Morgunblaðið - 08.11.1980, Page 16

Morgunblaðið - 08.11.1980, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1980 Hannes Kr. Davíðsson: I>á blindur leiðir blindan Vegna viðtals blaðamanns Morgunblaðsins við ýmsa aðila og mig þar á meðai varðandi nýlega framkomna tillögu Hjörleifs Stef- ánssonar, arkitekts, að skipulagi í Grjótaþorpi, ritaði Hjörleifur grein í Morgunblaðið þann 9. okt. si. og kallaði „Skipulag Grjóta- þorps, athugasemd“. í raun var þessi grein Hjörleifs að óverulegu leyti um skipulag Grjótaþorps en að mjög verulegu leyti um Hannes Kr. Davíðsson og hefði því átt að hafa aðra fyrirsögn. I viðtali mínu við blaðamanninn lét ég í ljós það álit mitt, að skipulagstillögunni væri mjög áfátt að því leyti, að í henni væri ekki gerð grein fyrir fjárhagssjón- armiðum og ekki væri gerð grein fyrir sambýli „Morgunblaðshúss- ins“ og annarra húsa í hverfinu og ég taldi það til faglegs óheiðar- leika að leggja fram skipulagstil- lögu að þessu svæði í bænum, án þess að afstaða væri tekin til þessara þátta og grein gerð fyrir lausn þeirra, efnahagslegri og fagurfræðilegri. Hjörleifur segir í grein sinni „Skipulagstillagan að Grjótaþorpi sem mál þetta fjallar um er enn á vinnslustigi." Með þessu gefur hann til kynna að ekki eigi að gagnrýna tillöguna sem frágengna. Engir slíkir fyrirvarar eru þó á titilblaði bókarinnar „Grjótaþorp 1980 greinargerð með skipulagstillögu", en aðeins eftir- farandi upplýsingar: Tillöguna gerðu: Hjörleifur Stefánsson, arkitekt og Peter Ottosson, þjóðháttafræðingur. Útgefandi er Borgarskipulag Reykjavíkur, júní 1980. Ekki fæ ég annað séð en slík fyrirsögn frá hendi arkitekts sé afdráttarlaus tilkynning um að verk sé lagt fram. Raunar er svo að sjá að höfundar telji öruggt um framgang hennar því Hjörleifur vitnar til beinnar „ákvörðunar yfirvalda um að varðveita eigi flest öll húsin í Grjótaþorpinu." Fagna ber, ef höfundur lýsir sig fúsan til að endurskoða ákvarðan- ir sínar, því þá ætti að vera minni hætta á mistökum, en að sjálf- sögðu því aðeins að hugurinn sé opinn fyrir breyttri niðurstöðu. Að svo sé í þessu tilfelli dreg ég þó í efa og byggist sá efi minn á yfirlýsingu höfundar á bls. 87 í Grjótaþorp 1980: „Þær deilur stóðu ekki lengi og sú almenna breyting varð á skömmum tíma á afstöðu manna að varðveislu- stefnan varð ofan á.“ Hér er komið að því varhugaverða í þessum málum öllum og því sem þó mótar afstöðu ýmissa aðila til vanda- mála byggingarlistar í dag. — Varðveislustefnan hefur orð- ið ofaná — og því þurfum við ekki að vega og meta. Nú skal friða og þá friða menn hvað sem er, það er að segja ef bárujárn kemur við sögu. I grein sinni tekur Hjörleifur einnig fram eftirfarandi: „Þessari skipulagstillögu var alls ekki ætl- að að marka stefnu eða leita sannleikans eins og Hannes orðar það. í þeim málum hafði borgar- stjórn ákveðið að mat borgar- minjavarðar á gildi húsanna skyldi haft til viðmiðunar en það mat var sett fram í greinargerð- inni Grjótaþorp 76.“ Hér setur arkitektinn fram sínar forsendur en þær voru ekki það að nálgast úrlausn á skipulagsvandamálinu, sem hér var fvrir hendi með eigin vinnu og athugunum heldur að taka við og hlýða fyrirmælum yfirvalda, sem hann þóoftútkar f»g Hannes Kr. Davíðsson gerir samþykkt Borgarráðs að samþýKki Borgarstjórnar. í viðtali við blaðamann Morgun- blaðsins lét ég þess getið, að ég hefði árangurslaust innt þá, er að skipulagstillögunni stóðu, eftir því „hvað réttlætti að gera þennan hluta miðbæjarins í Reykjavtk að byggðasafni eða smáhúsahverfi?" Hjörleifur viðurkennir að ég hafi sett fram spurninguna og bætir því við að ég hafi fengið svar en lætur þess starfsheiðarleikan- um samkvæmt að sjálfsögðu ekki getið hvert svarið var. En svar Hjörleifs var svohljóð- andi: „Eg vil svara þessu með annarri spurningu. Hvað réttlætti bygg- ingu Grjótaþorpsins á sinni tíð?“ Ég benti þá Hjörleifi á að þetta væri ekki svar við spurningu minni. Ég vildi fá svar við vanda- máli nútímans og ég endurtek, ég hefi ekki fengið spurningu minni svarað. Þar sem Hjörleifur Stef- ánsson vísar alfarið til Grjótar þorps 1976 sem þess grundvallar sem skipulagstillagan byggist á hlýtur að verða að taka það verk tii athugunar. Fyrirsögn á titilblaði þess verks er svohljóðandi: Grjótaþorp 1976. Könnun á sögu og ástandi húsanna. Verk þetta er tilkomið vegna þess að Umhverfismálaráð Reykjavíkurborgar fól borgar- minjaverði þann 12. nóvember 1975 að gera „úttekt á Byggingar- sögulegu gildi húsanna og ástandi þeirra auk þeirrar sögulegu könn- unar sem þegar var byrjað á.“ Það var mjög þörf ákvörðun að fara í þetta verk og vinnan vel af hendi leyst sem yfirlitsathugun. En ljóst var þó að nánari athugun þyrfti að gera á ýmsum húsanna, þess vegna tók húsafriðunarnefnd boði eiganda Fjalakattarins um að- stöðu til kannana og mælinga í júlí 1978. Boð Þorkels Valdimars- sonar var sett fram vegna þess að hann hugði þá á niðurrif hússins. Til verksins réði húsafriðunar- nefnd Hjörleif Stefánsson, arki- tekt, en hann hafði ásamt Stefáni Erni Stefánssyni, arkitekt, gert ástandskönnun húsanna í Grjóta- þorp 1976. Hann lagði svo teikn- ingar sínar fyrir nefndina þann 3. apn'l 1979. Ég hefi ekki séð mælingar Hjörleifs í endanlegu formi þar sem ég fór úr húsafrið- unarnefnd á áramótum 1978— 1979, en hafði þá setið í nefndinni frá því hún tók til starfa þann 3. febrúar 1970. Tekið skal fram að það, að ég beitti mér fyrir því að húsafriðunarnefnd léti kanna hús- ið nánar og mæla, var að ég taldi rétt að varðveittist á skjölum hvílík hrákasmíði og hrófatildur hafði farið fram á þessum stað. Um sögu húsanna eins og hún birtist í Grjótaþorp 1976 get ég verið fáorður. Ég efa ekki, að rétt sé farið með þær upplýsingar og verður það að teljast mjög gagn- legt að hafa safnað þeim fróðleik til eins staðar. Nánari könnun á högum þess fólks sem byggði þessi hús á sinni tíð og samanburður á þess högum og samfélagi við þjóðfélagið i dag hefði að sjálf- sögðu farið langt út fyrir þau mörk sem borgarminjavörður setti könnuninni í upphafi en hefði hins vegar komið í veg fyrir að fagmenn væru að rugla saman forsendum fyrir uppbyggingu Grjótaþorps fyrir 100 árum og skipulagsforsendum fyrir varð- veislu þess í dag og fram í tímann sbr. áður á minnst „svar“ Hjör- leifs Stefánssonar. Einn þáttur í Grjótaþorpi 1976, sem ég vildi taka til athugunar, er sú virð- ingargerð „með endurnýjun í huga“ sem höfundar verksins gerðu. Höfundar verksins gera þá grein fyrir þessum þætti verksins að þeir hafi lagt til grundvallar kostnaðaráætlanakerfi Rann- sóknastofnunar byggingariðnað- arins fyrir fjölbýlishús, þannig að þeir lögðu til grundvallar kostnaðarskiptinguna í prósent- um, síðan meta þeir tilsvarandi liði gömlu húsanna, sem hlutfall af nýsmíði eða eins og segir í Grjótaþorp 1976 og Grjótaþorp 1980 Svar til Hjörleifs Stefánssonar bókinni bls. 42: „Nauðsynleg endurnýjun hvers byggingarhluta var metin sem hlutfall af kostnaði við nýsmíði byggingarhlutans.“ Hér er tvennt að athuga. Fyrst er að nokkuð hæpið er að gera ráð fyrir því sem næst sömu kostnað- arskiptingu á þessum gömlu hús- um og í steinsteyptum blokkar- enda í dag, að vísu gerðu þeir nokkrar smábreytingar milli liða svo sem greinir í bókinni á bls. 42. Hvort þær breytingar hafa verið nægjanlegar skal ég ekki segja, en í því sambandi er sjálfsagt að athuga, að Rb. kemst að allt annarri kostnaðarskiptingu milli sömu framkvæmdaliða þegar um einbýlishús er að ræða. Þegar Grjótaþorp 1976 var unn- ið hafði Rb. ekki gefið út kostnað- arliði fyrir einbýlishús en mér sýnist að býsna óvarlega hafi verið að verki staðið þegar kostn- aðarskiptingin var ákveðin í þess- ari endurnýjunarmatsgerð. Máli mínu til skýringar og almenningi til upplýsinga læt ég fylgja samanburð á þessum pró- sentutölum eins og þær voru í vísitölum byggingahluta okt. 1979 útgefnum af Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins. Er ekki húsum betra að falla með virðingu en lifa við örkuml? 1. undirbygging Rb. fjölbýlishús 4% Rb. einbýlishús 13% Grjótaþorp 1976 4,17% 2. ylirbygging 27% 32% 39,29% 3. frágangur yfirbyggingar 24% 16% 11,46% 4. innréttingar 19% 10% 19,27% 5. útbúnaður 13% 10% 13,26% 6. frágangur (ytri) (lóðar) 3% 4% 2,50% 7. annað 10% 15% 10,15% 100% 100% 100% (100,1%) Aukastafirnir í skiptingunni hjá höfundum Grjótaþorps 1976 gætu komið fáfróðum til að halda að um mjög nákvæm vinnubrögð væri að ræða, en til upplýsinga skal á það bent að skipting milli kostnaðarliða hjá Rb. er breytileg eftir breyttu verðlagi á ýmsum vörum og vinnu. Það virkar ekki sannfærandi þegar farið er að ræða jafn óvissa hluti með ná- kvæmni upp á 1/100 úr prósentu. Enda fer þetta eitthvað í handa- skolum hjá höfundum Grjóta- þorps 1976 því samtala prósentu- hluta þeirra er 100,1 en ekki 100 eins og þeir endurtaka við öll húsin, svo varla getur verið um prentvillu að ræða. Eins og áður sagði var endur- nýjunarkostnaður í Grjótaþorp 1976 svo metinn „sem hlutfall af kostnaði við nýsmíði byggingar- hlutans". I þessari starfsaðferð er hrein- lega sleppt öllum kostnaði við að fjarlægja gamla byggingarhluta úr húsinu og koma þeim frá sér auk þess að oft þarf nokkuð kostnaðarsamar varnaraðgerðir vegna vinnu við gömul hús bæði vegna veðra, umferðar og einnig í sambandi við burtnám burðar- hluta. Um þessa liði og í þessu tilviki mundi ég trúa meira á leiðbeiningar reyndra handverks- og framkvæmdamanna heldur en áætlunartölur Rb. um byggingu fjölbýlishúsa. Auk þess sem ég tel tölurnar ekki byggðar á nægum rannsóknum. Ég nefni sem dæmi á bls. 47 í Grjótaþorp 1976 j)ar sem fjallað er um Aðalstræti 2, en þar segir: „Timburhús, múrhúðað lík- lega á bárujárn — múrinn er ósprunginn og heill og fúi enginn sjáanlegur." Endurnýjunarþörf yfirbyggingar talin 1%. Þessi matstala er tekin þó að matsmenn lýsi því yfir að þeir eru ekki vissir um hvað tekur við undir múrhúð- inni. Ég vil benda á að fúi getur verið í burðargrind og klæðningu þótt hann sjáist ekki utan á „forskölluðu" húsi. Ég tel hiklaust að frekari rannsóknar hafi verið þörf. Við skoðun á þeirri vinnuað- ferð sem þeir arkitektarnir Hjör- leifur Stefánsson og Stefán Örn Stefánsson völdu við kostnaðar- matið sést ennfremur að þeir hafa fyrirfram útilokað þann mögu- leika, að endurbygging húss geti farið fram úr byggingarkostnaði nýs húss, hámarkskostnaður sem þessi aðferð þeirra rúmar er 100% af nýbyggingarkostnaði og er þó augljóst, að þá er ótalinn kostnað- ur við hreinsun og burtflutning gamla hússins og ekki tekið tillit til aukins kostnaðar við að smíða að nýju ýmsa byggingarhluta sem eru ekki markaðsvara lengur. Ég tel mig með þessum ábend- ingum hafa sýnt fram á, að virðingargerðin á sér ekki end- ilega stoð í raunveruleikanum. Ef litið er til matsgerðarinnar á Aðalstræti 8, hinum margum- rædda Fjalaketti, þá er í Grjóta- þorpi 1976, talið að endurnýjunar- kostnaður sé 62,1%. Mér þykir ósennilegt að Hjörleifur Stefáns- son vildi taka að sér að endur- byggja þetta hús fyrir 62% af nýbyggingarkostnaði nú þegar hann á að vera búinn að kanna húsið betur í gegnum starf sitt fyrir húsafriðunarnefnd. Jafnvel þótt honum væri í því ekki sér- staklega falið að kanna húsið með tilliti til endurnýjunar. Ég læt þetta nægja hvað endur- nýjunarmatið áhrærir. Umsagnir um hús í Grjótaþorpi 1976 Annar er sá liður í Grjótaþorp 1976 sem hlýtur að umfjallast nokkuð en það er umsagnarkafli sem fylgir í lok almennrar lýs- ingar á hverju húsi. Ég birti umsagnarkafiann um Aðalstræti 2 sem fyrr var á minnst: „Húsin eru ómissandi vegna sögu sinnar, legu og gerðar. A staðnum hefur einna lengst verið verslað í Reykjavík, enda var hér aðalathafnasvæðið. Byggingarnar eru dæmigerð verslunarhós, fram-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.