Morgunblaðið - 23.10.1980, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 23.10.1980, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 1980 Ferða-, dvalar- og húsnæðiskostnaður þingmanna hækkar ÞINGFARARKAUPSNEFND ákvaó á fundi sínum á þriðjudait hækkun á ferðakostnaði þinKmanna. dvalarkostnaði og húsnæðiskostnaði. Þessir liðir hækka um 20—25% og KÍldir 25% hækkun á ferðakostnaði frá 1. júlí. en ha kkun á hinum tveimur frá 1. októher. Hér er um bráðahirKðaákvörð- un að ra“ða, sem tfildir þar til ný ákvæði um þessi mál hafa verið sett. Ferðakostnaður í kjördæmi hækkar um 25% samkvæmt þessu, þ.e. úr 600 þúsund krónum í 750 þúsund krónur á hálfu ári. Dval- arkostnaður hækkar úr 6.500 krónum á dag í 7.800 krónur eða í um 200 þúsund krónur á mánuði. Þá var húsnæðiskostnaður þing- manna hækkaður úr 120 þúsund krónum í 150 þúsund krónur á mánuði. Pálmi Jónsson: Kaus Guðrúnu og felldi Matthías VIÐ UPPHAF fundar í neðri deild Alþingis í gær hafði forseti orð á dræmum mætingum þing- manna á fund. Matthías Bjarna- son kvaddi sér siðan hljóðs utan dagskrár og kvaðst vilja skýra frá þvi, að hann hefði tafizt vegna fundar i heilbrigðis- og trygginganefnd. þar sem dráttur hefði orðið á þvi, að Pálmi Jónsson, landbúnaðarráðherra, sem tryggir meirihluta stjórnar- liða i nefndinni, kæmi á fund. Sagði Matthias. að fundur hefði verið boðaður klukkan 13:45, en það hefði ekki verið fyrr en klukkuna vantaði eina minútu i tvö, að stjórnarliðar „stóðu með pálmann i höndunum" og kosn- ing stjórnar gat farið fram. Það vakti svo kátinu þingmanna. þeg- ar forseti sló botninn í þessar umræður að máli Matthiasar loknu og tók fyrir næsta mál á dagskrá, sem var lagafrumvarp um horfna menn. Guðrún Helgadóttir var kosin formaður heilbrigðis- og trygg- inganefndar neðri deildar með 4 atkvæðum stjórnarliða, Matthías Bjarnason fékk 3 atkvæði. Guð- mundur G. Þórarinsson var kjör- inn varaformaður með 4 atkvæð- um, en Magnús H. Magnússon fékk 3. Jóhann Einvarðsson varð fundarskrifari án mótframboðs. Eggert Haukdal varð formaður atvinnumálanefndar sameinaðs þings án mótframboðs. Reyndar hafði gleymzt að boða Eggert á nefndarfundinn, en hann hafði spurnir af honum og mætti, en þá var búið að kjósa hann formann. Varaformaður varð Ólafur Þ. Þórðarson án mótframboðs og fundarskrifari Garðar Sigurðsson. Fundur í utanríkismálanefnd hefur verið boðaður á mánudag- inn. Einnig er eftir að kjósa stjórnir tveggja nefnda efri deild- ar og verður það væntanlega gert strax eftir helgina. (Ljósm. Ásxeir.) Það eru víðar útimarkaðir en á Lækjartorgi i Reykjavík. Skiðaráð Þróttar i Neskaupstað efndi til slikrar samkomu um síðustu helgi og eins og hraustum skiðamönnum sæmir héldu þeir sinn „basar“ úti undir beru lofti. Mikil aðsókn var að útimarkaðnum og gerðu margir góð kaup auk þess sem þetta setti skemmtilegan svip á bæjarbraginn. Verzlunarráð Islands: Bráðabirgðalögin um 2% hækk- un lægstu launa aldrei staðf est Búið að salta í 112 þús. tunnur ÚTLIT var fyrir það í gærkvoldi, að dagurinn i dag yrði síðasti síldar- soltunardagurinn um sinn víða á Austfjorðum, t.d. á Fáskrúðsfirði og Eskifirði. Tunnuskortur var orðinn mikill og sagðist Bergur Hall- grimsson á Fáskrúðsfirði verða stopp eftir daginn i dag. Alls hafði f fyrrakvöld verið saltað í um 112 þúsund tunnur af sild á vertiðinni. Mest hafði verið saltað á Eskifirði eða i um 24 þúsund tunnur, en þar eru nú fjórar soltunarstoðvar. og á Hofn í Horna- firði var búið að salta i svipaðan tunnufjolda hjá Fiskimjölsverk- smiðju Hornafjarðar og Stemmu. Á Fáskrúðsfirði er ein sOltunarstöð. Pólarsild. og þar var i gær búið að salta í um 16 þúsund tunnur. 1 gær var verið að salta síld á 11 stöðum á landinu og söltunarstaðirnir verða trúlega fleiri í dag, en í gær voru bátar m.a. á leið með síld á hafnir á Snæfellsnesi. VERZLUNARRÁÐ íslands hefur ritað forsætisráðherra bréf, þar sem segir, að athugun ráðsins hafi leitt í ljós, að frumvarp til laga um staðfestingu á bráða- birgðalögum um 2% hækkun lægstu launa hinn 1. desember 1979 hafi aldrei hlotið fullnaðar- afgreiðslu, og iaun sem „login" taka til séu því ofgreidd. Bréf Verzlunarráðsins til forsætisráð- herra fer hér á eftir: Við athugun Verzlunarráðs ís- lands á störfum 102. löggjafar- þings íslendinga hefur komið í ljós, að frumvarp til laga (20. mál) um staðfestingu á bráðabirgðalög- um um 2% hækkun lægstu launa hinn 1. desember 1979 varð ekki útrætt á þinginu. Einungis var gengið frá nefndaráliti í fyrri deild, N.d., þann 28. apríl 1980, þar sem lagt er til að frumvarpið verði samþykkt. Ef ákvæði frumvarps- ins hafa ekki verið tekin upp í önnur lög, átti umrædd launa- hækkun að falla úr gildi þann 29. maí 1980. Bráðabirgðalögin voru sett 20. nóvember 1979 og undirrituð af þáverandi forsætisráðherra, Bene- dikt Gröndal. Voru lögin lögð fyrir næsta þing, skv. 28. gr. Stjórn- arskrárinnar. Þar sem Alþingi staðfesti ekki bráðabirgðalögin, eru þau fallin úr gildi skv. þessu ákvæði Stjórnarskrárinnar. Þegar lögin féllu úr gildi, féll einnig niður sú launahækkun, sem iögin kveða á um. Af þessum sökum hefðu laun þeirra, sem um getur í lögunum, átt að lækka um 1,96% þann 29. maí sl., við þing- lausnir. Svo varð þó ekki og því mun þeim aðilum, sem „lögin" taka til hafa verið ofgreidd laun frá sama tíma. Jón G. Sólnes keypti Guðbrandsbiblíu fyrir tæpar 12 milljónir kr. GUÐBRANDSBIBLlA var seid á 7.500 pund eða tæplega 10 milljónir islenzkra króna á bókauppboði hjá Soothebys í London siðastiiðinn mánudag. Mun þetta vera hæsta verð, sem greitt heíur verið fyrir islenzka bók, en kaupandi er Jón G. Sólnes fyrir hönd Listhússins á Akureyri. Matthías Bjarnason um Stjórnarskrárnefnd: Störfum nefndarinnar hefur miðað alltof hægt „ÉG TEL, að þessi skýrsla hefði átt að geta verið tilbúin miklu fyrr í því formi sem hún var send þingflokkunum og sé enga ástæðu fyrir þvi að hún gat ekki verið tilbúin miklu fyrr. Þarna er ekki um neinar tillög- ur að ræða heldur upprifjun á því, sem kom til umraéðu í nefndinni og á eftir að koma tii umræðu i stjórnmáiaflokkun- um.“ sagði Matthias Bjarnason. alþingismaður f samtali við Mbl. i gær. en hann á sæti i Stjórnarskrárnefnd. Fyrrnefnd skýrsla var merkt sem trúnaðarmál og var Matthí- as spurður hvers vegna svo væri. „Ég tel ekkert vera í skýrslunni, sem ekki má koma fyrir almenn- ingssjónir. Fyrst nefndin hins vegar ákvað að gera þessa skýrslu að trúnaðarmáli þá hef ég auðvitað umgengizt málið með þeim hætti." Þá var Matthías spurður hvort fyrirsjáanlegt væri hvenær nefndin lyki störfum: „Þegar nefnd þessi var kosin á grund- velli þingsályktunartillögu var reiknað með að hún yrði tvö ár að ljúka störfum og ætti því að vera búin fyrir næstu áramót. í nefndinni hefur ekki verið kall- aður saman fundur lengi og auk þess var ég ekki boðaður á síðasta fund nefndarinnar. Ef hugur fylgir hins vegar máli hjá stjórnmálaflokkunum í landinu eiga þeir að taka þessi mál til meðferðar hver fyrir sig og síðan að leita samninga um sameigin- lega lausn, sem væri æskilegast. Ég neita því ekki, að ég er óánægður með störf nefndarinn- ar, þeim hefur miðað alltof hægt.“ Matthías var spurður hvers vegna hann hefði ekki verið boðaður á síðasta fund Stjórn- arskrárnefndar: „Ég get ekki gefið skýringu á því nema helzt þá, sem einn kollega minn í þinginu skaut að mér, að nefnd- armenn hafi verið boðaðir eftir launaskrá. Ég er ekki á þeirri skrá, þar sem ég kæri mig ekki um að taka meiri laun fyrir störf í þeirri nefnd," sagði Matthías Bjarnason. Að sögn Jóns var á þessu uppboði óvenju mikið af íslenzk- um ritum úr einkasafni Svíans Ihre, sem mörgum íslenzkum bókamönnum er kunnur. „Þarna var margt sannkallaðra gersema og þeirra á meðal Guðbrands- biblía, sem á endanum var slegin mér fyrir 7.500 pund, en ég reikna með, að þegar ýmis gjöld eru komin ofan á kaupverðið verði kostnaðurinn kominn hátt í 12 milljónir króna,“ sagði Jón G. Sólnes, fyrrverandi alþingismað- ur. „Ég fór ekki til Englands gagn- gert með það í huga að kaupa þessa bók, en þegar boðin voru komin af stað og spennan orðin mikil gaf ég mig ekki og hreppti bókina að lokum. Það var boðið af miklu kappi og sænskir hákar sýndu biblíunni mikinn áhuga. Ég ætla mér ekki og hef engin efni á að eiga þessa bók, en fannst rétt að reyna að ná bókinni og bjóða hana til sölu hérlendis. Ef það tekst ekki, verð ég varla í vand- ræðum með að selja hana í Svíþjóð eða annars staðar," sagði Jón G. Sólnes. Fleiri íslendingar voru á þessu uppboði og munu þeir hafa keypt talsvert af gömlum íslenzkum bókum. Guðbrandsbiblía Jóns G. Sólness er ekki væntanleg til landsins fyrr en eftir nokkrar vikur og m.a. þarf sérstakt út- flutningsleyfi fyrir bókinni. Krökkunum vel tekið Söfnun Rauða krossins á höfuð- borgarsvæðinu gekk vel í gær Rauða kross íslands. Jón sagði, að mikill fjöldi barna hefði tekið þátt í söfnuninni og reiknað væri með að þau myndu ljúka söfnuninni upp úr klukkan átta í gærkvöldi. Söfnunarfötun- um verður safnað saman í eina bankastofnun í Reykjavík þar sem „KRÖKKUNUM hefur verið mjög vei tekið, það sem ég hef frétt,“ sagði Jón Ásgeirsson framkvæmdastjóri Afrikuhjálp- ar Rauða krossins, er Mbl. ræddi við hann síðari hluta dags í gær, en skólabörn gengu þá fyrir hvers manns dyr á höfuðborgar- svæðinu með söfnunarfötur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.