Morgunblaðið - 23.10.1980, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 1980
47
Trausti fer ekki til
IFK Gautaborgar
— Örgryte og AIK sýna áhuga
“ Það verður ekkert úr því að ég
fari til IFK Gautaborg. Liðið
sýndi mér frekar takmarkaðan
áhuga, og i gærkvöldi talaði ég
við Þorstein Ólafsson markvörð
liðsins og hann tjáði mér að
Gautaborg ætlaði sér að kaupa
sænska landsliðsbakvörðinn sem
leikið hefur með Vesterás“ sagði
Trausti Haraldsson landsliðs-
bakvörður í knattspyrnu og leik-
maður með Fram í viðtali við Mbl
i gær. En skýrt var frá þvi i einu
dagblaðanna i vikunni að Trausti
væri á leið til Gautaborgarliðs-
ins. — Ég hef mikinn áhuga á þvi
að breyta til og spreyta mig með
erlendu liði. Otto Laufdal er að
athuga málin fyrir mig i Sviþjóö,
og tvö lið eru aðallega inni i
myndinni. Það eru lið Harðar
Hilmarssonar AIK, og lið ör-
gryte sem örn óskarsson leikur
með. Bæði liðin unnu sig upp i 1.
deild á keppnistimabilinu sem er
að ljúka og eru þegar farin að
huga að kaupum á nýjum leik-
mönnum.
Eins og fram hefur komið i
fréttum Mbl. var Trausti Har-
aldsson stigahæstur i einkunna-
gjöf Morgunblaðsins síðasta
keppnistimabil og hlaut titilinn
leikmaður Islandsmótsins.
Trausti var mjög vel að titlinum
kominn hann lék mjög vel allt
síðasta keppnistimabil bæði með
félagi sinu Fram og ísienska
landsliðinu. — ÞR.
Knattspyrna 1
Leikmaður íslandsmótsins i knattspyrnu. Trausti Haraldsson
Sundmaðurinn
Ingi Þór varð
fyrir valinu
Árshátíð íþróttabandalags
Akraness var haldin fyrir
skömmu. Þar var m.a. lýst kjöri
iþróttamanns Akraness 1980.
Stjórn ÍA velur íþróttamann
Akraness og tilnefnir hver
stjórnarmaður fimm íþrótta-
menn og gefur þeim efsta fimm
stig.
Silfurmerki IA var afhent á
árshátíðinni og hlutu það íris
Dröfn Smáradóttir, íslandsmeist-
ari í tvíliðaleik meyja í badminton
og meistaraflokkur kvenna í hand-
knattleik fyrir sigur í 2. deild 1980.
Þá veittu sérráð og félög innan
(Jrslit urðu þau. að Ingi Þór
Jónsson sundmaður hlaut kosn-
ingu með yfirburðum, hlaut 53
stig. Næstur honum kom Ingólf-
ur Gissurarson sundmaður. en
þess má geta að Ingólfur var
kosinn iþróttamaður Akraness
1979.
ÍA ýmis verðlaun, fyrir leikja-
fjölda og annað, og Þýsk-íslenska
verslunarfélagið útnefndi Grohe-
mann ársins í knattspyrnu í annað
sinn. Þau verðlaun hlaut nú lands-
liðsmaðurinn Sigurður Halldórs-
son.
BlaK )
Haustmót
í blaki
HAUSTMÓT i blaki fer fram
dagana 24.—26. okt. og er mótið í
umsjá Í.S. að þessu sinni. Þátt-
taka í mótinu er ágæt, alls hafa
21 lið tilkynnt þátttöku. í mfl.
karla 12 lið, þar verður leikið í 3
riðlum og síðan úrslitakeppni. í
mfl. kvenna 4 lið og í 3. fl. pilta 5
lið.
Leikið verður á 3 stöðum sem
hér segir:
Föstudagur íþrh. Háskóla íslands
kl. 19.30-21.00 3. fl. pilta.
Föstudagur íþrh. Háskóla íslands
kl. 21.00—22.30 mfl. kvenna.
Laugard. íþrh. HÍ 13.00—17.00
mfl. karla.
Laugard. Vogaskóli 13.00—14.30 3.
fl. pilta.
Sunnud. íþrh. K.H.Í. 10.00—21.00.
Allir fl.
Leikið verður upp á 2 unnar
hrinur og verður hámarkslengd á
hrinu 15 mínútur til að tímaáætl-
un geti staðist. '
í mfl. karla keppa:
1. riðill 2. riðill 3. riðill
Hveragerði Fram Í.S.
Í.B.V. H.K. U.M.S.E.
Víkingur Þróttur Umf.
Samhygð
Þróttur b) Þorri Þróttur
Neskaupst.
I mfl. kvenna l.S. Víkingur, Þrótt-
ur og U.B.K. 9
í 3. fl. pilta H.K. Þróttur, Víking- ^
ur, Stjarnan og Hveragerði. %
Eftirtalið íþróttafólk hlaut stig í kjörinu:
Ingi Þór Jónsson, sund 53 stig
Ingólfur Gissurarson, sund 24 stig
Laufey Sigurðardóttir, handkn./badmint. 18 stig
Ragnheiður Jónasdóttir, badmint./handkn. 18 stig
Bjarni Sigurðsson, knattspyrna 11 stig
Kristján Olgeirsson, knattspyrna 10 stig
Magni Ragnarsson, sund 10 stig
Árni Þ. Hallgrímsson, badmint./knattsp. 9 stig
Jón Alfreðsson, golf 7 stig
Sigurður Jónsson, knattspyrna 4 stig
Árni Sveinson, Sigurður Halldórsson og Valdimar Sigurðsson, knatt-
spyrnumenn hlutu allir 2 stig.
ULLAR-
BUXUR
Satín fóöraöar, 100% ullarefni.
Litir: Grátt — Vínrautt — Svart
Camelbrúnt — Grænt — Milliblátt.
Hönnun: Margrét Siguröardóttir.
KOMNAR AFTUR
Fæst hjá
— Blátt —
KARNABÆ
og einkasöluaöilum hans um land allt.