Morgunblaðið - 15.11.1980, Síða 30
30
MORGUNBLAÍ
ALÞÝÐULEIKHÚSIÐ:
Pœld’íðí eftir-
sótt í skólana
IIIÐ marKumtalaða unglint'a-
loikrit Pæld’íðí voríiur sýnt á
Hótrl Borx á morKun kl. 17.00. en
þart pr 18 sýnintt ok hrfur pkkrrt
lát verið á aðsókn. I»rtta Irikrit
pr eftirsótt í skólana. t.d. eru
flestir framhaldsskólar í horg-
inni húnir aó fá þaó til sýninuar
ok einnÍR er búiö aö sýna á
Akranesi ok í Keflavik. Grunn-
skólarnir eru einnÍK mikiö farnir
aö spyrjast fyrir um móKuleika á
að fá sýninguna o k nokkrir
þpKar húnir aö panta hana.
Skcmmtilojí þrátt íyr-
ir alvarlcjran undirtón
' Aukasýning verður á Þríhjólinu
í Lindarbæ á mánudagskvöld kl.
20.30 vegna mikillar aðsóknar.
Þríhjólið hefur að undanförnu
verið sýnt. til skiptis á Hótel Borg
og í Lindarbæ, en þar sem leikarar
Þríhjóls eru allir komnir í önnur
verkefni verður nú að hætta sýn-
ingum. Sýningin fékk góða dóma
og mjög jákvæðar undirtektir
áhorfenda enda er hún fyndin og
skemmtileg þrátt fyrir alvarlegan
undirtón.
í lcit að máli
Á laugardag og sunnudag kl.
15.00 verður Kóngsdóttirin sem
kunni ekki að tala sýnd í Lindar-
bæ. Sýningar ganga vel, áhorfend-
ur eru jafnt fullorðnir sem börn,
en mikið hefur verið um að
foreldrar komi með börnum sín-
um. Sérstaklega ánægjulegt væri
ef leikritið fengi því áorkað að
skilningur heyrandi barna á
vandamálum hinna heyrnarlausu
ykist; þau spyrja mikið í hléi og
lifa sig inn í sorgir og gleði
kóngsdótturinnar.
Fyrsta ástin: Páll og Pála (Sigfús Már Pétursson og Guðlaug María
Bjarnadóttir) fara upp f sumarbústað. Og til þess aö brjóta ísinn fara
þau í randafluguleik. En þaö er sárt aó láta svoleiðis kykvendi stinga
sig.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ:
Síðasta sýning d Snjó
um eins og Týndu teskeiðinni,
Saumastofunni og Blessuðu barna-
láni var gamansemin í öndvegi, en
alvaran var n.k. undirspil. í Snjó
hinsvegar er fjallað um alvarlegar
spurningar um líf og dauða, sem
hver maður hlýtur einhverntíma að
gera upp við sig og hér er því hin
alvarlega umræða í öndvegi, en
Kjartan leikur þó einnig á strengi
gamanseminnar.
Loks má ennfremur geta þess að
nú eru einungis tvær sýningar eftir
á barnaleikritinu vinsæla, Óvitum
eftir Guðrúnu Helgadóttur og verð-
ur næsta sýning á morgun kl. 15.00.
Spurningar um líf og dauða: Pétur Einarsson og Briet Héðinsdóttir i
hlutverkum sinum i Snjó.
sTilS )j
Síóasta sýningin á Snjó eftir
Kjartan Ragnarsson verður i Þjóð-
leikhúsinu annað kvöld kl. 20.00.
Leikritið var fyrst sýnt á forsýn-
ingum á Listahátíð sl. vor og síðan
formlega frumsýnt í spptember nú
i haust.
Snjór er merkilegur áfangi á ferli
svo ungs höfundar sem Kjartan er,
en verkið er fyrir marga hluti sakir
ólíkt fyrri leikritum hans. í leikrit-
Frá sýningunni i Gallerí Langbrók. Sigrún Eldjárn sagði: „Grunntónninn á bak við myndirnar er þó
kannski sá að draga fram jákvæðar og bjartsýnilegar hliðar á umhverfinu og smáatriðum sem koma
fólki við.“
GALLERÍ LANGBRÓK:
Sigrún Eldjdrn sgnir blgants-
teikningar - með vatnslitaívafi
í gær opnaði Sigrún Eldjárn
sýningu i Gallerí Langbrók á
Bernhöftstorfu. Hún sýnir þar
blýantsteikningar með vatns-
iitaívafi, allar unnar á þessu
ári.
Sigrún Eldjárn er fædd í
Reykjavík árið 1954. Hún stund-
aði nám í Myndlista- og hand-
íðaskóla íslands 1974—77, en
hafði áður verið á námskeiðum í
þeim skóla og Myndlistaskólan-
um í Reykjavík. Sigrún var um
tveggja mánaða skeið við mynd-
listanám við listaakademíurnar í
Varsjá og Kraká í Póllandi 1978.
Hún hefur bæði haldið einkasýn-
ingar í Reykjavík og á ísafirði og
tekið þátt í samsýningum hér
heima og erlendis. Hún vinnur
við að myndskreyta bækur og
rekur eigið grafíkverkstæði.
Verk eftir Sigrúnu eru í eigu
Listasafns Islands, Listasafns
ASI og Statens konstrad í Sví-
þjóð.
Jákvæðar og bjart-
sýnislcgar hliðar
á umhverfinu
— Það er nú ekki svo auðvelt
fyrir mann aö útskýra myndir
sínar, sagði Sigrún — sérstak-
lega þar sem ég vil helst að þær
séu að mestu leyti óútskýrðar og
meiningin óljós. Fólk á að hafa
frelsi til að finna út úr þeim það
sem það helst vill. Þó má segja
að sumar þessara mynda dragi
fram minningar; gamlar fjöl-
skyldumyndir og alls konar
barnaleikir, sem mér finnst mik-
ilvægt að fólk muni eftir.
Grunntónninn á bak við mynd-
irnar er þó kannski sá að draga
fram jákvæðar og bjartsýnilegar
hliðar á umhverfinu og smá-
atriðum sem koma fólki við.
Sýningin í Langbrók er opin
alla virka daga frá kl. 12—18, en
er lokuð um helgar.
KVIKMYNDIR:
Karate upp d líf og
dauða í Laugardsbíói
LISTASAFN
ISLANDS:
SVAVAR GUÐNASON
LISTASAFN ISLANDS
Sýning á
verkum
Svavars
Guðnasonar
Sýning á verkum Svavars
Guðnasonar í Listasafni Islands
hefur nú staðið í hálfan mánuð
og verður opin daglega til 30.
nóvember. Frá og með 17. nóv-
ember verða sýningartímar sem
hér segir:
Laugardaga og sunnudaga kl.
13.30— 22.00, en aðra daga
13.30- 16.00.
Athygli skal vakin á því ein-
stæða tækifæri sem hér gefst til
að kynnast verkum eins ágæt-
asta listamanns þjóðarinnar,
sem flest eru í eigu listamanns-
ins sjálfs.
Skólum skal bent á, að nem-
endum stendur til boða að skoða
sýninguna í fylgd kennara utan
áðurnefnds sýningartíma, eftir
nánara samkomulagi.
(FréttatilkynninK).
í GÆR frumsýndi Luugar-
ásbíó kvikmyndina „Karate
upp á Iíf og dauða" (The
Silent Flute) með David
Carradine í aðalhlut-
verkinu.
Blindur maður situr hátt
til fjalla og fagnar döguninni
með flautuleik. í dal fyrir
neðan safnast menn af
mörgu þjóðerni til að keppa í
vígaíþrótt „tómrar handar“.
Cord fylgist með því, hvernig
dansarinn Morthond vinnur
sigur á hverjum andstæð-
ingnum á fætur öðrum. Loks
gefst Cord tækifæri til að
ganga á hólm við Morthond,
en þá fer svo, að hann beitir
óleyfilegri aðferð og fellir
Morthod, en Morthond er
dæmdur sigurinn. Cord mót-
mælir, en dómarinn segir, að
hann sé ekki fær um að leita
Zetan uppi og reyna að ná
frá honum bók upplýsingar-
innar.
Cord fer leiðar sinnar en
vinnur það heit, að hann
skuli finna Zetan og fræðast
um sannleikann um bókina
með því að veita Morthond
eftirför. Oft virðast helst
horfur á, að hann hljóti að
lúta í lægra haldi.