Morgunblaðið - 19.10.1980, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 19.10.1980, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 1980 Bergt á kaffi og spjallað í Bústaðakirkju Á LIÐNUM vetrum hefur það Kefið prýðilega raun að bjóða þekktum guðfræðingum til að stíga í stólinn í Bústaðakirkju og rabba siðan við þá yfir kaffibolla í safnaðarheimilinu á eftir. Hefur þetta verið þannig einu sinni í mánuði. Nú verður þráðurinn aftur upp tekinn, en að þessu sinni eru það ekki guðfræðingar, sem flytja stólræðuna, heldur er leitað til manna, sem hafa skapað sér nafn á öðrum sviðum. Mun Haraldur Ólafsson, háskólakennari stíga í stólinn við messuna á sunnudag- inn, 19. október kl. 2 og síðan ræða við kirkjugesti á eftir. Mun Har- aldur koma tvisvar í viðbót, í nóvember og í desember, en eftir áramótin mun Esra Pétursson, læknir, taka við af Haraldi. Er ekki að efa, að margir munu vilja heyra boðskap þessara manna og ræða síðan við þá á eftir. En eins og ævinlega eru allir hjartanlega velkomnir. (Úr fréttatilk.). Til sölu 4ra herb. endaíbúð viö Ásbraut, Kópavogi. Bílskúrsréttur. Allar nánari uppl. gefnar í síma 44479 eöa 53041. Viö Sólheima Mjög góð 3ja herb. íbúö á 3. haeö í háhýsi viö Sólheima. Mikil og góö sameign Laus um næstu mánaöarmót. Frekari upplýsingar á skrifstofunni. Viö Kleppsveg Glæsileg 3ja herb. íbúö á 3. hæö í háhýsi innarlega viö Kleppsveg. Allar innréttingar og teppi í sérflokki. Laus fljótlega. Fasteignahöllin, símar 35300 og 35301. Melar — Vesturbær Til sölu er glæsileg efri hæö á Melhaga. Bílskúr. Ræktuö lóö. Húsamiðlun fasteignasala Templarasundi 3, símar 11614 og 11616. Þorvaldur Lúövíksson hrl., heimasími 16844. Tilbúið undir tréverk Var aö fá í einkasölu nokkrar af hinum eftirsóttu íbúöum viö Orrahóla í Breiöholti III: Eins herbergis íbúö (aðeins til á 8. hæö). 2ja herbergja íbúö (aöeins 1 til á 8. hæö). 3ja herbergja íbúöir (mjög stórar). íbúöirnar seljast tilbúnar undir tréverk, sameign inni fullgerö, húsiö frágengiö aö utan og lóðin frágengin aö mestu. íbúðirnar afhendast strax. Beöiö eftir húsnæöismála- stjórnarláni 3,6 milljónir. Lyfta komin. Teikning til sýnis á skrifstofunni. Stórar svalir yfirleitt. Frábært útsýni. Upplýsingar á sunnudag í síma 34231. Árni Stefánsson, hrl., Suöurgötu 4. Sími: 14314. Sérverziun til sölu Vegna sérstakra aöstæöna er til sölu sérhæfö verzlun meö tómstunda- og föndurvörur. Verzlunin byggir aö mestu á eigin innflutningi og hefur góö viöskiptasambönd erlendis. Samkeppni á þessu sviöi er ekki mikil og afkomumöguleikar eru góöir. Verzlunin er vel staðsett, í góöu leiguhúsnæöi, og er í fullum rekstri. Salan er aðallega smásala, en dálítil heildsala, sem auövelt er aö auka. Einstakt tækifæri til aö yfirtaka aröbæran rekstur meö fjölbreyttar og skemmtilegar vörur. Upplýsingar gefa, milli kl. 17 og 18 mánudag 20. og þriöjudag 21. okt.: Lögmenn Jón Ingólfsson og Jón Zoéga, Garðastræti 3, Reykjavík. Símar 11252 & 27105. Togarinn Júni, einn af nýsköpunartogurunum, en Oddgeir var á þessu skipi í einn áratug frá 1950. oftnetin urðu sver eins og tunnubotnar" Þad er mikilvægt aö menn njóti sín í starfi, því þá verður allt svo auðvelt og eölilegt. Slíkt má segja um Odd- geir Karlsson loft- skeytamann sem hefur í hálfa öld verið loft- skeytamaður, fyrst á varðskipunum a bernskuárum Gæslunnar, síöan á togurum í aldar- fjórðung og nú síð- ast í millilanda- siglingum á Fellunum. Það sem hefur einkennt starf hans er öryggi og gifta, því þótt hann hafi lent í mörgum svaðil- förum á leiöum hafsins hefur honum aldrei hlekkst á og jafnvel þótt hann hafi verið þar á ferð sem sekúndubrot hafa ráðið úrslitum um líf og dauða þá finnst hon- um það ekkert sérstakt, gangur málsins var að- eins á þennan hátt. Þetta er áhöfnin á togaranum Júlí rétt fyrir 1950, en skipstjóri var Benedikt Ögmundsson. Þá voru somu mennirnir saman í áratugi. Fremri röð frá vinstri: Stefán Jóhannsson, Davið Gíslason, Þor- geir Sigurðsson, Þorlákur Sigurðs- son, Oddgeir Karlsson, Jón ólafs- son, Arni Sigurðsson, Bjartur Guð- mundsson, Benedikt Ögmundsson, Á sjónum í hálfa öld

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.