Morgunblaðið - 08.11.1980, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 08.11.1980, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1980 27 efnahagsráðstafana „ÞETTA eru persónulesar skoðan- ir Tómasar. Þaó er rétt. að við framsóknarmenn viljum. að eitt- hvað verði >rert. en við höfum þó ekki fjallað beint um það að fresta verðbótunum 1. desember.“ sagði SteinKrimur Hermannsson, er Mbl. spurði hann. hvort það væri stefna Framsóknarflokksins. að fella niður verðlajísba-tur 1. des- ember og „sameina verðbótatíma- bil allra kostnaðarþátta 1. janú- ar“. „Þessi hugmynd er góðra gjalda verð,“ sagði SteinKrímur, þegar Mbl. spurði um hans álit. „Þetta gæfi meira svigrúm til þess að gera einhverjar marktækar ráðstafanir og tengja þær Kjald- miðilsbreytinKunni um áramótin.~ Mbl. spurði þá, hvort vænta mætti tillagna frá framsóknar- mönnum í ríkisstjórninni í þessum dúr. „Við erum búnir að leggja fram okkar tillögur um niðurtalningu verðlagsins," sagði Steingrímur. „Frekari tillögugerð hefur ekki ver- ið rædd, en ég legg áherzlu á, að það er algjört samkomulag hjá okkur um full samráð við aðila vinnu- markaðarins." Mbl. spurði Steingrím, hvort \9á framsóknarmenn vildu auknar niðurgreiðslur á móti vísitöluhækk- un 1. desember? „Það segir í stjórnarsáttmálan- um, að niðurgreiðslur verði auknar í hlutfalli við verðlagið. Við erum ekki með neitt umfram það,“ svar- aði Steingrímur. V>RNKB5TFIK- wxi.aMm! WK M 30? wiM)vís\ Ragnar Arnalds: Ekki trúaður á ann- að en verðbætur verði greiddar 1. des. „ÞETTA er nú ekki ný hugmynd. Henni hefur skotið upp á 3ja mánaða fresti um langt skeið. þegar menn hafa sagzt vilja fresta þessari dagsetningunni eða hinni.“ sagði Ragnar Arn- alds. er Mbl. spurði hann í gær álits á hugmynd Tómasar Arna- sonar. viðskiptaráðherra. um frestun verðbóta „allra kostnað- arþátta" 1. desember. „Ég er ekki trúaður á annað. en að 1. desem- ber verði greiddar þær verðbætur á laun, sem greiða á.“ sagði Ragnar. „Hækkun á verðbótaþætti launa um 10% þann 1. desember er út af fyrir sig ekkert nýtt,“ sagði Ragn- ar. „Hún er aðeins til marks um það, að verðbólgan er nú tæplega 50% og verðbætur á laun eru aðeins afleiðing þess, sem gerzt hefur. Við alþýðubandalagsmenn erum því algjörlega andvígir, að menn einblíni bara á verðbætur launa, en ætli verðbólgunni að æða áfram að öðru leyti, þannig að launamenn liggi eftir og kaup- máttur launa þeirra falli.“ Þegar við stefnum á efnahags- ráðstafanir í sambandi við gjald- miðilsbreytinguna um áramótin, þá höfum við í huga aðgerðir í sambandi við fjölmarga efnahags- þætti, sem eiga að draga úr sjálfvirkninni og hægja á víxl- ganginum í efnahagslífinu. Auðvitað eru verðbæturnar einn þáttur þessarar sjálfvirkni, en það er ekki á stefnuskrá Alþýðubanda- lagsins að minnka kaupmátt launa.“ „Það eru ýmsar leiðir færar til þess,“ svaraði Ragnar, þegar Mbl. spurði, hvaða leiðir Alþýðubanda- lagið vildi fara. „En það er of snemmt að ræða þetta frekar núna.“ — Hvenær koma þessar efnahags- ráðstafanir? „Eg skal ekkert segja um það, hvenær efnahagsráðstafanirnar sjá dagsins ljós. Það er talað um að tengja þær gjaldmiðilsbreyt- ingunni um áramótin, þannig að flest bendir til, að þær komi til framkvæmda öðru hvoru megin við næstu áramót." Framkvæmdastjórn Kaupmannasamtaka íslands: Fv. Jónas Gunnarsson, Asgeir S. Ásgeirsson, Magnús E. Finnsson. framkvæmdastjóri, Gunnar Snorrason. formaður og Þorvaldur Guðmundsson. Á myndina vantar Hörð Pétursson. Kaupmarmasamtök íslands 30 ára KAUPMANNASAMTÖK íslands eru þrjátíu ára í dag. Þau voru stofnuð 8. nóvember 1950 og hétu þá Samband smásöluverslana. Kaupmannafélögin sem að stofnun samtakanna stóðu voru Félag matvörukaupmanna, Félag vefnaðarvörukaupmanna, Félag bús- áhalda- og járnvorukaupmanna og Kaupfélag Hafnarfjarðar. Fljótlega fjölgaði sérgreinafélögum og kaupmannafélögum innan samtakanna og nú hafa m.a. verið stofnuð kaupmannafélög i hinum ýmsu landshlutum. Auk þess eru í samtökunum kaupmenn, sem ekki hafa stofnað sérgreinasamtök vegna fámennis eða eiga verslanir á stöðum þar sem engin félög kaupmanna eru. Tilgangurinn með stofnun Kaupmannasamtakanna var einkum sá að vinna að hags- munamálum kaupmanna í land- inu, beita sér fyrir umbótum á verslunarlöggjöfinni og afnámi hafta, verðlagsákvæða og hverskonar þvingana sem skerða frjálsræði verslunarinnar. Á blaðamannafundi sem boð- að var til vegna afmælisins sagði Gunnar Snorrason, formaður samtakanna, að mikið hefði áunnist á starfstíma samtak- anna. Hann benti á að sú haftastefna sem var allsráðandi á fyrstu árum samtakanna væri nú á stöðugu undanhaldi og að skilningur yfirvalda væri smám saman að glæðast á nauðsyn frjálsræðis í verslunarmálum, bæði fyrir neytendur og kaup- menn. Hann sagði þó, að ráða- menn reyndu sífellt að ganga á hlut verslunarinnar þegar geng- isfellingar eiga sér stað og því verði að heyja stöðuga varnar- baráttu til að halda í horfinu. Kaupmannasamtökin hafa stuðlað að stofnun margra fyrir- tækja og félaga tengdum verslun og viðskiptum. Má í því sam- bandi nefna Verslunarsparisjóð- inn á sínum tíma, sem nú er Verslunarbanki Islands hf. og Lífeyrissjóð verslunarmanna, en bæði þessi fyrirtæki hafa átt stóran þátt í uppbyggingu versl- unar í landinu. Fyrir um það bil tuttugu árum var farið að vinna að stofnun stofnlánasjóða innan vébanda Kaupmannasamtak- anna til þess að leysa, eftir því sem hægt væri, lánsþörf lands- manna. Stofnlánasjóðirnir eru nú fjórir og hafa þeir unnið að uppbyggingu smásöluverslunar í landinu. Á undangengnum árum hefur framkvæmdastjórn samtakanna lagt mikla áherslu á að stofna kaupmannafélög víðs vegar um landið og fá önnur til að ganga í samtökin. Nú eru starfandi kaupmannafélög innan vébanda Kaupmannasamtakanna um landið allt og vinna þau ásamt samtökunum að lausn á vanda- málum landsbyggðarverslunar- innar. Á síðasta ári gerðust Kaup- mannasamtökin stofnendur að samtökunum Viðskipti og versl- un, en að þeim samtökum standa félagasamtök viðskiptalífsins í landinu, launþegar og atvinnu- rekendur. Markmið þeirra er að auka skilning almennings á mik- ilvægi frjálsrar verslunar og virkja til átaka alla þá, sem vilja aukið frálsræði í verslunarmál- um. Takmarkið er afnám allra verslunarhafta enda samræmist það best hagsmunum launþega, kaupmanna og stjórnvalda. Kaupmannasamtökin eru meðlimir í samtökum kaup- manna á Norðurlöndum, Nor- disk Kobmandskomite, og var fundur samtakanna haldinn á íslandi sumarið 1978. Kaupmannasamtökin hafa í gegnum árin beitt sér fyrir i margvíslegri fræðslustarfsemi. Haldnar hafa verið ráðstefnur um verslunarmál og samtökin hafa staðið fyrir fjölmörgum námskeiðum fyrir kaupmenn, verslunarstjóra og afgreiðslu- fólk. Samtökin hafa gefið út tíma- ritið Verslunartíðindi óslitið frá stofnun samtakanna og ritstjóri þess nú er Jón I. Bjarnason. I framkvæmdastjórn Kaup- mannasamtakanna sitja auk Gunnars Snorrasonar formanns, þeir Þorvaldur Guðmundsson varaformaður, Ásgeir S. Ás- geirsson gjaldkeri, Jónas Gunn- arsson ritari og Hörður Péturs- son meðstjórnandi. Fram- kvæmdastjóri samtakanna er Magnús E. Finnsson. Eldur í Keflvíkingi ELDUR kom upp í loðnubátnum Keflvíkingi KE í Keflavíkurhöfn í gærmorgun ok urðu talsverðar skemmdir á vistarverum skipverja. Loftskeytastöðin í Keflavík tilkynnti slökkviliðinu um eldinn klukkan 7.27. Slökkvi- liðið brá hart við og þegar það kom á staðinn logaði eldur í klefa matsveins og reyk lagði um aðrar vistarverur. Mat- sveinninn hafði verið í klefa sínum en tókst að komast upp á þilfar. Slökkvistarf gekk greiðlega en talsverðar skemmdir urðu á vistarverum skipverja eins og áður sagði. Eldsupptök eru ókunn en málið er í rannsókn. Keflvík- ingur var með fullfermi af loðnu en engar skemmdir urðu á loðnufarminum. Óljóst er hvað skipið verður lengi frá veiðum vegna þessa óhapps. Steingrimur Hermannsson: Slókkviliðsmenn um borð í Keflvíkingi i gærmorgun. Mbl Arnor' Frestun verðbóta gæfi aukið svig- rúm til marktækra itj keflvíking

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.