Morgunblaðið - 15.11.1980, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1980
Stjörnuhátíð Seltirn-
inga í Háskólabíói í dag
FJÖLBREYTT skcmmtidaiískrá
verður í Iláskólabíói i da« kl. 14.
Þar koma fram mar«ir af þekkt-
ustu listamönnum landsins ok
kynnir verður Guðmundur Jóns-
son, óperusöngvari.
Tónlist og söngur er það sem
hæst ber á skemmtuninni. Ein-
söngvarar verða Elísabet F. Ei-
ríksdóttir, sem syngur við undir-
leik Jórunnar Viðar, Elín Sigur-
vinsdóttir, sem syngur lög eftir
Selmu Kaldalóns við undirleik
hennar og Ragnheiður Guðmunds-
dóttir og Magnús Jónsson, óperu-
söngvari, sem bæði syngja við
undirleik Ólafs Vignis Albertsson-
ar. Skólakór Seltjarnarness og
Selkórinn munu einnig flytja
nokkur lög.
Sellóleikarinn Gunnar Kvaran
leikur við undirleik Gísla Magn-
ússonar og Trad-kompaníið flytur
Dixieland-tónlist. Einnig koma
fram ballettdansmeyjarnar Guð-
rún og Ingibjörg Pálsdætur og
Rúrík Haraldsson flytur gaman-
mál.
Aðgöngumiði gildir sem happ-
drættismiði og vinningurinn er
veglegt málverk, sem Sigurður Kr.
Árnason, listmálari á Seltjarnar-
nesi, hefur gefið.
Skemmtunin er haldin á vegum
safnaðarnefndar Seltjarnarness
til fjáröflunar fyrir kirkjubygg-
ingu á Seltjarnarnesi og megin-
þorri þeirra, sem fram koma á
sýningunni, eru Seltirningar. At-
hygli skal vakin á því að skemmt-
unin verður ekki endurtekin.
Frá sýningu á list- og nytjamunum úr tré i kjallara Húss iðnaðarins
við Hallveigarstíg.
HÚSIÐNAÐARINS:
Sýning á list- og
ngtjamunum úr tré
Iðnaðarmannafélagið i Reykja-
vík og framkvæmdanefnd um
„Ár trésins 1980“ standa þessa
dagana að sýningu á margs
konar munum skornum úr tré i
sýningasalnum í kjallara Húss
iðnaðarins við Hallveigarstig.
Sýningin er afar fjölbreytt og
gefur góða mynd af því hvernig
viður hefur lengi verið Islending-
um kærkomið efni til útskurðar og
listsköpunar. Rúmlega 150 munir
eru á sýningunni en höfundar eru
33 talsins.
Þarna gefur einnig að líta
myndir úr íslenskum skógi og
sýnishorn af ýmsum viðartegund-
um bæði innlendum og erlendum.
Þessi sýning er bæði forvitnileg '
og fróðleg og fólk er eindregið
hvatt til að nota tækfærið og
skoða með eigin augum. Slík
sýning verður ekki haldin aftur
hér á næstunni — en hún er opin
daglega, á virkum dögum frá kl.
4—9 og á laugardögum og sunnu-
dögum frá kl. 2—10 fram til 23.
nóv.
I nefnd þeirri er Iðnaðarmanna-
félagið skipaði til að sjá um
framkvæmd þessarar sýningar
eru Helgi Hallgrímsson, Karl
Sæmundsson, Jónas Sæmundsson,
Sæmundur Sigurðsson og Þorkell
Skúlason. í samstarfsnefnd um
„Ár trésins" eru Snorri Sigurðs-
son, Hulda Valtýsdóttir og Sigurð-
ur Blöndal. Ráðgjafi um val hluta
og uppsetningu var Jóhannes Jó-
hannesson, listmálari, en aðstoð-
armaður að því er skógrækt varð-
aði, Einar E. Sæmundsen arkitekt.
Fjölmenni var á fundi Hvatar þar sem fjölskyldumál voru til umræðu.
Fjölskyldumál á
fundi hjá Hvöt
í TILEFNI af útkomu bókarinn-
ar „Fjölskyldan í frjálsu samfé-
Iagi“, sem út kom á vegum
Landssambands sjálfstæðis-
kvenna og Hvatar. félags sjálf-
stæðiskvenna í Reykjavík, 24.
október sl., efndi Ilvöt til íélags-
fundar. þar sem efni hókarinnar
var til umræðu. Fluttar voru
fimm stuttar framsoguræður og
síðan voru pallborðsumræður,
sem Davíð Oddsson borgar-
fulltrúi stýrði. Ilúsfyllir var á
fundinum og mikill áhugi fyrir
málefninu.
Þessi mynd er úr einu atriða skemmtidagskrár Kjailarakvöldanna. Sex leikarar Þjóðleikhússins koma
þar fram, auk þess dansarar úr fslenzka dansflokknum og fimm blásarar úr Sinfóniuhljómsveitinni.
Kjallarakvöld - nýtt
andlit Þjóðleikhússins
,4levíusnið“, góður matur og næði til að tala saman
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ tekur upp nýbreytni i starfsemi sinni nk.
fostudagskvold. Hefjast þá i Leikhúskjallaranum Kjallarakvöld
með sérstökum skemmtiatriðum, góðum mat og hljóðfæraleik. „Við
ætlum að breyta andliti staðarins og koma til móts við óskir um að
fyrir hendi sé staður þar sem unnt er að fá góðan mat og njóta
skemmtunar og umfram allt að hægt sé að tala saman,“ sagði
Sveinn Einarsson þjóðleikhússtjóri á blaðamannafundi i gær um
þessa nýbreytni.
Kjallarakvöldin verða með
„revíusniði". Leikarar íýóðleik-
hússins, meðlimir úr Islenzka
dansflokknum og fimm blásarar
úr Sinfóníuhljómsveitinni koma
fram með hálftíma dagskrá í
léttum dúr. Undir borðum verð-
ur leikin létt kvöldverðartónlist
og eftir skemmtiatriðin verður
leikin danstónlist. Tónlistin
verður allan tímann á „lágu
nótunum" þannig að fólk getur
„rætt málin" á meðan. Síðast en
ekki sízt má geta matseðla
þessara kvölda. Á boðstólum
verður sérstakur matseðill með
Kjallararéttum. Þar verður
hægt að velja á milli fjögurra
rétta og er verðlagj mjög stiilt í
hóf. Hver slíkur réttur kostar
sex þúsund krónur, en einnig
verður hægt að fá tví- og þrírétt-
aðar máltíðir með venjubundnu
sniði, einnig brauðsneiðar að
hætti Þjóðleikhússins.
Svanur Ágústsson hefur yfir-
umsjón með þessari hlið mála,
þ.e. veitingunum. Hann sagði að
á Kjallarakvöldum yrði hægt að
kaupa létt vín í glasavís og að
Kjallarinn yrði með vín hússins.
Þá sagði hann fyrirhugað að
taka fyrir rétti frá ýmsum lönd-
um, en matseðillinn verður sér-
staklega auglýstur í hvert sinn.
Enginn aðgangseyrir verður að
Kjallarakvöldum, að undan-
skildu lögboðnu rúllugjaldi.
Sigríður Þorvaldsdóttir hefur
yfirumsjón með skemmtiatrið-
um Kjallarakvöldanna. Hún
sagði, að nú þegar væru þrjú
„prógrömm" undirbúin. Tvö
þeirra eru byggð á leikþáttum og
tónlist, en það þriðja verður
sérstakt ljóðakvöld og fyrsta
ljóðakvöldið a.m.k. byggir á upp-
lestri fjögurra leikara Þjóðleik-
hússins úr verkum Jóhannesar
úr Kötlum.
Kjallarakvöldin verða föstu-
dags- og laugardagskvöld, einnig
sunnudagskvöld, þegar ekki eru
flutt leikrit á litla sviðinu.
Svanur Ágústsson sagði, að
vissara væri fyrir fólk að panta
borð. Reiknað væri með að
leikhúsgestir yrðu í mat fram til
kl. átta en upp úr þeim tíma
kæmu Kjallarakvöldsgestir.
„Revían" hæfist kl. 21.30 og
stæði hún yfir í hálfa klukku-
stund en eftir það yrði stiginn
dans.
Nýtt verk á stóra sviðinu
Þá má geta þess hér, að hinn
28. nóv. nk. verður frumsýnt á
stóra sviðinu „Nótt og dagur"
eftir Bretann Tom Stoppard.
Leikurinn gerist í ímynduðu
Afríkuríki þar sem yfirvofandi
er borgarastyrjöld. Fjallar
verkið um blaðamennsku og líf
og starf blaðamanna, einnig
samkeppni þeirra í milli. Aðal-
leikarar eru: Anna Kristín
Arngrímsdóttir, Gunnar Rafn,
Arnar Jónsson og Gunnar Eyj-
ólfsson. Leikstjóri er Gísli Al-
freðsson og leikmyndir gerir
Gunnar Bjarnason. Þess má
geta, að titill leikritsins byggir á
þeirri staðreynd, að blaðamenn
vinna dag og nótt.
Háskólatónleikar
í Norræna húsinu
í KVÖLD verða aðrir Háskóla-
tónleikar vetrarins í Norræna •
húsinu og hefjast þeir kl. 18.
Tónleikar þessir eru því á öðrum
stað og tíma en venja er.
Flytjendur eru séra Gunnar
Björnsson sellóleikari og Jónas
Ingimundarson píanóleikari.
Á efnisskránni eru Sónata nr. 5
í e-moll eftir A. Vivaldi, einleiks-
svíta nr. 1 í G-dúr eftir J.S. Bach
og Sjö tilbrigði eftir Beethoven við
stef Mozarts úr Töfraflautunni.
Eftir hlé eru tvö lög úr „Jewish
Life“ eftir svissneska tónskáldið
Ernest Bloch og lýkur svo hljóm-
leikunum með Sónötu op. 38 í
e-moll eftir Johannes Brahms.
Jónas Ingimundarson er fæddur
á Bergþórshvoli árið 1944. Hann
stundaði nám við Tónlistarskól-
ann í Reykjavík og framhaldsnám
við Tónlistarskólann í Vínarborg.
Eftir að hann kom heim frá námi,
hélt hann sína fyrstu tónleika á
vegum Tónlistarfélagsins í
Reykjavík árið 1970 og hefur síðan
stundað fjölbreytileg tónlistar-
störf sem einleikari, meðleikari,
söngstjóri og kennari. Hann hefur
margsinnis komið frnin víða um
land og m.a. á öllum Norðurlönd-
unum.
Séra Gunnar Björnsson fæddist
í Reykjavík árið 1944, sonur hjón-
anna Björns R. Einarssonar,
hljómlistarmanns, og Ingibjargar
Gunnarsdóttur. Hann stundaði
nám í sellóleik hjá dr. Heinz
Edelstein og Einari Vigfússyni.
Árið 1967 lauk hann einleiksprófi í
sellóleik frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík með mjög góðum vitn-
isburði. Hann er nú sóknarprestur
í Bolungarvík.
Jonas Séra Gunnar
Inuimundarson Hjornsson
Ein sala
í Grimsby
SIGLFIRÐINGUR seldi
91,8 tonn í Grimsby í gær
fyrir 70,3 milljónir króna,
meöalverð 765 krónur á
kíló. Aflinn fór í 1. flokk. Á
mánudag landa þrjú fiski-
sKip í Bretlandi.