Morgunblaðið - 20.11.1980, Blaðsíða 48
c-^Síminn á afgreiðslunni er
83033
2H*TBiinbtnt>it>
jSnrgwM^i^
FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1980
Demantur m
æðstur eðalsteina -
#ttll Sc é>tlfitr
Laugavegi 35
Sáttatillaga í flugmannadeilunni:
„Brúað bil aðil-
anna þriggja“
— segir dr. Gunnar G. Schram sáttasemjari
en atkvæðagreiðsla verður um tillöguna
SÁTTATILLAÍíA í deilu flun
manna um starfsaldurslista
cndurráðninttar fyrir 1. dcs. nk.
' ar lotíð fram í tía'r af dr. Gunnari
<i. Schram sáttasimjara í dcil-
tinni.
Akveðið var að fl«t;mannafélöt;in
t;reiddu atkvæði unt sáttatillöguna
«ti verður hún dat;lega kl. 1—(>
fram til 28. nóvember. Gunnar (j.
Sehram sagði i samtali við Mbl. í
gær að ákveðið hefði verið að birta
ekki atriði sáttatillögunnar fyrr en
að lokinni atkvæðagreiðslu, en „það
var brúað bil allra þriggja aðil-
anna, Félags íslenzkra atvinnu-
flugmanna, Félags Loftleiðaflug-
manna og Flugleiða og ég vonast til
þess að allir aðilarnir þrír sam-
þykki tillöguna,“ sagði dr. Gunnar.
Félag íslenzkra atvinnuflug-
manna mun halda fund um málið í
kvöld. Samkvæmt upplýsingum
Erlings Aspelund framkvæmda-
stjóra stjórnunarsviðs F’lugleiða
munu Flugleiðir fyrir sitt leyti
samþykkja sáttatillögu sáttasemj-
ara.
Bakarar hækka
vísitölubrauðin
BAKARAMEISTARAR hafa aug
lýst nýtt verð á hrauðum. sem eru
undir verðlagsákva-ðum. án þess
að stjórnvöld hafi heimilað þessa
h.ekkun. Nýja verðið tekur gildi
nastkomandi mánudag og er
ha'kkunin á hilinu 20-31%. Svo
d.i'mi séu tekin þá ha'kkar fransk-
brauð úr 300 krónum í 3fif>
kronur. malthrauð úr 280 krónum
i 3fit krónur. normalhrauð úr 2fi3
krónum í 321 krónu og seydd
rugbrauð úr 311 krónum í 112
krónur.
\ð sögn Hannesar Guðmunds-
■“•nar, framkvamulastjóra Lands-
sambands bakarameistara, tapa
L.ikarar nú 90 krónum á hverju
fninskbrauði, 12l> krónum á seyddu
i ‘gbrauði og tapið á bakstri ann-
arra vísitölubrauða er á þessu bili.
Bakarar fóru fram á hækkun á
brauðum með bréfi 3. október sl. Á
fundi Verðlagsráðs í síðustu viku
var samþykkt 4,7% —17%> hækkun
á brauðum, en ríkisstjórnin hefur
ekki afgreitt málið.
Sagði Hannes, að allir kostnað-
arliðir hefðu hækkað verulega und-
anfarið og nefndi að auk mikils
gengissigs hefðu orðið hækkanir
erlendis á öllum helztu hráefnum í
brauðin. Auk þessa sagði Hannes,
„að vegna síendurtekinna vanefnda
á loforðum verðlagsyfirvalda og
stjórnvalda" sæju bakarameistarar
sér ekki annað fært en grípa til
þessara ráðstafana, auk þess sem
svo mjög væri klipið af hækkunar-
beiðnum bakara að óviðunandi
væri.
M S Reykjafoss. sem seldur verður til Panama. Myndina tók Ijósmyndari
Mbl. Emilía í vikunni þegar unnið var við losun í Sundahöfn.
Eimskip selur Skóga-
foss og Reykjafoss
fyrir 1200 milljónir
EIMSKIPAFÉLAG fslands hefur
selt M/S Skógafoss og var hann
afhentur nýjum eiganda í Rotter-
dam i sl. viku. Kaupandi er Sklaho-
maris Navigation (’ompany Ltd. á
Kýpur. Þá er jafnframt verið að
ga ga frá samningi um sölu á M 7S
Keykjafossi og verður skipið va'nt-
anlega afhent nýjum eiganda í
hyrjun desemher. en það verður selt
tii Panama. Söluverð hvors skips
um sig er um fiOO milljónir króna.
eða samtals um 1200 milljónir
króna.
Skógafoss og Reykjafoss eru syst-
urskip, sem voru smíðuð fyrir Eim-
skipafélagið í Danmörku hjá Aalborg
Værft árið 19fi5. Skipin hafa hvort
um sig um 170 þúsund rúmfeta
lestarrými og um 3870 tonna burð-
argetu. Skipin hafa undanfarið verið
í áætlunarsiglingum til Rotterdam í
Hollandi, Antwerpen og í Belgíu.
Þessum áætlunarsiglingum til
Rotterdam og Antwerpen ásamt sigl-
ingum til Hamborgar í Vestur-
Þýzkalandi og Felixstowe í Englandi
sinna nú ekjuskipin Álafoss og Eyr-
arfoss, sem komu hingað i haust, en
þau eru hvort um sig með um 3fi0
þúsund rúmfeta lestarrými.
Dettifoss og Mánafoss, sem önnuð-
ust siglingar til Hamhorgar og Fel-
ixstowe, sigla nú í reglubundnum
ferðum til Skandinavíu.
kominn sunnanlands og
ekki láta hörnin hann
lengi ónotaðan, því þau
eru þegar byrjuð að rií ja
upp skiðakunnáttuna.
l.josm. A4>.
*
Utsvarsálagning 1981:
Um 53% hærri
en á þessu ári
Persónuafsláttur frá útsvari hækkar þá
nokkru minna en útsvarsskyldar tekjur
REIKNAÐ er með að útsvars-
álagning 1981 verði um 53%
ha'rri en á þessu ári. Þetta kom
fram í ra>ðu sem Ólafur Davíðs-
son forstöðumaður Þjóðhags-
stofnunar flutti í fyrradag á
ráðstefnu Samhands ísl. sveitar-
félaga um fjármál sveitarfélaga.
Þá sagði Ólafúr, að áætlað væri
að meðalbrúttótekjur einstaklinga
til skatts hækki um 52% milli
tekjuáranna 1979 og 1980, þ.e.
milli gjaldáranna 1980 og 1981.
Einnig myndi álagningarstofn út-
svars hækka svipað. „Hafa ber
jafnan í huga,“ sagði Ólafur, „að
hér er um áætlað landsmeðaltal
að ræða, og tekjubreytingar í
einstökum sveitarfélögum geta
vikið nokkuð frá þessu meðaltali,
bæði til hækkunar og lækkunar."
Ólafur sagði að í fjárlagafrum-
varpi væri gert ráð fyrir, að
skattvísitala verði ákveðin 145
stig miðað við 100 stig á árinu
1980. „Þetta hefur í för með sér, að
persónuafsláttur frá útsvari
hækkar um 45% eða nokkru
minna en útsvarsskyldar tekjur.
Samkvæmt þessu má ætla, að
útsvarsálagning 1981 verði um
53% hærri en á þessu _ári að
frátalinni fjölgun. Við þær breyt-
ingar útsvarsálagningar, sem hér
hafa verið nefndar, bætast síðan
áhrif fjölgunar (eða fækkunar)
gjaldenda, eins og hún er á
hverjum stað.“
Þá sagði Ólafur einnig í ræðu
sinni að afar lausleg hugmynd um
breytingar aðstöðugjaldsstofns í
helstu atvinnugreinum milli ár-
anna 1979 og 1980 bendi til 50%
hækkunar að meðaltali.
Fasteignagjöld 1981:
Ilækka um
allt að 60%
FASTEIGNAMAT íbúðarhúsa
á höfuðborgarsva'ðinu ha'kkar
á árinu 1981 um (50%, atvinnu-
húsnæðis á sama svæði um 45%.
lóða um allt land um 50%,
útihúsa í sveitum um 45% og
fasteigna utan höfuðborgar-
svæðisins um 50%.
Þetta kom fram í ræðu Ólafs
Davíðssonar, forstöðumanns
Þjóðhagsstofnunar, á ráðstefnu
Sambands ísl. sveitarfélaga í
fyrradag sem fjallaði um fjár-
mál sveitarfélaga.
í lögum nr. 94/1976 segir, að
fasteignamati skuli breyta 1.
desember ár hvert í samræmi
við framreikning fasteignamats
eftir ákvörðun yfirfasteigna-
matsnefndar, samkvæmt tillög-
um Fasteignamats ríkisins.
Ólafur sagði í ræðu sinni að
áðurnefndar tölur væru fengnar
frá Fasteignamati ríkisins.