Morgunblaðið - 08.11.1980, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1980
47
Njarðvíkingar halda forystunni
UM TÍMA lék vafi á því að leikur
Njarðvíkinga ojf ÁrmenninKa í
úrvalsdeild körfuboltans jfæti
farið fram.
Ástæðan er sú að fyrir leikinn
settu Ármenningar sig í samband
við forráðamenn UMFN og sögð-
ust ekki spila leikinn nema Njarð-
víkingar greiddu 2000 dollara
skuld Danny Shouse við Ármann,
en það eru rúmar 1100 þúsund
krónur. Að sögn forráðamanna
UMFN hófust langar og strangar
samningaviðræður sem lauk
þannig að UMFN féllst á að borga
skuldina. Var hún greidd for-
manni körfuknattleiksdeildar
Ármanns að leik loknum í gær-
kvöldi.
Forráðamenn UMFN sögðu í
gærkvöldi, að þegar Shouse hélt af
landi brott sl. vor hafi hann aðeins
átt farmiðana og 75 dollara.
Helsta ástæðan fyrir auraleysi
hans hafi verið lág laun, sem
Ármenningar greiddu. Ármenn-
ingar féllust á að greiða honum
2000 dollara rétt áður en hann fór,
en létu Shouse skrifa undir
skuldaviðurkenningu. Að sögn for-
ráðamanna UMFN töldu Ármenn-
ingarnir að Shouse myndi leika
með argentínsku liði og hugðust
rukka það en þegar ijóst var að
hann færi til UMFN hefðu þeir
ákveðið að rukka Njarðvíkingana.
Shouse mun hins vegar hafa talið
að 2000 dollararnir væru bónus
fyrir að koma Ármanni í úrvals-
deildina.
Forráðamenn Njarðvíkinga
sögðu að lokum að ekki hefði verið
annað að gera en fallast á að
greiða skuldina, að öðrum kosti
hefði þurft að aflýsa leiknum og
endurgreiða áhorfendum miðana.
Sögðu þeir þetta mál allt hið
furðulegasta og það hlyti að hafa
einhverja eftirmála. Koma yrði í
veg fyrir það að lið gætu látið
leikmenn skrifa undir skuldavið-
urkenningar og síðan rukkað þau
lið, sem viðkomandi leikmenn léku
næst með.
-SS
Armann neitaði að
leika nema UMFN
borgaði 1100 þús. kr.
skuld Danny Shouse
STAÐAN á toppi og botni úrvals-
deildarinnar í körfuknattleik
breyttist ekkert þegar UMFN og
Ármann mættust i íþróttahúsinu
í Njarðvík í gærkvöidi. Heima-
menn unnu öruggan sigur.
108:80, og eru sem fyrr á toppi
deildarinnar og ósigraðir en Ár-
menningarnir verma botnsætið
sem fyrr og hafa engan leik
unnið.
Snillingurinn Danny Shouse lék
þarna gegn liðinu sem hann kom
upp í úrvalsdeildina t fyrra en
hann var ekkert að spara sig
kappinn sá. Hann lék á ais oddi í
fyrri hálfleik, aðeins tvö skot
ÞÓR FRÁ Akureyri og ÍR gerðu
jafntefli í 2. deild á Akureyri i
gærkvöldi. Leikur iiðanna sem
var mjög spennandi og harður
endaði með jafntefli, 20—20, eftir
að staðan í hálfleik hafði verið
12—9 fyrir ÍR. Mikil harka var í
leiknum og hart barist á báða
bóga. Síðari hálfleikur var mjög
vel leikinn jafnframt því sem
hann var harður og grófur á
köflum. Leikurinn gat farið á
báða bóga. Þór jafnaði metin úr
vítakasti þegar 20 sek. voru eftir
geiguðu hjá kappanum og hann
skoraði 35 stig. Flest stigin skor-
aði hann með glæsilegum lang-
skotum. I seinni hálfleik tók
Danny lífinu með ró, hvíldi sig á
bekknum fyrri hlutann en kom svo
inná og hugsaði fyrst og fremst
um að leika upp aðra leikmenn
Njarðvíkinga. Það má með sanni
segja að Njarðvíkingarnir hafi
dottið í lukkupottinn þegar þeir
tryggðu sér Danny.
Byrjun fyrri hálfleiksins var
jöfn, bæði liðin skoruðu og tölur
voru oft jafnar. Þeir skoruðu
grimmt Shouse og risinn í Ár-
mannsliðinu, Breeler. Var eigin-
af leiktímanum. ÍR-ingar áttu
dauðafæri i lok leiksins en mis-
tókst að skora og jafnframt að
sigra í leiknum. Besti maður
Þórs i leiknum var Ragnar
markvörður og Sigurður Sig-
urðsson.
Mörk Þórs: Sigurður 11, 3v„
Sigtryggur 3, Guðmundur 3, Dav-
íð, Árni og Reynir 1 hver.
Mörk ÍR: Guðmundur 6, lv.,
Sigmar 4, lv., Ásgeir og Guðjón
3, Bjarni, Björn og Björn II. 1
hver. — þr
lega um skotkeppni að ræða milli
þeirra á tímabili. En þar kom að
Breeler fór að þreytast og Njarð-
víkingarnir sigu örugglega framúr
og höfðu 18 stig yfir í hálfleik,
60:42.
í seinni hálfleiknum spilaði
varalið Njarðvíkinga lengst af og
stóð sig ágætlega. Munurinn jókst
smá saman og var kominn í 30 stig
um miðjan hálfleikinn. En undir
lokin tóku Njarðvíkingarnir lífinu
með ró og lokatölurnar urðu
108:80.
UMFN - Ármann
108-80
Danny Shouse var sem fyrr
yfirburðamaður í liði UMFN og
einnig léku þeir vel Gunnar Þor-
varðarson, Jón V. Matthíasson og
Jónas Jóhannesson, sem hirti mik-
inn fjölda frákasta. Guðsteinn
Ingimarsson lék að vanda stórt
hlutverk í sóknarleiknum en eftir-
lét félögum sínum að skjóta í
þetta sinn. Lið UMFN er geysigott
og kannski er loks komið að því að
það hreppi íslandsmeistaratitil-
inn, sem það hefur verið svo
nálægt að vinna undanfarin ár.
Stig UMFN: Danny Shouse 48,
Jón Viðar 14, Gunnar Þorvarðar-
son 12, Jónas Jóhannesson 7, Árni
Lárusson 6, Stura Örlygsson 6,
Valur Ingimundarson 5, Júlíus
Valgeirsson 5, Guðsteinn Ingi-
marsson 3, Brynjar Sigmarsson 2.
Stig Ármanns: Breeler 38, Atli
Arason 19, Valdimar Guðlaugsson
14, Guðmundur Sigurðsson 4, Dav-
íð Arnar 2, Hörður Arnarson 2,
Kristján Rafnsson 2.
Bræðurnir Gunnar og Sigurður
Valgeirssynir dæmdu og fórst það
vel úr hendi. —SS.
ÍR og Þór gerðu
jafntefli í gær
Tekst FH að stöðva sigurgöngu Víkings?
ÞAÐ VERÐA margir leikir á
dagskrá i Islandsmótinu i hand-
knattleik um helgina. Sá leikur
sem kemur til með að vekja hvað
mesta athygli er leikur FH og
Vikings. Leikur liðanna fer fram
i Laugardalshöllinni i dag og
hefst kl. 14.00.
íslandsmeistarar Vikings
stefna nú hraðbyri að titlinum og
það virðist vera erfitt að stöðva
sigurgöngu liðsins. En liðið hefur
nú leikið 20 leiki i röð án þess að
tapa leik. Þá verður fróðlegt að
sjá hvernig Þrótti gengur gegn
Val i dag en liðin leika strax að
loknum leik FH og Víkings.
Staðan i 1. deild fyrir leiki
helgarinnar er nú þessi:
Víkingur 6 5 1 0 110:92 11
Valur 6 3 1 2 126:99 7
KR 6 3 1 2 125:124 7
FH 6 3 1 2 121:130 7
Þróttur 5 3 0 2 107:97 6
Haukar 6 2 1 3 118:122 5
Fylkir 5 1 0 4 89:116 2
Fram 6 0 1 5 122:138 1
Markhæstu leikmenn:
Sig. Sveinsson, Þrótti, 52/10
Kristján Arason, FH, 51/29 Hörður Harðarson, Haukum,35/20
Axel Axelsson, Fram, 44/22 Gunnar Baldursson, Fylki, 34/11
Alfreð Gíslason, KR, 41/4 Konráð Jónsson, KR, 30
Hér á eftir fara leikir helgarinnar í handknattleik.
Njarðvík kl. 13.00 Laugardagur 8. nóvember 2. deild kvenna A UMFM — Stjarnan
Akureyri kl. 14:00 Laugardagur 8. nóvember 2. deild karla KA - ÍR
kl. 15:15 1. deild kvenna Þór — Valur
Laugardalshöll kl. 14:00 Laugardagur 8. nóvember 1. deild karla Víkingur — FH
kl. 15:15 1. deild karla Þróttur — Valur
kl. 16:30 1. deild kvenna KR — Haukar
kl. 17:30 1. deild kvenna Fram — FH
kl. 18:30 2. deild kvenna A Fylkir - ÍR
Vestm.eyjar kl. 13:30 Laugardagur 8. nóvember 2. deild karla Týr - UMFA
kl. 14:45 2. deild kvenna B ÍBV — Þróttur
Varmá kl. 15:00 Laugardagur 8. nóvember 2. deild karla HK — Ármann
kl. 16:15 2. deild kvenna B IIK — Ármann
Seltjarnarnes kl. 15:00 Sunnudagur 8. nóvember 3. deild karla Grótta — Óðinn
Keflavik kl. 14:00 Sunnudagur 9. nóvember 2. deild kvenna A ÍBK - UMFA
Seltjarnarnes kl. 15:00 Sunnudagur 9. nóvember 2. fl. karla C Grótta — UBK
Laugardalshöl) kl. 20:00 Sunnudagur 9. nóvember 1. deild karla Fram — Haukar
kl. 21:15 1. deild karla Fylkir - KR
Bandarikiamaðurinn Brad Miley i sinum fyrsta leik hér á landi með
Val gegn IS. Ljósm. KÖE.
„Körfuboltinn betri
en ég bjóst viö“
- sagði Brad Miley
NÚ IIEFUR körfuknattleiksdeild
Vals fengið til liðs við sig þriðja
Bandaríkjamanninni á þessu
keppnistimabili. Sá er 2,05 metr-
ar á hæð og heitir Brad Miley.
Miley lék áður með háskólanum i
Indiana. körfubolta-rikinu mikla.
Þar lék hann með leikmönnum
eins og og hinum fræga Larry
Bird sem nú leikur með Boston
Celtics i NBA i Bandarikjunum.
Miley lauk í vor prófi í vfðskipta-
franfi en hefur í hyggju að stunda
nám við Háskóla Islands i vetur
jafnframt þvi sem hann mun
þjálfa alla yngri flokka Vals i
körfuknattleik. Að sögn Baldvins
Jónssonar stjórnarmanns körfu-
knattleiksdeildar Vals leggur
deildin höfuðáherslu á að fá góða
þjálfara fyrir yngri flokkana, en
jafnframt sterkan leikmenn með
meistaraflokki. Brad Miley hefur
þegar hafið störf hjá félaginu
með yngri flokkunum sem hann
mun þjálfa og hefur leikið einn
leik með meistaraflokki.
Eftir sigurleik Vals gegn ÍS
spjallaði Mbl. við Miley og spurði
hann álits á leiknum og á því að
vera kominn hingað til starfa.
— Leikurinn kom mér nokkuð á
óvart. Hann var mun betri en ég
bjóst við. Sér í lagi voru skytturn-
ar betri. Leikmenn Vals og sumir
hjá IS virkuðu á mig sem mjög
góðir körfuknattleiksmenn og góð-
ar skyttur. Ég er ekki enn kominn
í æfingu. Ég er nýkominn til
landsins og þarf nokkra aðlögun
með liðinu og svo þarf ég betri
æfingu. Eftir nokkrar vikur verð
ég kominn í góða æfingu. Það er
þjálfari minn við háskólann í
Indiana sem átti hvað mestan þátt
í því að ég kom hingað. Hann
þekkir vel til Danny Shouse og
fleiri og það er skemmtilegt að fá
tækifæri til þess að spreyta sig
hér sem þjálfari og leikmaður,
sagði Miley. Á morgun, sunnudag,
leikur Miíey með liði sínu Vaí
gegn KR í Laugardalshöllinni kl.
14.00 og þá má búast við skemmti-
legum og spennandi leik. Það er
greinilegt að Valsmenn eru að
komast á gott skrið í íslandsmót-
inu og takist þeim að sigra KR er
ekki ólíklegt að leim takist að
verja titil sinn. — ÞR.
*
IS og Þróttur mætast
ÍSLANDSMÓTIÐ i blaki er nú hafið af fullum krafti og fara nokkrir
leikir fram um helgina. Leikir ÍS og Þróttar bæði i karla og
kvennaflokki ættu að bjóða upp á mikla spennu eins og jafnan þegar
þessi lið mætast.
Völsungur á Húsavik sem vann 2. deildina í fyrravetur sendi
Blaksambandinu skeyti 13. október. þar sem félagið sagði sig frá
keppni í 1. deild vegna manneklu. Stjórn BLÍ ákvað á fundi 15. okt. að
Fram sem varð í 2. sæti 2. deiidar og UMSE sem féll úr 1. deild í
fyrravetur skyldu keppa aukaleik um sæti Völsungs í 1. deild. Fram
vann siðan þann leik 3—1, en hann var leikinn í Hagaskóla 26. okt.
Hér á eftir fara leikir helgarinnar í blakinu.
Laugardagur 8. nóvember.
Glerárskóli Akureyri kl. 17.00 — ÍMA — Víkingur ldkv
Vestmannaeyjar kl. 16.00 — ÍBV — Samhygð 2dsv
Sunnudagur 9. nóvember
Hagaskóli Reykjavík kl. 13.30 — ÍS — Þróttur
Hagaskóli Reykjavík kl. 14.45 — ÍS — Þróttur ld
Hagaskóli Reykjavík kl. 16.00 Fram — UMFL ld