Morgunblaðið - 19.10.1980, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 19.10.1980, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 1980 29 Fjölþætt starfsemi SÁÁ á sl. ári: Um 1100 sjúkling- ar nutu meðferðar að Silungapolli Hlutfallslega fleiri sjúkrarúm hér á landi fyrir alkóhólista en í nokkru öðru landi Opiö alla daga frá kl. 9 til 21. Aðalfundur SÁÁ, Sam- taka áhugafólks um áfengisvandamálið, var haldinn sl. miðvikudag, og koma þar fram, að starf- semi samtakanna var mjög fjölbreytt á sl. ári og Prófsteinn á frjálsa bóksölu Blaðinu hefur borist eftirfar- andi frá Landssambandi mennta- og fjölbrautaskólanema: Vegna máls þess sem upp er komið milli bóksala annars vegar og Hagkaups hins vegar vill Landsamband mennta- og fjöl- brautaskólanema lýsa yfir fullum stuðningi við Hagkaup, og telur að mál þetta verði prófsteinn á það hvort frjáls bóksala muni þrífast í landinu um ókomin ár. Einnig harma samtökin þá ákvörðun bóksala að selja ekki bækur í bóksölur skólanna eins og verið hefur undanfarin ár, og raska með því verulega fjárhags- legum grundvelli nemenda. Með baráttukveðjum. F.h. framkvæmdastjórnar L.M.F. Þórður Bogason ritari Steinar Ilólmsteinsson for- maður Sjúkraþjálf- arar á heims- þing 1982 NÍUNDA heimsþing sjúkraþjálf- ara verður haldið í Stokkhólmi vorið 1982. Það er í fyrsta sinn sem Svíþjóð heldur þesskonar þing og munu u.þ.b. 3—4000 sjúkraþjálfarar hvaðanæva úr heimi taka þátt í því. Aðalefni þingsins verður „Man in action“ — maður að starfi. hafði vaxið mjög frá fyrra ári. Lítil breyting varð á aðalstjórn samtakanna, en hana skipa 36 menn. í framkvæmdastjórn sitja hins vegar 8 menn og var Hilmar Helgason endur- kjörinn formaður hennar, en auk hans voru kjörin i hana þau Björgúlfur Guð- mundsson, Hendrik Berndsen, Magnús Bjarnfreðsson, Ragnheið- ur Guðnadóttir, Sæmund- ur Guðvinsson, Eggert Magnússon og Þórunn Gestsdóttir. Á fundinum kom fram, að starfsemin að Silungapolli, hafi gengið vonum framar. Rúmlega 1100 sjúklingar nutu meðferðar á starfsárinu og er því sjúklingafjöldinn kominn í 2600 manns frá byrjun. Ekki hefur tekist að anna eftir- spurn 'eftir plássi og er dag- lega biðlisti um 100 umsækj- enda. Frá Sogni hafa nú útskrif- ast um 800 menn og konur frá byrjun, þar af liðlega 400 á starfsárinu. í byrjun apríl á sl. ári var dagskránni gjörbreytt, en áður höfðu starfsmenn far- ið erlendis og kynnt sér það nýjasta í meðferðarmálum á hinum ýmsu stöðum. Átta starfsmenn eru í fullu starfi að Sogni og tveir eru í hluta- starfi. Það kom fram á fundinum, að þeir Pjetur Þ. Maack og Vilhjálmur Svan, hafi borið hita og þunga af fræðslu og fyrirbyggjandi starfi á vegum samtakanna, en þeir héldu alls liðlega 100 fundi víðs vegar um land á sl. ári. Að jafnaði starfa 2—3 ráðgjafar á skrifstofu félags- ins í Lágmúla í Reykjavík, og Frá aðalfundi SÁÁ sl. miðvikudag. eru þeir til viðtals alla virka daga. Samtökin starfræktu á sl. ári svokölluð fjölskyldu- námskeið, þ.e.a.s. námskeið fyrir aðstandendur alkóhól- ista, í samvinnu við Reykja- víkurborg, sem greiddi allan kostnað við þau. Það kom fram á fundinum, að námskeið þessi hafi skilað mjög góðum árangri. SÁÁ festi fyrr á þessu ári kaup á tæplega 600 fermetra húsnæði við Síðumúla 3—5 og var það tilbúið undir tréverk. Það var afhent samtökunum fyrir skömmu og var þegar hafizt handa við innréttingar, en í bígerð er, að öll starfsemi, sem áður var í Lágmúla flytji þangað. Áfengisvarnardeild Reykjavíkur hefur þegar tekið um þriðjung húsnæðisins til leigu. I samtali við Vilhjálm Vil- hjálmsson, framkvæmda- stjóra SÁÁ kom m.a. fram, að fyrir skömmu var hann á ferð í Bretlandi til að kynna sér þessi mál. Þar upplýstist, að alls eru um 500 sjúkrarúm á öllu Bretlandi fyrir alkóhól- ista, en í Bretlandi búa yfir 50 milljónir manna. Á íslandi eru hins vegar um 300 sjúkrarúm fyrir alkóhólista, en íbúar eru eins og kunnugt er aðeins liðlega 230 þúsund. Hvergi í heiminum eru hlutfallslega jafn mörg sjúkrarúm fyrir alkóhólista, eins og hér á landi. Afskorm blóm t/ •A-1 -v- >•! p • -viðlmidatimmsemer, ogaötuefmskœu Við kynnum nú, í tilefni 10 ára afmælis Blómavals afskorin blóm og blómaskreytingar. Komið og sjáið stórglæsilegar skreytingar, stórar sem smáar, unnarúrafskornum blómum. Eigum allt til blómaskreytinga. EF ÞAÐ ER FRÉTTNÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐENU blómouQl íðáfl ^ Gróðurhúsinu við Sigtún: Símar36770-86340

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.