Morgunblaðið - 23.10.1980, Blaðsíða 15
MORG.UNBJLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 1980
15
Guðmundur
Anna Júlianna
Ólöf Kolbrún
Góðra vina fundur heita tón-
leikar Söngskólans sem verið er
að hleypa af stokkunum á föstu-
dagskvöld undir miðnætti í Há-
skólabíói, en tónleikar þessir eru
framhald skemmtunarinnar.
Hvað er svo glatt á sl. ári en
þúsundir manna sóttu þær
skemmtanir sem voru mjög vin-
sælar.
Tónleikar Söngskólans eru
haldnir til þess að afla fjár til
síðustu húsakaupa skólans við
Hverfisgötuna, en í því húsi er nú
glæsilegur tónleikasalur og að-
staða til hóptíma og hópæfinga í
söngmenntinni. „Góðravinafund-
urinn" er samsettur í gamni og
alvöru og ræður léttari dúrinn
ferðinni með glensi og gamni
okkar kunnustu söngvara.
Við litum inn á æfingu „Góðra-
vinafundarins“ í fyrrinótt þar sem
Söngskólafólkið var á fullri ferð,
en allir kennarar skólans og nem-
endur leggja hönd á plóginn.
Meðal atriða eru dúettar og
Nokkrir einsöngvaranna með kórinn að haki. Frá vinstri eru Már. Sigurgeir, Anna Júlíanna og
buríður, en aðrir einsöngvarar eru Garðar, Guðrún Á„ Margrét og Guðmundur.
„Góðravinafundur“ Söngskól-
ans á miðnæturskenuntunum...
einsöngur úr kunnum óperettum
og einnig aðstoðar skólakórinn.
Meðal atriða eru verk úr Zardas-
furstaynjunni, Betlistúdentinum,
Sígaunabaróninum og Kissmet. ,
Þá er gripið niður í ýmsa kunna
bandaríska söngleiki, negrasálma
og kór Söngskólans syngur sígild
dægurlög með miklum tilþrifum.
Þá eru flest atriðin sviðsett
sérstaklega og má þar nefna Dísu í
Dalakofanum í sviðssetningu Sig-
ríðar Þorvaldsdóttur, Guðmundur
Jónsson og Þuríður Pálsdóttir
syngja Nínu og Geira með nýjum
texta Guðmundar, en þau sungu
sem kunnugt er Tvær úr Tungun-
um í fyrra.
Þá er Björn R. Einarsson mætt:
ur með hljómsveit sína og Söng-
skólakórinn sem er í dúndrandi
formi er eins og undiralda á
skemmtuninni með eðlilegu risi
hér og þar.
Þá er það meðal atriða að
Guðrún Á. Símonar og Þuríður
Pálsdóttir dansa steppdans. Kynn-
ir á tónleikunum er Guðmundur
Jónsson óperusöngvari.
Sýnishorn af Söngskólakórnum í mikilli innlifun. Ljósmyndir Mbl. Kristján
Aukasýningar á „í öruggri borg“
HÚSFYLLIR varð á síðustu þrjár sýningar Þjóðleikhússins á leikriti
Jökuls Jakobssonar í ÖRUGGRI BORG og urðu margir frá að hverfa.
Hefur því verið ákveðið að hafa þrjár aukasýningar á leikritinu og verða
þær sunnudaginn 26. október, þriðjudaginn 28. október og fimmtudaginn
30. október. Að öllum líkindum geta sýningarnar ekki orðið fleiri vegna
þrengsla við litla sviðið, en frumsýning á leikriti Valgarðs Egilssonar
DAGS HRÍÐAR SPOR er á næstu grösum.
Myndin er af Kristbjörgu Kjeld og Þorsteini Gunnarssyni í
hlutverkum sínum.
Rit um Rauða krossinn
Egilsstöðum 21. október.
DEILDIR Rauða krossins á Aust-
urlandi gáfu fyrir nokkru út
kynningar- og auglýsingarit til
fjáröflunar fyrir Afrikusöfnun
RKÍ.
Er ritið hið ánægjulegasta yfir-
lestrar og koma þar fram ýmsar
upplýsingar um Alþjóða Rauða
krossinn og starfsemi hans, en
auk þess er í ritinu að finna
upplýsingar og fróðleik um starf-
semi deilda Rauða krossins á
Austurlandi. Ábyrgðarmaður út-
gáfunnar er Ragnar 0. Steinars-
son á Egilsstöðum. Jóhann
Óánægja með flugleyfi til Vestfjarða:
„Höfum ekki áhuga á að
leggja Flugleiðum til
þjónustu eða f jármagn66
— segir framkvæmdastjóri Arna á Isafirði
fsafirAi 21. október 1980.
EINS og mönnum er kunnugt, veitti
samgönguráðherra, Steingrímur
Hermannsson, flugfélagi Norður-
lands flugleyfi á flugleiðinni Akur-
eyri — Olafsfjörður — Reykjavík,
þrátt fyrir að flugráð legði til að
Flugleiðum yrði veitt flugleiðin.
Hann gaf þá skýringu að sveitar-
stjórnarmenn á Akureyri og Ólafs-
firði hefðu lagt mikla áherslu á að
Flugfélag Norðurlands fengi flug-
leyfið.
Nú hefur Steingrímur Her-
mannsson hafnað svipaðri ósk frá
Flugfélaginu Örnum á ísafirði. Ern-
ir sóttu um leyfi vöruflutninga á
leiðinni Isafjörður — Reykjavík —
ísafjörður, og einnig sótti félagið um
leyfi til fólks- og vöruflutninga á
leiðinni ísafjörður — Þingeyri —
Reykjavík — Þingeyri — ísafjörður,
pg að auki um flugleyfi á leiðinni
ísafjörður — Reykjanes — Reykhól-
ar — Reykjavík — Reykhólar —
Reykjanes — ísafjörður. Öllum þess-
um umsóknum var hafnað af flug-
ráði og hefur samgönguráðherra
staðfest ákvörðunina, þrátt fyrir
óskir sveitarstjórnarmanna við ísa-
fjarðardjúp um að leyfið yrði veitt
Ornum.
„Það er einkennilegt að sam-
gönguráðherra og þingmaður Vest-
fjarða, teiji sig ekki þurfa að bjóða
Vestfirðingum betri flugsamgöngur
en þetta“ sagði Hörður Guðmunds-
son framkvæmdastjóri Flugfélags-
ins Arna í samtali við fréttaritara
Morgunblaðsins í dag. „Engar flug-
Ilörður Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri flugfélagsins
Arna. Ljósm. Úllar.
samgöngur eru nú milli Reykjaness
og Reykjavíkur né Reykhóla og
Reykjavíkur. Þó hefur Arnarflug
einkaleyfi á leiðinni Reykhólar
—Reykjavík, en þeir fljúga ekki
þangað reglulega og bera við slæm-
um skilyrðum á flugvellinum. En að
sögn Harðar fljúga þeir þó leiguflug
á völlinn. Hörður sagði að sam-
gönguráðherra hefði borist skeyti
frá öllum hreppsnefndum í Inn-
Djúpinu, þar sem lögð væri áhersla á
bættar flugsamgöngur. Hann sagði
einnig. að hann færi nú að þreytast á
því að bjóða fram þjónustu á þeim
flugleiðum sem þörfin væri brýnust,
nær væri að snúa sér að því að óska
eftir að flugleiðinni milli ísafjarðar
og Reykjavíkur yrði skipt upp þann-
ig að Flugleiðir hefðu 75% sæta-
framboðs en Ernir 25%. Sagði hann
aðila í samgönguráðuneytinu sífellt
vera að bjóða fram aðstoð við
samruna eða samstarf flugfélag-
anna. En af hálfu Flugfélagsins
Arna væri ekki áhugi fyrir að leggja
Flugleiðum til þjónustu eða fjár-
magn. Hörður gat þess að lokum, að
þrátt fyrir erfið tímabil í sögu
félagsins hefði a 'rei komið til
opinberra styrkja til 'eirra. _ Úlfar.