Morgunblaðið - 20.11.1980, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1980
Áfengi og tóbak
hækka um 18%
ÚTSÖLUR Áípiikís- ok tóbaksversl-
unar ríkisins voru lokaóar í kut, en
ákveðin hafði verið 18% meðaltals-
hækkun áfenjtis ok tóhaks o« unnu
starfsmenn ÁTVR í kst við verð-
breytinuar. Er þetta í fjórða sinn
sem áfcngi hækkar á árinu, en
tóbak hefur ha'kkað þrisvar á þessu
ári.
Sem fyrr segir er hækkunin 18%
að meðaltali bæði á vín og tóbak.
Pakki af sÍRarettum hækkar úr kr.
1.135 í kr. 1.340 og vindlapakki
hækkar úr 1.210 kr. í 1.430 eða úr
1.670 í 1.970 kr. eftir tegundum. Þá
hækka vín einnig um 18% að meðal-
tali, whiskyflaska hækkar úr 15.300 í
18.100 kr., brennivín úr 11.000 í 13.00
kr. og vodka úr 14.700 í 18.100 kr. í
ársbyrjun kostaði sígarettupakki kr.
905, whiskyflaska kr. 11.100 kr. og
brennivín 8.000 kr.
Fyrsta hækkunin á áfengi og
tóbaki á árinu var 19. mars, en hún
var kringum 12%. Áfengi og tóbak
hækkaði næst hinn 10. júní og þá
einnig um 12%, en 16. september
hækkaði aðeins áfengi og þá um 9%.
Sáttafundur í Hraun-
eyjafossdeilunni í dag
SAMNINGAFUNDUR hefur verið
hoðaður í kjaradeilu verkalýðsfélag-
anna á Tungnaársva'ðinu i dag
klukkan 14, en samningar tókust
ekki þar fyrir nokkrum dógum. þar
sem Vinnuveitendasamhand fslands
gat ekki falli/.t á tillogu sáttanefnd-
ar. sem fram kom. Eitt aðal ágrein-
ingsefnið er upphaf gildistíma samn-
ingsins, sem verkalýðsféhjgin vilja
að verði 27. októher. en VSI að hann
Landsfundur Al-
þýðubandalags-
ins hefst í dag
LANDSFUNDUR Alþýðuhanda
lagsins hefst í dag klukkan 18 að
Ilótel Loftleiðum í Reykjavík. Lúð-
vík Jósepsson, íormaður Alþýðu-
handalagsins. setur fundinn og í
kvóld flytur hann ra'ðu um ástand
og horfur í stjórnmálunum.
Siðdegis á laugardag verður eftir-
maou Lúð' íksá formannsstóii kjör-
inu og hefur náðst samstaða um
Svavar Gestsson til þess.
Á morgun flytja Svavar og Ólafur
Ragnar Grímsson ræður á lands-
fundinum um lífskjör og atvinnu-
þróun og sjálfstæðismál. Ráðgert er
að landsfundinum Ijúki síðdegis á
sunnudaginn.
verði frá undirskriftardegi.
Vegna þess, að einn verktakinn við
Hrauneyjarfoss stendur tímalega illa
með verk sitt, sem hann á að hafa
skilað fyrir áramót, hefur Vinnuveit-
endasamhand Islands heimilað und-
anþágu frá verkbanni því sem það
hefur boðað. Hefur verið unnið þar
efra í fyrradag og í gær að undirbún-
ingi steypuvinnu, en verkið mun
fyrirsjáanlega stöðvazt, þegar kemur
að steypunni sjálfri. Mun nauðsynlegt
að ljúka þessu verki fyrir frost.
Verktaki þessi er Vatnsvirki. í gær
munu menn ekki hafa fengið neitt
kaffi þar efra og hefur einn kokkur
verið þar við vinnu, sem alls ekki mun
vera nóg. Sáttatillaga í deilunni var
um 11,2% kauphækkun og frá því er
hún var lögð fram, hafa menn reynt
alls konar áþreifingar, en allt fyrir
ekki.
Sigurður Óskarsson, framkvæmda-
stjóri Verkalýðsfélagsins Rangæings,
sem boðaði verkfallið þar efra, sem
síðan hafði í för með sér verkbannsað-
gerðir VSÍ, kvaðst í gær vona, að
deilan leystist á sáttafundi í dag.
Hann kvað verkalýðsfélögin hafa
samúð með Vatnsvirkja og hafa boðið
honum undanþágu frá verkfallinu,
gegn yfirlýsingu um að Vatnsvirki
greiddi umsamda kauphækkun frá 27
október. Þetta hefði fyrirtækið sjálft
viljað en VSÍ komið í veg fyrir.
Blaðamenn og útgef-
endur sömdu í gær
SAMNINGAR tókust milli samn-
inganefndar Blaðamannafélags ís-
lands og viðsemjenda félagsins um
hádegisbil í ga-r og voru þeir
undirritaðir með fyrirvara um
samþykki samningsaðila. Félags-
fundur í Illaðamannafélaginu er
boðaður i dag klukkan 15 og
verður hann i Ilótel Ileklu við
Rauðarárstlg.
Lokalota samningaviðræðnanna
stóð í 22 klukkustundir, en næsti
sáttafundur á undan stóð í 30
klukkustundir. Hækkunin, sem
blaðamenn fengu var 11,06%, vegið
meðaltal, en hækkun á launaflokka
var á bilinu 9% til 14,9%. Samning-
urinn gildir til 1. nóvember 1981 og
frá undirskriftardegi 19. nóvember.
Gildir þar sama regla og um aðra
kjarasamninga innan prentiðnað-
arins, scm gilda frá undirskriftar-
degi. Samningar bókagerðarmanna
gilda frá 17. nóvember.
Ýmsar sérkröfur blaðamanna
náðust fram, til dæmis hluta-
greiðsla yfirvinnu í veikindum. Um
menntunarmál blaðamanna féllust
útgefendur á að greiða laun í
ákveðinn tíma, sem blaðamanna-
námskeiö standa og blaðamönnum
býðst þátttaka í á hinum Norður-
löndunum og í yfirlýsingu, sem
fylgir kjarasamningnum er blaða-
mönnum heitið, að þeim skuli gert
kleyft að fylgjast náið með innleið-
ingu nýrra starfshátta á ritstjórn-
um blaðanna, svo sem nýrri tækni,
þar sem notaðar eru útstöðvar með
skermum.
Stöðug vakt
við Kröflu
LANDRIS á Kröflusvæðinu er nú
orðið jafnmikið og það var fyrir
síðustu eldsumbrot þar. Jarðfræð-
ingarnir Karl Grönvold og Eysteinn
Tryggvason eru nú nyrðra og fylgj-
ast með gangi mála. Skjálftavakt,
sem jafnan hefur starfað þegar
hættuástand er talið nálgast, mun
senn taka til starfa.
Ólympíuskákmót-
ið hefst í dag
Ólympíuskákmótið var sett á
Möltu í gær að viðstöddum hundr-
uðum skákmanna frá 84 londum.
Búizt er við harðri keppni á
mótinu.
Um 700 skákmenn eru þátttak-
endur, fleiri en á nokkru öðru
ólympíumóti til þessa. Auk þess
taka keppendur frá 42 löndum þátt í
ólympíumóti kvenna í skák, sem fer
fram samtímis.
Þetta er mesti íþróttaviðburður í
sögu Möltubúa, þótt skák njóti ekki
almennra vinsælda á eynni.
Mótið hefst eftir hádegi í dag og
fer fram í sýningarsal ráðstefnu-
miðstöðvar eyjunnar. Um 160 skákir
verða tefldar undir einu þaki á
hverjum degi næstu þrjár vikur.
Skuldabréfakaup lífeyrissjóðanna:
Síldarsöltun er nú lokið víðast hvar, en annars staðar er verið að
salta síðustu síldarnar þessa dagana. I síðustu viku var mikið að gera
í söltuninni í Vestmannaeyjum og þá var meira saltað þar en áður á
vertíðinni. Vinnubrögðin eru nokkuð önnur í söltuninni en áður og nú
er ekki eins mikið lagt upp úr því að raða vel í tunnurnar. Betra er þó
að síldarnar standi ekki upp á endann. Eitt hefur þó ekki breyzt í
síldinni, bros stúlknanna, og hún Anna Dóra í Eyjum var ekkert að
spara það þegar Sigurgeir ljósmyndari blikkaði hana með myndavél-
inni á dögunum.
12,5 milljarðar hjá Fram-
kvæmda- og Byggingarsjóði
LÍFEYRISSJÓÐIRNIR höfðu um
síðustu mánaðamót keypt verð-
tryggð skuldabréf af Framkvæmda-
sjóði fyrir um 6.3 milljarða króna,
en i fjárhagsáætlun þessa árs var
Bjarg þeyttist
gegnum vegg og
inn í kaffistofu
Stykkishólmi 19. nóvrmher.
ÞAÐ óhapp varð hér i dag er
unnið var við sprengingar i
grunni viðbyggingar sjúkra-
húss Stykkishólms að bjarg
þeyttist úr grunninum inn í
húsnæði Skelfiskvinnslu Sigurð-
ar Ágústssonar. Fór það gegn-
um vegg á kaffistofu hússins og
olli þar miklum skemmdum. en
slys urðu ekki á mönnum.
Atburðurinn gerðist um kl. 17,
en unnið hefur verið að undan-
förnu við grunn viðbyggingar
sjúkrahússins og hefur m.a.
þurft að sprengja. Stórt bjarg
þeyttist úr grunninum við eina
sprenginguna og braut gat á vegg
kaffistofunnar og lenti þar inn í
öðrum enda hennar. Fólk hafði
þá nýverið gengið út úr kaffistof-
unni og var hún því mannlaus og
má telja heppni að ekki urðu nein
slys. Talsverðar skemmdir urðu á
húsnæðinu. Vinnsla skelfisks
stöðvast ekki, en til bráðabirgða
verður að notast við aðra kaffi-
stofu meðan unnið er að lagfær-
ingum. Fréttaritari
áa'tlað að lífeyrissjóðirnir keyptu
slík bréf hjá sjóðnum fyrir 7,7
milljarða króna. Um mánaðamótin
voru skuldahréfakaup lifeyrissjóð-
anna 6,2 milljarðar króna hjá
Byggingarsjóði ríkisins, en í fjár-
hagsáætlun var reiknað með 7.3
milljörðum á árinu.
Eins og fram hefur komið í
fréttum hefur Byggingarsjóður lent
í nokkrum erfiðleikum þar sem
tekjustofnar sjóðsins hafa skilað
minna fé en áætlað hafði verið.
Friðþjófur Max Karlsson, aðalbókari
Framkvæmdasjóðs, sagði í samtali
við Mbl. í gær, að kaup lífeyrissjóð-
anna til þessa á árinu hefðu verið
minni en æskilegt hefði verið. Fram-
kvæmdasjóður hefði hins vegar ekki
lent í erfiðleikum vegna þessa.
„Reynslan hefur verið sú á undan-
förnum árum, að í síðasta mánuði
ársins er mikið keypt af skuldabréf-
um. Eg get nefnt sem dæmi, að við
borgum af þessum bréfum fjórum
sinnum á ári og síðasti gjalddaginn
er 1. desember, en þá eigum við að
borga lífeyrissjóðunum hátt í 800
milljónir króna. Flestir sjóðanna
festa féð þegar aftur hjá okkur og
því kemur talsverður hluti af þessu
fé strax inn. Staðan um síðustu
mánaðamót segir því ekki alla sög-
una,“ sagði Friðþjófur.
Hann gat þess einnig, að 32
lífeyrissjóðir hefðu keypt skuldabréf
af Framkvæmdasjóði í ár, en mjög
mismikið hver sjóður. Nefndi hann,
að Lífeyrissjóður starfsmanna ríkis-
ins hefur keypt skuldabréf fyrir um
3 milljarða króna á árinu, en Lífeyr-
issjóður verzlunarmanna ekki neitt.
Sá sjóður hefur hins vegar keypt
skuldabréf af Verzlunarlánasjóði
fyrir 1158 milljónir króna á þessu
ári.
Lífeyrissjóðunum ber að verja
40% af ráðstöfunarfé sínu í kaup á
verðtryggðum skuldabréfum og auk
7,7 milljarða í Framkvæmdasjóð og
7,3 milljarða í Byggingarsjóð er á
lánsfjáráætlun gert ráð fyrir, að
lífeyrissjóðirnir kaupi skuldabréf
fyrir 464 milljónir króna hjá Stofn-
lánadeild landbúnaðarins. Fram-
kvæmdasjóður endurlánar fé til
sjóða atvinnuveganna og má nefna í
því sambandi Fiskveiðasjóð, Stofn-
lánadeild landbúnaðarins, Iðnlána-
sjóð, Verzlunarlánasjóð, Stofnlána-
deild samvinnufélaga og Lánasjóð
sveitarfélaga.
Endurráðningar flugfreyja ákveðnar:
66 í fullu starfi, 14
í hlutastörfum
Starfsmenn Flugleiða hjá samgönguráðherra:
Vilja vita hvers vegna Flugleiðir
eiga að selja hlut í Arnarflugi
ÁTTA manna nefnd starfsmanna
innan Flugleiða gekk á fund
Steingríms Hermannssonar sam-
gonguráðherra i gær til þess að
ræða við hann um mál varðandi
Flugleiðir. Morgunblaðið ræddi við
Einar Hclgason, einn af tals-
mönnum þess hóps sem kaus nefnd-
ina. en það var gert á fundi þar sem
mættir voru um 40 starfsmenn
Flugleiða sem áður voru starfs-
menn Fiugfélags Islands.
Einar sagði, að ákveðið hefði verið
að ganga á fund ráðherra, þar sem
fólk í umræddum hópi starfsmanna
Flugleiða hefði viljað vekja athygli á
því, að þegar samgónguráðherra
hefur vitn.ið í að haft hafi verið
samráð við starfsfólk Flugleiða,
hefði það ekki verið nógu víðtækt að
mati þessa hóps, sem hefði komið
saman án þess þó að ætlunin væri að
draga starfsmenn Flugleiða í dilka.
Sagöi Einar, að meðal atriða, sem
nefndin hefði rætt við ráðherrann,
væri ósk um skýringu á því hvað
raunverulega lægi að baki því
ákvæði í skilmálum ríkisvaldsins
fyrir aðstoð við Flugleiðir, að krefj-
ast þess að Flugleiðir seldu sinn hlut
í Arnarflugi. Sagði Einar, að starfs-
menn Flugleiða litu svo á, að þarna
væri verið að gefa með annarri
hendinni en taka með hinni. Sagði
Einar, að starfsmennirnir teldu um
varhugaverða þróun að ræða í þessu
sambandi og ekki í samræmi við þá
stefnu sem stjórnvöld hefðu látið í
veðri vaka að framfylgja ætti, sér-
staklega ef til stæði að styrkja
starfsemi Arnarflugs í samkeppni á
leiðum Flugleiða í dag.
Einar sagði, að ráðherrann hefði
sagt, að ekkert ákveðið markmið
væri með þessu skilyrði, en hann
hefði látið í ljós vilja sinn til þess að
endurskoða og móta stefnu í þessum
málum og til stæði að skipa nefnd í
málið.
FLUGLEIÐIR hafa nú gengið frá
endurráðningarlista fyrir Flug-
freyjur og verða 66 flugfreyjur í
fullu starfi, en 14 í hlutastörfum
þ.e. hálfu starfi.
Þá eru um 15 flugfreyjur í
barneignaleyfi til vors og nokkur
hópur flugfreyja er í launalausu
leyfi og að hluta launalausu leyfi til
vors, en þá er reiknað með að flestar
flugfreyjur sem hafa starfað að
undanförnu komi til starfa á ný.
Reiknað hafði verið með hjá
Flugfreyjufélaginu að fleiri f|Ug-
freyjur vildu hlutastörf en raun
varð á þegar málið var kannað ofan
í kjölinn.
Endurráðningarbréf til flugfreyja
verða send út nk. föstudag.
Kjarasamningar bókagerðarmanna:
Samið frá 17. nóv.
til 1. nóv. 1981
KJARASAMNINGAR bókagerð- ins í gær, að þessir samningar
armanna tóku gildi frá undir- giltu frá 1. nóv. sl. og biður
skriftardegi, 17. nóvember sl. og blaðið velvirðingar á þeim mis-
gilda til 1. nóvember 1981. Rang- tökum.
hermt var í frétt Morgunblaðs-