Morgunblaðið - 15.11.1980, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1980
13
Jón og síra Jón
Loks má ekki minna vera en
maður þakki fyrir sig. Þegar ég
var pottormur í Hafnarfirði fyrir
meira en hálfri öld gengu menn
með höfuðföt, og ofantekningar
voru ríkur þáttur í þjóðlífinu.
Flestir gengu með derhúfur, sem
kallaðar voru sixpensarar, for-
menn á bátum með kaskeiti og
betri borgarar með hatta, mis-
jafnlega tígulega. Derhúfumenn
áttu að taka ofan að fyrrabragði
fyrir öllum sem þeir mættu, kask-
eitismenn fyrir hattamönnum, en
hattamenn höfðu ýmsan sið. Sum-
ir tóku ofan með glæsilegri
sveiflu, aðrir báru tvo fingur upp
að hattbarðinu virðulegir í fram-
an. Fáeinir stikuðu framsettir og
þóttust ekkert taka eftir þótt aðrir
væru að bukta sig og beygja —
þetta voru mennirnir með völdin.
Vísast er þessi ofantekningarsiður
nú aflagður, en ekki hugarfarið
sem bak vlð bjó. Snemma á þessu
ári skrifaði ég borgarráði út af
lóð, mér var ekki svarað fyrr en
eftir rekistefnu og fékk þá að vita
að ég væri ekki svaraverður því að
ég hefði átt að yrða á tignarmenn-
ina tiltekinn dag í janúarmánuði.
Um svipað leyti og mér barst
bréfið fékk SIS hins vegar lóð í
nýja miðbænum, umsóknin af-
greidd einróma sama dag og hún
var send. Það er ekki sama að vera
Jón og síra Jón. Eg spurði Alþingi
Islendinga einnig um smáræði
snemma á þessu ári, en hef ekkert
ans fengið, þrátt fyrir rekistefnu,
ekki einu sinni vitneskju um það
hvaða dag ég megi yrða á stofnun-
ina. Eg get nefnt fleiri dæmi af
sama toga en nenni því ekki. En
því orða ég þetta að mér finnst
vænt um að þjóðminjavörður er
maður alþýðlegur, og kveð hann
með óskum um góðan farnað við
lyftuframkvæmdir og aðrar at-
hafnir í þágu hérlendrar þjóð-
menningar.
13da nóvember 1980.
Halldór
Blöndal, alþm.:
Fiskar á fjalli heitir ein af
ljóðabókum Ingimars Erlends
Sigurðssonar. Nafið er ofurlítið
nýstárlegt og vekur forvitni.
Hann kallar þá líka slcáldfiska
og segir, að þeir hafi dáið daginn
þann sem þeir drukku hinn
græna sjó.
Á miðvikudaginn gaf ríkis-
stjórnin út fréttatilkynningu,
þar sem m.a. stendur: „Ríkis-
stjórnin mun vinna að áfram-
haldandi hjöðnun verðbólgu á
næstu misserum og stuðla að því
að tryggja sem bezt kaupmátt
launafólks." Ég er hræddur um,
til ríkisstjórnarinnar og sagði,
að svarið þyrfti ekki að vera
flókið, einungis já eða nei mundi
duga, en enginn ráðherranna
treysti sér til þess að segja
annaðhvort þessara litlu orða.
Af þeim sökum hef ég nú lagt
fram á Alþingi fyrirspurn með
þinglegum hætti, þar sem ég
óska svars við þessu.
Hræðsla við
ASÍ-þingið
Enginn vafi er á því, að
ríkisstjórnin mun verjast allra
fregna um kjaraskerðingar-
áform sín fram yfir Alþýðu-
sambandsþing. Pétur Sigurðsson
hefur undirstrikað þennan
„Gleymdu degi og gær“
Greinarkorn eftir yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um hjöðnun verðbólgu
að það þyrfti að segja fiskimönn-
um okkar oftar en þrem sinnum
að beina skipum sínum til fjalls
til þorskveiða. Það er jafnfárán-
legt og að ætlast til þess af
þessari ríkisstjórn, að hún geri
annaðhvort. að draga úr verð-
bólgunni eða varðveita umsám-
inn kaupmátt launa, en það er
það sem verið er að gefa í skyn
með fréttatilkynningunni að hún
ætli sér að gera.
Er von á
jólagjöf frá
stjórninni?
Á Alþingi hafa hina síðustu
dgaa orðið allmiklar umræður
um efnahagsmál, einkum þá
þætti þeirra sem snerta atvinnu-
mál, skattamál og kaupmátt
launa. Þetta er eðlilegt með
hliðsjón af því að einstakir
ráðherrar hafa á undanförnum
vikum gefið mislitar og raunar
litverpar yfirlýsingar um það,
hversu fresta skuli verðbótum á
laun og hversu þrengt skuli að
atvinnurekstrinum en ríkisum-
svifin jafnframt aukin. í fjár-
lagaræðu Ragnars Arnalds var
þetta einkar skýrt, þegar hann
lýsti því hvernig einkaneyzlan
mundi dragast saman á næsta
ári og raunar hefur Halldór
Ásgrímsson tekið undir þetta í
ræðu um annað mál.
Matthías Á. Mathiesen beindi
þeirri fyrirspurn til forsætisráð-
herra eða viðskiptaráðherra
næstliðinn þriðjudag, hvort
þingmenn mættu vænta þess, að
frumvarp um ráðstafanir í efna-
hagsmálum kæmi á borð þeirra
fyrir jól. Við því fékkst ekkert
svar þá. Ég tók þetta mál síðan
upp á fundi Alþingis viku síðar,
beindi þessari sömu fyrirspurn
Skerðing á reiknitölu á-
kvæðisvinnu verði leiðrétt
Blaðinu hefur borist eftirfar-
andi frá fimm félögum í
byggingariðnaði:
Þar sem undirrituð launþega-
samtök telja að umfjöllun fjöl-
miðla um vinnudeilur þeirra og
atvinnurekenda hafi ekki gefið
nægilega glögga mynd af því hvert
ágreiningsefnið raunverulega er,
vilja þau taka eftirfarandi fram:
Samkvæmt útreikningi, sem við
höfum látið gera á skerðingu sem
orðið hefur á reiknitölu ákvæðis-
vinnu miðað við tímakaup á und-
anförnum árum, hefur skerðing
þessi orðið frá 9,33% —26,33%
mismunandi eftir starfsstéttum.
Skerðingu þessa má að verulegu
• leyti rekja til þess að löggjafinn
hefur ítrekað vegið að reiknitöl-
unni í sambandi við afskipti sín af
gerðum kjarasamningum og að
ekki hefur fengist leiðrétting á
henni þegar skerðingar á öðrum
launum voru leiðréttar svo sem
með „þaklyftingu". í samningi
þeim sem okkur er boðið upp á nú
er gert ráð fyrir að skerðingin sé
enn aukin að miklum mun og
meira en tíðkast áður í einu
stökki. Samkvæmt lauslegri at-
hugun okkar myndi skerðingin
miðað við þann samning geta
orðið um 40%. Vinnuveitendur
okkar hafa viðurkennt að þegar sé
orðin veruleg skerðing, þótt ein-
hver skoðanamunur sé um tölur,
en hika samt ekki við að bjóða upp
á áframhaldandi og aukna skerð-
ingu.
Meginkrafa okkar í yfirstand-
andi kjaradeilu er sú að skerðing
þessi verði viðurkennd og leiðrétt í
áföngum. Þessari kröfu hafa við-
semjendur okkar alfarið hafnað
enn sem komið er án þess að færa
fram nein viðhlítandi rök fyrir
þeirri afstöðu.
Það er skoðun okkar að verði
ekki spyrnt við fótum hér og nú
leggist ákvæðisvinna í byggingar-
iðnaði niður. Slíkt muftdi að okkar
dómi draga úr afköstum og þar
með lengja byggingartíma húsa til
stórskaða fyrir þjóðarbúið í heild.
Félögin vilja að lokum vekja
athygli á því að kjaradeilu þeirra
var vísað til sáttasemjara strax á
sl. vori. Sáttafundir hafa þó til
þessa aðeins orðið þrír og hefðum
við kosið að af hálfu sáttasemjara
og sáttanefndar hefði verið tekið
af meiri festu á málinu.
Fh. Múrarafélags Reykjavíkur,
Helgi Steinar Karlsson formaður
Fh. Veggfóðrarafélags Rvíkur,
Sigurður Pálsson formaður.
Fh. Sveinafélags pípul.manna,
Þórir Gunnarsson formaður.
Fh. Málarafélags Reykjavíkur,
Iljálmar Jónsson formaður.
Fh. Múrarasambands íslands,
Ilelgi Steinar Karlsson formaður
. /. f t
Eitt kortanna sem Styrktarfélag vangefinna gefur út. Myndin á
kortinu heitir: Þegar mamma og pabbi komu heim, og er eftir
Sólveigu E. Pétursdóttur.
Jólakort Styrktarfélags vangefinna
JÓLAKORT Styrktarfélags
vangefinna eru komin út. Nokk-
ur undanfarin ár hefur félagið
gefið út kort með myndum af
verkum listakonunnar Sólveig-
ar Eggerz Pétursdóttur til
styrktar vangefnum. Að þessu
sinni eru gefnar út nokkrar
nýjar gerðir með myndum eftir
Sólveigu. Eru kortin til sölu á
heimilum félagsins og skrif-
stofu þess að Laugavegi 11, svo
og í verzluninni Kúnst, Lauga-
vegi 40.
Jólakortin eru pökkuð af vist-
fólki í Bjarkarási. Átta kort eru
í pakka en verðið er kr. 2.000. Þá
er félagið einnig með tvær gerðir
stærri korta með myndum eftir
Sólveigu og eru þau m.a. ætluð
fyrirtækjum, sem senda við-
skiptavinum sínum jólakort. Þau
fyrirtæki, sem áhuga hafa, geta
haft samband við skrifstofu fé-
lagsins og verða þeim þá send
sýnishorn af kortunum.
punkt rækilega í þingræðu, enda
sjálfsagt með hliðsjón af ótal
yfirlýsingum um samráð við
verkalýðshreyfinguna, að hug-
myndir ríkisstjórnarinnar um
róttækar efnahagsaðgerðir í
tengslum við myntbreytinguna
verði kynntar á Alþýðusam-
bandsþinginu. í þessu sambandi
er nærtækt að skírskota til
svonefndra Ólafslaga, þar sem
kveðið er á um það með ákveðn-
um hætti, að náið samráð skuli
haft við launþegasamtökin. Enn-
fremur má minna á stjórnar-
sáttmála ríkisstjórnarinnar og
síendurteknar yfirlýsingar ein-
stakra ráðherra.
Auðvitað vita menn það, að
verðbólgunni verður ekki komið
niður nema allir taki á sig
einhverjar byrðar. En til þess að
menn séu fúsir til þess, verða
þeir að hafa sannfæringu fyrir
því, að stjórnvöldum sé alvara og
að þau hafi raunverulega eitt-
hvað til málanna að leggja. En
því miður bendir ekkert til að
.. og grænt þitt
hjarta slær“
Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar
um það, að umtalsverður árang-
ur hafi náðst í baráttunni við
verðbólguna er annaðhvort léleg
aulafyndni eða ósvífni og skákað
í því skjólinu, að fólk fylgist ekki
með, ekki einu sinni- því ráðstöf-
unarfé, sem það hefur handa á
milli — hvort það fer minnkandi
eða vaxandi.
Vel má vera, að hægt sé að
sannfæra óreynda unglinga um
eitt og annað, jafnvel um það, að
Trotzky hafi aldrei verið til eða
Stalín sé ennþá á meðal okkar.
En hitt er með ólíkindum, ef
nokkrum dettur í hug, að hús-
móðirin fylgist ekki með því
hvort henni gangi verr eða betur
að láta matarpeningana endast
milli útborgunardaga. Það er
vita tilgangslaust að skírskota
til framfærsluvísitölu eftir út-
sölu á smjöri eða skyndiniður-
greiðslu á lambakjöti. Þarfir
heimilanna eru miklu meiri en
svo, að með takmörkuðum niður-
greiðslum sé hægt að breyta
þessari mynd svo nokkru nemi.
Þess vegna sjá allir í gegnum
yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og
þykir heldur vérr en ekki að hún
skyldi hafa verið látin ganga til
fjölmiðla.
Af yfirlýsingu ríkisstjórnar-
innar verður þess vegna ekki
dregin nema ein ályktun, að hún
sé að reyna að fá þjóðina til þess
að gleyma þeirri þróun, sem
orðið hefur á árinu í verðlags- og
launamálum. Græningjar eru
þeir kallaðir, sem gína við litn-
um einum saman og auðvelt er
að blekkja. Ríkisstjórnin gæti
því vel í sinni næstu yfirlýsingu
skírskotað til Ingimars Erlends
Sigurðssonar og látið boðskap
sínum Ijúka með þessum orðum:
„(íleymdu do>fi Ka*r.
og Krænt þitt hjarta slær."
f ,lil j
Islands
ferma skipin
sem hér
segir:
AMERIKA
PORTSMOUTH
Hofsjökull 20. nóv.
Bakkafoss 24. nóv.
Ðerglind 3. des.
Bakkafoss 15 des.
Goðafoss 17. des
NEW YORK
Berglind 5. des.
HALIFAX
Hofsjökull 24. nóv.
Goöafoss 22. des.
BRETLAND/
MEGINLAND
Eyrarfoss 17. nóv.
Álafoss 24. nóv.
Eyrarfoss 1. des.
Álafoss 8. des.
Eyrarfoss 15. des.
FELIXSTOWE
Eyrarfoss 18. nóv
Álafoss 25. nóv.
Eyrarfoss 2. des.
Álafoss '9. des.
Eyrarfoss 10. des.
ROTTERDAM
Eyrarfoss 19. nóv.
Álafoss 26. nóv.
Eyrarfoss 3. des.
Álafoss 10. des.
Eyrarfoss 17. des.
HAMBORG
Eyrarfoss 20. nóv.
Álafoss 27. nóv.
Eyrarfoss 4. des.
Álafoss 11. des.
Eyrarfoss 18. des.
WESTON POINT
Urriöafoss 20. nóv.
Urriöafoss 3. des.
Urriöafoss 17. des.
NORÐURLÖND/
EYSTRASALT
BERGEN
Mánafoss 24. nóv.
Mánafoss 8. des
KRISTIANSAND
Dettifoss 17. nóv.
Dettifoss 1. des.
MOSS
Dettifoss 18. nóv.
Mánafoss 25. nóv.
Dettifoss 2. des.
GAUTABORG
Dettifoss 20. nóv.
Mánafoss 26. nóv.
Dettifoss 3. des.
KAUPMANNAHÖFN
Dettifoss 21. nóv.
Mánafoss 27. nóv.
Dettifoss 4. des.
HELSINGBORG
Dettifoss 21. nóv.
Mánafoss 27. nóv.
Dettifoss 5. des.
HELSINKI
irafoss 1. des.
Múlafoss 11 des.
VALKOM
írafoss 2. des.
Múlafoss 12. des.
RIGA
írafoss 5. des.
Múlafoss 15. des.
GDYNIA
írafoss 5. des
Múlafoss 16. des.
Frá REYKJAVÍK:
ámánudögumtil
AKUREYRAR
ÍSAFJARÐAR
EIMSKIP
NÝTT: FRÁ ÍSAFIRÐI TIL AKUREYRAR OG REYKJAVÍKUR ALLA þRIÐJUDAGA. FRÁ AKUREYRI TIL REYKJAVIKUR ALLA FIMMTUDÁGA.