Morgunblaðið - 15.11.1980, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 15.11.1980, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1980 • Knattspyrnukappinn snjalli Ásgeir Sigurvinsson hefur náð langt i iþrótt sinni með þvi að sýna óvenju mikla eljusemi og dugnað. Hann er verðugur fulltrúi íslands á erlendri grund og jafnframt góð fyrirmynd ungra drengja í hvivetna vegna reglusemi sinnar og prúðrar framkomu. Ljósm. b.R. Bók gefin út um Asgeir Sigurvinsson BÓKAÚTGÁFAN Örn og Örlyg- ur hf. hefur gefið út bókina Ásgeir Sigurvinsson knatt- spyrnua-vintýri Eyjapeyjans eftir hlaðamennina Sigmund Ó. Stein- arsson og Guðjón Róbert Ág- ústsson. Sigmundur er hofundur texta jafnframt þvi sem hann hannaði hókina sem er sérstak- lega liflega og skemmtilega upp- sett og Guðjón Róbert Ágústsson hafði umsjón með myndaöflun i hókina og tók fjölmargar þeirra mynda sem hókina prýða. í bókinni er brugðið upp svip- myndum af ferli Ásgeirs í gegn- um tíðina síigðu þeir Örlygur llálfdánarson og Steinar Lúð- viksson er þeir kynntu bókina ásamt höfundum fyrir frétta- mönnum. Allir íslenskir íþróttaunnendur munu þekkja nafn Ásgeirs Sigur- vinssonar. En hann er ekki ein- ungis þekktur hérlendis, heldur meðal knattspyrnuáhugafólks um alla Evrópu, enda er hann tví- mælalaust í hópi snjöllustu knattspyrnumanna Evrópu, og þarf þó meira en lítið til þess að komast í þann hóp. Ásgeir var kornungur þegar hann fór að vekja athygli fyrir hæfni sína og eljusemi í knatt- spyrnunni og eftir frábæra frammistöðu með íslenska ungl- ingalandsliðinu í keppni á Italíu, fóru atvinnuknattspyrnufélög að sækjast eftir honum. Belgíska félagið Standard Liege varð fyrir valinu, og með því hefur Ásgeir síðan gert garðinn frægan. Bókin um Ásgeir Sigurvinsson er ekki ævisaga hans, enda er Ásgeir ungur að árum, heldur fremur það sem undirtitill bókar- innar segir: Knattspyrnuævintýri. Þar er brugðið upp svipmyndun af ferli Ásgeirs, allt frá því að hann var að byrja að leika knattspyrnu heima í Eyjum, og hafði boltann með sér í vinnuna, til þess að geta æft sig í kaffi- og matartímum, til þess að hann er orðinn einn eftirsóttasti og dýrasti knatt- spyrnumaður í Evrópu. Ásgeir segir í bókinni frá eftirminni- legum leikjum með Eyjaliðinu, íslenska landsliðinu og Standard Liege, skemmtilegum og miður skemmtiiegum atvikum innan vailar sem utan og fl. Bókin er hönnuð af Sigmundi Ó. Steinarssyni, og áhersla lögð á að gera efni hennar og myndir að- gengilegar og segja myndirnar ekki minnstu söguna. Allmargar litmyndir éru í bókinni, margar teknar nú í haust, er þeir Sig- mundur og Guðjón Róbert dvöldu hjá Ásgeiri í Liege, er þeir unnu að gerð bókarinnar. Ásgeir Sigurvinsson — knatt- spyrnuævintýrj Eyjapeyjans, er sett, umbrotin, fiimuunnin og prentuð í Prentstofu G. Bene- diktssonar, en bundin hjá Arnar- Margir leikir í blaki um helgina ÍSLANDSMÓTIÐ i blaki er hafið af fullum krafti, og um helgina fara fram margir leikir, sem ættu að hjóða upp á spennu og skemmtileg- heit. Hér á eftir fara leikir helgarinnar: Laugardagur 15. nóvember Hagaskóli Reykjavík kl. 14.00 UBK-ÍMA ld kv. Hagaskóli Reykjavík kl. 15.15 Víkingur - Þróttur ld Hagaskóli Reykjavík Sunnudagur 16. nóvember kl. 16.30 ÍS - Fram ld Glerárskóli Akureyri kl. 13.00 ÍMA - Bjarmi 2d Hagaskóli Reykjavík kl. 13.30 Þróttur - ÍMA ld kv. Hagaskóli Reykjavík kl. 14.45 Þróttur - Fram ld Hagaskóli Reykjavík kl. 16.00 ÍS - UMFL ld Neskaupstaður Miðvikudagur 19. nóvember kl. 13.30 Þróttur Nes. - UMSE2d Hagaskóli Reykjavík kl. 18.30 IS - UBK ld kv. Hagaskóli Reykjavík kl. 20.15 ÍS - Víkingur ld Hagaskóli Reykjavík kl. 21.30 Þróttur - UMFL ld Ríkisútvarpið greiðir HSI EINS OG skýrt var frá á sínum tima átti Ilandknatt- leikssamhand íslands í úti- stöðum við Rikisútvarpið vegna útvarpslýsinga á kappleikjum. Hafði útvarpið ekki gert upp við IISÍ. Svo langt var málið komið af hálfu IISÍ að það var komið i lögfræðing og fyrir dyrum stóðu málaferli. Eftir mikið þref tókst þó samkomulag um greiðslu. HSÍ fór í fyrstu fram á 3,1 milljón króna en Rikisútvarpið hauð 1200 þúsund. En á endanum sam- þykkti útvarpið að greiða IISÍ 2 milljónir og 550 þús- und krónur og á það var fallist. Mun það láta nærri lagi að vera um 40 þúsund krónur á hverja útsenda mínútu. HSÍ hefur nú boðið Rikisútvarpinu og sjónvarp- inu upp á viðræður um útsendingar frá kappleikj- um. En þeir Pétur Guðfinns- son hjá sjónvarpinu og Guð- mundur Jónsson hjá Ríkis- útvarpinu hafa sýnt málinu mjög litinn áhuga að sögn Júliusar Ilafstein, formanns IISÍ. Og meðan málin eru ekki rædd verður útkoman að sjálfsögðu engin varðandi lýsingar frá handknattleiks- leikjum. Með öllu er því óvíst hvort nokkuð verður sýnt i sjónvarpinu frá lands- leikjunum við Vestur-Þjóð- verja. — ÞR „Varð fyrir vonbrigðum“ — sagði Björgvin Björgvinsson Valur-ÍR á morgun í körfunni VALUR og ÍR eigast við í úrvals- deild íslandsmótsins i körfu- knattleik á morgun og hefst leikurinn klukkan 20.00. Ilann fer fram í Hagaskólanum. Þetta er bráðmikilvægur leikur fyrir báða aðila. Valsmenn hafa tapað sex stigum það sem af er mótinu. en ÍR-ingar fjórum stigum. Hvor- ugt liðið má við því að tapa þessum leik og verður því án efa hart harist. í fyrsta leikþessara liða á mótinu sigraði IR með þriggja stiga mun eftir fram- lengdan leik. Staðan í úrvals- deildinni er annars þessi: STAÐAN UMFN 5 5 0 501-406 10 KR 5 4 1 452-401 8 ÍR 5 3 2 425-425 6 Valur 5 2 3 444-446 4 ÍS 5 1 4 425-457 2 Ármann 0 0 5 388—500 0 (KBrluKnattlelKur Coe varð aftur fyrir kjöri BRESKI langhlauparinn Sehasti- an Coe hefur verið valinn íþrótta- maður ársins í heimalandi sinu annað árið i röð. Coe vann sem kunnugt er gull í 1500 metra hlaupi á Ólympiuleikunum i Moskvu á síðasta sumri. Það voru samtök íþróttafréttamanna á Bretlandsejjum, sem stóðu að kjörinu eins og fyrri daginn. Sundkonan Sharron Davies var kjörin iþróttakona ársins og Nottingham Forest lið ársins. Forest varð scm kunnugt er Evrópumeistari i knattspyrnu á siðasta keppnistimahili. Var liðið einnig kjörið lið ársins á síðasta ári, en þá varð það einnig Evr- ópumeistari. Sigur þessara aðila í kjöri fréttamannanna var öruggur, en næstu menn á eftir Coe voru Steve Ovett, Daley Thompson, Robin Cousins og Álan Wells, allt gull- hafar frá Moskvuleikunum. ÍA NÆLDI sér í sitt þriðja stig í 1. dcildar keppni kvenna i hand- knattleik i fyrrakvöld. er Vík- ingsdömurnar sóttu þær heim. Jafntefli varð, 10 — 10, eftir að staðan í hálfleik hafði verið 4—2 fyrir ÍA. Skagastúlkurnar fengu ákjósanlegt tækifa'ri til þess að vinna leikinn. er þær fengu vitakast á síðustu sekúndunum. Jóhanna Guðjónsdóttir, mark- vörður Víkings, varði hins vegar vítið snarlega og hjargaði stigi. Skagaliðið var nokkuð jafnt að þessu sinni, breiddin heldur lítil kannski, en góð barátta. Mark- vörðurinn Kristín Brandsdóttir bar nokkuð af í liði í A. Burðarásar Víkingsliðsins voru þær Ingunn Bernódusdóttir og Eiríka Ás- grímsdóttir. Mörk ÍA: Laufey Sigurðardóttir 4, Ragnheiður Jónasdóttir og Kristín Reynisdóttir 2 hvor, Krist- ÞAÐ VAR engin gleði ríkjandi i húningsklefa íslenska landsliðs- ins i handknattleik eftir fyrri landsleikinn gegn Vestur— Þjóðverjum. Og leikmenn voru greinilega mjög svekktir yfir því hve illa gekk í síðari hálfleikn- um. Ililmar Björnsson landsliðs- þjálfari varð fyrstur fyrir svör- um. Hann hafði þetta að segja: — Þetta tap okkar vir of stórt, og yfir þvi er ég að sjálfsögðu mjög óánægður. Við náðum að skapa okkur góð marktækifa-ri í leiknum. það sáu allir, en aftur á móti kemur það enn einu sinni fyrir að leikmenn skora ckki úr upplögðum tæki- færum sínum. Það er eins og þeir séu hálfragir við að reka enda- hnútinn á sóknina með fullum krafti og keppnisskapi. Þýska liðið var svipað að styrkleika og ég átti von á og það kæmi mér mjög á óvart ef við myndum ekki ná fram betri úrslitum í lciknum á sunnudag. Þjálfari Þjóðverja, Stenz- el: — Bæði liðin léku vel, sérstaklega varnarleikinn. í síðari hálfleik missti íslenska liðið hins- vegar alveg taktinn og sú góða barátta sem var í leikmönnum í fyrri hálfleik hvarf. Ég er að þreifa fyrir mér varðandi mitt lið, °g byggja það upp fyrir næstu HM-keppni sem fer fram í Vest- ur—Þýskalandi. Besti maður ís- lenska liðsins var vinstri handar Handknattlelkur k ■/ ín Aðalsteinsdóttir og Hallbera Jóhannesdóttir eitt hvor. Mörk Víkings: Ingunn Bernód- usdóttir 6, Eiríka Ásgrímsdóttir 2, Sigurrós Björnsdóttir og Hildur Gunnarsdóttir eitt mark hvor. -V/g STAÐAN Staðan í 1. deild kvenna er nú þessi: Fram 4 3 0 1 65-52 6 FII 3 2 1 0 53-39 5 Víkingur 4 2 1 1 56—51 5 Valur 4 2 1 1 57-53 5 KR 4 2 0 2 54-59 4 Akranes 3 1 1 1 37-38 3 Þór 5 1 0 4 71-89 2 Ilaukar 3 0 0 3 34—46 0 skyttan, þessi ungi stóri leikmað- ur. Stórkostlegur leikmaður með firnaföst skot. Síðast þegar ég stjórnaði landsliði hér þá töpuðum við báðum leikjum okkar. Þá fannst mér íslenska liðið vera baráttuglaðara og leika mikið agaðri handknattleik. Keppnis- skapið var meira í leikmönnum íslenska liðsins þá en núna. Ólafur Benediktsson markvörður sem lék ekki með vegna meiðsla: Fyrri hálfleikurinn var góður hjá okkar mönnum. En sá síðari afleitur í sókn og vörn. Menn voru alltof bráðir í sóknarleiknum, það vantaði alla. yfirvegun í leik þeirra. Þá opnaðist vörninn alveg hrikalega oft og illa. Okkur vantar sýnilega meiri breidd í leik okkar. Þá er sorglegt hversu illa við nýtum opin marktækifæri í leikn- um. Ég er hinsvegar ánægður með hversu vel Kristján markvörður stóð sig i leiknum. Hann varði af stakri prýði. Björgvin Björjívinsson: Ég varð fyrir miklum vonbrigðum. vegna þess að ég hélt að við værum mikið sterkari. Ég er búitin að vera lengi í þessu og satt best að segja veit ég ekki hvenær við ætlum að læra að það þýðir ekki að leika gegn heimsmeistur- um eins og verið sé að leika í 1. deild. Menn vanmeta færi sín og alla yfirvegun vantar í leikinn. En við sigrum þá á sunnudaginn, sagði Björgvin og hló við og rauk í bað. Sigurður Sveinsson stór- skytta skoraði sjö af níu mörkum liðsins: Það er hægt að vinna þessa kalla. Þetta eru enginn ofurmenni. Fyrri hálfleikur var góður hjá okkur en sá síðari brást, sérstaklega varn- arleikurinn. —ÞR. HÚNAVAKA er héraðsrit, sem gefið er út af úngmennasam- bandi Austur-IIúnvetninga. Ritið hefur komið út árlega í 20 ár, eða síðan 1961. í ritinu birtist fjöl- þættur fn'iðleikur úr Húnaþingi. Birt eru viðtöl við Ilúnvetninga, grcinar, frásagnir, sögur, Ijóð og stökur. Þá er þar árlega skráður ítarlegur fréttaannáll yfir at- burði í A.-Hún. liðið ár, og birt er stutt æviágrip allra Austur- Ilúnvetninga sem látast. Fjöl- margar myndir gamlar og nýjar prýða ritið. Fyrstu árgangar Húnavökunn- ar hafa verið uppseldir um langt skeið, en nú hafa fimm fyrstu árg. verið endurprentaðir og eru nýkomnir á markað. Markvörðurinn bjarg aði stigi fyrir Víking

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.