Morgunblaðið - 04.11.1980, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 1980
„Ég er búinn að segja strákunum
að reyna að fótbrjota þig ef
þeir fá tækifæri til þess“
—Nokkrir kaflar úr nýútkominni bók Emlyn Hughes
Emlyn Hughes þykir vera einn litrikasti
knattspyrnumaður Bretlandseyja síðustu árin.
Hann gerði garðinn frægan með Liverpool í
mörg herrans ár og vann með félaginu flesta
þá titla sem möguleiki er að hremma. Þá var
hann fastur maður í enska landsliðinu og
sankaði að sér fjölda landsleikja. Á ýmsu hefur
gengið á ferli kappans og þegar nokkrir
kunningjar hans hvöttu hann til að skrifa
æviminningar sínar, var hann ekki lengi að slá
tíl. Nú er komin út bók sem heitir Emlyn
Hughes — Crazy Horse Hughes rifjar upp
kynni sin við hina og
knattspyrnunnar.
Alan Ball
Ferill Hughes hófst hjá Blackpool.
Þá var Alan Ball, sá kunni
knattspyrnumaður aðal stjarna
liðsins. Hughes segir: — Við litum
allir upp til Alans, ungu strákarn-
ir hjá Blackpool. Hann átti rauðan
Ford Zephyr og hann ók iðulega
með okkur strákana fram og aftur
um baeinn og talaði um knatt-
spyrnu. Alan var stjarna Black-
pool, en ég var bara varamaður
sem fékk það hlutverk að eiga við
hann á æfingum. Eitt sinn var
aefingarleikur á fullri ferð og við
vorum í gagnstæðum liðum. Ein-
hverju sinni sóttum við báðir að
knettinum og ég varð heldur fyrri
til. Utkoman varð sú, að ég
sparkaði í leiðinni duglega í ökkl-
ann á Alan með þeim afleiðingum
að hann féll emjandi til jarðar.
Það varð uppi fótur og fit, stór-
stjarnan lá slösuð á vellinum og
allir dæstu reiðilega til mín. Mér
leið eins og aumingja.
En hann reis á fætur og fáein-
um mínútum síðar kom upp svipað
atvik. Nema hvað nú fór ég ekki í
návígið af fullum krafti. Fyrir
vikið þeysti Alan burt með knött-
inn. Eftir að hafa skilað honum af
sér, hljóp hann til mín og var
reiðilegur mjög. „Gerðu þetta
aldrei aftur, aldrei draga þig út úr
návígum, annars er ekki til í þér
knattspyrna."
þessa frömuði ensku
mæta vel hvernig þér líður, en ég
ræð þessum liðshóp, ég vél liðið og
ég vel varamenn og ef þú passar
þig ekki þá sendi ég þig heim með
fyrstu vél.“ Nú var ég alveg
eyðilagður og sagði: „Fyrirgefðu
mér, ég hef brugðist þér, þetta
kemur aldrei fyrir aftur." En Alf
sagði þá: „Heyrðu vinur minn, þú
hefur ekki brugðist mér, en ef
einhver blaðamaður hefði komist
á snoðir um tiltæki þitt, hefði
hann getað skrifað krassandi
grein um drykkjuskap ensku leik-
mannanna hér í Mexíkó. Þá hefðir
þú einungis brugðist sjálfum þér
M
Bill Shankley
— Sama dag og ég skrifaði
undir samning við Liverpool, var
framkvæmdastjórinn Bill Shank-
ley, að aka mér frá Blackpool til
Liverpool. Þá gerðist það að ekið
var aftan á bifreið Shankley með
þeim afleiðingum að ljósker
brotnuðu. Eftir orðaskak við hinn
• Emlyn Hughes
ásamt dóttur
sinni litlu,
Emilíu.
Alf Ramsey
• Tryllta hrossið á landsliðsæfingu undir
stjórn Don Revie.
þessu varla, ég hafði ekki verið
félagsbundinn Liverpool nema í
tvær klukkustundir, en þegar
hafði framkvæmdastjóri minn
verið viðriðinn ákeyrslu, verið
stöðvaður af lögreglunni og talað
um mig sem landsliðsfyrirliða.
Þessu var erfitt að kyngja í einum
bita ..."
Ron Yeats
Ron Yeats var einn af frægari
leikmönnum Liverpool á sjötta
áratugnum. Gefur tryllta hrossinu
orðið: Ég gleymi aldrei atviki
nokkru sem átti sér stað á æfingu
skömmu eftir að ég kom til
Liverpool. Eins og venjulega á
æfingaleikjum hjá Liverpoool, var
andrúmsloftið rafmagnað eins og
um bikarúrslitaleik væri að ræða.
Yeats var með knöttinn, en mér
sýndist hann fara með hann út
fyrir hliðarlínu og hrópaði því
„innkast". „Hann fór ekki út af
maður minn,“ var svarað um hæl.
Ég brosti bara og sagði: „Láttu
ekki svona Ronnie, vertu ekki með
þennan barnaskap, víst fór knött-
urinn út af.“ Þetta hefði ég betur
látið ósagt, því nú kom Yeats
æðandi til mín og reiðin skein úr
augum hans. Hann urraði: „Aldrei
skaltu kalla mig barn aftur væni
minn, þá slít ég af þér handlegg-
ina.“ Að þessu sögðu minntist ég
sögu sem gekk um Ronnie, þess
eðlis að hann hefði drepið naut
með berum höndunum þegar hann
var unglingur í Aberdeen. Ég
bendlaði hann aldrei við barna-
skap eftir þetta ...
Tommy Docherty
— Einhverju sinni lékum við
bikarleik gegn Chelsea, en Tommy
Docherty var þá við stjórnvölin
hjá Lundúnafélaginu, en ég var þá
enn leikmaður hjá Blackpool. Pet-
er Osgood og ég höfðum marga
hildi háð í leiknum, eða þar til að
við sóttum báðir að knettinum eitt
sinn í síðari hálfleik. Hraðinn var
mikill og ég sá að Peter byrjaði að
gefa eftir áður en í návígið kom.
Ég heyri enn fyrir eyrum mér
brestinn er fótur hans brotnaði.
Mér varð illt í maganum.
ökumanninn, var skipst á heimil-
isföngum og símanúmerum og
loks haldið áfram ferðinni. Aðeins
tveimur mínútum síðar stöðvaði
lögregluþjónn okkur og tjáði
Shankley að kerin væru brotin.
Shankley sýndi ekki beint þolin-
mæði, heldur hreytti út úr sér
hvað vörður laganna hefði tekið til
bragðs undir sömu kringumstæð-
um, þar sem kerin hefðu brotnað
fyrir tveimur mínútum. Lögginn
var kurteis en gaf sig ekki og
missti Shankley þá alveg stjórn á
sér og sagði: „Djöfulinn ertu að
tefja okkur, veistu hver þetta er
hérna í bílnum hjá mér? Þetta er
tilvonandi fyrirliði enska lands-
liðsins í knattspyrnu." Ég trúði
Emlyn Hughes var í landsliðs-
hóp Englands á HM í Mexíkó 1970.
Hughes var varaskífa á þeim
árum og ekki orðinn fastamaður í
liðinu. Tryllta hrossið segir: „Ég
braut reglurnar eitt kvöldið og fór
út að skemmta mér eftir að hafa
fengið mér neðan í því með föður
mínum. Á æfingu daginn eftir
sagði Alf við mig að hann óskaði
eftir viðtali eftir æfinguna. Mér
leið illa og sá sjálfan mig fyrir
mér á næstu flugvél heim á leið,
rekinn heim með skömm. Eftir
æfinguna sagði Alf: „Hvaða reglur
setti ég í gærkvöldi ungi maður?“
Ég svaraði: „Það er rétt, ég braut
reglurnar. En þú hlýtur að skilja
hvernig mér líður. Ég er hér og þú
veist hve ég ann knattspyrnunni
og hversu heitt ég óska þess að fá
að leika með.“ Hann horfði kulda-
lega á mig og svaraði: „Ég veit
nrrarninj
f Knaltspyrna I
— Leiknum lauk sem jafntefli
og er við mættum í Stamford
Bridge í aukaleikinn nokkru síðar,
kallaði Docherty til mín og dró
mig afsíðis. Ég hélt að hann
ætlaði að skýra fyrir mér líðan
Peter. Hann horfði fyrst vel og
vandlega allt í kring um sig eins
og til þess að ganga úr skugga um
að enginn heyrði hvað hann ætlaði
að segja. Síðan lamaði hann mig
gersamlega er hann mælti loks:
„Ég er búinn að segja öllum
leikmönnum mínum að reyna að
fótbrjóta þig ef þeir fá tækifæri til
þess“. Ég sagði stjóra mínum, Ron
Stuart, strax frá þessu, en vitni
voru engin og ekkert hægt að
aðhafast.
• ♦
v.#
Don Revie
Hughes heldur áfram: — Þegar
Ron Revie var gerður að landsliðs-
einvaldi Englands, fannst mér að
réttur maður væri kominn á
réttan stað. Framan af gekk okkar
samstarf í landsliðinu snurðu-
laust. En fyrir leikinn gegn
Walsea i bresku meistarakeppn-
inni 1975, kallaði hann mig til sín
og sagði: „Þú verður ekki í liðinu á
morgun og ég hef ekki þörf fyrir
þig framvegis. Ég er að byggja
upp lið fyrir framtíðina, ætla að
byggja á vissum kjarna leikmanna
og þú ert ekki í þeim kjarna.“
— Tveimur árum síðar varð
hann að velja mig á nýjan leik,
hann vantaði leikreynslu fyrir
mikilvægan HM-leik í Róm. Bog
Paisly, stjóri minn hjá Liverpool,
hringdi heim til mín og sagði mér
að Reive myndi síma til mín síðar
um kvöldið," og hvað sem þú gerir
eða segir, ekki æsa þig upp“ voru
lokaorð Paisly. Skömmu seinna
hringdi síminn og samtalið var
eitthvað á þessa leið:
„Halló, Émlyn? Þetta er stjór-
inn hérna".
„Stjóri, hvaða stjóri?"
„Landsliðseinvaldurinn, Don
Reive“.
„Nú já, hvernig hefur þú það?
Bob Paisly sagði mér að þú
myndir hringja. Hvað get ég gert
fyrir þig?
-„Ég ætla bara að segja þér, að
ég hef valið þig í landsliðshópinn
sem á að mæta ítölum“.
„Vertu ekki svona góður við
sjálfan þig, ég hef verið besti
miðvörðurinn í Englandi um langt
skeið, en þú hefur samt horft fram
hjá mér síðustu 15 landsleikina.
„Ég bjóst ekki við slíkum við-
brögðum hjá þér vinur".
„Viðbrögð? Hvað með þín við-
brögð? Þú hefur séð mig leika að
undanförnu og ég hef jarðað
hvaða mótherja sem er, meðal
annars suma af þessum Sout-
hampton-strákum sem þú hefur
tekið ástfóstri við“.
„Hugarfar þitt er ósanngjarnt
vinur“.
„Hvers vegna að velja mig í liðið
nú, þú ert búinn að nota hina og
þessa miðlungskarla í öllum
stöðum á vellinum, en ef þú hefðir
ekki horft fram hjá mér, væri ég
orðinn fjórði landsleikjahæsti
knattspyrnumaðurinn í Eng-
landi".
„Við sjáumst þegar hópurinn
verður tilkynntur" sagði Revis og
lagði á.
— Reiðin fjaraði úr mér og ég
ætlaði að fara að hringja til að
biðja karlinn afsökunar, þegar
síminn hringdi. Það var Revie.
„Eg hef verið að hugsa málið
vinur, ég er hættur við að velja
þig“:
Ég svaraði um hæl: „Ég ætlaði
að fara að hringja og biðja þig
afsökunar. Ég missti stjórn á mér.
Reyndu að taka mér eins og ég er,
ég hef aldrei verið betri en síðustu
tvö árin“. Og Revie lét þetta gott
heita og tók mig í sátt. Þegar við
hittumst tók hann mér eins og
týndum syni ...