Morgunblaðið - 16.10.1980, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 1980
Búið að salta
20 þúsund tunnum
meira en í fyrra
NÚ ER búið að salta í
rúmloKa 62 þúsund tunnur
aí síld á vertíðinni, sem
hóíst 25. september með
„EIN náKrannakonan hafði á
orði, að ekki væri svefnfriður
um nætur vegna rúlluskrölts
rétt við svcfnherbergisKlugK-
ann ok undanfarið hefur
Mjóifjörðurinn verið upp-
Ijómaður, en 15-20 skip hafa
verið hér á reknetaveiðum,“
saiíði Vilhjálmur Iljálmars-
son fyrrverandi ráðherra er
Morjíunhlaðið hafði samband
við hann á Brekku í Mjóafirði
í >jær. Saiíði Vilhjálmur að
hátarnir leuðu net sin innan
frá Leirum ok út undir fjarð-
arkjaft ok lenðu hæði Krunnt
ok þétt.
Bændur á Brekku og Eyri í
Mjóafirði hafa síðan í ágústmán-
uði lagt netstubba beint undan
bæjunum og hafa þeir fengið
eitthvað af síld á hverjum degi og
veiði reknetabáta. Er
þetta um 20 þúsund tunn-
um meiri söltun en á sama
tíma í fyrra. Mest hefur
mest 3 tunnur. Síld var söltuð í 6
sumur í Mjóafirði þegar mest var
af síldinni eystra og var mest
saltað þar í 8 þúsund tunnur. Nú
hefur íbúðarhús síldarsöltunar-
fólks verið tekið undir menning-
una, eins og Vilhjálmur orðaði
það, en þar er nú skóli, bókasafn
og gistiaðstaða. Síldarævintýrið
er því ekki komið til íbúa í
Mjóafirði enn þá, þó svo að
ævintýralegt sé að sjá út á
fjörðinn á næturnar.
Vilhjálmur sagði, að búskap-
urinn hefði forgang í Mjóafirðin-
um og undanfarið hefði verið
unnið að því að koma fé til
slátrunar á Neskaupstað. Er féð
flutt með bát til Neskaupstaðar
og komast allt að 100 kindur i
hverja ferð, en bændur í Mjóa-
firði ætla að slátra 800 fjár í
haust.
verið saltað á Eskifirði,
eða um þriðjungur þ.e. um
22 þúsund tunnur hjá
þremur söltunarstöðvum.
Á Fáskrúðsfirði er búið að
salta i hátt i 10 þúsund tunnur
hjá Pólarsíld og um 9 þúsund
tunnur á Höfn í Hornafirði. Á
Neskaupstað var í gær búið að
salta L um 1.000 tunnur og í um
1800 tunnur á Reyðarfirði. Að-
eins ein söltunarstöð er nú á
Seyðisfirði, Norðursíld, og þar
var í gær búið að salta í um 4.000
tunnur.
Talsvert hefur verið fryst af
síid í Vestmannaeyjum og þar er
búið að salta í á 5. þúsund
tunnur. Saltað hefur verið í um
2.500 tunnur í Þorlákshöfn,
rúmlega þúsund tunnur í
Grindavík og 1200 tunnur í
Keflavík. Margir hringnótabátar
eru nú á miðunum og má búast
við að mikið verði saltað á
síðasttöldu stöðunum og Akra-
nesi þegar þeir koma inn. Síld-
veiði fyrir Norðurlandi lauk
fyrir nokkru, en mun meira var
saltað af síld á mörgum stöðum
nyrðra heldur en undanfarin ár
og þá einkum á Dalvík og
Húsavík.
Verð á síld var ákveðið fyrir
tímabilið frá miðjum ágúst til 1.
október. Nýtt verð á síld hefur
ekki verið ákveðið og er það nú
til umfjöllunar hjá Yfirnefnd
Verðlagsráðs sjávarútvegsins.
Mjóifjörður:
Varla svefnfriður
vegna rúlluskrölts
frá reknetabátunum
Eftir söngvakeppnina á Irlandi:
Samstarf íslenskra og
erlendra listamanna?
Ljósm.: Emilia Bj. Bjórnsdóttir.
Ensk/írski söngvarinn Peter O'Donnell og Björgvin Halldórsson i
upptökustúdíói Hljóðrita i Hafnarfirði i vikunni. Þeir urðu þriðji og
fjórði i röðinni i söngvakeppninni á Írlandi nú nýverið.
IIÉR á landi er nú staddur á
vegum Hljómplötuútgáfunnar
hf., enski söngvarinn Peter
O'Donnell. en hann hafnaði i
þriðja sæti söngvakeppninnar i
Castlebar á írlandi sem haidin
var nýlega, en þar varð Björgvin
Halldórsson sem kunnugt er i
fjórða sæti, en alls bárust um
1800 lög til keppninnar.
Ástæða þess að O’Donnell er
hingað kominn, er að sögn Jóns
Ólafssonar hjá Hljómplötuútgáf-
unni sú, að hann heyrði mikið af
íslenskum lögum úti er keppnin
stóð yfir, og fékk hann þá áhuga á
að koma hingað, kynna sér ís-
lenska tónlist, hljóðritunarað-
stöðu og fleira. Hefur hann þegar
sungið tvö lög inn á plötu til
reynslu í Hljóðrita í Hafnarfirði,
en ekkert hefur þó verið ákveðið
hvort af útgáfu verður eða ekki.
„Það er verið að kanna ýmsa
möguleika í þessu efni,“ sagði Jón
Ólafsson, „en enn er of snemmt að
segja nokkuð nánar um það. Ég
get þó sagt að hingað er í vikunni
væntanlegur umboðsmaður
O’Donnells, og ætlar hann að
kanna nánar hvað hér er um að
ræða. — Hvort af einhverju sam-
starfi milli íslenskra og enskra
hljómplötuútgefenda eða milli ís-
lenskra og erlendra listamanna
verður að ræða, getur tíminn einn
sagt til um.“
Til aðstoðar O’Donnell við upp-
tökuna í Hljóðrita voru meðal
annarra hljómlistarmennirnir
Pálmi Gunnarsson, Magnús
Kjartansson, Sigurður Karlsson
°g Tryggvi Hiibner, auk Björgvins
Halldórssonar og starfsmanna
fyrirtækisins.
Peter O’Donnell er sem fyrr
segir enskur, en er af írskum
ættum. Hann er nú búsettur í Los
Angeles í Kaliforníu, þar sem
hann er nú að koma upp hljóm-
sveit með þarlendum lista-
mönnum, að sögn Jóns Ólafssonar.
O’Donnell er annars „sólósöngv-
ari“, og lag hans, sem varð þriðja í
röðinni í keppninni, neínist „We
All Need Love“.
Olaf Palme, Thorbjörn F&lldin,
leiðtogi jafnaðarmanna. forsætisráðherra.
Gösta Bohman, Ola Ullsten,
fjármálaráðherra. utanríkisráðherra.
Svíþjóð:
„Efnahagur lands-
ins er í kaldakoh44
- sagði Olaf Palme þegar vantrausts-
tillaga var borin fram á stjórnina.
Frá GuAfinnu kaxnarsdóttur, fréttaritara Mbl.
^ i Stokkhólmi. 15. október.
Á miðvikudaginn mun sænska þingið ganga til atkvæðagreiðslu um
vantrauststillögu Jafnaðarmanna á sænsku stjórnina. Mjög harðar
umræður urðu í sænska þinginu i dag. „Efnahagur landsins er i
kaldakoli." sagði Olaf Palme, leiðtogi Jafnaðarmanna og beindi
hörðum ásökunum að Thorbjörn Falldin. forsætisráðherra og stjórn
hans. Hann ásakaði stjórnina um að hafa villt um fyrir kjósendum
hvað varðar efnahagsstöðu landsins og fór hörðum orðum um
ákvarðanir stjórnarinnar um að hætta við að tryggja eftirlaunafólki
óskertan kaupmátt.
„Allir flokkar ættu sameiginlega
að leysa efnahagsvandamál lands-
ins,“ sagði Olaf Palme „En eins og
nú er ástatt erum við búnir að
missa alla von um að geta haft
nokkra samvinnu við þessa stjórn.
Hún fer í engu að tillögum okkar.
Við verðum þess vegna að lýsa
vantrausti okkar á henni og krefj-
ast nýrra kosninga."
Thorbjörn Fálldin, forsætisráð-
herra gagnrýndi Jafnaðarmenn og
Olaf Palme fyrir að hafa engar
eigin efnahagstillögur fram að
færa. En það er gagnrýni.sem
margir aðrir hafa fært fram að
undanförnu. Gösta Bohman, fjár-
málaráðherra kallaði Olaf Palme
nöldurskjóðu, sem aðeins vildi
hindra stjórnina í viðleitni hennar
við að rétta við efnahag landsins.
„Jafnaðarmenn segja bara nei við
öllu,“ sagði utanríkisráðherrann,
Ola Ullsten. „Þeir hafa engar eigin
tillögur fram að færa. Olaf Palme
hefur aldrei tekist að spara eina
einustu krónu,“ bætti Ullsten við.
„Ríkisstjórnin hefur alltaf gert
sér far um að hlífa þeim, sem
minnst mega sin í efnahagsaðgerð-
um sínum,“ sagði Ullsten einnig.
Hann minnti þjóðina á, að hún er
góðu vön. „Við erum vön því, að
hagur okkar batni með hverju ári.
En við slíku er ekki að búast á
næstu árum,“ sagði Gösta Boh-
man, fjármálaráðherra. „Við mun-
um eiga í efnahagserfiðleikum
næstu 10 árin og allir verða að
hjálpast við að bera þá byrði.“
„Ríkisstjórnin hefur gripið alltof
seint í taumana," sagði Olaf Palme
og bætti við: „Og þegar hún loksins
gerði eitthvað, þá alltof harka-
lega.“
Lars Werner, formaður komm-
únistaflokksins fór einnig mjög
hörðum orðum um stjórnina og
efnahagsaðgerðir hennar. Hann
kallaði þær „októberbyltingu Boh-
mans“. „Sparnaðaráformin eru
svik við vinnandi fólk, barnafjöl-
skyldur og eftirlaunafólk," sagði
Lars Werner, formaður kommún-
ista.
„Við töpum atkvæða-
greiðslunni“
Staða stjórnarinnar og stjórnar-
andstöðunnar í sænska þinginu er
175 þingsæti gegn 174 þingsætum.
Möguleikar Jafnaðarmanna á að
fella stjórnina eru raunverulega
engir, þar sem talið er útilokað, að
nokkur úr þingliði stjórnarinnar
muni greiða atkvæði með van-
trauststillögu Jafnaðarmanna.
„Við gerum okkur fulla grein
fyrir því, að við töpum þessari
atkvæðagreiðslu," sagði Olaf
Palme, og bætti við: „en við viljum
með þessu móti láta í ljósi óánægju
okkar með efnahagsaðgerðir
stjórnarinnar. Við verðum að lýsa
vantrausti á stjórnina — kjósend-
ur okkar krefjast þess. Fólk er búið
að fá nóg af þessari stjórn, sem
hækka söluskattinn, eykur at-
vinnuleysið og svíkur eftirlauna-
fólk. Þetta er ekki lengur nein
miðflokkastjórn. Allar ákvarðanir
eru svartasta íhald — stjórnin er
fangi Hægri flokksins".
Efnahagsaðgerðir
stjórnarinnar
Efnahagsaðgerðir stjórnar
Thorbjörns Fálldins eru mjög yfir-
gripsmiklar. Þær eiga að auka
tekjur ríkisins um 6 til 7 milljarða
sænskra króna á árinu 1981 og
1982. Sparnaðaraðgerðirnar eru
víðtækastar í húsnæðismálum og
félagslegum úrbótum. Húsaleigu-
aðstoð sem í Svíþjóð er mjög
algeng, mun minnka nokkuð og
hálfur milljarður þar með renna í
sænska ríkiskassann. Eftirlauna-
fólk hættir að fá kaupmátt bóta
tryggðan til fulls, eins og verið
hefur. Greiðsla fyrir meðöl og
læknaþjónustu mun hækka úr 25
krónum sænskum í 40 krónur.
Atvinnurekendur eiga að borga
fyrstu 7 veikindadaga starfsfólks.
Niðurgreiðslur á matvörum munu
minnka um 1,2 milljarð sænskra
króna. Styrkur til skólanna lækkar
um 306 milljónir sænskra króna.
Háskólakennsla í vissum greinum
fellur niður við fjölmarga háskóla.
Námslán tengjast tekjum. Lest-
armiðar verða dýrari, — ásamt
fleiri aðgerðum.