Morgunblaðið - 16.10.1980, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1980
Gunnar Thoroddsen:
Kaus Ólaf Ragnar og
felldi Þorvald Garðar
ATKVÆÐI Gunnars Thor-
oddsens, forsa'tisráðherra. réði
úrslitum í kjori formanns
menntamáianefndar efri deild
ar Alþingis í gær og var Ólafur
Ragnar Grímsson kjorinn for-
maður með 4 atkvaKlum, en
l>orvaldur Garðar Kristjánsson
hlaut 3 atkvæði stjórnarand-
stæðinga í nefndinni. Davíð Að-
alsteinsson var kjörinn varafor-
maður með 4 atkvæðum, en Karl
Steinar Guðnason hlaut 3. Sam-
komulag var um Salóme Þor-
kelsdóttur sem fundaskrifara.
Eyjólfur Konráð Jónsson var
formaður nefndarinnar á síð-
asta þingi, en vék úr nefndinni
Slangan vill ekki
tilraunarotturnar
þó sprelllifandi sé
NÝTT dýr bættist við í Sædýra-
safninu í Hafnarfirði fyrir
nokkru er safninu harst að gjöf
kyrkislanga, sem handarísk
hjón gáfu safninu. Síðan slang-
an kom í glerhúr það, sem
verður heimili hennar i Ilafnar-
firði. hefur hún ekkert étið. en
fa-ða þessara dýra er eingöngu
lifandi dýr. í þvi skyni voru
m.a. fengnar þrjár hvítar rott-
ur frá Keldum. en þar höfðu
þa*r verið notaðar til tilrauna.
Slangan hefur hins vegar ekki
litið við því sem að henni hefur
verið rétt og skiptir þá ekki
máli hvort það hafa verið rott-
ur, mýs eða kjúklingar. Dýrin
hafa verið jafn lifandi að
morgni og á kvöldin þegar þau
voru sett inní húr slöngunnar.
Svavar Gunnarsson hjá Sæ-
dýrasafninu sagði í gær, að
ekkert þyrfti að vera athugavert
við það þó dýrið væri enn ekki
farið að éta á þessum nýja stað.
Það voru þau Lára og Arthur
Clarke, sem gáfu Sædýrasafninu
slönguna, en þau hafa nokkrum
sinnum skoðað safnið og fannst
ótækt að engin slanga skyldi
vera í safninu. Arthur Clarke
hafði notað kyrkislönguna við
kennslu víða um Bandaríkin, en
fannst hún orðin of stór og
fyrirferðamikil á ferðalögum
sínum. Akvað hann því að gefa
Sædýrasafninu kyrkislönguna,
en ekki mun óalgengt að fólk í
Bandaríkjunum hafi siík dýr á
heimilum sínum.
Matthías verð-
ur heiðursgest-
ur í Manitoba
MATTIIÍAS Á. Mathiesen. alþing-
ismaður og forseti Norðurlanda-
ráðs, heldur í dag áleiðis til
Kanada. en hann verður heiðurs-
gestur á árshátíð Scandinavian
Cluh, í Manitoha. um helgina.
Þetta er í fyrsta sinn sem forseti
Norðurlandaráðs fer í slíka ferð.
í na'stu viku mun Matthías svo
fara um íslendingahyggðir í Mani-
toha og þá mun hann m.a. hrim-
sækja þinghúsið og ra'ða þar við
þingmcnn og ríkisstjóra.
Nýtt búvöruverð:
„Allt fast og óljóst“
„ÞETTA gengur ekkcrt, allt er
fast og engir fundir hafa verið
boðaðir,“ sagði Gunnar Guð-
bjartsson formaður Stéttarsam-
bands hamda. aðspurður í ga‘r
um framvindu mála varðandi
nýjan grundvöll búvöruverðs.
Kvað Gunnar allt óljóst í þess-
um málum ennþá, verið væri að
ræða sjálfan grundvöllinn en
margt spilaði inn í eins og t.d.
mikill vafi á verði ullar og gæru,
en haustmarkaðsverð á því er
minnkandi og verðfall erlendis.
fyrir Gunnar Thoroddsen með
samkomulagi sjálfstæðismanna
um nefndakjor.
Stjórnarandstæðingar hafa
meirihluta í landbúnaðarnefnd
efri deildar og þar voru Egill
Jónsson og Eyjólfur Konráð
Jónsson endurkjörnir formaður
og varaformaður í gær, hlutu 4
atkvæði hvor, Helgi Seljan hlaut
3 atkvæði í formannskjöri og
aftur 3 atkvæði í varafor-
mannskjöri. Samkomulag var
um Eið Guðnason sem funda-
skrifara, en því embætti gegndi
Helgi Seljan í nefndinni á síðasta
þingi.
Þá var einnig í gær kosið í
stjórn fjárhags- og viðskipta-
nefndar neðri deildar, en þar
buðu stjórnarandstæðingar ekki
fram, þrátt fyrir meirihluta,
vegna samkomulags sjálfstæð-
ismanna um nefndakjör. Því
samkomulagi fylgdi, að Halldór
Ásgrímsson yrði áfram formaður
nefndarinnar. Varaformaður er
Guðmundur J. Guðmundsson, en
fulltrúi Alþýðuflokksins var
varaformaður nefndarinnar á
síðasta þingi. Fundarskrifari er
nú sem fyrr Ingólfur Guðnason.
Talið á laugar-
daginn hjá
bankamönnum
VERIÐ er að safna saman um allt
land kjörkössum í kosningu banka-
manna, en væntanlega verður talið
hjá þeim nk. laugardag.
Samkvæmt upplýsingum Vil-
helms G. Kristinssonar hjá Sam-
bandi íslenzkra bankamanna höfðu
um 2100 manns kosningarétt.
Verkfall á af-
mæli Þorsteins
EINS og fram kemur á baksíðu
Morgunblaðsins ákvað 43ja
manna nefnd Alpýðusambands
íslands að óska eftir því við
aðildarfélög sambandsins, að
þau boði verkfall í einn dag, 29.
október. Nú vill svo til, að þessi
dagur er afmælisdagur Þor-
steins Pálssonar, fram-
kvæmdastjóra Vinnuveitenda-
sambands íslands og verður
hann 33ja ára þennan dag.
Spurningin er, hvort val þessa
dags er tilviljun?!
Ilárgreiðslumeistarar héldu viða-
mikla hárgreiðslusýningu á Hót-
el Sögu um helgina og sigldu
sýningarstúlkur um sali i
hrönnum. en myndina tók Ragn-
ar Axelsson Ijósmyndari Morgun-
hlaðsins af einni stúikunni.
Flugleiðir hef ja
flug til Amsterdam
FLUGLEIÐIR hafa gefið út sumar-
áætlun fyrir sumarið 1981, en helsta
nýmælið í þeirri áætlun er ein ferð á
viku til Amsterdam í Hollandi.
íslenskt flugfélag hefur ekki flogið
þangað áætlunarflug með farþega í
liðlega 10 ár.
Utanríkismálanefnd Alþingis.
Geir Hallgrímsson for-
mannsefni meirihluta
stjórnarandstæðinga
GEIR Ilallgrimsson er formanns-
efni meirihluta utanríkismála-
nefndar Alþingis og Benedikt
Gröndal varaformannsefni. en
stjórnarandsta“ðingar í þingflokki
Sjálfstæðisflokksins og þingflokk-
ur Alþýðuflokksins hafa náð sam-
komuiagi um formannskjör í
nrfndum. þar sem þeir hafa meiri-
hluta. Formannsefni minnihlutans í
utanríkismálancfnd verður að öll-
um líkindum Ilalldór Ásgrímsson.
Ekki var í ga-r hægt að halda fund
i fjárveitinganefnd. þar sem fram-
sóknarmenn eiga að fá varafor-
mann, þar sem bæði Þórarinn
Sigurjónsson og Alexander Stef-
ánsson sækjast eftir varafor-
mennskunni.
Samkomulag alþýðubandalags-
manna og framsóknarmanna um
skiptingu formennsku í deilda-
nefndum var ekki fullfrágengin í
gærkvöldi, en m.a. lá þá fyrir, að
framsóknarmenn fengju formenn
menntamálanefndar neðri deildar
og heilbrigðis- og trygginganefndar
efri deildar, en formaður hennar á
síðasta þingi var Davíð Aðalsteins-
son. Alþýðubandalagsmenn fá þá
formann heilbrigðis- og trygginga-
nefndar neðri deildar, en formaður
hennar á síðasta þingi var Guðrún
Helgadóttir. Ljóst er, að Garðar
Sigurðsson verður formaður sjávar-
útvegsnefndar neðri deildar, þótt
stjórnarandstæðingar hafi þar
meirihluta, þar sem formennska
Garðars fylgdi samkomulagi sjálf-
stæðismanna um nefndakjör og fá
þá framsóknarmenn formann sjáv-
arútvegsnefndar efri deildar, sem
var Stefán Guðmundsson á síðasta
þingi. Ekki lá ljóst fyrir í gærkvöldi,
hvernig alþýðubandalagsmenn og
framsóknarmenn skiptu með sér
iðnaðarnefndunum, en Skúli Alex-
anderson var formaður iðnaðar-
nefndar efri deildar á síðasta þingi,
en Þorvaldur Garðar Kristjánsson
var formaður iðnaðarnefndar efri
deildar, sem stjórnarliðar hafa nú
meirihluta í með Gunnari Thorodd-
sen, forsætisráðherra.
Samkomulag stjórnarandstæð-
inga í þingflokki Sjálfstæðisflokks-
ins og þingflokks Alþýðuflokksins
nær til tveggja nefnda í sameinuðu
þingi og fjögurra deildanefnda. Um
utanríkismálanefnd er fjallað hér
að framan, en Alþýðuflokksmenn fá
formann allsherjarnefndar samein-
aðs þings, sem verður Jóhanna
Sigurðardóttir. Varaformannsefni
Sjálfstæðisflokksins er Halldór
Blöndal.
Búið er að kjósa í landbúnaðar-
nefnd efri deildar, þar sem Egill
Jónsson er formaður og Eyjólfur
Konráð Jónsson varaformaður.
Þorvaldur Garðar Kristjánsson er
formannsefni stjórnarandstæðinga
í félagsmálanefnd efri deildar, þar
sem hann var formaður á síðasta
þingi, og Karl Steinar Guðnason
varaformannsefni. Eiður Guðnason
er formannsefni stjórnarandstæð-
inga í allsherjarnefnd efri deildar
og samgöngunefnd efri deildar.
Varaformannsefni í samgöngu-
nefndina er Guðmundur Karlsson
og í allsherjarnefndina Salome
Þorkelsdóttir.
Hagkaup kærir félag
bókaútgefenda - synj-
að um leyfi til sölu bóka
„IIAGKAUP mun kæra niður-
stöðu fundar Félags íslenzkra
bókaútgefenda fyrir Verðlags-
stjóra þar sem heiðni Hagkaups
um leyfi til að selja bækur í
verzluninni, var hafnað" sagði
Guðjón Guðmundsson hjá Hag-
kaup í samtali við Mbl. i gær. en
beiðni Hagkaups var felld í
þriðja sinn hjá Bókaútgefendum
i gær með 50 atkvæðum gegn 40
og 6 sátu hjá.
í samtali við Mbl. í gær sagði
Guðjón að Verðlagsstjóra yrði
kynnt niðurstaðan og málið kært
til þess að reyna að rjúfa þessa
einokun á sölu bóka sem viðgengst
í dag. Sagði Guðjón að talsmenn
Bókaútgefenda vildu gjarnan láta
reyna á þetta mál fyrir dómstól-
um og í samtali við Oliver Stein
formann Félags íslenzkra bókaút-
gefenda í gær kvað hann Bókaút-
gefendur ekki óhressa yfir því að
málið yrði afgreitt fyrir dómstól-
um, því þar með yrði skorið úr um
það hver rétturinn væri í þessum
efnum og „ef það kemur á daginn
að við erum að brjóta lög með
ákvörðunum okkar," sagði Oliver
„þá verðum við að breyta út frá
því.“
Jón Gestur Vig-
fússon er látinn
JÓN Gestur Vigfússon,
fyrrverandi sparisjóðs-
gjaldkeri í Sparisjóði
Ilafnarfjarðar, er látinn.
Jón Gestur vann um árabil í
Sparisjóði Hafnarfjarðar. Meðal
áhugamála hans var skógrækt og
var hann frumkvöðull að ýmsu í
þeim málum. Þá starfaði Jón
Gestur að kirkjulegu starfi, hann
var söngmaður góður og söng
m.a. með Karlakórnum Þröstum
og rithönd Jóns Gests þótti með
fádæmum vönduð.
Jón Gestur Vigfússon.