Morgunblaðið - 08.11.1980, Side 35

Morgunblaðið - 08.11.1980, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1980 35 VIÐSKIPTI VIÐSKIPTI - EFNAHAGSMÁL - ATHAFNALÍF Umsjón Sighvatur Blöndahl íslenzka ríkisvaldsins og hefur samvinna þess og SIF verið með miklum ágætum. Það er rétt að bæta því við á þessum stað, að í þessum erfið- leikum hefur berlega komið í ljós sá styrkur, sem felst í því að starfa saman. Augljóslega hefði orðið miklu erfiðara að knýja fram lausnir á þeim pólitísku vandamálum, sem við hefur verið að glíma hverju sinni, ef salt- fiskframleiðendur hefðu ekki ver- ið jafn einhuga eins og raun bar vitni og notið mikilvægs stuðn- ings stjórnvalda. Nýir markaðir eru ekki ýkja margir þó nokkra megi nefna, en eins og áður segir er neysla saltfisks afar hefðbúndin og hefur reynst erfitt að kenna nýjum þjóðum að meta þessa vöru. Vinnslan er sömuleiðis ennþá mjög rótgróin og hafa tiltölulega litlar breytingar orðið á fram- leiðslurásinni, enda þótt nokkurri tæknivæðingu hafi verið viðkom- ið. En það verður að fara mjög varlega í sakirnar vegna hinna sterku bragðeinkenna vörunnar, sem vissulega breytast strax og framleiðsluaðferðum er breytt eitthvað að ráði. Saltfiskur er afar hefðbundin vara með sterk bragðeinkenni eins og áður sagði, sem neytendur virðast aðlagast frá blautu barnsbeini en verður síðan snar þáttur í matarvenjum þeirra, eins og t.d. hangikjöt hjá okkur. Vissulega mætti eyða löngu máli i markaðsmálin, neyslumál- in og skipulag framleiðslunnar hér innanlands en þó að mér hafi orðið nokkuð tíðrætt nú þegar um stöðu útflutningssamtakanna hérlendis, þá mun ég koma að því aftur og reifa það nokkuð nánar. Mér finnst full ástæða til þess, því um þau hljóta að snúast mestar umræður um útflutningsmál sjávarafurða. Því miður finnst mér oft gæta mikils misskilnings og tortryggni í garð þeirra. Sjálf- sagt er ein ástæðan sú, að þau vinna störf sín í kyrrþey og hafa lítt haft sig í frammi í fjölmiðl- um. Þau eru í eðli sínu íhaldssöm. Til eru t.d. þeir, sem telja sig sjálfskipaða verndara frjálsræðis í hvaða formi sem það er. Sölu- samtökin virðast vera fyrir þeim og þeir vilja allt til vinna að koma þeim á kné. Aðrir og reyndar mjög margir segja, að sjálfsagt sé að halda þessu fyrirkomulagi enda hafi það margsannað gildi sitt, en nauðsynlegt sé að gefa einum og einum útflytjanda tæki- færi fram hjá sölusamtökunum af og til. okkar framleiðslu sé seld til út- landa, um 60% af því beint í okkar nafni og um 20% í formi vara frá öðrum saumastofum, sem keypt hafa ullarbandið af okkur. Það sem eftir er fer svo á innan- landsmarkað, þar á meðal öll teppaframleiðslan, sem reyndar hefur verið hálfgerður höfuðverk- ur hjá okkur undanfarin ár. Við höfum hugsað mjög alvarlega um að hætta hreinlega teppafram- leiðslunni, en í dag erum við eini íslenzki framleiðandinn á teppum. Hinir hafa allir lagt upp laupana, með auknu flóði erlendis frá. Þessi vara okkar týnist hreinlega í öllu flóðinu, það er ekki að hún sé ekki samkeppnisfær í verði og gæðum. Úrvalið er bara svo mikið af erlendu teppunum,“ sagði Pétur. Hverjir eru ykkar aðalmarkaðir erlendis? — „Okkar framleiðsla fer að mestu leyti til Evrópu, Þessi „haltu mér, slepptu mér“ stefna er örugglega ekki mjög ígrunduð hjá þessum aðilum. Það er auðvelt að benda á marga ókosti slíkrar stefnu, sem yrði til þess eins að draga úr styrkleika samtakanna erlendis. A hinn bóg- inn er erfitt að sjá nokkra skyn- samlega ástæðu til þess að taka upp slíka stefnu, nema menn séu sannfærðir um, að sölusamtökin standi sig illa. Mín skoðun er sú, að þá sé ekki við samtökin sem slík að sakast eða fyrirkomulagið í heild sinni heldur séum það við, sem þar störfum, sem ekki stöndum okkur sem skyldi og sé þá kominn tími til að fá nýja menn í okkar stað. Eins og kunnugt er þurfa allir útflytjendur að fá leyfi viðskipta- ráðuneytisins til útflutnings. Núgildandi fyrirkomulag þar um leggur að vísu mikla vinnu á viðskiptaráðuneytið og sjálfsagt er heldur óskemmtilegt að svara óvæginni gagnrýni þeirra aðila sem synjað er um útflutning, en á hinn bóginn er það augljóslega kostur við núverandi fyrirkomu- lag, að ráðuneytið getur veitt öðrum leyfi, ef það er sannfært um, að sölusamtökin hafi brugð- ist. Ljóst er af reynslu undanfar- inna áratuga, að flestir viðskipta- ráðherrar hafa lagt það mat á þessi mál, að allar breytingar sem gengju gegn hagsmunum samtaka framleiðenda, væru vafasamar og hafa því stutt við bakið á sölu- samtökum þeirra. Að lokum vil ég taka fram, að sú ákvörðun mín, að taka fyrir í þessu stutta ávarpi spurninguna um stöðu útflutningssamtakanna, byggðist á því að um þetta efni er sífellt verið að ræða hér og hvar, en oftast einkennast þær umræð- ur af lítt grunduðum rökum. Það má vel vera, að einhverjum finnist þessi orð vera einhvers konar vörn fyrir sölusamtökin og að ég telji þau í varnaraðstöðu. Því fer víðs fjarri, því þeirra starf hefur einkennst af stöðugri sókn. Sú sókn hefur staðið um ára- tuga skeið og aldrei hafa samtök- in sannað betur gildi sitt en þegar erfitt er í ári. Við eigum nú í harðri og óvæginni samkeppni á öllum helztu mörkuðum okkar, sem ör- ugglega fer vaxandi. Aðal keppinautar okkar eru ríkisstyrktir, beint og óbeint, og ákveðnir í því að ná verulegum hlut á rótgrónum mörkuðum okkar. Við höfum nú sem fyrr allt að vinna, en við höfum líka miklu að tapa. nánar tiltekið til Skandinavíu, Vestur-Þýzkalands og Englands, en auk þess fer nokkur hluti til Bandaríkjanna og Kanada. Um nýja markaði er það að segja, að við stefnum að mikilli sókn í Frakklandi, Sviss og í Benelux- löndunum," sagði Pétur. í ár framlejðir Álafoss liðlega 250 þúsund „meiriháttar" flíkur, þ.e. fyrir utan smávöru eins og vettlinga, húfur og trefla. Mestur hluti framleiðslunnar fer fram í verksmiðjuhúsi fyrirtækisins í Mosfellssveit, sem er um 6500 fermetrar, en hefur þegar sprengt starfsemina utan af sér. Pétur sagði, að þegar væru hafnar byrj- unarframkvæmdir við viðbygg- ingu, sem yrði 2000 fermetrar og væri áætlaður byggingarkostnað- ur við þetta nýja húsnæði um 500 milljónir króna í dag. Stefnt er að því, að taka nýja húsnæðið í gagnið á miðju næsta ári. Tafl- og bridge- klúbburinn Tveimur umferðum að fjórum er lokið í hraðsveitakeppninni og hefir sveit Gests Jónssonar tekið örugga forystu, hefir hlotið 1319 stig. Röð næstu sveita: Ingvar Hauksson 1133 Margrét Þórðardóttir 1119 Ragnar Óskarsson 1106 Sigfús A. Sigurhjartarson 1100 Næsta umferð verður spiluð nk. fimmtudag í Domus Medica og hefst keppnin stundvíslega klukkan 19.30. Bridgedeild Húnvetninga Fjórum umferðum af fimm er lokið í tvímenningskeppninni sem stendur yfir hjá deildinni. Alls taka 12 pör þátt í keppninni. Staða efstu para: Dóra — Sigríður 609 Jóhann — Jón 598 Karl — Haukur 580 Jón — Ólafur 580 Valdimar— Sigrún 568 Meðalskor 532 Keppninni lýkur á miðviku- daginn. Spilað er í félagsheimili Húnvetninga og hefst keppnin kl. 19.45. Næsta keppni deildarinnar verður hraðsveitakeppni og er skráning þegar hafin í síma 37757 (Valdimar). Bridgefélag Breiðholts Sl. þriðjudag var spiluð eins kvölds hraðsveitakeppni með Brldge Umsjóni ARNÓR RAGNARSSON þátttöku 5 sveita. Sveit Baldurs Bjartmarssonar sigraði með miklum yfirburðum, hlaut 574 stig. í sveit Baldurs voru ásamt honum: Rafn Kristjánsson, Sig- ríður Rögnvaldsdóttir, og Einar Guðlaugsson. Sveit Bergs Ingimundarsonar varð önnur með 509 stig og sveit Friðjóns Margeirssonar þriðja með 484 stig. Á þriðjudaginn kemur hefst 3ja kvölda hraðsveitakeppni og verður spilurum hjálpað að mynda sveitir áður en keppnin hefst. Spilað er uppi í húsi Kjöts og fisks, Seljabraut 54 og hefst keppnin stundvíslega kl. 19.30. Keppnisstjóri er Hermann Lár- usson. Spilaklúbbur Bridgeskólans Á miðvikudagskvöldið var hélt klúbburinn fyrsta keppniskvöld vetrarins. Spilaður var stuttur einmenningur í 3 riðlum. Helstu úrslit: A-riðill: Jón Jónsson 46 Anna Ólafsdóttir 30 Anton Sigurðsson 30 Helgi Backman 30 B-riðill: Anna Vigd. Ólafsdóttir 36 Valgerður Pétursdóttir 36 Dagbjört Sigurbjörnsd. 32 C-riðill: Ester Ingvarsdóttir 38 Aðalheiður Hákonardóttir 34 Karólína Sveinsdóttir 34 Meðalskor var 28 stig. Þessi leikur verður endurtek- inn næsta miðvikudagskvöld kl. 20.30. Nemar skólans á síðasta vetri virðast ekki allir hafa áttað sig á spilaaðstöðunni, sem veitt er og eru þeir auðvitað einnig velkomnir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.