Morgunblaðið - 15.11.1980, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1980
15
Fullveldishátíð
Stúdentafélags
Suðurlands
STÚDENTAFÉLAG Suðurlands
gengst fyrir fullveldisfagnaði í
Selfossbíói laugardaginn 6. des-
ember. Að loknum kvöldverði
flytur heiðursgestur kvöldsins,
Guðmundur Daníelsson rithöf-
undur, ræðu. Þá mun Guðmund-
ur Guðjónsson syngja við undir-
leik Sigfúsar Ilalldórssonar.
Fagnaðurinn hefst kl. 19 og
dansað verður til kl. 02. Veizlu-
stjóri verður Þór Vigfússon og
hljómsveit Stefáns P. leikur fyrir
dansi.
Allir stúdentar á Suðurlandi
eru félagar og eru þeir og gestir
þeirra eru velkomnir. Þeir eru
beðnir um að koma boðum um
fagnaðinn til nágranna og kunn-
ingja. Tilkynna skal þátttöku fyrir
25. nóvember. í stjórn Stúdentafé-
lagsins eru: Grétar J. Unnsteins-
son, Reykjum, Ölfusi, formaður;
Jón Guðbrandsson, gjaldkeri og
Sigríður M. Hermannsdóttir,
Blesastöðum, Skeiðum, ritari.
Systrafélag Ytri-
Njarðvíkurkirkju:
Haustfagnað-
ur í Stapa
ANNAÐ kvöld, sunnudaginn 16.
nóv. kl. 20.30 verður árlegur
haustfagnaðar Systrafélags
Ytri-Njarðvíkurkirkju haldinn í
Stapa. Dagskráin er fjölbreytt að
vanda. Verður m.a. danssýning,
söngur, leikarar koma fram,
happdrætti og glæsilegar kaffi-
veitingar. Hápunktur kvöldsins
er tískusýning. sem konur úr
félaginu sjá að öllu leyti um.
Systrafélagið er ungt að árum
en öflugt og heldur tvær skemmt-
anir á ári, haust og vor, til
fjáröflunar fyrir kirkjuna.
Skemmtanirnar hafa jafnan
verið vel sóttar og verður svo
vonandi einnig annað kvöld. Allir
eru hjartanlega velkomnir.
(Fréttatilkynning.) .
Slippstöðinni
óviðkomandi
í SAMTALI við formann útgerð-
arráðs Bæjarútgerðar Hafnar-
fjarðar, sem birtist i blaðinu sl.
fimmtudag, er sagt að vélar
togarans Maí hefðu orðið fyrir
skemmdum í Slippstöðinni á Ak-
ureyri.
Gunnar Ragnars forstjóri
Slippstöðvarinnar óskar þess get-
ið, að ekkert hefði verið átt við
vélina í Slippstöðinni og skemmd-
ir á vélinni væru stöðinni alls
óviðkomandi.
3 S t
i |
ATH.:
Húsgögnin eru
á sérlega
góðu verði.
•i
húsgögn
Langholtsvegi 111. Reykjavík,
símar 37010 - 37144