Morgunblaðið - 15.11.1980, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 15.11.1980, Blaðsíða 5
LEIKBRÚÐULAND: MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1980 5 Sýningar hef j- ast á morgun Á MORGUN kl. 15 hefjast að nýju sýningar i Leikhrúðulandi að Fríkirkjuveiíi 11. Jólasýning leikhússins, „Jólasveinar einn og átta“ verður nú færð upp í 6. sinn og jafnframt hið siðasta. „Það má segja, að þessi sýning sé það eina sem við getum kallað hefð í okkar leikhúsi. Það er því með söknuði í hjarta, sem við kveðjum jólasveinana okkar, og við viljum gera kveðjustundina hátíðlega, eins og þeir eiga skilið. Því ákváðum við, að í ár skyldi jólunum heilsað snemma. Sjálf- sagt eru einhverjir fastagestir okkar komnir í jólaskap og tilvalið fyrir þá að fá sér fyrsta jólaeplið strax. Hjá okkur eru jólin nefni- lega komin, með kertaljósum, epl- um og öllu tilheyrandi. Þessi sýning er byggð á kvæði Jóhannesar úr Kötlum um gömlu jólasveinana okkar og foreldra þeirra, heiðurshjónin Grýlu og Leppalúða. Palli og amma hans koma líka við sögu, og ekki má gleyma álfunum sem búa í túnfæt- inum. Jón Hjartarson er bæði höfund- ur og leikstjóri. Ýmsir þekktir leikarar Ijá brúðunum raddir sín- ar. Brúðurnar eru unnar í Leik- brúðulandi. Eftir áramót hefjast að nýju sýningar á „Sálinni hans Jóns míns“, sem frumsýnd var að Kjarvalsstöðum sl. vor. Sýningar verða á hverjum sunnudegi fram að jólum kl. 3. Miðasala hefst kl. 13 og þá er svarað í síma Æskulýðsráðs, 15937. (FréttatilkynninK) Ilausthappdrætti Sjálfstæðisflokksins: Dregið í kvöld í DAG eru síðustu forvöð að tryggja sér miða í haust- happdrætti Sjálfstæðisflokks- ins, því dregið verður í kvöld. Öflugt flokksstarf kostar mikið fé. Happdrættið gegnir veigamiklu hlutverki i fjáröfl- un flokksins og því treystir hann á velvild og skilning stuðningsmanna sinna og væntir þess, að þeir vilji leggja fram hver sinn skerf til styrktar stefnu hans og verk- efnum, sem framundan eru. Þeir, sem ennþá eiga ógerð skil á heimsendum miðum, eru vinsamlega beðnir að gera það strax í dag — það verður aðeins dregið úr seldum mið- um. Afgreiðsla happdrættisins er i Valhöll. Iláaleitisbraut 1 og verður hún opin til kl. 19 — síminn er 82900 og geta þeir. sem óska látið sækja greiðslu til sín og eins er ha'gt að fá heimsenda miða. (FréttatilkynninK-) Tónleikar í Félags- stofnun stúdenta HÓPUR tónlistarfólks, sem nefnir sig Músíkhópinn, stendur fyrir tónleikum í Félagsstofnun stúdenta við Hring- braut, miðvikudaginn 19. nóvember kl. 20.30. Hefur þessi hópur sameinast í þeim tilgangi að flytja ný og nýleg tónverk eftir innlend og erlend tón- skáld. A tónleikunum verða flutt verk eftir: Karlheins Stockhausen, Þorstein Hauksson, Atla Heimi Sveinsson, Snorra Sigfús Birgisson og Askel Másson. Flytjendur eru: Bernhard Wilkinson, Hjálmar Ragnarsson, Jónas Ingimundarson, Oddur Björnsson, Oskar Ingólfsson, Rut L. Magnússon og Valva Gísladóttir. Stúdíó Stemma að- stoðar við flutning á elektroniskum verkum. Hallveig Thorlacius, Erna Guðmarsdóttir (aftar) og Helga Steffensen ásamt jólasveinunum sinum. Um 40 bátar eru á rækju í Djúpinu og við Húnaf lóa RÆKJUVEIÐAR voru ekki leyfð- ar í Arnarfirði í október þar sem seiðamagn reyndist of mikið. I ísafjarðardjúpi hófust rækjuveið- ar 24. október og voru 27 bátar byrjaðir veiðar, 10 frá Bolungar- vík, 24 frá ísafirði og 3 frá Súðavík. Leyfilegt aflamagn er nú 2400 lestir og skiptist aflinn eftir ákveðnum reglum milli þeirra 7 rækjuverksmiðja, sem starfa á svæðinu. Verksmiðjurnar setja svo bátunum ákveðin aflamörk, þannig að hámarksafli á bát er 5 lestir á viku, þar af er hámark 1,5—2,0 lestir á dag fyrstu tvo daga vikunnar. Leyfilegt er að veiða á öllu svæðinu frá Æðeyjar- sundi út í Jökulfirði, en Inndjúpið er lokað vegna of mikils seiða- magns í afla. Aflinn í október reyndist 254 lestir. Við Húnaflóa hófust rækjuveið- ar 13. október og voru 13 bátar byrjaðir veiðar. Er leyfilegt afla- magn á þessu svæði 800 lestir. Aflinn í október reyndist 162 lestir. Síldarverðið nær ekki fimm krónum dönskum ÍSLEIFUR VE seldi 80.4 tonn af síld í Hirtshals í Danmörku í gær og fengust 37 milljónir króna fyrir aflann eða 460 krónur að mrðaltali fyrir kilóið. í dönskum krónum talið var meðalverðið 4,73 á kíló og er það nokkru minna en vænzt hafði verið er ákvörðun var tekin um siglingar síldveiðiskipanna. Júpiter RE fékk enn lægra meðalverð, en Pétur Jónsson hins vegar nokkru hærra. Börkur NK selur í Hirtshals á mánudag og þann dag selur Helga Guðmundsdóttir BA í Skagen. Fleiri skip hafa ekki fastsett söludaga í Danmörku. VALDATAFL í VALHÖLL — bók í brennidepli Ilöfundar bókarinnar Anders Hansen og Hreinn Loftsson, blaðamenn. Mesta sprenging sem orðið hefur í íslenskum stjórnmálum síðan lýð- veldið var stofnað í febrúarmánuði sl. er dr. Gunnar Thorodd- sen, varaformaður Sjálfstæðisflokksins myndaði þá ríkisstjórn sem nú situr að völdum í landinu, í andstöðu við meiri hluta þing- flokks Sjálfstæðis- flokksins og þá sér- staklega formann flokksins, Geir Hall- grímsson. Segja má að með þessari stjórnar- myndun hafi komið upp á yfirborðið svo um munaði áratuga togstreyta forystu- manna Sjálfstæðis- flokksins, sem þó hafði magnast mikið á síð- ustu árum. Tveir ungir blaðamenn, Anders Hansen og Hreinn Loftsson, sem báðir hafa tekið virkan þátt í flokks- starfi Sjálfstæðisflokksins hafa nú ritað bók um þessi átök og stjórnarmyndunina og nefna hana „Valdatafl í Valhöll". I bók þessari er fjallað tæpitungulaust um þau átök um völd í flokknum sem að lokum leiddu til stjórnarmyndunar Gunnars, og í bókinni kemur ýmislegt fram sem koma mun veru- lega á óvart, og það jafnvel þeim sem lengi hafa fylgst með stjórnmálabaráttunni og flokksstarfinu í Sjálf- stæðisflokknum. Rætur langt aftur í tímann Það mun ef til vill koma mest á óvart hve rætur þessara átaka ná langt aftur í tímann. Gunnar Thor- oddsen virðist frá öndverðu hafa verið óstýrilátur við flokksforystu Sjálfstæðis- flokksins, og margt sem hann tók sér fyrir hendur hefur komið flokksformönn- unum í opna skjöldu. Styrr- inn kringum Gunnar magn- aðist mikið árið 1952, er hann ákvað að veita tengda- föður sínum, Asgeiri Ás- geirssyni stuðning, en þá lýsti Sjálfstæðisflokkurinn yfir stuðningi við annan frambjóðanda, síra Bjarna Jónsson. Erfðu forystumenn flokksins þessa afstöðu lengi við Gunnar, þótt sættir tækj- ust á yfirborðinu um hríð. Varð Gunnar t.d. ráðherra í hinni svonefndu „viðreisnar- stjórn“, en hvarf síðan af landi brott og gerðist sendi- herra í Kaupmannahöfn. Kemur fram í bókinni að ekki voru allir forystumenn Sjálfstæðisflokksins sáttir við þá ákvörðun hans. Gunnar snýr aftur I bókinni er fjallað ítarlega um kosningabaráttuna fyrir forsetakosningarnar 1968 og afleiðingar þess að Gunnar Thoroddsen féll þá fyrir Kristjáni Eldjárn. Sagt er frá því er Gunnar leitaði fulltingis forystumanna Sjálfstæðisflokksins til þess að fá stöðu er hann snéri aftur heim til Íslands og hvernig hann kom aftur inn í stjórnmálin á Islandi. Átök Gunnars og Geirs Viðamesti þáttur bókarinnar er þó frásögn um samskipti þeirra dr. Gunnars og Geirs Hallgrímssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, en þar virðist hafa verið ósam- komulag jafnvel frá fyrstu tíð. Bregða höfundarnir upp einkar skýrri mynd af „valdataflinu“, leik fyrir leik, uns sú staða kom upp að dr. Gunnar myndaði ríkisstjórn- ina með fulltingi nokkurra þingmanna Sjálfstæðis- flokksins og samvinnu við Alþýðubandalag og Fram- sóknarflokk. Skeði margt eftirminnilegt í hraðri at- burðarás síðustu dagana fyrir stjórnarmyndunina, og viðhorf þingmanna Sjálf- stæðisflokksins voru þá greinilega mjög mismun- andi. Þanng er haft eftir einum þeirra, að hann hefði aldrei orðið vitni að annarri eins „aftöku" og er þing- flokkurinn fjallaði um samn- inga Gunnars við Fram- sóknarflokkinn og Alþýðu- bandalagið, en öðrum varð að orði að hér væri um að ræða upphafið að vandræð- um Sjálfstæðisflokksins. Sögulegar ljósmyndir Bókin „valdatafl í Valhöll" er prýdd miklum fjölda ljós- mynda — eru þær vel á annað hundrað, og er þar raunar um að ræða sögu Sjálfstæðisflokksins í mynd- um. Allmargar þessara mynda hafa hvergi birst áð- ur og hafa því mikið sögulegt gildi. Óvenjuleg bók Bókin „Valdatafl í Valhöll" er einstök bók. Aldrei áður hefur verið fjallað um sögu- lega viðburði samtímans á jafn ítarlegan og hispurs- lausan hátt. Ber bókin vitni þeirri breytingu sem orðið hefur í íslenskri blaða- mennsku — fyrir áratug, jafnvel fyrir nokkrum árum, hefði verið útilokað að slík bók væri skrifuð. AUGLÝSING

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.