Morgunblaðið - 04.11.1980, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 1980
5
Er stundaskrá Sambands-
ins pólitísk innræting?
Athugasemd við erindi um daginn og veginn
í erindi um daginn og veginn í
ríkisútvarpinu mánudaginn 27.
október sl. ræddi Bessý Jóhanns-
dóttir, kennari, m.a. um stunda-
skrá fyrir grunnskólanemendur
sem Samband ísl. samvinnufélaga
lét gera á sl. hausti.
í stundaskránni komu fram
nokkrar upplýsingar um sam-
vinnuhreyfinguna.
Væntanlega vegna þeirra upp-
lýsinga deilir kennarinn mjög á
dreifingu stundaskrárinnar. Hún
tengir hana umræðum um póli-
tíska innrætingu í skólum, kallar
dreifinguna misnotkun á skólum
landsins og telur þetta óþolandi
vinnubrögð sem beri vott um
uppivöðslusemi vinstri manna í
skólakerfinu.
gagnvart nemendum í landinu. Ef
slík samtök vilja breiða út upplýs-
ingar um starfsemi sína þarf það
að gerast eftir öðrum leiðum en að
misnota skóla landsins. Athyglis-
vert er að þessar stundaskrár voru
ekki sendar til nemendafélaganna
heldur til skrifstofu skólanna. Slík
vinnubrögð eru óþolandi og bera
vott um þá uppvöðslusemi sem
vinstri menn stunda í skólakerf-
inu.
Foreldrar þurfa að vera á varð-
bergi gagnvart vinnubrögðum sem
þessum."
En hverjar skyldu þær upplýs-
ingar vera sem kennaranum þykja
svo hættulegar grunnskólanem-
endum? Því er skýrast svarað með
því að biðja blaðið um að birta allt
S.imvinnureglur
I. S»mv>w>ufélö» eru fr/áh o* opto fétfig
\n síiórnm*l»kgr»r eð*
tiúarlcitrai mi<mumm»r
1 S»n>vmnufcl«g lúu MrerfMtgrt ujárn
n her íhvrgft gagnvan félagvmonnum
t-éUftawnn hala iqfmm komingarrn
J. Samvtmufclög greióa hóöeg» ve*u
af ilofnfé (eUfvmanna
4. S«mvinnufclft|t verta tekjuafgaBgi I þá*u
fétsgthcddarinnar tftir ák vvr(Un
til eningnr oarftemi f#U|nrin»
til nuUcfna sctn »nert» atmannaheitl
- til skipta mtlli lílajtsmamw I hlutfalli
vih viMipi
5. SamvmnuféMg «k ulu antrnl fntMu um
giuadvaOarrcftur n$ ttarftvenjur *an>-
vinnuhfrvfinfjnrmar
6 Samvtnnufflog vkulu hafa með tél urm-
ttatf k mnletuium «g »lþjrtSkfum veU-
vanfi tll nti þjóna »etn hest hammunum
Itlacvmanna mnna
MarkmiA
h»npfWöglti ttarfa xnmlcxernt lí'tium titn
sj»iiv <nnulélö» «8 hafa J>að m»r kmið jA rflx
humteld félajtvmann.'t
Það lcttxvt kanpWilgtn við aD j»r»mvð þvi
»ð efW wMkipta- of vfttuf*fh.
ah »elja nevttndum vúrur á latwtu
verð»,
r að ná »ero b*»tu vcrðt fv rir aftttðtt félaf!\
manna,
að rndurgreiða ðNÉUMMM) tekiw-
»f|MU>í * Uluifttllí viö vtMfctpit þeirta
við 1M»$ *.
að vt»rlt.vk>a atvtnnufyrirtteki ujt veita
lílapnnönnum atvinnu.
»ð efla mcnrongarlH
--------- -------------------T™**'1'**™
fcfagsiTienn
Kaupfélöjttn eru félðjt tamvmnumanna um
allt lanrt
I kaupfrlögunum ttu allif )»fn rctlhau t>g
heíur hver onvtakur félajtvmaðttr cttt
alkvtrAi
\ð»llu»<tuf hefui atótla vald i mklelnum
hverv féfajt-
Sérhvrr fcfajtvmaður hefur r*t« ttl að vitpi
funtit félagvim og lý*a þat vkoðunum >inum
á »tart»cmt ag rek$tn J>es» Mcð máh vtnu
og atkvjeði jíctur h»nn hscði haft ihrif i
ttjðrnun ojt vtarfshaHti kauplélagvinv.
Bessý Jóhannsdóttir sagði: „K
undanförnum árum hefur verið
talsvert rætt um pólitíska innræt-
ingu í skólakerfinu og þó einkum í
einstökum greinum svo sem í
félagsvísindum. Nú hefur einn
stærsti auðhringur landsins tekið
sér fyrir hendur að láta útbúa
stundaskrá fyrir nemendur
grunnskóla í landinu. Þessar
stundaskrár eru sendar skólunum
og kennarar látnir dreifa þeim til
nemenda. Þegar þetta er gagnrýnt
er sagt: Þetta er nú saklaust, þetta
er frá samvinnuhreyfingunni.
Menn þurfa ekki að hafa neitt á
móti samvinnuhreyfingunni sem
stofnun þegar slík vinnubrögð eru
gagnrýnd. Samvinnuhreyfingin
felur í sér ákveðna lífsskoðun eins
og önnur slík samtök. Engin
þeirra eiga þó rétt á að þeim sé
hærra gert undir höfði en öðrum
efni stundaskrárinnar um sam-
vinnuhreyfinguna, svo lesendur
geti dæmt af eigin raun.
Annars gefur þessi einkennilega
afstaða manneskjunnar tilefni til
nokkurra frekari athugasemda.
1. Um langt árabil hafa margir og
mismunandi aðilar gefið út
stundaskrár sem dreift hefur
verið í skólum. Má þar nefna
flugfélög, banka, félagasamtök
o.fl. Jafn lengi hefur sá dreif-
ingarmáti tíðkast, að senda
stundaskrárnar í skólana með
óskum um að þeim verði dreift
til nemenda. í þessu tilviki var
slík ósk borin fram við skóla-
stjóra skólanna. Engin dæmi
veit ég þess að stundaskrár séu
sendar nemendafélögum til
dreifingar.
2. Af orðum B.J. virðist mér mega
EF ÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
AUGLYSINGA-
SÍMINN ER:
22480
ráða, að þekking hennar á
samvinnuhreyfingunni er
næsta bágborin, þar sem það
virðist vefjast fyrir henni hvort
samvinnuhreyfingin sé samtök,
stofnun, auðhringur eða eitt-
hvað annað. Ég vil benda B.J. á
að samvinnuhreyfingin er fé-
lagshreyfing, en hvorki stofnun
eða auðhringur. I ísl. sam-
vinnuhreyfingunni eru nær
43.000 félagsmenn. Ég hvet B.J.
til þess að kynna sér markmið,
hlutverk og starfsemi sam-
vinnuhreyfingarinnar. I því
efni er góð byrjun að lesa
umrædda stundaskrá Sam-
bandsins.
3. Samkvæmt námsskrá fyrir
grunnskóla er megintilgangur
náms.i samfélagsfræðum m.a.
að nemendur öðlist þekkingu á
umhverfi sínu og gerð íslensks
þjóðfélags. Þessum tilgangi
verður ekki náð án fræðslu um
samvinnuhreyfinguna, svo
stóru hlutverki gegnir hún í
íslensku þjóðlífi. Hins vegar er
umfjöllun um samvinnuhreyf-
inguna í samféiagsfræðanáms-
efni afar lítil og sums staðar
villandi. Upplýsingarnar í
stundaskrá Sambandsins, þó
litlar séu, ættu því að vera
samfélagsfræðakennurum að
liði.
Það fer vaxandi að skólar og
samfélagsfræðakennarar leiti
til Sambandsins og kaupfélag-
anna um efni og fræðslu um
samvinnuhreyfinguna. Sam-
bandið og kaupfélögin munu
áfram leitast við að aðstoða
skólana í þessu efni.
Reykjavík, 2. nóv. 1980.
Guðmundur Guðmunds-
son, fræðslufull-
trúi Sambandsins.
Ný sending frá Beged-Or
í miklu úrvali.
• Fallegar ullarfóöraöar
leöurkápur og jakkar^
leöurbuxur og leöur-
pils.
• Vatteraöar rúskinns-
kápur og jakkar.
Sígild sniö.
Stæröir: 36—48
(yfirstærðir)
Ath. Greiðsluskilmálar viö
allra hæfi.
Pelsinn
Kirkjuhvoli gengt
Dómkirkjunni,
sími 20160.
Ath. Opið 1 — 6 e.h.
M
llmandi Maggi á
tx Sniss Sm'.ss
Mi Cre
,VI1 Cré
matboröiö
Spring season
Printanier
Maggi súpur eru svissnesk gœðaframleidsla
—þær eru Ijúffengar og hollar, enda framleiddar úr úrvals
hráefnum, eftir uppskriftum færustu matreiðslumanna.
Maggi súpurfást ífjölbreyttu úrvali og þú
getur valið um 15 ólíkar tegundir.
Maggi súpur eru alltaf vinsœlar á matborðið
—þess vegna mœlum vió með Maggi.
Maggí