Morgunblaðið - 15.11.1980, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 15.11.1980, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1980 Starfsmannafélag Arnarflugs: Fái Arnarflug ekki að starfa sjálfstætt liður félagið undir lok EINS «k kunnuKt er af fréttum hefur starfsmannafélaK Arnar- ÍIuks óskað þess aó kaupa meiri hluta hlutahréfa FluKleiða i Arn- arfluKÍ. Það var einnÍK eitt af skilyrðum ríkisstjórnarinnar fyrir ríkisábyrKð að svo yrði. StarfsmannafélaK ArnarfluKS hoðaði nýleKa hlaðamenn á sinn fund til að kynna sjónarmið sin í þessu máli. Þar kom meðal annars fram að það væri lögð á það mikil áherzla af hálfu starfsmannafélagsins að starfsfólk Arnarflugs fengi að kaupa meirihluta hlutabréfa Flugleiða í Arnarflugi á þeim forsendum að ef félagið fengi ekki að starfa sem sjálfstæður aðili yrði þess skammt að bíða að félagið liði undir lok og myndi þá að öllum líkindum verða innlimað í Flugleiðir. „Við teljum að það sé sam- kvæmt yfirlýsingum ríkisstjórn- arinnar að samgöngur til og frá landinu í lofti séu ekki á einni hendi, og teljum ennfremur að það væri Flugleiðum til góða að fá samkeppni og sá samkeppnisaðili viljum við verða. Við rituðum stjórn Flugleiða bréf 13. október þar sem við fórum fram á viðræður um það að við vildum kaupa hlutabréfin. Þessu bréfi hefur enn ekki verið svarað. Þá teljum við að sá fyrirsláttur Flugleiðamanna að leggja verði söluna fyrir hluthafafund, sýni aðeins fram á að þeir vilji ekki selja. Þarna er um svo litla upphæð að ræða að ekki er þörf á slíku og hafa þess háttar mál hingað til ekki verið lögð fyrir hluthafafund. Arnarflug hefur á ferli sínum aflað sér verulegrar alþjóðlegrar markaðsþekkingar, sem komið hefur félaginu .vel í leiguflugi erlendis. Og siðastliðin tvö ár höfum við gert alla erlenda flug- leigusamninga fyrir Flugleiðir. Einhugur, sveigjanleiki og sam- starfsvilji starfsfólks Arnarflugs hefur haft mikið að segja í velgengni félagsins. Við sættum okkur hins vegar ekki við það að okkur hefur verið bolað út úr flugi til og frá Islandi. Það er okkur mjög mikilvægt að hafa eitthvert akkeri hér heima fyrir stóru vélarnar. Það er mikið álag á starfsfólk að þurfa að starfa langtímum saman erlendis og því viljum við geta hvílt það á útlegðinni með flugi hér heima. Það eru einnig margir ónýttir markaðsmöguleikar í heimaflug- inu og þó að okkur væri gefinn kostur á að nýta það, ætti það fremur að vera Flugleiðum til góðs en ills. Nafnverð hiutabréfa Arnarflugs er aðeins 120 milljónir og það ætti þvi ekki að verða erfitt fyrir 100 manna starfsmannafélag að kaupa hlut F’lugleiða, sem er um 69 milljónir. Flugleiðir: Við viljum fyrst og fremst fá að vera sjálfstæður og óháður flug- rekstraraðili. Það hefur sýnt sig að sameining Loftleiða og Flugfélags íslands misheppnaðist. Það hlýtur að vera til góðs að fá samkeppni á hvaða svið sem er. Það ætti að hafa í för með sér vandaðri og betri rekstur, sem öllum kæmi til góða,“ sagði Halldór Sigurðsson varaformaður starfsmannafélags Arnarflugs meðal annars. Fulltrúar starfsmannafélags Arnarflugs. Frá vinstri: óskar Sigurðsson, örn Ilelgason, Halldór Sigurðsson, Ellert Eggertsson og Sigrún Magnúsdóttir. Hrauneyjafossdeilan: Verkbannið og tilboð VSÍ hertu samstöðu starfsmanna MINNSTU munaði að upp úr slitnaði í íyrrinótt í viðræðum verkalýðsfélag- anna á virkjunarsvæðinu við Ilrauneyjafoss og verk- takanna þar efra. Samn- inganefnd starfsmann- anna taldi tilboð verktak- anna mjög lélcgt og nán- ast ekki svara vert, en nýr sáttafundur var þó boðað- ur í gær. Lögðu þá vinnu- veitendur fram nýtt tilboð, sem var mun betra og í samræmi við annað. sem gerzt hefur í samninga- umleitunum undanfarið. Gaffalbitar fyrir á annan milljarð til Sovétríkjanna SAMNINGAIt við Sovétmenn um kaup á allt að 10 þúsund kössum af gaffalhitum héðan voru undirritaðir í K»r. Verð- mætið er um 1.2 milljarðar íslenzkra króna. Fyrr á árinu hafði Solustofnun laKmetis samið um sölu á 35—40 þús- und kössum af Kaffalhitum til Prodintorg í Sovétríkjunum. Framleiðsla er hafin upp í nýja samninginn og tryggir hann samfellda vinnu hjá Sigló-síld á Siglufirði og K. Jónsson og co. á Akureyri eitthvað fram á næsta ár. Er þessi samningur mjög mikil- vægur fyrir þessi fyrirtæki, en framleiðslunni verður afskipað jafnóðum og varan verður framleidd. Pílagrímafluginu í Nígeríu lokið PÍLAGRÍMAFLUGI Flugleiða milli Nigeríu og Jeddah lauk á fimmtudagskvöld og komu flug- liðar í gær til Luxemhorgar. Er starfsfólkið vamtanlegt til íslands i dag. en um 50 manns hafa unnið við flugið siðustu 3 vikur. Eftir nokkra byrjunarörðugleika gengu flutningarnir vel og er talið hugsanlegt að jafnvel hafi verið um skemmdarstarfsemi að ræða, en fólk var nú flutt á nýtt svæði í Nígeríu, Maituguri, en þangað hef- ur erlent flugfélag ekki flogið áður. Fluttir voru um 8.400 pílagrímar frá Jeddah, sem er nokkru fleira fólk en flutt var til Jeddah í fyrri hluta verkefnisins. Farnar voru 34 ferðir, en flugið milli Jeddah og Nígeríu tekur 4 tíma. Við kveðjuat- höfn að fluginu loknu, voru starfs- menn Flugleiða leystir út með gjöfum og yfirvöld færðu félaginu og starfsfólki þakkir fyrir vel unnin störf. Kjarasamningurinn við Hraun- eyjafoss, sem nefndur hefur verið Tungnaársamningurinn og gerður var 1978 hefur 7 verkamannataxta og nokkra iðnaðarmannataxta. Yfirleitt hefur kaupgjald verið þar efra nokkru hærra en í byggð. Fyrir nokkrum dögum var hald- inn fundur starfsmanna við Hrauneyjafoss og var þá sam- þykkt að beina þeirri áskorun til Verkalýðsfélagsins Rangæings að það afboðaði vinnustöðvun, sem koma ætti til framkvæmda á mánudag. Því neitaði Rangæing- ur. I gær var svo haldinn annnr starfsmannafundur. Þar var sam- þykkt eftirfarandi ályktun til Brúin yfir Gufá verður tekin i notkun í desember. Farið er að aka yfir nýju brúna yfir Þverá. Ljósm. ófeÍKur Miklar vegaframkvæmd- ir í Borgarfirði í sumar Hvanneyri 13. nóvember. Á siðastliðnu sumri var unnið mikið að vegagerð. Svo mikið að ég man varla annað eins sumar. Bundið slitlag hefur nú verið laKt á veginn undir Hafnarfjaili, við Borgarnes og í Norðurárdal, alls um 15 km. Til stóð að setja bundið slitlag á veginn ofan Akraness, en þar var unnið fyrir um 200 millj. króna í sumar, en því var frestað til næsta sumars. Tvær brýr voru byggðar, önnur í lögð niður. Þar hafa orðið mörg Gufá í Borgarhreppi og á að taka hana í notkun um miðjan desem- ber. Hin brúin er yfir Þverá hjá Kaðalstöðum í Stafholtstungum og er farið að aka yfir hana. Þá hafa verið gerðar verulegar endur- bætur aðrar. Mætti nefna veg norðan Hestháls, á Uxahryggja- leið, í Lundarreykjadal, hjá Hamraendum í Stafholtstungum, ofan við Borgarnes og víðar. Þá má nefna að nú í haust verður svonefnd Eskiholtssneið umferðaróhöpp á liðnum árum. í tengslum við nýju brúna á Gufá kemur nú vegur framhjá Eski- holtssneiðinni. Að sögn Eiríks Bjarnasonar hjá Vegagerð ríkisins í Borgarnesi, hefur sumarið reynst vel til vegagerðar og er undir- ritaður þeirrar skoðunar að vel hafi verið að vegaframkvæmdum staðið sl. sumar. Alls var unnið fyrir um 750 m. kr., en eins og áður sagði er enn eftir að vinna til áramóta að nokkrum verkefnum. Ófeigur. 18 daga þorskveiði- bann til loka desember ÁKVEÐIÐ hefur verið, að togara- flotinn verði í þorskveiðibanni í 18 daga frá 20. nóvemher til loka ársins. Frá 1. október til 31. descmber eiga þessi skip að vera samtals 36 daga frá þorsk- veiðum. Þá hefur verið ákveðið, að frá og með 20. descmber til áramóta skuli öllum skipum öðr- um en togurum vera óheimilt að stunda þorskveiðar. samninganefndar: „Fundur starfsmanna við Hrauneyjafoss haldinn 14/11 ’80 kl. 12,30, skorar á samninganefnd sína að svara verkbanni atvinnu- rekenda og smánarlegu tilboði þeirra með festu og standa saman um að verjast þeim kjaraskerðing- aráformum sem í tilboðinu felast." Borgarf jörður eystri: Ótryggt atvinnu- ástand er tveir bátar skemmdust TVEIR hátar. sem gerðir eru út frá Bakkagerði á Borgarfirði eystra. stórskemmdust er þeir slitnuðu upp og þá rak upp i fjöru í aftakaveðri er Kerði þar aðfararnótt fimmtu- dags. Er annar hátanna talinn gjörónýtur, en reyna á að gera við hinn, en hann er stórskemmdur. Aðrir bátar eru ekki gerðir út frá Borgarfirði í vetur og lítur þvi illa út með atvinnu milli 25 ok 30 manna, er starfað hafa við sjósókn og fiskverkun. Bátarnir voru við bryggju í höfn- inni og töldu menn að kvöldi mið- vikudags ekki ástæðu til að vaka yfir bátunum. Um nóttina gerði norðan rok, en það er versta áttinn og veldur miklu óróa í höfninni, og soguðust bátarnir út úr höfninni og rak upp í fjöru skammt utan við hana. Línu- bátarnir, sem eru 8 og 12 tonna, voru helstu atvinnutæki Borgfirðinga og sagði Arngrímur Magnússon útibús- stjóri Kaupfélags Héraðsbúa, sem rekur frystihúsið, að um 25-30 manns, sem unnið hefðu við sjósókn og fiskverkunina, misstu nú atvinnu sína. Nokkru af tækjum var bjargað úr bátunum og sem fyrr segir verður reynt að gera við þann, sem minna er skemmdur. Nokkrir trillubátar hafa verið gerðir út frá Borgarfirði í sumar og haust, en þegar þessi árstimi er kominn fækkar róðrum og marga er búið að taka upp. Þrír aðilar á sáttafundum I GÆRKVELDI voru þrír aðil- ar á sáttafundum hjá rikissáttasemjara. bókagerð- armcnn, blaðamenn ok samn- inganefnd starfsmannanna við Hrauneyjafoss. Lítið hafði hreyfzt í samkomulagsátt hjá bókagerðarmönnum ok prent- urum, en tilboð var komið frá verktökunum við Hrauneyja- foss ok var samninganefnd starfsmannanna að fjalla um það. Búizt var við fundum fram eftir nóttu ok var ætlun sáttasemjara að halda áfram samningaumleitunum I daK-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.