Morgunblaðið - 20.11.1980, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 20.11.1980, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1980 13 Frá barnaleikvclli í Amman. fullorðin móðir, amma eða frænka, sem annast börnin með- an móðirin vinnur áti. Vísi að tryggingabótum höfum við, magrar að vísu, en þó er það nokkuð sem koma skal, þótt í annarri mynd verði en á Vestur- löndum. Samkvæmt trú okkar er til dæmis gert ráð fyrir því að missi konan mann sinn, gangi bróðir mannsins að eiga hana og annist hana og þeirra börn. Sé bróðir ekki fyrir hendi er annað hvort um að ræða hjálp frá fjölskyldu hennar eða eigin- mannsins. Ef hún á enga slíka að, getur hún leitað til ráðuneyt- is míns. Sama máli gegnir um gamalt fólk sem hættir að vinna vegna aldurs. Við væntum þess í fyrsta lagi að börn annist þá foreldra sína. Sé þess ekki kostur er fjarri að þeim séu allar bjargir bannaðar, því að þá er gert ráð fyrir liðsinni okkar. — Ég er satt að segja afar glöð yfir að hafa fengið tækifæri til að takast á við þessi verkefni, segir hún að lokum, — ekki hvað sízt vegna þess að við finnum að allt sem við erum að gera fær hljómgrunn meðal fólksins okkar. Texti: Jóhanna Kristjónsdóttir Jón Trausti (Guðmundur Magnússon) Ný skáldsaga eftir Stefán Júlíusson BÓKAÚTGÁFAN Örn og Örlygur hefur sent frá sér nýja skáldsögu eftir Stefán Júlíusson, Stríðandi öfl. I frétt frá forlaginu segir, að lesendur muni væntanlega velta því fyrir sér hvort sagan sé sannsöguleg og hve mikla stoð persónur og atburðir eigi sér í raunveruleikanum. Skáldsagan Stríðandi öfl skipt- ist í tvo meginkafla. Nefnist sá fyrri Lifsins kynngi kallar og sá síðari Kolbítarnir rísa. Sagan hefst árið 1925 og er sögð af sextugum manni, sem rifjar upp fortíð sína og fjallar sagan m.a. um átök í stjórnmálum, ástum og mannlegum samskiptum. Bókin Stríðandi öfl er sett og prentuð í Prentstofu G. Bene- diktssonar og bundin hjá Arnarf- elli. Káputeikningu gerði Bjarni D. Jónsson. Ný útgáfa á Heiðar- býli Jóns Trausta Bókaklúbbur AB hefur sent frá sér í nýrri útgáfu skáldsög- una Hciðarbýlið cftir Jón Trausta, íyrra bindi. Heiðarbýlið er eins og kunnugt er framhald Höllu, sem kom út hjá Bóka- klúbbi AB fyrr á þessu ári. í tilkynningu frá BAB segir: Hin frjálslega og vel gefna Halla hefur verið táldregin af prestinum og til þess að bjarga þessum veikgeðja klerki og hamla gegn sinni eigin niðurlægingu játast hún smámenninu Ólafi. Þau flytjast á heiðarbýlið og hefja þar strið sitt, annars vegar við hörku náttúruaflanna, hins vegar við illmælgi og meinfýsni fólksins. Halla og Heiðarbýlið gerist á sjöunda áratug 19. aldar, um þær mundir þegar mikil harðindi gengu yfir á þeim slóðum þar sem sagan gerist. Saga Höllu er engin skemmtisaga, en vinsældir sínar hlaut hún strax, þegar hún kom fyrst út 1907—11, og heldur þeim enn, umfram allt fyrir hinar sönnu og lifandi lýsingar. Síðara bindi Heiðarbýlisins kemur út hjá Bókaklúbbnum á næsta ári. Bókin er 285 bls. að stærð og unnin í Prentsmiðju Hafnarfjarð- ar. Stefán Júlíusson Kuldcncxkki VENDIJAKKI 4 flíkur í cinni. Ermarnar rcnndar af cða á. Aldeilis góð kaup. herra húsió BANKASTRÆTI 7 AÐALSTRÆTI4 LAUGAVEGI47

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.