Morgunblaðið - 15.11.1980, Page 12

Morgunblaðið - 15.11.1980, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1980 Þegar Þjóðminjasafnshúsinu var komið upp ætluðust aðstand- endur til þess að lyfta væri innanhúss til þess að flytja jafnt fólk sem safngripi, og voru lyftu- göng teiknuð og frá þeim gengið þegar húsið var smíðað. Hins vegar fékkst lyftan ekki keypt þegar gengið var frá húsinu, og olli því stofnun sem almennt gekk undir nafninu Fjáransráð (opin- bert heiti Fjárhagsráð). Var þá gripið til þess úrræðis að loka lyftugöngunum hvarvetna, svo að þau breyttust í haug af því tagi sem tíðkanlegir voru í fornum sið til þess að geyma í látna menn og fémæti, og fylgdu þeim mann- virkjum draugagangur ágætur, hvers kyns ljósbrigði og önnur undur, svo að garpar einir komust upp með að brjóta hauga, glíma við afturgöngur og hafa dýrgripi brott með sér. Frá þeim undrum er m.a. greint skilmerkilega og fræðilega í doktorsritgerð Krist- jáns Eldjárns, Kuml og haugfé úr heiðnum sið á Islandi (1956). Þótt svikist væri stundum um að koma fé fyrir í haugum og haugbrots- menn kæmu að tómum kofa, var draugagangur öngvu minni og raunar skiljanlegt að þeim draug- um leiddist sem ekki gátu rórillað sér við það að ausa gulli og silfri yfir höfuð sér. Ég hef ástæðu til þess að ætla það að forystumönn- um Þjóðminjasafns hafi staðið ógn af lyftugöngunum eftir að þeim var breytt í haug, að minnsta kosti hafa þeir aldrei haft frum- kvæði að því að leggja til að haugurinn væri rofinn; það skyldi þó ekki vera að þeir hafi vitneskju Magnús Kjartansson: um það að Fjáransráð fundi þar enn inni og sé jafn refsiglatt og forðum? I mörg horn að líta í grein sem Þór Magnússon þjóðminjavörður birtir í Morgun- blaðinu 13. nóv. er óttinn við afturgengið Fjáransráð þó ekki tíundaður, heldur rakið að ráða- menn Þjóðminjasafns hafi þurft að líta í mörg horn. Allt sem Þór segir um það efni er rétt og rakið af mikilli hófsemi. Þjóðminjasafn- ið var hannað af makalausri skammsýni, og virðast aðstand- endur hafa talið að Þjóðminjasafn ætti aðeins að vera sýningarstað- ur en ekki rannsóknamiðstöð, líkt og raunin var síðar hjá ýmsum þegar farið var að ræða um handritastofnun. Við þetta bætt- ist að húsið sjálft var hrákasmíð, sem hvorki hlífði fyrir vindum né vatni, og ókleift var að halda í því föstu hita- og rakastigi. Afleiðing- in er sú að stórfelldar skemmdir hafa orðið, jafnt á gripum Þjóð- minjasafns sem verkum Lista- safns, viðgerðarkostnaður orðið ofurmikill og sumt skemmst til algerrar óbóta. Þá hefur viðhald á húsinu orðið einkar kostnaðar- samt. Væri fróðlegt að ráðamenn hússins tíunduðu einhvern tíma þá hrakfallasögu og upphæðirnar; það er dýrt að vera skammsýnn. I þokkabót hefur í sífelldu verið þrengt að Þjóðminjasafninu, óskyldum stofnunum ýtt inn í húsakynni þess svo að svigrúmið hefur stöðugt minnkað. Er þessi þróun andstæð því sem gerst hefur í ýmsum grannlöndum okkar, t.a.m. Danmörku. Á þessu sviði er þó ekki við stjórnvöld ein að sakast. Forstöðumenn Þjóð- minjasafns hafa verið hógværir menn og af hjarta lítillátir, þeir hafa farið sér hægt við uppgrefti og haft svipaða afstöðu til fornra gripa og erindrekar danakóngs höfðu til Jóns Arasonar og bura hans, að jörðin geymdi þá best. Ég minnist þess ekki að hafa heyrt opinberlega svo mikið sem hljóð- látt andvarp frá ráðamönnum Þjóðminjasafns út af of naumum fjárveitingum. En hafa þeir atburðir ekki gjörst að undanförnu að brýnt sé að þessari stefnu verði breytt? Ég fæ ekki betur séð en allar líkur bendi til þess að ísland hafi verið numið í fjölmargar aldir áður en norræn yfirstétt hraktist hingað, aðallega á flótta undan keitum á Irlandi. Það sem vitað er um uppgröftinn í Herjólfsdal bendir til þess að þar hafi Vestmenn búið öldum saman áður en „landnem- inn“ Herjúlfur hraktist þangað á lltu öld. Og ýms örnefni hérlendis verða naumast skýrð nema í tengslum við pikta; ætli þeir hafi ekki búið hér líka? Allavegana sýnist brýnt að Þjóðminjasafn beiti sér fyrir því að skráð verði raunveruleg Landnáma í stað áróðurs-Landnámu og bók um pikta og kelta taki við af bók þeirri sem Ari samdi handa valda- gírugum biskupum og breytti að þeirra vild, að því er hann hermir sjálfur. Skortur á skilningi En nú er ég genginn langt á svig við það sem ég ætlaði að fja.Ha um, lyftu í Þjóðminjasafnshúsið. Enda þótt allt sé rétt sem Þór Magnús- son þjóðminjavörður greinir frá og miklu fleira mætti til taka, er hitt öngvu að síður staðreynd að Þjóðminjasafnið hefur allt frá því að það fluttist í bygginguna sem þjóðin gaf sjálfri sér vegna lýð- veldisstofnunar haft nægileg fjár- ráð til þess að koma lyftu í göngin sem breytt var í haug. Vandamál- ið hefur verið það eitt hvernig meta skyldi framkvæmdaþörf og raða framkvæmdum. I fram- kvæmdaóskum Þjóðminjasafnsins sjálfs hefur aldrei verið minnst á lyftu, hún hefur ekki verið verk- efni, hvað þá forgangsverkefni. Þó er fötlun ekki ómerkur þáttur í sögu íslendinga frá öndverðu, svo sem sannað hefur verið með rann- sóknum á elstu beinafundum, og margir fatlaðir menn hafa látið eftir sig arf sem hefur auðgað þjóðina. Það hefði verið vel við hæfi að á alþjóðaári fatlaðra hefði Þjóðminjasafnið haft sérstaka sýningu sem varpaði ljósi á þátt fatlaðra í þjóðarsögunni — og gjörði þá fötluðum jafnframt kleift að sjá hana. Með þessum orðum er ég öngvan veginn að bera blak af stjórnvöldum, heldur minna á það eitt að stundum getur verið þarft að líta nær sjálfum sér. Þjóðminjavörður ber brigður á það að ég fari með rétt mál þegar ég segi að á fjárlögum ársins 1979 hafi verið ætlaðar 33 milljónir króna til lyftuframkvæmda. Þá tölu hef ég frá fjárveitingarnefnd- armanninum Alexander Stefáns- syni, sem beitt hefur sér fyrir framgangi þessa máls. Hann hef- ur greint mér frá því að Alþingi hafi samþykkt 15 milljónir í þessu skyni og auk þess 18 milljónir króna í viðhald, en þær upphæðir eru samtals 33 milljónir. Sé um misskilning að ræða hefur hann ekki sprottið í huga mínum, því að ég hef frásögn Alexanders í bréfi. Þörf skuldaskila Þór Magnússon játar það að hafa brúkað í annað peninga þá sem Alþingi ætlaði til lyftufram- kvæmda 1979. En hann svarar ekki einfaldri spurningu sem ég bar upp við hann í grein 5ta nóvember: „Ég óska þess að Þór Magnús- son þjóðminjavörður gjöri opin- berlega grein fyrir því hvar hann telji sig hafa stoð í lögum eða stjórnarskrá til þess að ganga i berhögg við vilja aiþingis ár eftir ár.“ Ég þykist vita að jafn grandvar maður og Þór hafi framkvæmt fornminjarannsókn af þessu til- efni en öngva stoð fundið í lögum og stjórnarskrá, því samþykkir hann áburð minn með þögn. Ekki hef ég hug á neinum málarekstri af þessu tilefni, ég er mjög frábitinn refsigleði, en Þór mætti ástunda skuldaskil við sjálfan sig öðrum til eftirdæmis. Lyftum Þjóðminjasafni Árni Bergur Eiríksson: Borgarstjórnarmeirihlutinn í dag er sögufrægur meirihluti, vegna þeirrar sérstöðu, að hann samanstendur af fólki, sem fékk í hendur stjórnina á þessari borg eftir leikreglum lýðræðisins, vopnað þeim rökum, að eðlilegt væri að aðrir en Sjálfstæðismenn reyndu sig við að leiða þessa borg á veg sóknar og framfara. Sjálf- stæðismenn hefðu stjórnað borg- inni alla tíð og nú væri rétta tækifærið til breytinga, allra hluta vegna. Guðmundur og lágu launin Kommúnistar höfðu lært af áralangri setu með Sjálfstæðis- mönnum í borgarstjórn, að mál- efni þyrftu þeir að hafa til stuðn- ings sinni baráttu. Málefni nr. eitt var SAMNINGANA í GILDI. Helzti talsmaður þess var Guð- mundur Þ. Jónsson, núverandi borgarfulltrúi, form. Landssam- bands iðnverkafólks, varaform. Iðju og útlærður frá sovétskum verkalýðsskóla. Rök hans voru þau, að borgarstjórnarkosningar væru líka kjarabarátta. Borgin væri mjög stór vinnuveitandi og ættu þar af leiðandi launþegar í Reykjavík, sérstaklega borgar- starfsfóik, að tryggja sér að hags- munir þess yrðu ekki fyrir borð bornir í þessum kosningum með því að hann næði ekki kjöri. Guðmundur náði kjöri, en bar- áttumál, réttindi, kaup og kjör starfsfólks borgarinnar hafa ekki meira verið á oddinum í umræðum í borgarstjórn, frekar en lífríki Kolbeinseyjar. Svo ekki sé minnzt á þá hrikalegu staðreynd,. að laun í 80.000 manna borgarsamfélagi á hinu fámenna Islandi eru undir meðallagi á landsmælikvarða. Það hafa forystumenn og málsvarar þeirra, sem minna mega sín í borgarstjórnarflokki Alþýðu- bandalagsins, líklega ekki frétt ennþá, eftir 2ja ára setu í borgar- stjórn. Það væri fróðlegt að vita í hvorum hópnum þeir eru fjöl- mennari, skólabræður Guðmund- ar frá Sovétríkjunum, Þ.e. í klíku- hópi kommúnistastjórnar Pól- lands eða í hópi verkfallsmanna? Þór og þétt- ing byggðar Vinstri menn blönduðu saman á sérkennilegan hátt atvinnu-, um- hverfis- og skipulagsmálum. Óskandi væri, að Reykvíkingar hefðu lagt vel á minnið ræðu Þórs Vigfússonar í sjónvarpssal, rétt fyrir síðustu kosningar. Andlit hans birtist á skerminum og Hljómskálagarðurinn í baksýn, þegar hann hafði yfir sína þulu. Inntak hennar var, að hætta væri á að Sjálfstæðismenn myndu breikka götuna við Hljómskálann. Vildu þeir hleypa blikkbeljunni inn á nýja hraðbraut, sem þar gæti komið, til auðveldunar burg- eisum á einkabílum að bruna inn miðbæinn. Líklega myndu Sjálf- stæðismenn byggja þar verzlunar- höll, þegar hraðbrautin væri kom- in. Rök Þórs fyrir þessari ályktun voru þau, að á tíma meirihluta Sjálfstæðismanna hefði mörgum sinnum verið gert myndarlegt átak í úthlutun atvinnuhúsnæðis, þ.á m. fyrir verzlunar- og iðnfyrir- tæki við Suðurlandsbraut. Árang- urinn varð sá, að þar gátu nokkuð mörg fyrirtæki í þessari grein byggt vel yfir sína starfsemi, til mikils hagræðis fyrir starfsfólk sitt, hvað vinnuaðstöðu snertir og fyrir neytendur. Væri þarft verk- efni fyrir núverandi meirihluta útvarpsráðs, að endursýna þessa merku mynd og ræðu Þórs í sjónvarpinu mönnum til upprifj- unar miðað við síðari tíma at- burði. Sigurjón og Gjaldheimtan Hetjuleg framkoma Sigurjóns Péturssonar í opinberum veizlum á vegum borgarinnar hefur vakið óskipta athygli, og mun hann nú eftir tvegja ára æfingu vera fremstur sveitarstjórnarmanna í íþrótt skálaræðumennskunnar. En ef hann er inntur eftir afrekum sínum á sviði borgarmála verður fátt um svör og nýjar frumlegar hugmyndir eða framkvæmdir, aðrar en þær sem þegar voru komnar áleiðis á vegum Sjálfstæð- ismanna. Eitt gæti þó Sigurjón nefnt sem sitt mál en það er að leyfi hefur verið veitt nokkrum Sjálfstæðis- mönnum til að setja upp sölutjald og pylsuvagn á torginu og göngu- götunni Austurstræti sem Sjálf- stæðismenn lögðu. Við svona kringumstæður bætir Sigurjón gjarnan við, að allt kosti peninga, en nefnir ekki að hann ásamt sínu liði hafi hækkað hlutfall útsvars- álagningar umtalsvert á síðustu 2 árum, enda hrósa menn sér ekki af slíku nema við Gjaldheimtuna. Breytingar breytinganna vegna hafa löngum þótt beggja handa járn í tímans rás. Og viss er ég um það að þeim fjölgar stöðugt í Reykjavík, sem eiga þá ósk heit- asta að eftir næstu kosningar geti Sigurjón með sanni sagt fyrir hönd borgarstjórnarflokks Al- þýðubandalagsins, um leið og hann horfir í áttina til stóls forseta borgarstjórnar: „Ég horfi einn á eftir þér, er fylgið ber þig burt frá mér.“ Sögufrægur meirihluti

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.