Morgunblaðið - 15.11.1980, Side 21
Litli leikklúbburinn á ísafirði:
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1980
21
Sýnir leikritið „Á útleið46
SÍÐASTLIÐINN fimmtudaK
frumsýndi Litli loikklúbburinn á
ísafirdi loikritið „Á út!oið“ eftir
Englendinginn Sutton Vane.
Þetta leikrit hefur tvisvar áður
verið sett upp á ísafirði, fyrir
u.þ.b. 50 árum, þá af Leikfélgi
Isafjarðar. Á þeim tíma var þetta
leikrit mjög vinsælt og víða leikið
á landinu. Einnig var leikurinn
fluttur í útvarp fyrir 2 árum.
Leikrit þetta gerist um borð í
skipi og er frumlegt að því leyti að
allar persónur þess eru dáið fólk
og er það á leið til „himnaríkis og
helvítis". 7 farþegar eru á skipinu
og eru þeir mjög ólíkir. Leikritið
lýsir samskiptum þessa fólks og
viðbrögðum þess við vitneskjunni
um að þau eru öll dáin. Aðrar
persónur leikritsins eru þjónn á
skipinu og rannsóknadómari sem
allir verða að gera reikningsskil
þegar á leiðarenda kemur.
Leikendur eru: Guðný Magnús-
dóttir,- Ásthildur Þórðardóttir,
Pétur Svavarsson, Vernharður
Guðnason, Jón Baldvin Hannes-
son, Reynir Sigurðsson, María
Maríusdóttir, Jónas Tómasson og
Jakob Hallgrímsson. Leikstjóri er
leikritahöfundurinn Oddur
Björnsson og leikmynd gerði Pét-
ur Guðmundsson.
Það er von Litla leikklúbbsins
að ísfirðingar og nágrannar sæki
vel sýningar þeirra á þessu sér-
stæða og spennandi leikriti „Á
útleið".
Loikstjóri og leikarar Litla leikklúbbsins á tsafirði á æfingu á
leikritinu „Á útleið“ eftir Sutton Vane.
Vert er að taka fram að leikritið
verður aðeins sýnt á Isafirði.
(Fréttatilkynning)
Kvennahátíð rauðsokkahreyfingarinnar:
Umræður um kon
ur og atvinnulíf
Rauðsokkuhroyfingin mun
standa fyrir kvennahátíð í félags-
stofnun stúdonta á laugardag.
Nefnist hátíðin „Frá morgni til
kvölds" cn hún hefst kl. 10 og
lýkur kl. 18.
Hátíðin hefst með hópumræð-
um um málefnið „konur og at-
vinnulíf“, verður m.a. rædd staða
kvenna, sem komnar eru yfir
fertugt, húsmæðra, verkakvenna
og menntakvenna. Kl. 14 verða
„gjörningar" sem leiklistarnemar
standa fyrir en síðan verða ávörp
og söngur fram að hléi kl. 15.15.
Nokkrar konur flytja erindi um
stöðu sína í atvinnulífinu og flutt
verður ávarp Rauðsokkuhreyf-
ingarinnar. Að loknu hléi verður
söngur og ljóðaupplestur. Þá verð-
ur Alþýðuleikhúsið með dagskrá,
sem samin var í tilefni af kvenna-
hátíðinni.
Auk þessa verður kvikmynda-
sýning í Garðsbúð kl. 14.30 og
16.30. Sýnd verður bandaríska
kvikmyndin Union maids sem
fjallar um baráttu bandarískra
verkakvenna um 1930. Myndin var
gerð 1976 og er um 45 mínútur að
lengd. Barnagæsla verður á stað-
num frá kl. 10 til 18. Miðasala
verður við innganginn og er verð
miða kr. 3.000.
Undirbúningshópur kvennahátíðar. f.v. Margrét Rún, Edda Ólafsdótt-
ir, Þórunn Svavarsdóttir, Katrin Didriksen og Matthildur Sigurjóns-
dóttir. Á myndina vantar Sigrúnu Iljartardóttur og Önnu K.
Júlíusson sem einnig eru í undirbúningshópnum.
Fjölskyldumáltíð í Naustinu
VEITINGAHÚSII) Naust hofur inu á sunnudögum að bjóða
tekið upp þá nýbroytni í hádeg- hjónum góðan málsvorð á hóf-
Hann bragðast vel, hamborgarinn i Naustinu.
— Ljósm.: Jens Alexandersson.
legu verði. on að auki er sérmat-
seðill fyrir börnin og gosdrykkir
moð. svo mikið som krakkarnir
gota í sig látið. Maturinn fyrir
börnin er ókeypis.
Fyrir hjónin er málsverðurinn
þríréttaður, súpa, aðalréttur og
eftirréttur, en börnin geta valið
um hamborgara eða lítinn körfu-
kjúkling og fá síðan ís á eftir, sem
kenndur er við ævintýrapersónur
sjónvarpsins, Tomma og Jenna.
Allur málsverður krakkanna
minnir á áðurnefndar ævintýra-
persónur, þau fá gosið í sérstökum
glösum, sem prýdd eru myndum af
þeim kumpánum og loks á meðan
pabbi og mamma drekka kaffi, fá
krakkarnir að horfa á Tomma og
Jenna sjálfa kljást á sjón-
varpsskjá og gerði þetta, a.m.k.
um síðustu helgi, mikla lukku
meðal yngstu gesta veitingahúss-
ins.
ÞESSAR vinkonur efndu til hlutaveltu í Smáíbúðahvorfinu fyrir
nokkru til ágóða fyrir Afrikuhjálp Rauða krossins. Þa‘r heita
Þuriður Ilalldórsdóttir. Elsa Davíðsdóttir og Eva Eðvaldsdóttir.
Þær söfnuðu alls 14.400 kr.
ÞESSAR stöllur, Guðrún Ýr Birgisdóttir og Aldís Guðlaugsdóttir.
efndu fyrir nokkru til hlutaveltu til ágóða fyrir Skálatúnsheimilið.
Þær söfnuðu 15.000 krónum.
ÞETTA eru vinkonurnar Hafdis Hanna Birgisdóttir og Marsibil
Sigriður Gisladóttir. Þær efndu til hlutaveltu til ágóða fyrir
Afríkusöfnun Rauða krossins. Þær söfnuðu 11.700 krónum.
Þ.ER heita Borglind Sigmarsdóttir, Erla Magnúsdóttir og Eyrún
Dögg Ingadóttir, þessar vinkonur. Þær héldu hlutaveltu til ágóða
fyrir Afrikusöfnun Rauða krossins og komu þar inn rúmlega 7.400
kr.
ÞESSAR tolpur efndu til hlutaveltu að Flúðasoli 82. Broiðholts-
hverfinu. til ágóða fyrir Afrikusöfnun RKÍ. Þær söfnuðu 12.400 kr.
Tolpurnar hoita Kolbrún Lilja. Ragna Björk og Sigurborg íris. —
Á myndina vantar eina úr kompaniinu, on hún heitir Hrund
Traustadóttir.