öðrum hætti, geta þeir greitt framlag sitt inn á gíróreikn- ing nr. 32331-4 eða komið við í húsnæði Kiwanishreyfingarinnar að Brautarholti 26. Halldór Jónatansson: Rekstrartap Landsvirkjun- ar 1331 milljón á þessu ári leiðrétting á - fáist ekki — REKSTRARTAI* Landsvirkj- unar nam 597 milljónum króna árið 1978, 966 milljónum króna árið 1979 og verður um 1331 milljón króna í ár fáist ekki leiðrétting á gjaldskrá. Lands- virkjun hefur orðið að brúa allan halla af þessu tagi með erlendum lántökum en það má öllum vera ljóst að slíku verður ekki komið við öllu lengur, sagði Halldór Jónatansson aðstoðarfram- kvæmdastjóri Landsvirkjunar, þegar Mbl. spurði hann um fjárhagsstöðu fyrirtækisins, en Landsvirkjun hefur sem kunnugt er sótt um 19% hækkun á gjald- skrá frá og með 1. nóvember nk. Halldór Jónatansson sagði ennfremur: „Miðað við óbreytta gjaldskrá yrði um að ræða rekstrartap hjá Landsvirkjun á þessu ári að fjár- hæð um 1331 m.kr. Er þá miðað við 50% verðbólgu og 40% hækkun dollars. Landsvirkjun fór fram á 55% hækkun á sínum tíma frá 1. ágúst s.l. að telja, sem svarar til um 22% hækkunar til almenningsraf- veitna og nægt hefði til að tryggja taplausan rekstur á árinu án frek- ari gjaldskrárhækkana í ár. Þjóð- hagsstofnun gaf umsögn varðandi þessa hækkunarþörf og í henni fólst að 40% hækkun 1. ágúst s.l. væri hæfileg að áliti stofnunarinn- ar sem fyrsta skref í leiðréttingu á því misræmi tekna og gjalda sem orðið hefur hjá Landsvirkjun á undanförnum tveim árum og hefði heldur minni verðlagsáhrif en til- laga Landsvirkjunar. Hefði 40% hækkun verið leyfð mundi fyrir- sjáanlegt tap 1980 hafa lækkað úr 1331 m.kr. í 489 m.kr. Ríkisstjórnin heimilaði Landsvirkjun hinsvegar gjaldskrá ekki nema 23% hækkun frá 10. ágúst sl. að telja, sem þýddi um 9,0% hækkun á smásöluverði Raf- magnsveitu Reykjavíkur svo dæmi sé tekið. Vegna þess hve langt er liðið á árið þyrfti hækkun 1. nóvember nk. að verða mjög há eða 57.5%, sem þýðir um 23% til almennings til að tryggja hallalausan rekstur í ár. Stjórn Landsvirkjunar telur að úr því sem komið er sé óraunhæft að ætla sér að jafna metin í ár með svo mikilli hækkun í einum áfanga og hefur því fyrir sitt leyti tekið þá stefnu að vinna bug á áframhald- andi rekstrarhalla í áföngum enda þótt það þýði að horfast verði í augu við verulegt rekstrartap þriðja árið í röð. Jafnframt er það álit stjórnarinnar, að fyrsta skrefið í þessa átt verði að draga úr rekstrarhallanum í ár eins og frekast er unnt með hækkun hinn 1. nóvember nk., sem verði jafnframt til að búa í haginn fyrir næsta ár og megi ekki vera minni en 19%, sem er Ví af þeirri hækkun sem þyrfti til að ná hallalausum rekstri í ár. Svarar þessi 19% hækkun til um 7,6% hækkunar á verði til almenn- ings. Landsvirkjun leyfir sér að treysta því að þessi, eftir atvikum, hógværa hækkun nái fram að ganga, en við það myndi rekstrar- tapið í ár lækka um 891 milljón króna. Það sem hér hefur verið rakið er glöggt dæmi um hvernig vandanum hefur verið velt á undan sér í nokkur ár. Hækkanir eru ýmist skornar niður eða þeini frestað, nema hvorttveggja sé. Hækkunar- þörfin eykst vegna kostnaðar og gengistaps af því að fjármagna tapið með erlendum lánum og að lokum situr almenningur uppi með hærra verð en ella.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.