Morgunblaðið - 20.11.1980, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1980
Demókratar heita
Reagan samvinnu
Ronald ReaKan, nýkjörinn forseti ok George Bush, nýkjörinn
varaforseti á tröppum þinKhússins í Washington þar sem þeir
ræddu við þinKÍeiÓtojía.
Washington. 19. nóv. — AP.
RONALD Rea^an. væntanlesur
Bandaríkjaforseti. lét í k&t í
ljós þá ósk við handaríska
þinKmenn. að samskipti þeirra
ok Hvíta hússins yrðu með
öðrum braK ok betri en verið
hefði um nokkurt skeið. Hann
saKðist ekki hafa í hyKKju „að
KanKa fram af þinKÍnu“ ok hafa
talsmenn demókrata heitið hon-
um KÓðri samvinnu að svo
miklu leyti sem málefnin seKÍ
til um.
Reagan átti annasaman dag í
Washington í gær. Hann hitti að
máli leiðtoga beggja flokka í
liffds. 19. nóv. AP.
ALRÆMDASTI fjöldamorð-
ingi í Hretlandi. „morðinginn
frá Yorkshire“. er enn að
verki ok nú hefur fundist
hans 13. fórnarlamh. 20 ára
gömul stúlka. Jacqueline Hill
að nafni. að því er logreglan í
Leeds upplýsti í dag.
Lík stúlkunnar fannst í gær í
runnagróðri nálægt stórverslun í
norðurhverfum borgarinnar en
þar lét morðinginn fyrst til skarar
skríða þegar hann myrti vændis-
konuna Wilmu McCann árið 1975.
Að sögn lögreglunnar var lík
stúlkunnar hræðilega útleikið en
þó leyndi sér ekki hver hafði verið
að verki.
Níu fórnarlömb morðingjans
hafa verið vændiskonur en fjögur
„sómakærar konur“ að sögn lög-
reglunnar. Morðingjanum frá
Glistrup
grýttur
MOGENS Glistrup lét ekki á sig fá
þó örfáir ræflar gerðu aðsúg að
honum á fundi sænska framfara-
flokksins. Glistrup gerði ekki hlé á
ræðu sinni þótt eitt egg hæfði hann í
andlitið, þurrkaði ekki slepjuna
framan úr sér fyrr en að ræðunni
lokinni.
Yorkshire er stundum líkt við
hinn fræga Kviðristu-Kobba eða
„Jack the Ripper", sem á nokkrum
vikum myrti sex vændiskonur i
London árið 1888. Uppi á honum
hafðist aldrei.
Leitin að „Yorkshire-morðingj-
anum" er sú mesta og dýrasta sem
um getur í sögu bresku lögregl-
unnar. 250 manns taka þátt í
henni og hafa sér til aðstoðar 400
lögregluforingja í þeim borgum
sem við sögu koma. 195.000 manns
hafa verið spurðir spjörunum úr,
175.000 farartæki hafa verið rann-
sökuð, leitað hefur verið í 30.000
húsum og framburður 23.000
manna hefur verið skjalfestur.
Allt án árangurs.
báðum deilum þingsins og að auki
yfirmann bandarísku leyniþjón-
ustunnar, Stansfield Turner. For-
seti fulltrúadeildarinnar, Thomas
O’Neill, sem mun verða talsmaður
demókrata í deildinni þegar Reag-
Kvennamorðinginn frá
Yorkshire enn að verki
Veður
víða um heim
Akureyri -7 hálfskýjaó
Amsterdam 10 skýjaó
Aþena 22 skýjaó
Berlín 8 sólakin
BrUsael 9 skýjaó
Chicago 5 heiðskírt
Feneyjar 12 þokumóóa
Frankfurt 13 rigning
Færeyjar 3 alskýjað
Genf 11 sólskin
Helsinki 4 rigning
Jerúsalem 25 heióskírt
Jóhannesarborg 24 rigning
Kaupmannahöfn 11 skýjað
Las Palmas 22 alskýjaó
Lissabon 19 sólskin
London 15 rigning
Los Angeles 23 heiðskírt
Madrid 16 þoka
Malaga 20 hálfskýjað
Mallorca 19 léttskýjaó
Miami 31 heiðskirt
Moskva 4 rigning
New York 4 heióskírt
Osló 0 heiðskírt
Paris 14 skýjaó
Reykjavík -2 skýjað
Ríó de Janeiro 29 heiðskírt
Rómaborg 14 skýjaó
Stokkhólmur 9 skýjað
Tel Aviv 24 heióskírt
Tókýó 8 heiðskírt
Vancouver 10 rigning
Vínarborg 11 sóiskin
an hefur tekið við embætti, sagð-
ist hafa lofað Reagan því, að
demókratar myndu fara sér hægt í
gagnrýninni fyrstu sex mánuðina
en að þeir ætluðu sér þó að vera
harðir í horn að taka þegar þurfa
þætti.
Demókratar munu hafa meiri-
hluta í fulltrúadeildinni og því
geta orðið Reagan erfiður ljár í
þúfu en í öldungadeildinni verða
repúblikanar í meirihluta á næsta
þingi.
Auk þess að ræða við leiðtoga
stjórnmálaflokkanna sat Reagan
veislu með frammámönnum ým-
issa samtaka í Washingtonborg, í
viðskiptum, menningarmálum,
trúmálum og með formönnum
íþróttasamtaka. „Við ætlum að
forðast mistök Carters," sagði
einn starfsmanna Reagans.
„Reagan vill ekki aðeins þekkja
fólkið í borginni, hann þarf líka á
hjálp þess að halda."
Átök í rétt-
arsalnum
Flórens, 19. nóvember — AP.
RENATO Curcio og þrettán aðr-
ir forsprakkar Rauðu herdeild-
anna voru í dag leiddir handjárn-
aðir út úr réttarsal í Flórens eftir
að þeir létu formælingum rigna
yfir dómarann og slógust við
lögreglumenn, sem reyndu að
fjarlægja þá.
Fyrri dómar yfir glæpamönnun-
um, sem m.a. hafa á samvizkunni
morðið á Aldo Moro, voru stað-
festir að þeim fjarstöddum, en í
þeim er kveðið á um 8—16 ára
fangelsisvist.
CIA-samsæri gegn Somoza?
l/ondon. 19. nóvemher. AP.
BREZKUR málaliði. sem er fyrir
rétti í London fyrir fjárkúgun.
John Banks. hélt því fram í dag.
að Jimmy Carter forseti ok ráðu-
nautar hans í öryggismálum
hefðu staðið á bak við samsa ri
um að myrða Anastasio Somoza.
fyrrverandi einra*ðisherra í Nic-
aragua.
Banks er ákærður fyrir að
krefjast 250.000 dollara af sendi-
ráði Nicaragua í Ix>ndon fyrir að
stöðva hið meinta samsæri. Um
tveir mánuðir eru síðan Somoza
var veginn úr launsátri í Para-
guay, þar sem hann dvaldist í
útlegð eftir að honum var steypt í
júlí 1979.
Banks bar fyrir rétti í Old
Bailey, að hann hefði hitt „Frank
Sturgess ofursta úr CIA“ í hóteli í
London og ofurstinn hefði sagt að
reyna ætti að ráða Somoza af
dögum. „Mér var sagt, að skipanir
um banatilræðið hefðu komið frá
Carter forseta og ráðunautum
hans í öryggismálum," sagði
Banks.
Hann sagði samkvæmt frásögn
„Sturgess", að Somoza-stjórnin
væri að falli komin, en ef Somoza
héldist við völd væri fyrir hendi
möguleiki á kúbanskri innrás. „Ef
hægt yrði að drepa Somoza mundi
stjórnarandstaðan mynda hóf-
sama ríkisstjórn og ekki vilja lúta
algerum yfirráðum Kúbumanna,"
sagði Banks.
Banks hélt því fram, að komið
hefði verið í veg fyrir banatilræðið
þar sem menn úr árásarflokknum
hefðu ekki viljað drepa hægrisinn-
aðan forseta.
1449 — Kristján af Aldinborg
krýndur konungur Danmerkur.
1616 — Richelieu kardináli
skipaður ráðherra utanríkismála
og hermála í Frakklandi.
1656 — Svíar láta Austur-
Prú»8land af hendi við Branden-
borgara.
1719 — Stokkhólmsfriður Sví-
þjóðar og Hannovers, sem fær
Bremen.
1720 — Tordenskjöld aðmíráll
fellur í einvígi við Staeál von
Ilolstein.
1759 — Sjóorruatan á Quiber-
onflóa. Sigur Breta á Frökkum.
1780 — Bretar segja Hollending-
um stríð á hendur.
1818 — Simon Bolivar lýsir form-
lega yfir sjálfstæði Venezúela frá
Spáni.
1870 — Þjóðverjar umkringja
París.
1873 — Borgirnar Buda og Pest
sameinaðar og verða höfuðborg
Ungverjalands — Króatar fá
sjálfstjórn.
1901 — Annar Hay-Pauncefoot-
sáttmáli, sem kveður á um að
Bandaríkjamenn leggi Panama-
skurð.
1917 — Orrustan við Cambrai —
Stofnun lýðveldis í Úkraínu lýst
yfír.
1924 — Uppreisn Kúrda'í Tyrk-
landi bæld niður.
1945 — Stríösglæpamenn nazista
leiddir fyrir rétt í Nörnberg —
Bandamenn samþykkja flutninga
á sex milljónum Þjóðverja til
V-Þýzkalands frá Austurríki,
Ungverjalandi og Póllandi.
1947 — Brúðkaup Elízabetar
Bretaprinsessu (síðar drottn-
ingar).
1959 — Fríverzlunarsamtök Evr-
ópu, EFTA, stofnuð.
1970 — Aðild Kína að SÞ fær
hreinan, en ekki tilskilinn tvo
þriðju meirihluta.
1977 — Anwar Sadat Egypta-
landsforseti ávarpar ísraelsþing
og býður frið.
1979 — Þrettán bandarfskum
gislum sleppt í Teheran.
Afmæli. Sir Christopher Hatton,
enskur stjórnmálaleiðtogí
(1540-1591) - Seima Lagerlöf,
sænsk skáldkona (1858—1940) —
Robert Kennedy, bandarískur
stjórnmálaleiðtogi (1925—1968) —
Gene Tierney, bandarisk leikkona
(1920-).
Andlát. 1591 Sir Christopher
Hatton, stjórnmálaleiðtogi —
1910 Leo Tolstoy greifi, rithöfund-
ur — 1935 Jellicoe lávarður, sjó-
liðsforingi — 1938 Maud Noregs-
drottning.
Innlent. 1393 Hólabardagi (Ósig-
ur Björns Jórsalafara fyrir Þórði
Sigmundssyni) — 1449 Karl
Knútsson Bóndi krýndur konung-
ur Noregs í Þrándhcimi — 1752 d.
Sigurður Vigfússon íslandströll —
1763 Vígð Hóladómkirkja - 1920
Líkneski Þorfinns Karlsefnis af-
hjúpað í Fíladelfíu — 1929 Fyrsti
fundur Útvarpsráðs — 1959 Við-
reisnarstjórn Ólafs Thors, fimmta
ráðuneyti hans, skipuð — 1975
Samkomulag við Vestur-Þjóðverja
í Bonn.
Orð dagsins. Hann var rithöfund-
ur, sem var svo lítið þekktur, að rit
hans voru allt að þvi trúnaðarmál
— Staniey Walker, bandarískur
blaðamaður (1898—1962).
Norman Mailer með einni af eiginkonunum — þeirri sjöttu.
Kvœntist þeirri 5.
og 6. — en gleymdi
að skilja
New York, 19. nóvember. AP.
BANDARÍSKI rithöfundurinn
Norman Mailer kvæntist eig-
inkonu nr. 5 og nr. 6 í síðasta
mánuði en nú hefur lögfræð-
ingur nokkur í Boston bent
honum á að honum sást alveg
yfir einn hlut — að hann er
enn kvæntur eiginkonu nr. 4.
Gerald Nissenbaum, lögfræð-
ingur Bererly Mailer, fjórðu
eiginkonu Normans, sagði í við-
tali, að „ef Norman er kvæntur
enn á ný þá er hann tvíkvænis-
maður“. Talsmaður Mailers
við þá 4.
sagði, að Mailer hefði að vísu
kvænst tvisvar í síðasta mánuði
en það hefði hann gert til að
börn hans með 5. og 6. konunni
væru ekki óskilgetin.
Þegar Nissenbaum var spurð-
ur hvað hann héldi að vakað
hefði fyrir Mailer, sagði hann:
„Norman Mailer er líklega
mestur bandarískra rithöfunda
nú á tímum og ég get ekki látið
mér detta annað í hug en að
hann hafi sett saman einhverja
æsisöguna og sé nú að reyna að
upplifa hana sjálfur."