Morgunblaðið - 23.10.1980, Blaðsíða 7
GISTIÐ ÓDÝRT
MIÐSVÆÐIS
éi
BergstaOastrœtl 37, Siml 21011
AUGLÝSINGASTOFA
MYNDAMÓTA HF
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 1980 7
öatóÉms?
Sjálfshól
á villigötum
Furðulegt er að sjá, hve
langt ritstjórar stjórnar-
málgagnsins Dagblaðsins
geta leiðst í trú sinni á
áhrifamátt skoðanakannana
og gildi þeirrá í þjóðlífinu. í
forystugrein eftir Hauk
Helgason, aðstoðarritstjóra,
mátti lesa þetta síðastliðinn
mánudag;
„Skoðanakönnun Dag-
blaðsins sýnir, að mikill
meirihluti iandsmanna vill
hafa varnarliðið áfram að
sinni. Fyrri skoðanakannan-
ir hafa sýnt minni mun.
Varnarmálin eru þess eðlis,
að réttmætt er að útkljá þau
við þjóðaratkvæði. Þau mál
eru nánast ekkert rædd í
prófkjöri eða á framboðs-
fundum. Um þau hefur
aldrei verið kosið í þing-
kosningum.
Að sinni geta menn sagt,
að skoðanakönnun Dag-
blaðsins sýni ótvírætt meiri-
hlutafylgi við varnarliðið og
því sé óþarft að bera það
mál undir þjóðaratkvæði, að
óbreyttu ástandi í heims-
málum. En ekki hafa
valdsmenn breytt sam-
kvæmt niðurstöðum skoð-
anakönnunar Dagblaðsins
um aronskuna. Þá væri
rökréttast, að það mál, sem
er ótvírætt stórmál, verði
borið undir þjóðina og tekið
úr höndum alþingismanna,
sem kunna ekki með það að
fara.“
í ofangreindum setning-
um úr forystugrein Dag-
blaðsins kemur fram óaf-
sakanleg vanþekking Qg fá-
ránlegt mat á töku ákvarð-
ana í lýðræðislegu þjóð-
BENEDIKT GRÖNDAL
KJARTAN JÓHANNSSON
VILMUNDUR GYLFASON
Persónan eða þjóðin?
Benedikt Gröndal veðjar nú á þaö, aó yngri þingmenn vilji ekki fá.
Kjartan Jóhannsson sem formann, vegna þess að þeir hafi sjálfir hug á
embættinu síöar.
skipulagi. Að halda því
fram, að aldrei hafi verið
kosið um varnarmálin í
þingkosningum, jafngildir
yfirlýsingu um það, að síðan
1951 þegar varnarsamning-
urinn var gerður hafi ríkt
eining um hann nieðal
stjórnmálaflokkanna. Slík
yfirlýsing stangast algjör-
lega á við þann veruleika, að
fá mál hafa verið meiri
átakamál í íslenskum
stjórnmálum en fyrirkomu-
lag varnanna. Kosningarnar
1956 og 1974 snerust ekki
síst um þessi mál. Og í
hverjum einustu kosningum
hljóta kjósendur að hafa það
í huga, hvort frambjóðendur
ætla að standa vörð um
sjálfstæði og öryggi þjóðar-
ínar.
Sú afskræming á lýðræð-
islegum stjórnarháttum,
sem fram kemur í seinni
málsgrein Dagblaðsleiðar-
ans, er fáránleg. Lítur blaðið
á sig sem atkvæðakassa í
þjóðaratkvæðagreiðslu?
Felst það í yfirlýsingu aðal-
ritstjórans, Jónasar Krist-
jánssonar, sem hann hefur
margendurtekið, að Dag-
blaðið sé „símstöð"? I blindu
sjálfshóli mega ritstjórar
Dagblaðsins ekki ofmetnast
og telja sér trú um, að
starfsemi „símstöðvar" geti
leitt til þess, að mál séu
tekin úr höndum Alþingis.
Haldi Dagblaðið áfram á
sömu braut má búast við
því, að þar verði lagt til, að
Póstur og sími taki að sér
hlutverk bæði Alþingis og
Dagblaðsins.
Erfítt uppgjör
Framboð Kjartans Jó-
hannssonar gegn Benedikt
Gröndal í formannskjöri á
flokksþingi Alþýðuflokksins
hefur valdið nokkru fjaðra-
foki í röðum flokksmanna
eins og við er að búast. Allar
yfirlýsingar ráðamanna í
Alþýðuflokknum um málið
sýna, að einungis er tekist á
um persónur. Þegar kratar
áttu aðild að stjórn Ólafs
Jóhannessonar, var það
óþolinmæði þingflokksins,
sem skapaði spennuna í
stjórnarsamstarfinu. Þá
sátu þeir Benedikt og Kjart-
an saman í ríkisstjórninni
og meðan sá fyrrnefndi
gegndi skyldum sínum sem
utanríkisráðherra á alls-
herjarþingi Sameinuðu
þjóðanna ákvað þingflokk-
urinn að yfirgefa stjórn-
arskútuna. Sýnir þetta, að
forystuhlutverk Benedikts
Gröndals hefur ekki verið
mikils metið af flokksbræðr-
um hans á þingi. Sighvatur
Björgvinsson var formaður
þingflokks kratanna á þess-
um tíma og hann skipuðu þá
ungir og vaskir menn, sem
töldu sig hafa miklu hlut-
verki að gegna í íslenskum
stjórnmálum og gera enn.
Eitt blaðanna spurði
Vilmund Gylfason að því á
dögunum, hvert væri álit
hans á framboði Kjartans
Jóhannssonar gegn Bene-
dikt Gröndal. Sagðist Vil-
mundur telja framboð
Kjartans mjög æskilegt og
Kjartan hafi varla getað
annað eins og málum sé nú
háttað. Hins vegar er Vil-
mundur ekki eins afdráttar-
laus í svari sínu um, hvorn
hann ætli að kjósa. Hann
lætur sér nægja að segja:
„Þarna kunna að vegast á
persónulegir hagsmunir og
langtímahagsmunir flokks
og lands.“ Æskilegt væri að
fá nánari skýringu á því
hvað í þessari setningu felst
og er það ólíkt Vilmundi að
ræða málin með tæpitungu.
Á meðan ekki liggur ann-
að fyrir hljóta menn að
álykta sem svo, að Vilmund-
ur Gylfason telji hagsmun-
um flokks og lands best
borgið undir forystu Kjart-
ans Jóhannssonar í Alþýðu-
flokknum en hins vegar per-
sónulegum hagsmunum sín-
um betur borgið með Bene-
dikt Gröndal í formanns-
sætinu. Þessi mun afstaða
fleiri ungra þingmanna Al-
þýðuflokksins, sem gjarnan
hafa hug á formannssætinu
sjálfir en sjá í hendi sér, aö
nú sé ekki rétti tíminn til að
sækjast eftir því, þegar
formaðurinn og varafor-
maðurinn keppa. Sóknar
áætlun þeirra mun hafa
byggst á því, að Benedikt
drægi sig í hlé og síðan yrði
kosið milli margra um for-
mannssætið. Á slíka per-
sónulega hagsmuni þing-
bræðra sinna veðjar Bene-
dikt Gröndal nú í baráttu
sinni við Kjartan Jóhanns-
son.
Nýr ævintýraheimur fyrir böm á aldrinum 3-7 ára
LEGO er nýtt leikfang
á hverjum degi
Tískusýning
íkvöldkl. 21.30
UtsoiustaÓH Karnabær Laugavegi 66 Karnabær Giæsibæ
Epliö Akranesi — Eplið Isafirði — Alfholl Siglutirdi
Cesar Akureyri — Hornabær Hornafiröi — Eyjabær Vestmannaeyium
LITASJONVORP
22” —26”
Sænsk hönnun ★
Sænsk ending ★
Bestu kaupin! ★
Greiöslukjör. ★
ILAUGAVEG 66 SIMI 25999