Morgunblaðið - 19.10.1980, Side 28

Morgunblaðið - 19.10.1980, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 1980 Sigrún Klara Hannesdóttir lektor: Yfirskrift þessa landsfundar, Ixikasafnið er uppiýsinKamiðstoð gefur tilefni til þess að ræða málin frá ýmsum hliðum og ég hefi því valið að kalla þetta spjall mitt uppiýsingar og ákvaðanataka til þess að leggja áherslu á nauðsyn upplýsingaþjónustu fyrir opinber stjórnvöld. Það ætti ekki að þurfa að hafa um það mörg orð hversu knýjandi það er fyrir alla þá er marka stefnu og taka ákvaðanir fyrir stóran hóp manna að hafa greiðan aðgang að heimildum og upplýsingum um þau málefni er þeir þurfa að fjalla um. Það er því ætlun mín að ræða um þessa hlið upplýsingamála í þjóðfélaginu og reyna að skoða hvernig þessum málum er háttað hér á landi sérstaklega. „Þekkingar- sprengjan“ Til þess að gera þessu vanda- máli skil, þ.e. upplýsingadreifingu til þeirra er með ákvörðunarvald fara í þjóðfélaginu, langar mig að draga fram nokkur þau atriði sem hafa orðið til þess að þetta vandamál er víða í brennidepli í nágrannalöndum okkar og þeim aðdraganda sem þetta vandamál hefur haft. Öll höfum við heyrt um þessa margumtöluðu útgáfu- og þekk- ingarsprengingu sem varð eftir heimsstyrjöldina síðari. Þá var fjármagni dælt í alls kyns rann- sóknir, háskólar blómguðust og þekkingu á öllum sviðum, sér- staklega á sviði raunvísinda og tækni, fleygði fram. Við munum einnig eftir keppni milli stórþjóða um að koma manni til tunglsins og kalda stríðið með öllum sínum vopnum og vörum varð einnig aflgjafi til alls kyns rannsókna. Það var skoðað sem skilyrði til efnahagslegra framfara að hægt væri að auka framleiðsluna, en framleiðsla og þróun nýrra iðn- greina var jafnframt bundin við tækniframfarir, sem aftur voru grundvallaðar á rannsóknum. Þegar litið var á efnahagslegar framfarir kom í ljós að mannafli og fjármagn voru ekki einhlít. Þekking, þjálfun og rannsóknir voru grundvöllur þess að framfar- ir gætu átt sér stað. Þetta má orða á þann veg að þekkingin sé orðin meira grundvallarskilyrði til efna- hagslegrar þróunar en mannafl- inn og fjármagnið. Upplýsingadreifingin Af því sem á undan er sagt, liggur það í augum uppi að aðaláherslan hefur verið lögð á að koma upplýsingum og heimildum til vísindamanna og þeirra sem vorú að bæta við þekkinguna. Óteljandi tölvubankar geyma nú tilvísanir í tug-miiljónir heimilda á öllum sviðum vísinda, læknis- fræði og slíkra greina, þar sem einn vísindamaðurinn kynnir fyrir öðrum þær uppgötvanir sem hann hefur nýjastar gert. Við höfum annars vegar sér- fræðingana, hvern á sínu sviði, sem tala hvert sitt sérfræðinga- mál. Oft er jafnvel hætt við því að þeir verði þröngsýnir vegna þeirr- ar þröngu þekkingar sem þeir hafa aflað sér. Hins vegar höfum við svo opinber stjórnvöld sem veroa að taka ákvarðanir um hin flóknustu mál sem e.t.v. eingöngu sérfræðingar skilja til hlítar, en stefnumörkun verður að vera gerð með tilliti til heilla almennings, og ekki má gleyma því að þessum ákvörðunum og forsendum þeirra verður einnig að koma til skila til almennings. Hér má taka lítið dæmi til skýringar. Vísindamenn búa nú senn yfir þeirri þekkingu að hægt verður að ráða litninga-samsetn- ingum, og hægt er nú þegar að frjóvga egg utan líkama móður. Á þennan hátt er hægt að hugsa sér að ekki líði á löngu þar til hægt er að ráða útliti og gáfnafari ein- staklinga sem skuli í heiminn bornir og koma í veg fyrir að einstaklingar með viss einkenni fæðist. Það mun því koma til kasta stjórnvalda að taka ákvarð- anir um hvort slíkt skuli leyft og á hvaða grundvelli. Ef til vill verður það eitt flóknasta viðfangsefnið að ákveða hver það sé sem megi með slíkt ákvörðunarvald fara. Hér mætast vísindaleg hæfni til að framkvæma afdrifaríkar aðgerðir og þjóðfélagsleg ákvaðanataka um hver og hvernig skuli nýta þessa þekkingu. Það sem ég hefi verið að reifa hér hefur verið orðað á mjög snjallan máta í ræðu sem einn þingmanna okkar flutti ekki alls fyrir löngu. Hann sagði: „Vísinda- menn vita meira og meira um minna og minna uns þeir vita allt um ekki neitt, en stjórnmálamenn vita minna og minna um meira og meira uns þeir vita ekki neitt um alla hluti.“ Þetta eru að sjálfsögðu ýkjur til þess að leggja áherslu á ákveðin sannindi og það vandamá) sem við stöndum frammi fyrir er, hvernig sámræma má þessi vandamál sem við stöndum frammi fyrir er, hvernig samræma má þessi sjón- armið og hjálpa þessum aðilum að skilja hvern annan. Það sem hér verður að koma til skjalanna er ekki aðeins upplýsingamiðlun milli sérfræðinga sem tala sama sérfræðingamálið, heldur upplýs- ingadreifing til þeirra sem ekki skilja þetta sérfræðingamál en verða samt að fá nægilega innsýn í viðfangsefnið til þess að geta tekið skynsamlega og grundaða ákvörðun. Þegar mikilvæg ákvörð- un er tekin er heldur ekki nóg að Sigrún Klara Hannesdóttir. Erindi flutt á 6. landsfundi hafa vísindalega þekkingu og upp- lýsingar á mjög takmörkuðu sviði, heldur verður einnig að vera til staðar umfangsmikil þekking á öllum þeim þáttum sem máli skipta og öll þessi þekking verður að vera í aðgengilegu formi fyrir þann sem ekki er sérfræðingur, til þess að hann nái að tileinka sér það. Upplýsingaþjónusta til stjórnmálamanna og þeirra er með opinbera stjórnsýslu fara er því miklu umfangsmeiri og flókn- ari en sú upplýsingaþjónusta er vísindamenn hagnýta sér og jafn- framt miklu skemmra á veg kom- íslenskar aðstæður Við skulum nú líta á þessi mál frá okkar íslenska sjónarhóli. Á Islandi höfum við 60 manna lög- gjafarþing þar sem lagasetningar eru afgreiddar um öll þau mál í þjóðféiaginu þar sem lagasetn- ingar er þörf. Við höfum 12 ráðuneyti og lauslega talið úr símaskránni eru um 260 manns starfandi í þessum ráðuneytum og er þó eflaust ekki allt talið. Auk þess höfum við svo ráðherra og í mörgum tilfellum aðstoðar-ráð- herra. Ekki má heldur gleyma þeim fjölda opinberra stofnana og hálf-opinberra sem einnig taka miklar og afdrifaríkar ákvarðanir sem varða almanna heill og nægir þar að nefna Framkvæmdastofn- un ríkisins og Seðlabankann. Til viðbótar eru svo sveitarstjórnirn- ar, borgarstjórnin í Reykjavík og nefndir á þeirra vegum. Þetta er allt stór hópur manna og margt sérfræðinga. Þar að auki eru á hverju ári settar á laggirnar ótölulegur fjöldi nefnda, aðallega á vegum hinna ýmsu ráðuneyta. Hver ný ríkisstjórn leggur þar við heiður sinn að láta gera úttekt á vissum málaflokkum og koma með tillögur til úrbóta. Ákvarðanataka Ef reynt er að gera sér grein fyrir hvernig nefnd vinnur eða í raun hvernig ákvörðun er tekin má skipta þessum störfum í þrennt: 1. Upplýsingaöflun. 2. Úrvinnsla upplýsinga (þ.m.t. kynning á málefninu mat á valkostum o.fl.) 3. Niðurstöður. Við sjáum strax í hendi okkar hversu mjög niðurstöðurnar hljóta að byggjast á því að upplýs- ingaöflunin sé yfirgripsmikil og tæmandi. Sé einhver mikilvægur þáttur skilinn útundan hlýtur ákvarðanatökunni að vera áfátt. (Hér verður að ganga út frá því að menn taki ákvarðanir samkvæmt bestu vitund en ekki gegn sam- visku sinni til þess eins að þjóna pólitískum hagsmunum þess flokks sem þeir fylgja.) Ef ekki eru skoðaðir allir þættir málsins frá upphafi er hætt við að fljót- lega þurfi að setja nýja nefnd til þess að kanna áhrif ákvarðana- tökunnar og koma með tillögur til lagfæringar. Og þá er næst að spyrja: Hvað kosta svona vinnu- brögð og hver borgar fyrir mistök- in? Upplýsingaskortur Sem áhorfandi, sem engan þátt tekur í pólitískri ákvarðanatöku nema með atkvæði mínu á kjör- degi, hefur mér oft verið hálf órótt vegna þess hve illa mér finnst búið að okkar opinberu stjórnvöldum er varðar upplýsingaþjónustu. Ég hefi velt því fyrir mér hvernig menn fari yfirleitt að, þegar þeir þurfa að kynna sér eitthvert málefni til hlítar. Þetta þykja kannski undarlegar áhyggjur af þeim sem byggja bókaþjóðina miklu þar sem allir eiga að vera svo fjarskalega vel upplýstir. En ég er samt þeirrar skoðunar að fáir ef nokkur hópur samfélagsins séu jafn illa settir og þeir sem með þjóðmálin fara, hvað snertir heimildaöflun um hin margvíslegu efni. Vísindamennirnir vinna yfir- leitt á þröngu sviði eins og áður er sagt og afla sinna heimilda — að vísu oft með ærinni fyrirhöfn, en vita þó oftast hvar er að leita. íslensk stjórnvöld verða að byggja mestmegnis á persónu- legri upplýsingaþjónustu, þ.e. þeir hringja flestir í einhvern sérfræð- ing sem þeir þekkja til, utan eða innan kerfis, og fá hann til þess að segja sér til. Ókostir við þessa tegund upplýsingaöflunar eru auðsæir: Hún hlýtur að vera mjög brotakennd og takmarkast við skoðun eins sérfræðings, að ekki sé nú minnst á ef pólitískar skoðanir hans komast líka inn í myndina, og þessi aðferð er einnig mjög tímafrek fyrir báða aðila. íslensk málefni eru í sérflokki hvað varðar erfiðleika við heim- ildaöflun. Okkur skortir ritaðar heimildir um ótrúlega marga þætti samfélagsins. Mér hefur oft dottið í hug að tíma sérfræð- inganna sé svo kyrfilega sóað í fundahöld og upplýsingagjöf í síma að enginn tími sé afgangs til þess að gera skýrslu um starfsemi stofnunarinnar eða koma þýð- ingarmiklum upplýsingum á prent. Einn sagnfræðingur hafði áhyggjur af því að ákvarðanataka færi nú orðið svo mikið fram í síma að erfitt yrði að skrifa sögu íslands á síðari hluta 20. aldar þar sem litlar skriflegar heimildir væru til. Sá fróðleikur sem komist hefur á prent í dagblöðum, tímaritum eða í skýrsluformi er einnig óað- gengilegur vegna skorts á tíma- rita- og dagblaðalyklum, og loks eru skjalasöfn og bókasöfn opin- berra stofnana mjög víða í hinum mesta ólestri og enginn á greiðan aðgang þar að neinu. Það má ekki eiga sér stað og við megum ekki láta það koma fyrir, að þingmenn okkar komi tómhent- ir og illa upplýstir á þýðingar- miklar erlendar ráðstefnur, þar sem kollegar þeirra koma með bunka af heimildum um þau efni sem fjalla skal um. Það er ekki heldur hægt að ætlast til að þingmenn sjálfir hafi tíma til að sitja löngum stundum inni á einhverju bókasafni við að afla sér heimilda. Þeir hafa svo sannar- lega í alltof mörgu að snúast til þess. Upplýsingaöflunin ætti að vera sjálfsagður þáttur í stjórn- sýslukerfinu, jafnvel sjálfsagðari en nefndaskipunin. Tillaga til úrbóta Ekki ætla ég mér þá dul að halda að ég hafi hér í erminni einhverja patent-lausn sem bjargi þessum málum við á skömmum tíma. Samt ætla ég mér að koma með tvær tillögur til úrbóta sem mjög er knýjandi að hrinda í framkvæmd, eða að minnsta kosti að hefjast handa um hið allra fyrsta. 1. Bókakostur alþingis og ráðu- neyta verði sameinaður í eitt gott stjórnsýslusafn sem sveit- arstjórnir og aðrir aðilar er fara með opinbera stjórnsýslu hafi einnig aðgang að. Þetta stjórnsýslusafn á fyrst og fremst að vera þjónustusafn þar sem hægt er að leggja inn pöntun á heimildum og upplýs- ingum. Þetta á að vera stofnun sem býður upp á heimildaleitir og þjónustu við notendur og sendir þeim þær upplýsingar sem þeir þurfa á að halda. Bókasafn alþingis í núverandi mynd og allur sá ótrúlegi fjöldi rita og gagna sem til eru í ráðuneytunum er vel nothæfur kjarni til að byrja með, yrði hann vel skipulagður og sér- menntað og þjálfað starfslið fengið til þjónustunnar. 2. Gert verði átak í þá veru að skrá (helst í tölvutæku formi) efni íslenskra tímarita, dag- blaða og skýrslna. Þessi skrá sem ætti helst að vera tölvu- tækur gagnagrunnur, yrði að vera þannig úr garði gerð, að i einu vetfangi væri hægt að fá tilvísanir um hvar á að leita að vissum upplýsingum. Dagblöð- in hafa mikilvægu hlutverki að gegna á sviði upplýsingadreif- ingar og verður því að vinda bráðan bug að því að gera yfir þau ítarlegar efnisskrár. Lokaorð Það er dýrt að stjórna landinu og við heyrum skýrslur um fjölda nefnda og ráða sem sett eru á laggirnar á hverju ári. Ég hygg að með virkari upplýsingaþjónustu til þessa mikilvæga þáttar þjóðfé- lagsins — ákvarðanatökunnar — yrði fljótt hægt að spara. Bóka- söfnin eru ekki, eða eiga ekki að vera, útgjaldabaggi á samfélaginu. Þau geta sannað ágæti sitt á örskömmum tíma sé til þeirra beint nægu og vel þjálfuðu starfs- liði sem gerir sér grein fyrir því að upplýsingar eru fjármunir í spör- uðum vinnutíma og betri ákvörð- unum. Aðgengilegar, ítarlegar upplýsingar eru undirstaða vitur- legrar ákvarðanatöku. Upplýsingar og ákvarðanataka in.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.