Morgunblaðið - 15.11.1980, Page 48
Síminn á afgreiöslunni er
83033
2M«r0iinbIobii>
^Sími á ritstjórn og skrifstofu:
10100
JMargunblobib
LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1980
Kjaradómur hækkaði
BKM-laun um 0,7%
Launamálaráð BHM telur brýnt að knýja
fram breytingar á samningsrétti BHM
KJARADÓMUR kvað nýlega upp úrskurð í máli launamálaráðs
ItandalaKs háskólamanna og fjármálaráðherra vegna endurskoðunar
kjarasamninKs bandalagsins. Kjaradómur féllst á kröfur fjármálaráð-
herra um 0.7% meðaltalsha'kkun launataxta BHM. en kröfur þess
voru um 6% kauphækkun, en meðaltalshækkun BSRB var á bilinu 4
til 6% ojí kauphækkun í samningum ASÍ o« VSÍ varð að mati BHM 9
til 11%.
í fréttatilkynninnu frá Banda-
lani háskólamanna sejfir að
skömmu eftir að BSRB hafi samið
við ríkið, hafi BHM krafizt 6%
hækkunar og endurskoðunar kjara-
samnings. Samninganefnd ríkisins
hauð hins vegar samræmingu við
neðri hluta launastiga BSRB eða
0,7% meðaltalshækkun. Samning-
ar tókust ekki og var málið því lagt
í kjaradóm, sem samþykkti kröfur
fjármálaráðherra.
BHM segir í fréttatilkynning-
unni, að í lögum um kjarasamninga
Smásíld í afla
báta í Lónsbug
SÖLTUN síldar upp í gerða
samninga við Sovétmenn,
Finna og Svía er nú á lokastigi.
Framleiðsla á ediksöltuðum
síldarflókum er nú að hyrja af
krafti í Vestmannaeyjum, en
síld verður cinnig verkuð á
þennan hátt í Dorlákshöfn,
(írindavik og Kcflavík. Sam-
tals var samið um fyrirfram-
sölu á 225.500 tunnum af salt-
síld og 10.000 tunnur af edik-
saltaðri síld til V-býzkalands.
í gær voru fjórir nótabátar að
veiðum í Reyðarfirði, en afli var
tregur. Við Stokksnes syðst í
Ijónsbug voru 12—15 bátar í
gær. Voru þeir allt upp á þriggja
faðma dýpi og höfðu margir
orðið fyrir því að rífa nætur
sínar. Þá var nokkuð um smá-
síld í aflanum og þurftu nokkrir
bátar að henda síld vegna
smæðar. Slíkt hefur ekki áður
gerzt á vertíðinni og síldin verið
stór og falleg til þessa.
Á þriðjudag og miðvikudag
var lítil síldveiði, sæmileg á
mánudag en góð á sunnudag og
fimmtudag. Sjávarútvegsráðu-
neytið hefur heimilað veiðar á
rösklega 50 þúsund tonnum af
síld á vertíðinni.
opinberra starfsmanna segi, að
kjaradómur skuli „gæta þess við
úrlausnir sínar, að ríkisstarfsmenn
njóti sambærilegra kjara og þeir
menn með svipaða menntun, sér-
hæfni og ábyrgð, sem vinna hlið-
stæð störf hjá öðrum en ríkinu".
Síðan tilfærir BHM könnun Hag-
stofu íslands frá 1977, sem sýnt
hafi 39% launamismun ríkisstarfs-
mönnum í óhag og er þar um vegið
meðaltal að ræða. Ekkert benti til
þess að sá mismunur hafi minnkað,
því að tvær kannanir Félags við-
skiptafræðinga frá í apríl 1979 og
1980 sýni 35% og 45% launamis-
mun.
Launamálaráð BHM telur að
Kjaradómur hafi ekki farið að
ákvæðum kjarasamningana um
viðmiðun við kjör á almennun
vinnumarkaði í dómum sínum.
Ráðið telur því brýnt að knýja
fram breytingar á samningsrétti
BHM hið fyrsta.
Verðlagsráð:
íslenska landsliðið í handknattleik tapaði með fimm marka mun 14—9, fyrir
heimsmeisturum Vestur-Þjóðverja í gærkvöldi í Laugardalshöllinni. Það sem varð
íslenska liðinu fyrst og fremst að falli var að leikmenn nýttu ekki upplögð
marktækifæri. Hér er Steindór Gunnarsson í einu þeirra, fór algjörlega óhindraður
inn af línunni en lét markvörðinn verja hjá sér. Sjá íþróttir bls. 46 og 47.
LjÓKin. Kristján
Ágreiningur um hækkanir á
bíómiðum, gosi og brauðum
- flugfargjöld og möl hækka líklega á mánudaginn
VERÐLAGSRÁÐ afgreiddi á mið-
vikudaginn hækkanir á sex vöru-
tegundum auk útseldrar vinnu.
sem Mbl. skýrði frá í ga‘r. Þessar
hækkanir eru: 8% hækkun á
innanlandsflugi. 9% hækkun á
möl í stcypu, 20% hækkun á
fargjöldum Landleiða hf„ 9%
hækkun á gosdrykkjum, 10,3 —
14,3% ha>kkun bíómiða og 4,7-18%
hækkun á hrauðum. Af þessum
ha kkunum er líklegt að hækkan-
ir á flugfargjöldum og möl komi
til framkvæmda á mánudaginn.
eins og hækkun útseldu vinnunn-
ar, þar sem þa‘r eru ekki yfir 9%,
en hinar þurfa va*ntanlega að
afgreiðast á ríkisstjórnarfundi.
en næsti reglulegi ríkisstjórnar-
fundur er á þriðjudaginn.
Flugleiðir hf. sóttu um 14%
hækkun á fargjöldum í innan-
landsflugi, en verðlagsráð sam-
þykkti að heimila 8%. Sú hækkun
þýðir t.d. að farmiði á flugleiðinni
Reykjavík-Akureyri hækkar um
2.000 krónur, en hann kostar nú
25.200 krónur og farmiði báðar
leiðir kostar helmingi meira. Sótt
var um 25% hækkun á möl í
steypu, en verðlagsráð samþykkti
að heimila 9% hækkun. Hækkun
sú, sem verðlagsráð heimilaði
Landleiðum hf., er jafnhá beiðni
fyrirtækisins, en 20% hækkun
þýðir t.d. að einstakt fargjald milli
Hafnarfjarðar og Reykjavíkur
hækkar úr 600 í 720 krónur, en
fyrirtækið selur farmiðakort með
sem næst 22% afslætti. Einstakt
innanbæjarfargjald í Hafnarfirði
hækkar úr 230 kr. í 276 krónur.
Þota Air Bahama nauðlenti í París:
Hjólbarði sprakk og hurð-
in á hjólahúsi þeyttist af
Fannst skömmu síðar í Englandi
EIN DC-8 þota Flugleiða, sem
nú er í leigu hjá Air Bahama,
varð að nauðlenda í París sl.
fimmtudagskvöld vegna bilun-
ar. Var vélin nýlega lögð af stað
frá London álciðis til Nýju
Delhi þegar hurð á hjólahúsi
vélarinnar þeyttist af og flug-
menn ákváðu að lcnda á næsta
góða flugvellinum. sem var
Charles de Gaulle flugvöllur við
París.
Sveinn Sæmundsson blaða-
fulltrúi Flugleiða tjáði Mbl. í
gær, að þota þessi væri nú í leigu
hjá Air Bahama og sinnti
fragtflugi fyrir Air India, en hún
flýgur einkum á leiðinni milli
London og Nýju Delhi og greindi
Sveinn þannig frá atburðinum:
Þotan var nýlega lögð af stað
frá London og komin í fulla
flughæð Jægar flugmenn fundu
hnykk og aðvörunarljós í stjórn-
klefa kviknuðu, sem sýndu að
hurð á hjólahúsi væri í ólagi.
Ákváðu flugmenn að lenda á
Charles de Gaulle flugvelli við
París, sem var næsti stóri flug-
völlur en áður varð að losa
allmikið eldsneyti. Lendingin
gekk vel og þegar farið var að
athuga hjólabúnaðinn kom í ljós
að einn hjólbarðinn hafði
sprungið á flugi og við það hafði
hurðin þeyst af. Lögreglan í
Seven Oaks í Englandi fann
síðar hurðina, en ekki er kunn-
ugt um að hún hafi valdið
slysum.
Þotan var enn í París í gær, en
þar átti viðgerð að fara fram og
bjóst Sveinn við að henni yrði
lokið fljótlega og myndi þá
förinni haldið áfram til Nýju
Delhi. Sveinn kvað sjaldgæft að
hjólbarðar spryngju þannig á
flugi, en þess væru þó dæmi, þótt
það hefði ekki komið fyrir á þotu
Flugleiða áður. íslenskir flug-
menn hafa að undanförnu ann-
ast nokkuð flug fyrir Air Ba-
hama og var einn Islendingur
áhafnarmeðlimur, Jóhann
Kristinsson flugvélstjóri.
Þessar hækkanir voru afgreiddar
samhljóða í verðlagsráði, en full-
trúar ASÍ, Jón Sigurðsson og
Jóhannes Siggeirsson, sátu hjá við
atkvæðagreiðslurnar.
Fulltrúar ASÍ greiddu hins veg-
ar atkvæði gegn hækkunum á
bíómiðum, gosdrykkjum og brauði
og sögðu það dæmigert fyrir leik
stjórnvalda gagnvart vísitölu, að
þessar hækkanir skyldu koma til
umfjöllunar í verðlagsráði sama
dag og útreikningar nýrrar vísi-
tölu voru birtir.
Kvikmyndahúsin sóttu um 18%
hækkun á aðgöngumiðaverði, en
meirihluti verðlagsráðs- samþykkti
10,3% hækkun á fullorðinsmiðum,
sem þýða hækkun úr 1.450 í 1.600
krónur, og 14,3% hækkun á barna-
miðum, sem þýðir hækkun úr 700 í
800 krónur. Bakarar sóttu um
20—36% hækkun á brauðum, en
meirihluti verðlagsráðs samþykkti
hækkun á bilinu 4,7% á fransk-
brauðum til 17—18% á maltbrauð-
um og seyddum rúgbrauðum. Gos-
drykkjaverksmiðjurnar sóttu um
18% hækkun, en meirihluti verð-
lagsráðs samþykkti 9%.
Þrír bátar
með loðnu
ÞRJÚ skip tilkynntu Loðnunefnd
afla í gærdag og fyrrakvöld,
Skarðsvík, Hafrún og Jón Finns-
son voru með 400 tonn hver bátur.
Lítið hefur verið að finna sunnan
íssins síðustu daga, en skipin
fengu þennan afla þó á Halanum.
Einhver peðringur hefur verið á
þeim slóðum, en aðeins að litlu
leyti í torfum.