Morgunblaðið - 15.11.1980, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1980
37
þAD HVARFLADI AD MÉR
III
Karl Helgason lögfræðingur:
Opið bréf korn til ykkar
Opið bréfkorn til ykkar.
Sæl og blessuð!
Ég verð að segja ykkur frá
samtalinu við strákana um dag-
inn. Ég spurði einn er ég hitti á
förnum vegi, hvernig hann yrði
sér úti um áfengi.
— Það er ekkert mál, maður,
bara að rétta út hönd.
— Nei, ýktu nú ekki ...
— Ykja ... Þú ert ekki tengd-
ur maður ...
- Ha?
— Þú ert ekki í sambandi.
Maður fer bara í skápinn heima
— eða kjallarann ef kallinn
sem verða alkar — maður er
ekkert að pæla í því.
— Nei, lagsi, það verður ekki
séð fyrir, vel gerðir menn að öllu
leyti eru líka í hættu.
— Hv’eldurðu maður sé að
hugsa svo langt fram í tímann?
— Læknar hafa bent á að þeir
sem byrja að drekka um ferm-
ingu geti orðið drykkjusjúkir á
10 mánuðum — en fyrir þá sem
byrja um eða yfir tvítugt tekur
það oft um tíu ár. Þetta er
vissulega mjög einstaklings-
bundið en þú sérð muninn ...
— Það er alltaf verið að
hræða mann með einhverju —
að sjá þær í saumaklúbbnum um
daginn.
— Baddi, þú ert ekki nema 13.
Hann var , í svip eins og
hugsi...
— Heldurðu það sé hættu-
legt?
— Ég veit það, Baddi.
— Já, líklega. / Hann þagði
litla stund. / Nei, strákarnir
djúsa, það er ómulegt annað ...
— Ekki allir?
— Nei, en þeir töffustu.
— Er það? Eru þeir töffarar
af því?
— Kannski ekki — en ...
kannski ...
bruggar. Biður einhvern að
kaupa fyrir sig. Ef maður kemst
inn á sveitaball er sko hellt í
mann — meira þó í stelpurnar
... Svo getur maður bara farið í
næstu búð og keypt pakka en það
er náttúrlega soldið seinlegt að
meika það. —
— Áttu við að þú kaupir
bruggefni?
— Auðvitað — og sykur mað-
ur — ekki gleyma sykrinum.
— Og hvað segja foreldrar við
fimmtán ára krakka sem
brugga?
— Það er nú ekkert meðan
maður sýður ekki líka.
Blessaður vertu, ég segi þeim
bara að þetta sé miklu betra en
ég fái mér bokku, þetta sé svo
dauft — þá þakka þau sínum
sæla. En ég get auðvitað orðið
fullur af því líka.
— Drekkur þú tii að verða
fullur?
— Ja, vel þéttur, þá er maður
töff.
— Veistu að því yngri sem
þeir eru sem fara að drekka —
því hættara er þeim við að verða
ofdrykkjumenn eða drykkju-
sjúkir.
— Það eru bara aumingjar
en maður er bara töff og tekur
ekkert mark á þessum köllum. /
Stutt þögn. / Kannski er þetta
rétt — það er bara ekki hægt að
vera edrú í partýjum og svoleiðis
— hinir eru allir í því.
— Er þetta ekki hugsana-
villa? Viljið þið ekki flest láta
áfengið vera en finnst að þið
verðið að vera með?
— Ha, heldurðu það ...? Æ,
ég get ekki verið að tala lengur
um þetta. Ég segi bara eins og
þau gömlu: Tölum um þetta
seinna. Ég er upptekinn. Góði
vert’annars ekki á tauginni út af
mér — talaðu heldur við hann
Badda þarna — hann er bara 13
... Veðja við þig bokku að hann
sé með hland í flöskunni. Hann
er sko harður í djúsinu!
Og Baddi hafði líka sögu að
segja. Þó fannst honum öllu
erfiðara að komast yfir áfengi —
en það reddaðist, sagði hann.
Hann taldi að „kallinn og kell-
ingin" vissu ekki að hann drykki,
a.m.k. töluðu þau ekki um það.
— Iss, þau geta hvortsemer
ekkert sagt. Þau djúsa ef þau
fara að skemmta sér — líka ef
einhverjir koma — þú hefðir átt
Einhverjir kölluðu — hann tók
á rás.
Og — virðið mér vel — það
hvarflaði að mér: Getum við ekki
gert eitthvað saman, þú og ég?
Þið vitið — þetta er ekkert
sjálfsagt... Við foreldrar getum
ekki alltaf skotið okkur á bak við
að félagarnir ráði ferðinni. Fé-
lagar barnsins hans Sigurðar
Guðmundar Jóns — eru það ekki
barnið mitt og barnið þitt?
Mér dettur í hug að segja
ykkur frá athugunum dr. Bern-
hards Brons við háskólann í
Bonn. Hann hefur borið saman
fjölda rannsókna um áfengi,
tóbak og önnur fíkniefni og
dregið af þeim ályktanir.
Ein niðurstaðan er sú að bein
fylgni sé milli neysluvenja for-
eldra og barna þeirra. Hann
bendir því á að opinskáar við-
ræður foreldra og barna — og
sjálfsgagnrýni beggja aðila — sé
nauðsynleg til að bæta úr því
slæma ástandi sem nú ríkir.
Gæti verið að þetta ætti erindi
við okkur?
En — punkt áður en ég geri
þetta of flókið:
Kyssið ungana frá mér,
Kalli.
Kvenfélag Karlakórs Reykjavíkur:
Basar og kökusala
í DAG verður haldinn hinn árlegi basar Kvenfélags Karlakórs
Reykjavíkur og hefst hann kl. 14.00 á Hallveigarstöðum.
Margt góðra muna er í boði, t.d. dúkar, púðar, sokkar, svuntur,
vettlingar, o.m.fl. Einnig mikið úrval af kökum.
Hjálparsjóður
Garðasóknar:
Árleg söfnun
fer fram um
helgina
HIN ÁRLEGA söfnun til Hjálpar-
sjóðs Garðasóknar fer fram nú um
helgina. Félagar úr Kvenfélagi
Garðabæjar, Rotary-klúbbi
Garða, Kiwanisklúbbnum,
Lionsklúbbnum, Junior Chamber
og Bræðrafélagi Garðakirkju ann-
ast söfnunina. Sjóður þessi er
sameiginlegur sjóður bæjarbúa og
veitir hann aðstoð þeim, er verða
fyrir óvæntum áföllum.
Á morgun fer fram guðsþjón-
usta í Garðakirkju. Þar predikar
dr. Björn Björnsson prófessor.
Garðakórinn syngur hátíðartón-
list undir stjórn Þorvalds Björns-
sonar.
Innilegar þakkir til allra er minntust okkar á
GullbrúÖkaupsdaginn.
SIGURBJÖRG BJARNADÓTTIR,
TÓMAS LÁRUSSON,
ÁLFTAGRÓF.
Til sölu
Flextrac Fn 60 snjóbifreiö, árg. ’73.
Upplýsingar í síma 97-1436.
Höfum opnað
aö Langholtsvegi 19
ALLT NÝJAR VÖRUR
Opiö kl. 17—23.30 virka daga og kl.
10—23.30 laugardaga og sunnudaga.
SÖLUTURNINN
Langholtsvegi 19, sími 83343.
■ 1
Kvennadeild
Reykjavíkurdeildar
Rauða Kross íslands
Föndur og kökubazar
kvennadeildarinnar veröur haldinn sunnudaginn 16.
nóv. n.k. aö Hallveigarstöðum viö Túngötu. Húsiö
veröur opnaö kl. 14. A boöstólum veröa kökur, úrval
af handunnum jólavörum og leikföngum auk ýmissa
annarra muna. 0...
Stjornm
I
Auglýsing um námskeiö
fyrir þá sem hætta
vilja reykingum
Reykingavarnarnefnd auglýsir námskeiö fyrir þá sem
hætta vilja aö reykja. Námskeiöiö veröur haldiö
dagana 16. til 20. nóvember, hvert kvöld og hefst kl.
20 í stofu 101 í Lögbergi, húsi Lagadeildar, á lóð
Háskóla íslands. Námskeiöiö er þátttakendum aö
kostnaöarlausu.
Leiöbeinendur og fyrirlesarar veröa: Jón H. Jónsson
frá íslenska bindindisfélaginu og læknarnir Auöólfur
Gunnarsson, Hjalti Þórarinsson, Kjartan Jóhanns-
son, Siguröur Björnsson og Sigurgeir Kjartansson.
Þátttaka tilkynnist í síma 82531 og 13899 milli kl.
13—17 í dag og sunnudag.
Fólk er eindregið hvatt til þess aö nota þetta tækifæri
til þess aö losna úr viöjum vanans og stuöla aö bættu
heilsufari.