Morgunblaðið - 20.11.1980, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 20.11.1980, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1980 Ræöa Wang Bingqian, fjármálaráöherra Kína á ársfundi Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóösins ■; r\ |J BIlS w 'MÍMsRfcM 'S' Leysum úr læðingi jákvæða þætti markaðshagkerfisins Um sl. mánaðamót var haidinn í Washington árlegur fupdur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóða- hankans. Á þessum fundum eru það yfirleitt ræður fulltrúa helztu iðnríkjanna. svo sem Bandaríkjanna. Bretiands. Frakklands, Japans og Þýzkalands. sem mesta athygli vekja. Að þessu sinni fór það þó ekki á milli mála. að það var ræða kínverska fjármálaráðherr- ans. sem hiustað var á af mestri athygli, en Alþýðuiýðveldið Kína átti nú í fyrsta sinn sæti á þessum fundi. í ræðunni lýsti ráðherrann fullum vilja stjórnar sinnar til náinnar efnahagssamvinnu á al- þjóðavettvangi jafnt við iðnríkin sem þróunarlondin. Ilann gerði einnig hreinskilnislega grein fyrir efnahagsörðugieikum Kínverja og þeim mistokum. sem þeim hefði orðið á í stjórn þeirra mála. Sömuleiðis lýsti hann þeirri stefnu. sem nú hefur verið mótuð og hyggist á hagnýtingu góðra kosta markaðskerfis- ins undir leiðsögn almennrar áætlunargerðar sam- fara þróun viðskipta og samvinnu við erlenda aðilar Ita'ðan fer hér á eftir í lausiegri þýðingu úr ensku, en hún virðist ekki síður áhugaverð fyrir Islendinga en aðrar þjóðir. Mér er það mikil ánægja að ávarpa í dag ársfund Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins og Alþjóða- bankans. Ég þakka Hr. Jamal, Hr. de Larosiére og hr. MacNamara og öðrum fulltrúum í framkvæmda- stjórnunum fyrir hlý orð í garð kínversku sendinefndarinnar. Ég þakka hr. Jamal stjórnarformanni fyrir ávarp hans á þessum árs- fundi Ég hlýddi einnig með áhuga á ávarp hr. Carters forseta er hann bauð okkur veikomin á þennan ársfund og á ræður hr. de Larosiére og hr. MacNamara. Ég vil taka undir með öðrum í stjórninni þegar boðnir eru vel- komnir nýir meðlimir þessara tveggja stofnana, Zimbabwe, St. Lucia og St. Vincent og Grene- dine-eyjar. Þetta er í fyrsta sinn sem sendinefnd frá Alþýðulýðveldinu Kína tekur þátt í ársfundum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Al- þjóðabankans. Frá báðum þessum stofnunum komu sendinefndir fyrr á þessu ári til Beijing (Pek- ing) í boði kínversku stjórnarinn- ar til samninga vegna þátttöku stjórnar Alþýðulýðveldisins Kína í Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Al- þjóðabankanum. Samningar tók- ust fljótt vegna þess að báðir aðilar lögðu sig fram og vegna góðs stuðnings margra fulltrúa í stjórn stofnananna. Alyktanir um aukningu á hlut og framlagi Kína og um að bæta við framkvæmda- stjóra voru samþykktar af stjórn- unum áður en þessi fundur hófst. Fyrir hönd okkar Li Baohua, fulltrúa Kína í framkvæmda- stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, vil ég bera fram þakkir til hr. de Larosiére, hr. MacNamara og allra ríkisstjórna og fulltrúa í stjórnum stofnananna, sem veittu Kína heilshugar stuðning. Við í kínversku sendinefndinni komum til þessa ársfundar stjórna Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans til að styðja alþjóðasamvinnu í efnahagsmál- um, stuðla að gagnkvæmum skiln- ingi og vináttu og læra af góðri reynslu annarra þjóða. Héðan í frá mun Kína, er nú nýtur rétt- inda sinna og uppfyllir skuldbind- ingar sínar, að sínu leyti stuðla að alþjóðasamvinnu í samræmi við markmið þessara stofnana. I Kína minnumst við þess að 31 ár er liðið frá stofnun Alþýðulýð- veldisins Kína. Á þessu 31 ári hefur þjóð okkar náð merkum áföngum með þrotlausri viðleitni sinni. Landbúnaður hefur tekið framförum, í iðnaði hefur verið Jagður grundvöllur að auknum vexti og viðgangi og lífskjör kín- versku þjóðarinnar hafa batnað. En efnahagsþróun í Kína er til- tölulega skammt á veg komin miðað við þróuð landbúnaðar- og iðnaðarlönd. Kína er enn þróun- arland. Efnahagsþróun Kína var sveiflukennd um margra ára skeið. Sérstaklega var tímabilið frá 1966—1976 áratugur ringul- reiðar, og á þeim tíma urðu alvarlegar truflanir á efnahagslíf- inu. Eftir að bundinn var endi á það óreiðuástand hefur stöðug- leiki og einhugur ríkt í landinu; efnahagslífinu var fljótlega komið á réttan kjöl og vöxtur hófst að nýju. Einhuga vinnur kínverska þjóðin full sjálfstrausts og án afláts að hinu stórhuga markmiði sínu, að færa til nútímahorfs landbúnað sinn, iðnað, vísindi og tækni og einnig varnir landsins. Þótt við munum án efa mæta ýmsum erfiðleikum í framtíðinni, erum við þess fullvissir að við munum sigrast á þeim. Horfurnar í efnahagsmálum Kínverja eru bjartar. Á síðastliðnu ári hófum við að vinna eftir áætlun um samhæf- ingu, umbætur, eflingu og endur- bætur í þjóðarbúskapnum. í sam- ræmi við þetta hyggjumst við auka samhæfingu til að leiðrétta meiriháttar misræmi í efnahags- lífinu, bæta fjármálastjórn, efla þau fyrirtæki, sem þegar starfa, og endurbæta ástandið á sviði vísinda, tækni og fjármálastjórn- ar, til að efnahagskerfið sem heild megi þróast á heilbrigðan og samhæfðan hátt. Viðleitni okkar á síðasta ári hefur þegar skilað frumárangri. Framfarir hafa orð- ið í landbúnaðar- og iðnaðar- framleiðslu. Einkum eftir að fyrstu ráðstafanir voru gerðar til samhæfingar og eflingar tóku gæði framleiðslu okkar að aukast, vöruval er fjölbreyttara og dregið hefur úr notkun hráefna og orku við framleiðsluna. Iðnaðarfram- leiðsla eykst nú á traustari grunni. Á sama tíma höfum við hækkað greiðslur fyrir fram- leiðsluvörur landbúnaðarins og hliðargreina hans, lækkað ýmsa skatta í sveitum og fellt suma niður, hækkað laun og aukið hlunnindi verkamanna og skapað atvinnutækifæri í bæjum og borg- um. Á aðeins einu ári gerðum við allar þessar mikilvægu og raunar nauðsynlegu ráðstafanir til að bæta lífskjör fólksins, þæði í borgum og til sveita. Það reyndist hins vegar ógerlegt að skera niður þegar í stað framlög til fjárfrekra framkvæmda. Og vegna galla og mistaka í störfum okkar kom fram halli á fjárlögum ríkisins. Við munum vinna að því að

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.