Morgunblaðið - 15.11.1980, Page 8

Morgunblaðið - 15.11.1980, Page 8
g MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1980 jWeööuc á tiiorsun DÓMKIRKJAN: Kl. 11 messa. Sr. Þórir Stephensen. Kl. 2 messa. Sr. Hjalti Guðmundsson. Dómkórinn syngur, organleikari Marteinn H. Friðriksson. ÁRBÆJARPRESTAKALL: Barnasamkoma í safnaðarheim- ili Árbæjarsóknar kl. 10:30 árd. Guðsþjónusta í safnaðarheimil- inu kl. 2. Hlutavelta fjáröflunar- nefndar á sama stað eftir messu. Sr. Guðmundur Þorsteinsson. ÁSPRESTAKALL: Messa að Norðurbrún 1 kl. 2. Sr. Árelíus Níelsson messar. Fundur hjá safnaðarfélagi Ásprestakalls eftir messu. Kaffi og spilað verður Bingó. Sóknarnefndin. BREIÐHOLTSPRESTAKALL: Sunnudagaskóli kl. 10:30. Fjöl- skylduguðsþjónusta kl. 2 í Breið- holtsskóla. Sr. Lárus Haildórs- son. BÚSTAÐAKIRKJA: Barnasam- koma kl. 11. Guðsþjónusta kl. 2. Haraldur Ólafsson, háskóla- kennari flytur stólræðu og situr fyrir svörum í safnaðarheimil- inu á eftir. Organleikari Guðni Þ. Guðmundsson. Sr. Ólafur Skúlason. DIGRANESPRESTAKALL: Barnasamkoma í safnaðarheim- ilinu við Bjarnhólastíg kl. 11. Guðsþjónusta í Kópavogskirkju ki. 11. Sr. Þorbergur Kristjáns- son. FELLA- OG IIÓLAPRESTA- KALL: Laugardagur: Barna- samkoma í Hólabrekkuskóla kl. 2 e.h. Sunnudagur: Barnasam- koma í Fellaskóla kl. 11 f.h. Guðsþjónusta í safnaðarheimil- inu að Keilufelli 1 kl. 2 e.h. Sr. Hreinn Hjartarson. GRENSÁSKIRKJA: Barnasam- koma kl. 11. Guðsþjónusta kl. 2. Kirkjukaffi eftir guðsþjónustu. Öldruðu fólki í sókninni sér- staklega boðið. Almenn sam- koma nk. fimmtudag kl. 20:30. Allir velkomnir. Sr. Halldór S. Gröndal. IIALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Karl Sigurbjörnsson. Messa kl. 2. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. Kirkjukaffi að lokinni messu. Þriðjudagur kl. 10:30: GUÐSPJALL DAGSINS: Matt. 9.: Trú þín hefir _ gjört þig heila. ___ Fyrirbænaguðsþjónusta, beðið fyrir sjúkum. Kirkjuskóli barn- anna er á laugardögum kl. 2 í kórkjallara í austurenda kirkj- unnar. LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. IIÁTEIGSKIRKJA: Barnaguðs- þjónusta kl. 11. Sr. Arngrímur Jónsson. Messa kl. 2. Organleik- ari Ulf Prunner. Sr. Tómas Sveinsson. Messa og fyrirbænir fimmtudag kl. 20:30. Sr. Tómas Sveinsson. BORGARSPÍTALINN: Guðs- þjónusta kl. 10 árd. Organleikari Jón G. Þórarinsson. Sr. Tómas Sveinsson. KÁRSNESPRESTAKALL: Barnasamkoma í Kársnesskóla kl. 11 árd. Guðsþjónusta í Kópa- vogskirkju kl. 2. Sr. Árni Páls- son. LANGHOLTSKIRKJA: Barna- samkoma kl. 11. Söngur, sögur, myndir. Guðsþjónusta kl. 2. Sr. Þorleifur K. Kristmundsson prestur á Kolfreyjustað predik- ar. Organleikari Jón Stefánsson. Sóknarnefdin. LAUGARNESPRESTAKALL: Laugardagur 15. nóv.: Guðsþjón- usta að Hátúni lOb, níundu hæð kl. 11. Sunnudagur 16. nóv.: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Messa kl. 2. Þriðjudagur 18. nóv.: Bænaguðsþjónusta kl. 18 og æskulýðsfundur kl. 20:30. Sókn- arprestur. NESKIRKJA: Barnasamkoma kl. 10:30. Guðsþjónusta kl. 2. Kirkjukaffi. Sr. Frank M. Hall- dórsson. SELJASÓKN: Barnaguðsþjón- usta að Seljabraut 54 kl. 10:30. Barnaguðsþjónusta í Öldusels- skóla kl. 10:30. Guðsþjónusta að Seljabraut 54 kl. 2. Sóknarprest- ur. SELTJ ARN ARNESSÓKN: Barnasamkoma kl. 11 árd. í Félagsheimilinu. Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson. FRÍKIRKJAN í REYKJAVÍK: Messa kl. 2. Organleikari Sigurð- ur Isólfsson. Prestur sr. Kristján Róbertsson. DÓMKIRKJA KRISTS Kon- ungs Landakoti: Lágmessa kl. 8:30 árd. Hámessa kl. 10:30 árd. Lágmessa kl. 2 síðd. Alla virka daga er lágmessa kl. 6 síðd., nema á laugardögum, þá kl. 2 síðd. FELLAHELLIR: Kaþólsk messa kl. 11 árd. FÍLADELFÍUKIRKJAN: Út- varpsguðsþjónusta kl. 11 árd. Almenn guðsþjónusta kl. 8 síðd. Organisti Árni Arinbjarnarson. Einar J. Gíslason. IIJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnudagaskóli kl. 10 árd. Helg- unarsamkoma kl. 11. Bæn kl. 20 og hjálpræðissamkoma kl. 20:30. Kapt. Daníel Óskarsson. NYJA POSTULAKIRKJAN, Háalcitisbr. 58: Messur kl. 11 og kl. 17. Sunnudaginn 22. nóvem- ber verður messa, sr. Albert Laschnig frá Kanada prédikar. GRUND, elli- og hjúkrunar- heimili: Messa kl. 2 síðd. Sr. Þorsteinn Björnsson messar. Fél. fyrrv. sóknarpresta. MOSFELLSPRESTAKALL: Messa í Mosfellskirkju kl. 14. Sóknarprestur. GARÐÁKIRKJA: Barnasam- koma í skólasalnum kl. 11 árd. Guðsþjónusta kl. 14. Dr. Björn Björnsson prédikar. Garðakór- inn flytur hátíðartónlist undir stjórn Þorvalds Björnssonar. Sr. Bragi Friðriksson. KAPELLA St. Jósefssystra í Garðabæ: Hámessa kl. 14. VÍÐISTAÐASÓKN: Barna- samkoma kl. 11 árd. Almenn guðsþjónusta kl. 14. Sr. Sigurður H. Guðmundsson. HAFNARFJARÐARKIRKJA: Messa kl. 2 síðd. Sóknarprestur. KAPELLA St. Jósefsspítala Hafnarf.: Messa kl. 10 árd. KARMELKLAUSTUR: Há- messa kl. 8:30 árd. Rúmhelga daga messa kl. 8 árd. KEFLAVÍKURKIRKJA: Sunnudagaskóli kl. 11 árd. Aft- ansöngur verður nk. fimmtudag kl. 18. Sóknarprestur. HVALSNESKIRKJA: Messa kl. 2 síðd. Sóknarprestur. ÞORLÁKSHOFN: Barnaguðs- þjónusta kl. 11 árd. Sóknarprest- ur. KOTSTRANDARKIRKJA: Messa kl. 2 síðd. Sóknarprestur. IIVERAGERÐISKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11 árd. AKRANESKIRKJA: Barna- samkoma ki. 10:30 árd. Messa kl. 13:30. Minnst verður 40 ára afmælis stúkunnar Akurblóms. Aðalsafnaðarfundur eftir messu. Sr. Björn Jónsson. Leikfélag Keflavikur: Boeing — Boeing Síðastliðið miðvikudagskvöld, frumsýndi Leikfélag Keflavíkur gamanleikinn Boeing-Boeing, eftir leikritaskáldið Marc Camoletti, í Félagsbíói í Keflavík, við mjög góðar undirtektir áhorfenda. Leik- stjóri er Sævar Helgason, sem hefur leikstýrt hjá áhugaleikhús- um víða um land. Gamanleikur þessi mun hafa verið sýndur tvív^gis áður hér á landi, og þá undir nöfnunum „Sexurnar" og „Douglas-Douglas". Það fer vel á því hjá Leikfélagi Keflavíkur að fylgjast vel með í framþróun nýjustu farþegavéla og kalla leik- inn nú Boeing-Boeing, Hægt er að sjá fyrir sér sögu- svið það, sem höfundur er með í huga þegar hann spinnur sögu- þráðinn. Farþegaflug yfir Atlantshafið er í algleymingi, DC 6-farþegavél- ar svífa um loftin blá með glæsi- legar flugfreyjur innanborðs, vél- arnar eru hæfilega lengi í förum, svo margt skemmtilegt getur skeð. Og því þá ekki að skapa glæsi- legan karlmann sem býr rétt hjá alþjóðlegum flugvelli í réttum samböndum á réttum stað? Þar gefast hin bestu tækifæri til þess að njóta ríkulega af blóma kven- þjóðarinnar, hafa nokkrar flug- freyjur í takinu í einu og lifa eins og blóm í eggi. En Adam var ekki lengi í Paradís eins og vel kemur í ljós, þegar hinir spaugilegustu árekstrar fara að koma í ljós og gamanið fer að kárna fyrir karl- peninginn. Ágætléga hefur tekist að stað- færa leikinn og fellur hann ágæt- lega að umhverfinu þ.e. Keflavík, og ef höfundur væri óþekktur mætti auðveldlega ætla hann keflvískan, sem hefði notað hina miklu umræðu og sviftingar í flugmálum til þess að skrifa samtíma gamanleik samborgurum sínum til dægradvalar í skamm- deginu. Leikstjóranum tekst þó nokkuð vel upp í sköpun heilsteyptrar leikmyndar, með ágætu sviði, þægilegri lýsingu og úrvinnslu á því áhugafólki sem fram kemur. Ekki er hægt að neita því, að betri árangri hefði mátt ná með aðeins meira hugmyndaflugi og vandvirkni. Er þar t.d. í sambandi við útfærslu á Benedikt arkitekt, sem í fyrstu senu situr í sófa hjá Maggí, fyrrverandi fegurðar- drottningu og hasakroppi, sú er klædd í náttslopp og hin álitleg- asta. Afturámóti er glaumgosinn Benedikt, sem allur á að vera upp á kvenhöndina, líklega nýkominn úr rúminu frá eldheitum ástar- ævintýrum, hann er hafður full- klæddur við að lesa „Þjóðviljann", ákaflega flatt atriði, sem gefur skakka hugmynd af Benedikt. Glaumgosi í litskrúðugum nátt- slopp við að glugga í Samúel eða Playboy hefði náð betri áhrifum. Af hinum þrem þáttum leiksins bar annar þáttur af, en lokaatriði þriðja þáttar var vanhugsað og hlýtur leikstjóri að bæta þar úr eftir reynslu frumsýningar. Hlutverki Tótu ráðskonu í hönd- um Ingibjargar Guðnadóttur, eru gerð hin bestu skil, enda Ingibjörg gamalreyndur leikari hjá L.K., viðræður hennar við húsbóndann Benedikt koma mörgum til að hlæja og fær hún oft gott klapp. Steinar Harðarson leikur Bene- dikt arkitekt. Nær hann sér vel á strik þegar angist og vandræði steðja að í öllu kvennastússinu. En eins og áður hefur verið sagt, „fötin skapa manninn". Hefði kannski náðst fullkomnari per- sóna með litríkari klæðaburði. Láka, vin Benedikts, leikur Egill Eyfjörð. Kemur Egill vel til skila hinum feimna sveitamanni ofan af Héraði, sem síðan breytist hratt í gráðugan kvennabósa, þegar kom- ið er á Suðurnesin og tækifærin gefast. Flugfreyjurnar, Maggí, Inga og Halla, eru leiknar af Auði Ingv- arsdóttur, Dagný Haraldsdóttur og Sigríði Sigurðardóttur. Allar eiga þær sameiginlegt að vera ástfangnar af Benedikt arkitekt og hver fyrir sig telur, að hún sé hin eina sanna ástin hans Benna, en ekki er allt sem sýnist. Þessar þrjár ungu konur túlka hver sína manngerðina og gera hlutverkum sínum hin bestu skil og það svo vel, að þær gætu sem best verið flugfreyjur að starfi. Það væri sjálfsagt hægt að koma með umsögn um uppfærslu áhugaleikhúss, sem hér á í hiut, þar sem höfð væri í frammi hin stífasta gagnrýni og kröfuharka. Kannski er það rétt og kannski ekki, en þá er verið að bera saman atvinnuleikara í atvinnuleikhús- um og áhugaleikara hjá fátæku leikfélagi, sem rétt tórir í harðri samkeppni við atvinnuleikhús höf- uðborgarinnar. Ég hef tekið mér það bessaleyfi að taka kafla úr viðtali við Sævar Helgason leik- stjóra, sem birtist í leikskránni um þetta efni. Ilver er staða áhugaleikhúss- ins í dag miðað við atvinnumcnn- ina? „Ég er á móti því að vera sífellt að bera saman þessar stofnanir. Atvinnuleikhús er byggt upp af fólki, sem hefur hlotið menntun og margra ára daglega þjálfun í sinni vinnu og starfar á vettvangi, sem að mestu er fjármagnaður af opinberu fé. Áhugaleikhúsið er aftur á mótið rekið af áhugasömu, fórnfúsu fólki, sem vinnur oft myrkranna á milli eftir erfiðan vinnudag til að skapa hluti, sem hið opinbera og bæjarfélögin yfir- leitt hafa skammarlega lítinn skilning á. Ég efast til dæmis um að eitt einasta leikfélag hér á Suðurnesjum fái greiddan að fullu þann lítilfjörlega styrk frá við- komandi bæjarfélagi, sem alþingi hefur þó ákveðið að þeim beri.“ Á undanförnum vikum hefi ég átt þess kost að sjá frumsýningar í atvinnuleikhúsum höfuðborgar- innar og þar fer ekki á milli mála, að leikarar Leikfélags Keflavíkur fengu betri undirtektir við Boeing-Boeing, bæði með hlátri og lófataki, heldur en atvinnuleikar- ar höfuðborgarinnar í sínum verk- um. KvöldstuncL í Félagsbíói við skemmtun hjá Leikfélagi Kefla- víkur á gamanleiknum Boeing- Boeing er vel varið. Ellert Eiríksson. Góð aðsókn að Þjóð- leikhúsinu VEGNA mikillar aðsóknar í Þjóðlcikhúsinu að undan- fðrnu hefur orðið að færa til með sýningar, þannig m.a. að frumsýning á Nótt og degi eftir Tom Stoppard verður fóstudaginn 28. nóv- ember. Aðsókn að Smalastúlk- unni og útlögunum hefur verið góð í allt haust og Snjór hefur sótt sig mjög upp á síðkastið, en fáar sýningar eru nú eftir á þessu nýjasta leikriti Kjartans Ragnarssonar. Hætta varð sýningum á leikriti Jökuls Jakobssonar í Öruggri borg fyrir fullu húsi, þrátt fyrir fjölda auka- sýninga og er sýnt að reyna verður að koma á sýningum síðar og þá væntanlega með breyttri hlutverkaskipan, þar eð Þorsteinn Gunnars- son hverfur nú að störfum fyrir Leikfélag Reykjavíkur, en hann hefur nú í haust leikið þar sitt gamla hlut- verk með góðfúslegu leyfi Leikfélagsins. PrrttatilkynninK

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.