Morgunblaðið - 15.11.1980, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1980
23
of Political Science skrifar maður
að nafni Paul McCorsich grein þar
sem hann vekur athygli á nokkrum
staðreyndum, sem hafa haft
afdrifarík áhrif á valdajafnvægið í
Verkamannafokknum. I fyrsta lagi
segir hann: Fram til ársins 1937
var sá háttur hafður á í Verka-
mannaflokknum, að ár hvert kom
flokksráð hans saman og kannaði
hvort einhvers staðar störfuðu
hópar í nafni flokksins sem túlkuðu
skoðanir, sem voru andstæðar hug-
myndum Verkamannaflokksins. Á
grundvelli slíkra upplýsinga voru
menn reknir úr flokknum öðru
hvoru, vegna þess að þeir túlkuðu
viðhorf andstæð skoðunum flokks-
ins. Árið 1974 varð sú stefnubreyt-
ing, að þessu var hætt. Enginn vafi
er á, að þessi breyting hafði áhrif í
þá átt, að auðvelda ýmiss konar
marxistum inngöngu i flokkinn.
Enda er nú svo komið að trotsky-
istar eða meðlimir kommúnista-
flokksins brezka ráða því sem þeir
vilja í mörgum kjördæmisráðum
flokksins. Það eru þessir menn sem
síðan senda fulltrúa á landsþing
þar sem stefnumarkandi ályktanir
eru samþykktar. í löðru lagi:
McCorsich bendir á, að með smá-
vægilegri reglugerðarbreytingu
hafi fnikið vald verið fært frá
þingflokknum til flokksráðs Verka-
mannafokksins. Þar sitja vinstri-
menn í meirihluta. McCorsich
bendir á hvernig flokksráðið hafi
notað þetta vald sitt, að eigin
geðþótta — hyglað vinstrimönnum
en verið þrándur í götu hinna. í
þriðja lagi nefnir McCorsich, að
skipulagsreglum Verkamanna-
flokksins hafi verið breytt árið
1977, í þá átt að auita vald
flokksráðsins yfir kjördæmaráðun-
um. Það gefur auga leið, að slík
breyting styrkir stöðu vinstri-
manna. Niðurstaða McCorsich er
sú, að flokksráðið hafi eitt grætt á
þessum reglugerðar- og lagabreyt-
ingum. Orðrétt segir hann:
„Flokksráðinu tókst að viðhalda
öllum völdum sínum. Minnka þau
óþægindi sem það hafði að nota
þau og hafa frekari áhrif á pólí-
tíska þróun innan flokksins.
Það er meðal annars í ljósi
þessarar margbreytilegu fortíðar,
sem skoða verður stöðu Michael
Foots innan Verkamannaflokksins
nú. Sjálfur er hann pólitískt af-
sprengi Bevans. Hann er vinstri-
maður í þeim skilningi orðsins og
hann er því tortryggður af þeim,
sem lengra til hægri eru. Mesta
hættan á klofningi stafar einmitt
frá þeim hægfara. í þeim hópi eru
þekktust David Owen, fyrrum
utanríkisráðherra, Shirley Willi-
ams fyrrum menntamálaráðherra,
og William Rogers sem einnig var í
stjórn Callaghans. Það er ljóst af
ýmsu að Foot mun gera sitt ýtrasta
til þess að reyna að afstýra klofn-
ingi, en það verður erfitt. Pólitísk
fortíð hans hefur skapað honum
fjandmenn. Enginn veit heldur
hvort hann fær ráðið við hinn
órólega vinstriarm flokksins, sem
leikur lausum hala í stofnunum og
innviðum flokksins.
í Verkamannaflokknum eru óró-
legar deildir bæði til hægri og
vinstri. Þess vegna er óhætt að
fullyrða að Michael Foot tekst á við
örðugt starf á þeim aldri, sem
jafnaldrar hans búa sig undir að
setjast í helgan stein. Hann hefur
unnið orrustu en striðið bíður hans.
Callaghan.
Ungfrú heimur, Gabriella Brum, við krýninguna ásamt stúlkunum er urðu í öðru sæti. ungfrú
Frakkland, Patricia Bar/yk, til vinstri, og ungfrú Guam, Kimberley Santos, til hægri. ungfrú Guam
tekur við titlinum ungfrú heimur af Gabriellu Brum. simamynd - ai>
Ungfrú heimur af-
salar sér titlinum
I-ondon 14. nóv. — AP.
GABRIELLA Brum 18 ára
Erlendar fréttir
í stuttu máli
Hörð hríð
að öfgamönnum
Istanbul. 14. nóv. — AI\
TYRKNESKAR öryggissveitir
hafa verið ötular við að handtaka
öfgamenn að undanförnu og í
síðustu viku voru handteknir 772
menn, sem grunaðir eru um aðild
að samtökum öfgafullra hægri- og
vinstrimanna. I þessum hópi eru
37 menn sem taldir eru hafa
staðið fyrir pólitískum hryðju-
verkum. í tilkynningu stjórnvalda
segir, að einnig hafi fundist mikið
af skotvopnum, skotfærum og
sprengiefni.
Enskir vilja ekki
Astrid Proll
London, 14. nóv. — AP.
ENSKUR dómstóll hafnaði því í
dag að krefjast þess við ensku
ríkisstjórnina, að Astrid Proll,
sem fyrrum var félagsmaður i
Baader-Meinhof-hryðjuverka-
samtökunum. fengi ríkisborgara-
rétt í Englandi. í beiðni sinni
visaði Proll til þess. að hún væri
gift Englendingi en rétturinn
komst að þeirri niðurstöðu. að
hún hefði siglt undir fölsku
flaggi þegar hún kom til landsins
og því fyrirgert rétti sínum.
Skæruverkföll
blaðamanna
Honn, 14. nóv. — AP.
BLAÐAMENN við meira en 100
vestur-þýsk dagblöð fóru í dag í
þriggja stunda verkfall til að
leggja áherslu á kröfu sína um 40
stunda vinnuviku. Þetta er í fyrsta
sinn, sem v-þýskir blaðamenn
grípa til verkfallsvopnsins en þeir
tóku ákvörðun um það eftir að
samningaviðræður við útgefendur
höfðu siglt í strand.
stúlka frá Vestur-Þýskalandi
sem kosin var ungfrú heimur
1980 i London í ga-rkvöldi afsal-
aði sér titlinum í dag. Sagði hún
ásta-ðuna vera þá að hún vildi
ekki halda honum.
Kimberley Santos 19 ára
stúlka frá Kyrrahafseyjum sem
varð númer tvö í kcppninni
hlýtur þvi titilinn ungfrú heim-
ur 1980.
Afsögn Brun kom í kjölfar
frásagnar breska blaðsins Even-
ing Standard af því að unnusti
hennar, hinn 52 ára gamli Benno
Bellenbaum, sem er vellauðugur
kvikmyndaframleiðandi búsettur
í Los Angeles, væri ekki sáttur
við það að hún bæri titilinn
ungfrú heimur.
Blaðið sagði að hann hefði
sagst vera afbrýðisamur að eðlis-
fari og hann kynni heldur ekki
við það að 18 ára stúlka væri sett
í það fangelsi sem afleiðingar
keppninnar væru. Mun hann þá
hafa átt við þann samning sem
ungfrú heimur gerir um
fyrirsætustörf og fleira.
Brum sagði blaðamönnum sjálf
í dag að Bellenbaum væri ekkert
of hrifinn af úrslitum keppninn-
ar. Eftir afsögnina tók hún leigu-
bíl út á Heathrow-flugvöll og hélt
af stað áleiðis annað hvort til Los
Angeles þar sem hún hefur búið
með Bellenbaum í sex mánuði og
unnið við fyrirsætustörf eða til
Berlínar þar sem foreldrar henn-
ar búa.
Jane Morley framkvæmda-
stjóri keppninnar er ekki ánægð
með þessa málalyktan. „Við
ákváðum að verða við ósk hennar
um afsögn eftir að hafa rætt við
hana. En þessu er ekki tekið með
fögnuði. Margar stúlknanna sem
tóku þátt í keppninni eru leiðar
vegna þessa."
Hún vildi ekkert segja um það
hvort Bellenbaum bæri ábyrgð á
því að Brum sagði af sér titlinum
en sagði: „í morgun var hún
ánægð og hlakkaði til verkefn-
anna sem lágu framundan. Hún
sagði ennfremur að Brum fengi
engin þeirra verðlauna sem í boði
voru.
Bretland:
Upphlaup á þingi út
af húsaleiguhækkun
Kissinger
hittir Botha
Lissabon. 14. nóv. — AP.
HENRY Kissinger, fyrrv. utan-
ríkisráðherra Bandarikjanna.
sem margir telja liklegan til að
verða fuíltrúi Reagan-stjórnar-
innar i málefnum Mið-Áustur-
landa. staðfesti í ga>r, að hann
myndi hitta Pik Botha. utanríkis-
ráðherra Suður-Afríku. að máli í
París í næstu viku. Kissinger,
sem nú er í Lissabon. sagðist vera
þar sem „óbreyttur borgari“ en
hins vegar sagðist hann mundu
ra>ða við portúgalska stjórnmála-
menn um málefni NATO.
London. 14. nóv. — AP.
IIEILMIKIÐ upphlaup varð í
Neðri málstofu breska þingsins í
gær og vegna þess neyddist ríkis-
stjórn Thatchers til að ha>tta við
að hækka um 30% húsaleigu
þeirra, sem búa húsnaói. sem er í
eigu ríkisins og sveitarfélaga. Því
er þó haldið fram. að tillagan
verði lögð fram aftur nk. fimmtu-
dag.
Ríkisstjórnin segir, að hætt hafi
verið við þessa fyrirhuguðu hækk-
un á húsaleigu að sinni, eingöngu
til að koma í veg fyrir ofbeldi af
hálfu stjórnarandstöðuþingmanna
Verkamannaflokksins. Gamlir
þingfréttamenn segja, að þessi
atburður eigi sér engan sinn líka í
sögu þingsins.
Fólk í leiguhúsnæði ríkisins og
sveitarfélaga er að langmestu leyti
stuðningsmenn Verkamanna-
flokksihs og þingmenn hans voru
staðráðnir í að hindra að húsa-
leiguhækkunin yrði samþykkt á
síðustu dögum þinghaldsins. 30
Verkamannaflokksþingmenn
hindruðu embættismann þingsins í
að hefja þingfund og létu ókvæðis-
orðin dynja á andstæðingum sín-
um.
Þetta gerðist
1492 — Kristofer Kolumbus segir
frá tóbaksneyzlu Indíána — tób-
aks gutið fyrsta sinni.
1532 — Francisco Pizarro stýrir
leiðangri frá Panania til Perú.
1577 — F'rancis Drake leggur upp
frá Englandi í hnattsiglingu.
1832 — Lundúna-sáttmálinn und-
irritaður.
1889 — Pedro keisari II leggur
niður völd eftir byltingu í Brazilíu,
sem er lýst lýðveldi.
1920 — Fyrstí fundur þings Þjóða-
bandalagsins haldinn í Genf.
1928 — Stórráð fasista löggilt á
ftalíu.
1935 — Manuel Quezon verður
fyrstu forseti Filippseyja.
1956 — Gæzlusveitir SÞ koma til
Egyptalands — Indverjar fá lán
hjá Rússum.
1971 — Landamærabardagar
milli Indverja og Pakistana.
1976 — Her Sýrlendinga nær
undir sig Beirút og 18 mánaða
borgarastríði í Líbanon lýkur í
raun.
1977 — israel býður Anwar Sadat
til Jerúsalem að ávarpa Knesset.
Afmæli William Pitt, enskur
stjórnmálaleiðtogi (1708—1779) —
William Cowper, enskt skáld
(1731-1800) - W. Averell Harri-
man, bandarískur stjórnarerind-
reki (1891— ).
Andlát. 1263 Alexander Nevsky,
stórfursti af Vladimir — 1630
Johannes Kepler, stjörnufræðing-
ur — 1787 Christoph Willibaíd
Gluck, tónskáld.
Innlent. 1611 d. Jón sýslumaður
Magnússon eldri — 1701 Árbæj-
• arskötuhjú hálshöggvin í Kópa-
vogi - 1861 d. F’riðrik VII - 1919
Alþingiskosningar: Jón Magnús-
son fellir Jakob Möller í Reykjavík
— 1919 Sjóvátrýggingafélag ís-
lands stofnað — 1933 Ásgeir
Ásgeirsson ráðherra biðst lausnar
— 1953 Níu farast á vélskipi sem
hvolfir á Grundarfirði — 1956
Löndunarbanninu aflétt — 1969
Samtök frjálslyndra og vinstri
manna stofnuð — 1975 Fyrst
skorið á tog\'íra brezks togara
(„Þór“/„Primella“) — 1978 Flug-
slysið miklaá Sri Lanka — 1892 f.
Finnur Jónsson listmálari.
Orð dagsins. Sá sem ræður öllu
ætti að óttast allt — Pierre
Corneille, franskt leikskáld
(160*5—1684).