Morgunblaðið - 04.11.1980, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 1980
27
• A myndunum hér ad ofan má sjá einfætta
hástökkvarann Arnold búa sig undir og stökkva
síöan 1,96 metra á Ol-leikum fatlaðra í sumar en
þeir fóru fram í Hollandi.
MAÐURINN á þessum myndum
er besti hástökkvari heims. Það
er að setfja á einum fæti. Arnold
Boldt er 22 ára Kamall. Hann
þykir mjöK viðkunnanlegur ung-
ur maður ok sérstaklega vilja-
sterkur. Arnold varð fyrir því
óhappi að lenda í slysi og missa
annan fótinn, en hann lét það
ekki aftra sér frá þvi að ná þeim
markmiðum sem hann ætlaði sér
i lifinu.
Fyrir sex árum síðan fékk
Arnold mikinn áhuga á frjálsum
íþróttum og þá sér í lagi á
hástökki. En hvernig átti hann að
ná árangri. Hoppa á einum fæti og
stökkva svo upp. Ómögulegt sögðu
vinir hans. Nei alls ekki sagði
Arnold. Hann hóf æfingar af
feykilegum krafti og smátt og
smátt náði hann góðu valdi yfir
atrennunni. Hann studdi sig við
hækjur áður en hann fór af stað
til þess að ná einbeitingu og síðan
hoppaði hann á fullri ferð að ránni
og upp.
Lengi vel komst hann lítið
hærra en 1,50 metra. En hann
setti markið hátt. Gullverðlaun á
Ol-leikum fatlaðra í Toronto 1976,
ætlaði hann sér að vinna í há-
stökki. Og það tókst honum. Hann
stökk 1,86 metra og setti nýtt
Ol-met. A síðustu Ol-leikum sigr-
aði Arnold aftur og stökk þá 1,96
metra. Ef veðrið hefði verið betra
hefði ég farið yfir tvo metra sagði
hann.
Arnold hefur stokkið hæst 2,08
metra. Það var í Danmörku á
síðasta ári. Og grannt skoðað er
það aðeins 24 sm lægra en heims-
metið í hástökki sem sett var á
Ol-leikunum í Moskvu í sumar.
Það sýnir best hvað hægt er að
gera ef viljinn er fyrir hendi.
„Maður verður að leggja hart að sé
og reyna að hugsa eins og stóru
meistararnir gera, Björn Etorg og
strákarnir," segir Arnold með
brosi á vör. Hann ætlar sér að
bæta metið sitt. „Maður leggur
aldrei árar í bát því að þannig
næst ekkl árangur á neinu sviði,“
segir Arnold.
Honum var sagt að hann
yrði að standa á eigin fæti
JllovflnnblntHö
iirnmnra
Frlðlsar Ibrðttlr