Morgunblaðið - 20.11.1980, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1980
33
minnka hallann stig af stigi og
þurrka hann alveg út er við
komum á betra jafnvægi í efna-
hagsmálum og aukum framleiðslu
og framkvæmdir. En efnahagur
ríkisins þróast nú á heilbrigðan
hátt. Landbúnaður, léttur iðnaður
og þungaiðnaður eru að ná betra
jafnvægi vegna samhæfingar í
uppbyggingu. Framleiðsla neyslu-
vara hefur aukist merkjanlega og
vöruframboð er mikið. Það hefur
orðið talsverð aukning á einka-
sparnaði bæði í bæjum og til
sveita vegna hærri launa og traust
á gjaldmiðli landsins er mikið.
Staðreyndir sýna að hinar mikil-
vægu ráðstafanir sem við höfum
gert á síðastliðnu ári hafa hleypt
auknum þrótti í efnahagslíf lands-
ins.
Samt eru fjöldamörg vandamál
sem við eigum eftir að greiða úr
smám saman, eftir því sem hag-
kerfið þróast. Kína er ekki efnað
land. Þjóðarframleiðsla á mann er
enn mjög lítil. Nauðaþurftaland-
búnaður er enn ríkjandi. Sam-
göngur og grundvallarþjónusta er
ófullnægjandi. I iðnaði er fram-
leiðslutækni og stjórnun ennþá
fremur skammt á veg komin.
Okkur skortir þjálfaða vísinda-
menn og stjórnendur, og mennta-
kerfi okkar er enn tiltölulega
vanþróað. Til að hraða þróun
efnahagslífsins erum við að vinna
að endurbótum á fjármálastjórn
jafnframt þeirri samhæfingu í
uppbyggingu sem á sér stað. Við
hyggjumst veita fyrirtækjunum
meira frjálsræði í eigin málum, og
við munum beita þeim hagstjórn-
artækjum sem felast í verðlagn-
ingu, álagningu skatta, vaxta-
ákvörðunum og hagnýtingu
bankalána í samræmi við heildar-
áætlanir um þjóðarbúskapinn og
leysa þannig úr læðingi jákvæða
þætti markaðshagkerfisins. Með
þessum endurbótum á hagstjórn-
inni hyggjumst við stuðla að því
að yfirburðir mismunandi lands-
svæða og héraða njóti sín, tryggja
samkeppni milli mismunandi
svæða og fyrirtækja, og hvetja til
samruna fyrirtækja og samvinnu,
sem er báðum aðilum til hagsbóta,
og virkja áhuga, frumkvæði og
hugmyndaauðgi byggða, héraða,
fyrirtækja og starfandi einstakl-
inga.
Við höfum gert tilraunir í þessa
átt á undanförnum tveimur árum
í ýmsum fyrirtækjum, og í öllum
tilvikum hafa þær aukið fram-
iciðslu og fjárhagslega hag-
kvæmni. Er fimmta þjóðþing al-
þýðunnar koma nýlega saman í
þriðja sinn samþykkti það þessa
leið til endurbóta á hagstjórninni
og við munum markvisst beita
okkur fyrir þessum ráðstöfunum á
öllum sviðum.
í viðleitni okkar við að hraða
framkvæmd áætlana um nútíma-
legri vinnubrögð í Kína munum
við halda okkur við þær forsendur
að treysta einkum á okkar eigið
framtak, en við munum einnig
leitast við að auka utanríkisversl-
un okkar, flytja inn þróaða tækni,
notfæra okkur erlent fjármagn,
auka samvinnu á efnahags- og
tæknisviðum við aðrar þjóðir og
læra af sérfræðiþekkingu þeirra í
vísindum, tækni og stjórnun.
Þetta eru ekki bráðabirgðaráð-
stafanir heldur langtímastefna,
sem við munum fylgja. Heildar
inn- og útflutningsverslun Kína
hefur vaxið hratt á síðustu árum
og efnhagssamvinna okkar við
önnur lönd hefur aukist bæði að
magni og fjölbreytni. Ýmislegt
hefur áunnist á sviðum eins inn-
flutningi á þróaðri framleiðslu-
tækni og heilum tækja- og véla-
samstæðum, jafnhliða viðskiptum,
samvinnu um nýtingu auðlinda og
iðnaðarframleiðslu, sameign fyr-
irtækja, tilboðum í mannvirkja-
gerð, tækniráðgjöf og þjálfun á
sérhæfðu starfsfólki. Kínahanki
hefur stofnað til viðskiptasam-
banda við 975 banka í 144 ríkjum
og svæðum og undirritað lána-
samninga við nokkra erlenda
banka. Fyrir skömmu hóf kín-
verska stjórnin að þiggja langtíma
opinber lán með lágum vöxtum og
hefur stjórnin gert slíka samninga
við nokkur ríki. Áður en við
Kínverjar tökum erlend lán hug-
um við að sjálfsögðu vandlega að
möguleika okkar á endurgreiðslu.
Með það fyrir augum að auka
utanríkisverslun okkar og efna-
hags- og tæknisamvinnu við önnur
lönd, höfum við þegar sett lög, og
höldum áfram að undirbúa viðeig-
andi lagasetningu, um efnahags-
mál til að tryggja sanngjarnan
rétt og hagsmuni erlendra fjár-
festingaraðila og samverka-
manna. Það er mikið svigrúm
fyrir aukningu á verslun og efna-
hags- og tæknisamvinnu milli
Kína og annarra landa.
Efnahagsútlitið í heiminum er
mjög dökkt. Verðbólga, samdrátt-
ur í hagvexti og greiðsluerfiðleik-
ar í milliríkjaviðskiptum eru al-
menn vandamál. í þróuðum ríkj-
um er stöðvun samfara verðbólgu
og ný kreppa. Mörg þróunarlönd
hafa orðið áþreifanlega vör við
fjármagnsskort á alþjóðlegum
lánamarkaði og þurrð á lánum til
langs tíma til þróunarverkefna.
Orkuvandamálið veldur öllum
auknum áhyggjum. Árásar- og
útþenslustefna heimsyfirráðaafla
eru enn ein ógnunin við frið og
öryggi í heiminum, og hún á þátt í
að draga úr jafnvægi í alþjóða-
efnahagsmálum. Ef heimsyfir-
ráðaöflunum verður ekki haldið í
skefjum, er ekki hægt að tryggja
heimsfriðinn og efnahagsþróunin
í heiminum mun bíða alvarlegt
tjón.
Miklar breytingar hafa átt sér
stað í heiminum, bæði í stjórnmál-
um og á efnahagssviðinu, síðan
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og Al-
þjóðabankinn voru stofnaðir.
Mörg lönd hafa öðlast sjálfstæði
og þau reyna að hraða efnahags-
þróun sinni. Hið alþjóðlega pen-
ingakerfi, sem komið var á í
Bretton Woods, tiær ekki lengur
að þjóna þörfum okkar við nýjar
aðstæður og því þarf að breyta,
þannig að fljótlega verði hægt að
koma á nýju, réttlátu og skyn-
samlegu alþjóðlegu peningakerfi.
Samskipti norðurs og suðurs
eru mikilvægur þáttur sem taka
þarf tillit til í viðleitninni við að
koma á nýrri alþjóðlegri skipan
efnahagsmála. Á efnahagssviðinu
stangast hagsmunir á, en norður
og suður eru einnig háð hvort
öðru, og þau ættu að leita að
sanngjarnri lausn með viðræðum
og samningum á jafnréttisgrund-
velli. Við teljum, að það sé nauð-
synlegt að koma á í náinni framtíð
skynsamlegu og stöðugu alþjóð-
legu peningakerfi til að greiða
fyrir vexti alþjóðaviðskipta og
hins alþjóðlega efnahagskerfis.
Við teljum að þróuðu löndin ættu
að afnema viðskiptahömlur gagn-
vart þróunarlöndunum til að bæta
viðskiptaskilyrði hinna síðar-
nefndu. Þróuðu iðnaðarlöndin
ættu að gera meiri gangskör að
því að skuldhinda sig til að auka
efnahags- og tækniaðstoð við þró-
unarlöndin. Allar þessar ráðstaf-
anir eru auðvitað í þágu þróunar-
landa, en þegar allt kemur til alls,
munu þær einnig stuðla að stöðug-
leika og hagvexti í þróuðu löndun-
um sjálfum.
Vandamál þróunarríkjanna
voru áður á margan hátt einnig
vandamál Kínverja, og nú stendur
landið frammi fyrir sama verkefni
og þau, að hraða þróun efnahags-
lífsins. Sem sósíaliskt þróunar-
land vill Kína eiga vinsamlega
samvinnu við önnur ríki Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins og Alþjóða-
bankans, einkum þróunarlöndin,
og læra af góðri reynslu þeirra.
Við erum reiðubúnir að taka
höndum saman við ykkur öll í
sameiginlegu átaki til að gera
Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Al-
þjóðabankanum kleift að veita
aukna þróunaraðstoð.
Lærið vélritun
Ný námskeið hefjast þriðjudaginn 25. nóv. og lýkur
fimmtudaginn 18. des. Kennsla eingöngu á raf-
magnsritvélar, engin heimavinna.
Innritun og upplýsingar í síma 41311 eftir kl. 13.
Vélritunarskólinn,
Suðurlandsbraut 20.
I
" FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTAR-
STÖÐINNI
Ganilir sem nýir...
allir þurta
ljósastillingu
Verið tilbúin vetrarakstri
með vel stillt Ijós, það
getur gert gæfumuninn.
Sjáum einnig um allar
viðgerðir á Ijósum.
Höfum til luktargler, spegla,
samlokur o.fl. I flestar
gerðir bifreiða.
r
GBAM
FRVSTIKISTUR
BRÆÐURNIR
ORMSSON h/f
LÁGMÚLA 9 SÍMI 38820
KyiuiIu þér
nýjan heim
gólfdúkafrá
GAFSTAR
Fjölbreytt munstur.
Fleiri litir.
Aukin þægindi.
Breidd 2m-2,75m-
3,65m-4m.
urínn
Siöumúia 15 simi 3 30 70
590 Itr. - Br. 160 cm
470 Itr. - Br. 130 cm
220 Itr. Br. 70 cm
FYRSTA FLOKKS FRÁ
FÖNIX
HÁTÚNI 6A,SÍMI 24420
EF ÞAÐ ER
FRÉTTNÆMT
ÞÁ ER ÞAÐ I
MORGUNBLAÐENU
VI f.lASlNf.A
KtMtNN KK:
22480
— 1x2
13. leikvika — leikir 15. nóv. 1980
Vinningsröð: XX 1 — X 1 1 — 1 X 2-1 2 1
1. vinningur: 11 réttir — kr. 1.407.500.-
6546 18588 25608(4/10)
30494(4/10) 40202(2/11, 10/10)
2. vinningur: 10 réttir — kr. 44.100.-
851 5247 9294* 13612 25379 30741* 35703
852 5803+ 10538 14078+ 25385* 31529 40482
2264 5851+ 11687+ 14084 25938 32014+ 57795
2302 6029 11701 14182+ 26020* 32505 59016
3765 6845 12117 14681 26024 31108
4462 7593 12419 16023 26964* 32599
4506 7924 12837 16327+ 27507 33058
4517 8213 13399 16592 27625 35235
4986 8215 13560 17046+ 29130* 35534 *
: (2/10)
Kærufrestur er tii 8. desember kl. 12 á hádegi. Kærur skulu
vera skriflegar. Kærueyöublöö fást hjá umboösmönnum
og á aöalskrifstofunni. Vinningsupphæöir geta lækkaö, ef
kærur veröa teknar til greina. Handhafar nafnlausra seöla
(+) veröa aö framvísa stofni eöa senda stofninn og fullar
upplýsingar um nafn og heimilisfang til Getrauna fyrir lok
kærufrests.
GETRAUNIR — íþróttamiðstöðinni — REYKJAVÍK
Okkur
vantar
duglegar
stúlkur og
stráka
'Hringið
1« símali
35408
% b
Miðbær:
Laufásvegur frá 2 — 57.
Þingholtsstræti.
Laugavegur frá 1—33.